Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002
Fréttir I>V
SkjárEinn í gærkvöld.
Húmanistar:
Mótmæltu
Silfrinu
Félagar í Húmanistaflokknum
mættu i sjónvarpshús SkjásEins í
gærkvöld þar sem þeir mótmæltu
þvi að fá ekki að taka þátt í Silfri
Egils sem fjallaði um kosningamar
í Reykjavík. í yfirlýsingu Húman-
ista kemur fram að Egill Helgason,
stjómandi Silfursins, hafi synjað
Húmanistum um þátttöku en þátt-
urinn hafi verið auglýstur með
þeim formerkjum að „leiðtogar
framboða i Reykjavík muni sitja á
palli og svara spurningum sem
brenna þegar þrír dagar eru til
kosninga." Með synjuninni telja
Húmanistar að stjómarskrá og út-
varpslög hafi verið brotin.
Ekki varð truflun á Silfri Egils
vegna mótmælanna en þar sátu fyr-
ir svörum Björn Bjamason fyrir
Sjálfstæðisflokk, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, R-lista, og Ólafur F.
Magnússon fyrir F-lista. -aþ
Kjörgengur í dag
og í framboði
Einn af fram-
bjóöendunum til
sveitarstjómar-
kosninganna á
laugardag nýtur
þeirrar sérstöðu að
vera ekki kjör-
gengur fyrr en í
dag þegar hann
nær 18 ára aldri.
Er DV ekki kunn-
ugt um að annar
frambjóðandi hafi boðið sig fram
svo skömmu fyrir kjörgengi. Þessi
ungi maður heiti Kjartan Atli Kjart-
ansson og er í 10. sæti á lista Álfta-
neshreyfingarinnar.
Aðalbaráttumál Kjartans er bætt
aðstaða ungs fólks. Kjartan vill
einnig stuðla að auknu sjálfstæði
hreppsins og er á móti því að hann
sameinist öðru sveitarfélagi, t.d.
Garðabæ. „Ef það gerist munum við
hafa mun minna að segja um ýmis
málefni sem varða hreppinn, t.d.
hvar verður byggt.“
Það er að heyra á Kjartani að
ekki sé ólíklegt að hann leggi stjóm-
málin fyrir sig. „Það er gamall
draumur hjá mér að komast inn á
þing og vonandi tekst mér það ein-
hvern tímann í framtiðinni,“ segir
þessi ungi frambjóðandi að lokum.
-HI
Klemenz
Jónsson látinn
Klemenz
Jónsson, leikari
og leikstjóri, er
látinn á áttug-
asta og þriðja
aldursári. Klem-
enz var fæddur
29. febrúar árið
1920 að Klettstíu
í Norðurárdal, sonur Jóns Jó-
hannessonar bónda og Sæunnar
Klemenzdóttur.
Klemenz stundaði leiklistar-
nám hjá Haraldi Bjömssyni
1942-1944 og framhaldsnám við
Royal Academy of Dramatic Art
í London 1945-1948. Klemenz lék
hjá LR á fimmta áratugnum, var
leikari og leikstjóri hjá Þjóðleik-
húsinu 1950-1975 og leiklistar-
stjóri hjá Ríkisútvarpinu
1975-1981.
Kona Klemenzar er Guðrún
Guðmundsdóttir og eignuðust
þau þrjú böm.
Kjartan Atli
Kjartansson.
Megn óánægja með hvernig ríkið stóð að leigu á 30 BMW-bílum:
Högg í andlitið
- segir Bogi Pálsson, forstjóri P. Samúelssonar
BMW bílar í röðum
Lögreglumaöur vaktar hér hluta BMW ftotans sem ríkiö
leigöi vegna NATO fundarins í fyrri viku.
„Það er mikil óánægja
með að ríkið skuli fara á
skjön við allar þær reglur
sem það hefur sjálft sett í
þessu máli. Það fór ekki
fram útboð eins og samræm-
ist vinnureglum hins opin-
bera. Ákveðið var að leigja
bílana af fyrirtæki sem hafði
ekki bílaleiguréttindi en
fékk þau snarlega. Þá var
um skammtímaleigu að
ræða vegna ákveðins verk-
efnis en í þeim tilvikum
hafa verið í gildi samningar
við leigubílastöðvamar. Það
voru flestar vinnureglur og
almennar siðferðisreglur
brotnar í þessu máli. Það er
óþolandi fyrir bílgreinina og
beinlínis högg í andlitið að vinna
við starfsskilyrði sem mönnum er
uppálagt að fara eftir en ríkið sjálft
fer síðcm á svig við eins og í þessu
máli,“ segir Bogi Pálsson, forstjóri
P. Samúelssonar, umboðsaðila
Toyota á tslandi, við DV.
