Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Page 20
20 Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Stórafmæli 80 ára % Sigríður Ó. Ellingsen, Holtsbúð 87, Garðabæ. Trausti Magnússon, Ólafsvegi 32, Ólafsfirði. 75 ára_______________________ Elnar Jónsson, Hringbraut 50, Reykjavík. 70 ára_______________________ Erla Þóroddsdóttir, Hraunbæ 178, Reykjavík. Erla Jóhannsdóttir, Hraunbæ 74, Reykjavík. Margrét Ásgeirsdóttir, 1* Mávabraut 4d, Keflavik. Ómar Elísson, Háholti 29, Akranesi. Hann verður aö heiman í dag. Aase Vllborg Madelaire Dunn, Hnjúkabyggð 27, Blönduósi. 60 ára_______________________ Guörún V. Ragnarsdóttir, Seljabraut 66, Reykjavik. Karl Sigurðsson, Bræðratungu 5, Kópavogi. Þórunn Matthíasdóttir, Þverholti 7, Mosfellsbæ. Bjarni Ólafur Kristjánsson, Aðalstræti 41, Þingeyri. Sigurður Jónasson, ráðgjafi hjá European Consulting Partners og framkvæmdastjóri ZooM, Kristnibraut 35, Reykjavík. í tilhefni afmælisins er fjölskylda Sigurðar með opið hús fyrir ættingja, vini og starfsfélaga að Súlunesi 7, Garðabæ, i dag, milli kl. 16.00 og 19.00. Stefán Sigurðsson, veitingamaður á Vitanum í Sandgerði, Brekkustíg 2, Sandgeröi, veröur 50 ára laugard. 18.5. nk. Stefán og eiginkona hans, Brynhildur Kristjánsdóttir, taka á móti gestum föstudagskvöldiö 17.5. milli kl. 20.00 og 23.00 á Vitanum. Halldóra Birna Gunnarsdóttlr, Blöndubakka 16, Reykjavik. Guðrún Ingveldur Baldursdóttir, Reynilundi 5, Akureyri. Lilja Rnnbogadóttir, Þverholti 4, Akureyri. Gunntaugur S. Stefánsson, ( Heydölum, Breiödalsvik. Una A. Sölvadóttir, Norður-Nýjabæ, Hellu. 40?rG__________________________________ Sveinbjörn Gizurarson, Aflagranda 7, Reykjavík. María Aletta Margeirsdóttir, Bröndukvísl 21, Reykjavík. Jón Guðbjörn Bjarnason, Markarflöt 14, Garðabæ. Georg Óskarsson, Suðurbraut 6, Hafnarfirði. Kristmann Kristmannsson, Ölduslóð 45, Hafnarfiröi. Þorgils Óttar Mathiesen, Lóuási 7, Hafnarfirði. Óiafur Elís Gunnarsson, starfsmaður Útgerðarfélags Akureyringa, Hjallalundi 13a, Akureyri. Svandís Þóroddsdóttir, Löngumýri 32, Akureyri. Ólöf Guðmundsdóttir, Hvammi, Akureyri. . ^Brynja Marvinsdóttlr, Engjavegi 18, Selfossi. Sigþrúður Jónsdóttir, í Tröð, Selfossi. Jaröarfarir • IJ.IIMilllMIWWMW————■ Valgerður Jónsdóttir, Þangbakka 10, Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugar- neskirkju föstud. 17.5. kl. 13.30. Útför Guðjóns Jónssonar, Hafnarstræti 47, Akureyri, fer fram frá Akureyrarkirkju föstud. 17.5. kl. 13.30. Sölvi Guttormsson frá Síöu, Nestúni 6, Hvammstanga, verður jarðsunginn frá ^ Hvammstangakirkju 17.5. kl. 14.00. Halldóra Borg Jónsdóttir, til heimilis i Daltúni 23, Kópavogi, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstud. 17.5. kl. 10.30. Útför Helgu Stellu Guðmundsdóttur, áð- ur til heimilis í Hólmgarði 40, Reykjavík, fer fram frá Bústaðakirkju föstud. 17.5. kl. 13.30. Útför Kristjáns Elíasar Kristinssonar, ''►Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði, fer fram frá Hafnarfjarðarkirku 17.5. kl. 15.00. 50 ara FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 I>V Fólk í fréttum Örlygur Hnefill Jónsson stjórnarmaöur í Byggðastofnun Örlygur Hnefill Jónsson, hdl. og stjómarmaður í Byggðastofnun, Laugum í Reykjadal, hefur verið í fréttum vegna málefna Byggðastofn- unar. Starfsferill örlygur Hnefill fæddist á Húsa- vik 28.8. 