Leiga ríkisins á 30 BMW-bílum af
B&L vegna utanríkisráðherrafund-
ar NATO í síðustu viku hefur skap-
að megna óánægju hjá öðrum bíla-
umboðum. Ekki sist vegna þess að
þeim gafst ekki kostur á að bjóða í
„pakkann" sem gat gefið um og yfir
20 milljónir króna í sölulaun. Þá
leiða menn getum að því að 30 BMW
bílar í lúxusgæðaflokki, þ.e. „ráð-
herrabílar", samsvari 4-5 mánaða
sölu lúxusbíla hér á landi. Hinni
takmörkuðu eftirspum sem sé eftir
slíkum bílum, að hámarki um 5%
heildareftirspurnarinnar, hafi verið
fullnægt að verulegu leyti á þessu
ári.
Fundurinn fór fam 14. og 15. maí.
Mánudaginn 13. maí gaf samgöngu-
ráðuneytið út bílaleiguleyfi
til B&L en venjulega tekur
allt að 6 vikur að fá slíkt
leyfi að undangengum ítar-
legum umsóknum, úttekt á
starfsemi viðkomandi fyri-
tækis og heimsókn af hálfu
leyfisveitanda.
„Þetta mál er ailt þannig
vaxið að það tapa allir á
því,“ sagði einn viðmæl-
enda DV og bætti við: „Það
hefði verið hreinlegast að
fara í útboð, að allt ferlið
hefði verið uppi á borðinu.
í stað þess að vera með
þennan leikaraskap i kring-
um leigu á bílunum hefði
verið nær að ríkið keypti
þá og notaði til að endur-
nýja bílaflota fyrir ýmsa embættis-
menn. Það veit enginn hvort kaup-
endur bílanna muni nota þá sjálfir
eða hvort þeir fari í endursölu. Ef
núverandi eigendur, sem fengu bíl-
ana með afslætti, ætla að selja þá
aftur og græða á því er umboðið að
tapa verulegum fjárhæðum á hveij-
um bíl.“
Ekki náðist í forráðamenn fleiri
bílaumboða með svokallaða lúxus-
bíla fyrir vinnslu þessarar fréttar.
-hlh
Steinharpa
í Laugardalshöll stendur nú yfir
undirbúningur fyrir tónleika Sigur
Rósar, Hilmars Arnar Hilmarsson-
ar, Steindórs Andersens, strengja-
sveita og kórs sem fram fer annað
kvöld. Á tónleikunum verður m.a.
notuð steinharpa Páls frá Húsafelli
sem gerö er úr íslensku grjóti. Er
þetta liður í Listahátíð í Reykjavík
og verður þar flutt fornkvæðið
Hrafnagaldur Óðins. Verkiö er sér-
staklega samið fyrr Listahátíð, en
það vakti mikla athygli er hluti þess
var fluttur í Barbican Centre í
London fyrir skömmu.
Rekstrarafgangur í HÍ
75 milljóna króna rekstrarafgang-
ur varð hjá kennslu- og vísinda-
deildum Háskóla íslands í fyrra og
fjárhagsstaða skólans við ríkissjóð
var jákvæð um 27 milljónir króna.
Þetta kom fram hjá Ingjaldi Hanni-
balssyni, formanni fjármálanefndar
háskólaráðs, á ársfundi Háskóla ís-
lands. - RÚV greindi frá.
DVIWIYND HARI
Sumarblómin sett niður
Veöurblíöan lék viö starfsmenn Reykjavíkurborgar þar sem þeir unnu aö garöyrkju og gróöursetningu sumarblómanna
í Ártúnsbrekkunni í gær. Sumarblómin munu síöan mynda merki Reykjavíkurborgar eins og löng hefö er fyrir.
—
Umsækjandi um dagskrárstjórastöðu hjá Rás 2 á Akureyri:
Fullkomið vantraust að
lengja umsóknarfrest
- segir Sigurður Pór Salvarsson
„Það er ekki sannleikaaum
samkvæmt hjá framkvæmda-
stjóra útvarpsins að haft hafi
verið samband við alla um-
sækjendur eftir að umsóknar-
fresturinn var framlengdur.
Ekkert samband var haft við
mig og voru þó hæg heima-
tökin, t.d. í gegnum tölvu-
póst,“ segir Sigurður Þór Sal-
varsson, einn umsækjenda
um stöðu dagskrárstjóra Rás-
ar 2 á Akureyri.
í DV í gær kom fram að fleiri um-
sækjendur bættust í hópinn um dag-
skrárstjórastöðu Rásar 2 eftir aö
fresturinn var framlengdur. Dóra
Ingvadóttir, framkvæmdastjóri
hljóðvarps hjá Ríkisútvarpinu, neit-
aði að stjóm RÚV hefði sýnt fyrri
uiiisæKjendum vantraust
með því að framlengja og
auglýsa aftur. Hún sagði að
bréf hefði verið sent öllum
fyrri umsækjendum með
skýringum á að Ríkisútvarp-
ið vildi kanna hvort fleiri
vildu ekki sækja um. Um-
sækjendur hefðu verið beðn-
ir að greina frá því ef þeir
hygðust hætta en enginn
hefði tilkynnt um slíkt.
Síðan hefur Jóhann Hauksson,
fréttamaður og svæðisstjóri Ríkisút-
varpsins á Austurlandi, sótt um og
herma heimildir DV að hann sé lík-
legur i stöðuna. Sigurður Þór hefur
starfað sem svæðisstjóri RÚV á Ak-
ureyri og taldi sig eiga góðar líkur á
að hljóta hnossið. Hann segir alveg
ljóst að Ríkisútvarpið hafi sýnt fyrri
umsækjendum fullkomið vantraust
með því að framlengja umsóknar-
frestinn þar sem a.m.k. tveir hæfir
einstaklingar hafi sótt um. Það hafi
hugsanlega verið ólögmætt að auki
og muni hann kanna rétt sinn. „Ég
veit ekki hvað gerði það aö verkum
aö mér var hafnaö en allir sem ég
hef talað við telja að framlenging
frestsins sé ekkert annað en van-
traust, hvað sem Dóra og Markús
eru að reyna að klóra í bakkann,"
segir Sigurður sem hefur starfað hjá
RÚV um árabil.
Að líkindum veröur tilkynnt um
ráðningu nýs dagskrárstjóra Rásar
2 með aðsetur á Akureyri nk.
þriðjudag.
-BÞ
Sigurður Þór
Salvarsson.
Fallið frá forkaupsrétti
Borgarráð samþykkti á þriðjudag
að óska eftir því við félagsmálaráð-
herra að eigendmn félagslegra
eignaríbúða í Reykjavík verði heim-
ilað að selja þær á frjálsum mark-
aði.
Ekki líkur á verðskriði
Líkur hafa minnkaö á þvi að verð-
bólgustiflan sem myndaðist vegna
rauðu strikanna í maí bresti. Þetta
segir Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður Greiningadeildar Búnaðar-
bankans. Hún telur ekki líkur á að
neysla almennings fari úr böndunum
þótt vextir verði lækkaðir frekar því
heimilin hafi aldrei verið eins skuld-
sett. - RÚV greindi frá.
Vann í Víkingalottói
Bónusvinningur í Víkingalottó-
inu gekk út í gærkvöld en vinnings-
upphæðin var tæpar 14,2 milljónir
kr. Vinningsmiðinn var seldur í
Snælandsvídeói í Núpalind í Kópa-
vogi og var að upphæð 14,2 milljón-
ir kr. eins og fyrr sagði.
Ekki svar fyrir kjördag
Ólíklegt er að Persónuvemd vinn-
ist tími fyrir kosningar til aö skila
áliti á því hvort fulltrúum stjóm-
málaflokka sé heimilt samkvæmt
lögum um persónuvemd að sitja
inni í kjördeildum og skrá hverjir
taki þátt í kosningum. -HKr.
f ókus
1533 Á MORGUN
Sveitaböllin í sumar
í Fókusblaði
morgundagsins er
ítarleg úttekt á
sveitaballamark-
aðnum í sumar.
Skoðaðar em bestu
hljómsveitir sið-
ustu ár og spáð í
spilin fyrir sumar-
vertíðina sem er að
hefjast. Við ræðum við þær Maríkó
og Þóm Karítas sem eru að byrja
með nýjan þátt á SkjáEinum og upp-
lýsum hvaða krakkar þaö vom sem
komust inn í Leiklistarskólann. Þá
er rætt við Rottweilerhundana sem
stæra sig mikið af því að vera
reyklausir og eins kíkjum við á út-
lit fótboltamannanna okkar fyrir
sumariö. I Líftnu eftir vinnu upplýs-
um við svo hvar bestu kosninga-
partíin er að finna.