1953 og ólst þar upp. Hann varð stúdent frá MT 1975, stundaði nám í bókmenntafræðum við HÍ 1975-76 og lauk embættispróf í lög- fræði frá HÍ 1982. Örlygur stundaði einkum sjó- mennsku á námsárum sínum, jafnt á bátum og togurum. Hann hefur rekið eigin lögfræðiskrifstofu á Húsavík frá 1982. Hann er varaþm. Samfylkingarinnar í Norðurlands- kjördæmi eystra frá 1999 og situr í stjóm Byggðastofnunar. Örlygur sat í stúdentaráði HÍ 1975-76 fyrir Verðandi, sat í stjóm kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra 1983-84 og 1988-89, var formaður ráðsins 1991-92, var varaformaður stjómar Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. og útgerðarfélaganna íshafs hf. og Höfða hf. og sat í stjóm Kísiliðj- unnar við Mývatn. Fjölskylda Eiginkona Örlygs er Valgerður Gunnarsdóttir, f. 17.7. 1955, BA í ís- lenskum fræðum og almennum bók- menntum, skólameistari Fram- haldsskólans á Laugum og fyrrv. bæjarfulltrúi á Húsavík. Foreldrar hennar: Gunnar Þór Jóhannsson, f. 2.12. 1926, d. 7.11. 1987, skipstjóri á Dalvík, og k.h., Ásta Jónina Svein- bjamardóttir, f. 27.11.1934, húsmóð- ir. Börn Örlygs og Valgerðar eru Emilía Ásta Örlygsdóttir, f. 17.10. 1977, nemi í stjómmála- og kynja- fræði við HÍ, og er sonur hennar Garpur Hnefill Valsson, f. 11.4. 2001; Örlygur Hnefill Örlygsson, f. 23.10. 1983, nemi við MA og ritstjóri Mun- ins; Gunnar Hnefill örlygsson, f. 2.1. 1990, nemi í Litlu-Laugaskóla. Háifbræður Örlygs, samfeðra, eru Kristján Jóhann Jónsson, f. 10.5. 1949, rithöfundur og kennari, en kona hans er Dagný Kristjánsdóttir, prófessor við HÍ; Jakob S. Jónsson, f. 7.5.1956, leikhússtjóri í Jönköping í Svíþjóð. Örlygur er sonur dr. Jóns Hnefils Aðalsteinssonar, f. 29.3. 1927, pró- fessors við HÍ, og Emilíu Sigurjóns- dóttur, f. 2.8. 1927, bókara á Húsa- vík. Ætt Meðal systkina Jóns em Ragnar Ingi, kennari og ljóðskáld; Stefán, forstöðumaður Norræna genabank- ans í Osló; Hákon, hagyrðingur og skógarbóndi, og Guðrún, móðir Hrafnkels héraðsskjalavarðar. Jón er sonur Aðalstein, b. á Vaðbrekku, hálfbróður Jóns, langafa Stefáns Hagalín rithöfundar. Aðalsteinn var sonur Jóns Hnefils, b. á Fossvöllum, Jónssonar, b. á Bæ í Lóni, Jónsson- ar, hreppstjóra í Hafnarnesi, Magn- ússonar, pr. í Bjarnanesi, Ólafsson- ar, sýslumanns í Haga á Barða- strönd, Árnasonar. Móðir Jóns Hnefils á Fossvöllum var Steinunn Pálsdóttir. Móðir Aðalsteins var Guðrún Björnsdóttir. Móðir dr. Jóns Hnefils var Ingi- björg Jónsdóttir, b. í Tunguhaga, Péturssonar, b. á Gíslastöðum, bróð- ur Jóns, fóður Þorsteins M. bókaút- gefanda. Pétur var sonur Óla, b. á Útnyrðingsstöðum, bróður Jóns, afa Róberts Arnfinnssonar leikara. Móðir Péturs var Guðný Pétursdótt- ir. Móðir Jóns var Sigurbjörg Jóns- dóttir. Móðir Ingibjargar var Jó- hanna Halldóra Stefánsdóttir, b. á Strönd, Jónssonar, b. i Grófargerði, Eiríkssonar. Emilía er systir Evu, móður Egg- erts Jónssonar yfirlæknis. Emilía er dóttir Sigurjóns, útvegsb. og oddvita í Útibæ í Flatey á Skjálfanda, Jónas- sonar, útvegsb. í Flatey, Jónsson- ar, b. á Finnastöðum, Péturssonar. Móðir Emilíu var Jakobína, syst- ir Marsilínu, móður Stefáns Jóns- sonar, rithöfundar og alþm., fóður Kára, forstjóra íslenskrar erfða- greiningar. Jakobína var dóttir Páls, b. á Brettingsstöðum, bróður Vilhjálms, afa Thors Vilhjálmsson- ar rithöfundar. Annar bróðir Páls var Hallgrímur, langafi Herdísar, móður Hallmars Sigurðssonar leik- hússtjóra. Systir Páls var Valgerð- ur, amma Valtýs Péturssonar list- málara. Páll var sonur Guðmundar, b. á Brettingsstöðum, Jónatansson- ar. Móðir Jakobínu var Sigurbjörg ísaksdóttir, b. á Auðbjargarstöðum í Kelduhverfi, Sigurðssonar, b. í Brekkukoti, Guðbrandssonar, b. í Sultum, Pálssonar, bróður Þórarins, afa Ólafar, langömmu Bjama Bene- diktssonar forsætisráðherra, fóður Bjöms, borgarstjóraframbjóðanda sjálfstæðismanna. Systir Guðbrands var Ingunn, langamma Sveins, ætt- föður Hallbjarnarstaðaættar, afa Kristjáns Fjallaskálds og langafa Jóns Sveinssonar, Nonna. Vilborg Sigþórsdóttir húsmóðir og fyrrv. starfsstúlka Vilborg Sigþórsdóttir, húsmóðir gagnabólstr- og fyrrv. starfsstúlka, Kaplaskjóls- vegi 31, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Vilborg fæddist á Svalbarðseyri en flutti með foreldmm sínum til Akureyrar er hún var fjögurra ára. Hún var í Bamaskóla Akureyrar, stundaði nám við Gagnfræðaskól- ann á Akureyri og lauk þaðan gagn- fræðaprófi 1932. Vilborg starfaði á Kristneshæli á unglingsárunum og fram yfir tví- tugt. Hún stundaði jafnframt saumaskap með hléum. Vilborg og maður hennar fluttu til Reykjavíkur 1941 og hefur hún verið búsett þar síðan. Auk húsmóð- urstarfa vann Vilborg á saumastofu í Reykjavík í fjögur ár en hóf síðan störf við Landakotsspítala 1972 og vann þar til 1987 er hún hætti störf- um fyrir aldurs sakir. Fjölskylda Vilborg giftist 1938 Þorsteini Þórðarsyni, f. 10.2.1915, d. 1978, hús- ara. Hann var sonur Þórðar Þórðarson- ar, f. 1846, lausamanns, og Ingibjargar Jó- hönnu Þorsteinsdótur, f. 1878, frá Harðbala i Kjós, húsmóður. Böm Vilborgar og Þorsteins eru Þór Rúnar Þorsteinsson, f. 31.8. 1938, tæknifræðingur og kennari við Borgarholtsskóla, búsettur í Kópavogi, en kona hans er Ema Ámadóttir og eiga þrjár dætur; El- ísabet Þorsteinsdóttir, f. 19.11. 1943, meinatæknir við Landspítalann við Hringbraut, búsett í Reykjavík og á hún þrjár dætur. Systkini Vilborgar: Þóra, f. 1909, d. 1977 verkakona á Akureyri og síð- an í Reykjavík; Skafti, f. 1911, d. 1985, hljómlistarmaður í Reykjavík. Foreldrar Vilborgar voru Sigþór Jóhannsson, f. 1885, d. 1940, starfs- maður Rafveitu Akureyrar, og Guð- rún Jónsdóttir, f. 1882, d. 1964, hús- móöir. Vilborg er að heiman í dag. Fímmtugur Hannes Jóhannsson bóndi og garðyrkjufræðingur í Stóru-Sandvík 5 Hannes Jóhannsson, bóndi og garðyrkjufræðingur, Stóru-Sandvík 5, varð fimmtugur í gær. Starfsferill Hannes er fæddur í Stóru-Sand- vík, ólst þar upp og hefur átt þar heima alla sína tíð. Hann gekk í bama- og gagnfræðaskóla á Selfossi, stundaði siðar nám í Garðyrkju- skóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi og útskrifaðist þaðan sem garð- yrkjufræðingur 1972. Hann hefur verið bóndi og garðyrkjufræðingur í Stóru-Sandvík 5. Hannes hefur verið formaður Skógræktarfélags Sandvíkurhrepps um árabil og hefur setið í stjóm Félags gulrófnabænda mörg undan- farin ár. Fjölskylda Hannes kvæntist 1.3. 1984 írisi Sigrid Guðmundsdóttur, f. 12.8. 1951, húsmóður. Þau skildu. For- eldrar hennár: Guðmundur Lofts- son bóndi og Marta Hanna Loftsson húsmóðir. Börn Hannesar og írisar: Jó- hanna Sigríður, f. 1982, verslunar- maður, en unnusti hennar er Guð- mundur Karl Steindórsson, kosn- ingastjóri hjá framsóknarmönnum á Selfossi; Jóhann, f. 1985, nemi við FS; Guðmundur Marteinn, f. 1986, nemi; Fjóla Signý, f. 1989, nemi. íris átti áður Maríu Dórótheu Jensdóttur, f. 1971, starfar við veisluþjónustu. Systkini Hannesar: Benedikt, f. 1951, sálfræðingur í Reykjavík, en kona hans er Lára Halldórsdóttir sálfræðingur; Sigríður Kristin, f. 1953, hjúkrunarfræðingur, búsett í Stóru-Sandvík, en maöur hennar er Samúel Smári Hreggviðsson, bygg- ingatæknir og starfsmaður Fast- eignamats rikisins; Magnús, f. 1954, líffræðingur og sér um útibú veiði- málastjóra á Selfossi, en kona hans er Margrét Ófeigsdóttir meinatækn- ir. Foreldrar Hannesar: Jóhann Hannesson, f. 1912, d. 1979, bóndi í Stóru-Sandvík, og k.h., Málfríður Benediktsdóttir, f. 1926, nú látin, húsfreyja. Merkir Islendingar Haukur Morthens dægurlagasöngvari fæddist í Reykjavík 17. mai. 1924, sonur Edvards Morthens frá Nærö í Noregi og Rósu Guðbrandsdóttur, af Lækjarbotnaætt. Meðal systkina Hauks er Kristinn listmálari, faðir Tolla myndlistarmanns og Bubba söngvara. Haukur lauk sveinsprófi í prentiðn 1948 og starfaði um skeið í ísafoldarprentsmiðju. Hann hóf söngferil sinn á stúkuskemmtunum í Góðtemlparahúsinu 1944, varð einn vinsælasti dægurlagasöngvari sem um getur hér á landi, hélt vinsældum sínum til hinstu stundar og söng ógrynni íslenskra dægurlaga inn á hljómplötur. Haukur söng m.a. með Alfreð Clausen; Crasy Rhythim- kvartett; Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar; KK-sextett; GO- kvintettinum; Orion-kvintettinum; Hljómsveit Gunnars Sveinssonar; Tríói Eyþórs Þorlákssonar; Hljómsveit Jöm Grauengaard og fjölda annarra. Hann stofnaði eigin hljómsveit 1958 og söng síðan lengst af með henni, fór söngferðir til Danmerk ', Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Englands, Sovétríkjanna, Kanada, Bandaríkjanna og Austurrikis og hlaut verðlaun og viðurkenningar i dægurlagakeppnum erlendis. Fyrsta tveggja laga plata Hauks kom út 1954 en það ár komu út níu tveggja laga plötur með honum þar sem m.a. er að finna lögin Ó borg mín borg, Bjössi kvennagull og Ég er kominn heim. Fyrsta breiðskífa Hauks kom hins vegar út hjá Fálkanum 1962 en alls mun hann hafa sungið um þrjú hundruð lög inn á hljómplötur. Haukur hóf störf sem stefhuvottur um 1963 og dró þá nokkuð úr söngnum en starfrækti þó eigin hljómsveit fram á miðjan áttunda áratuginn. Hann hóf síðan að syngja aft- ur um 1980 en síðast kom hann fram opinberlega á síðasta nýársdag sem hann lifði. Hann fékk viðurkenningu DB fyrir störf að dægurlagatónlist, var heiðursborgari Winnipegborgar, var heiðraður af STEF fyrir útbreiðslu fslenskrar tónlistar og var sæmdur fálkaorðunni 1992. Haukur lést 13. október 1992. Haukur Morthens

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.