Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Page 3
Framundan eru tvísýnar kosningar í Hafnarfirði. Talsverðar líkur virðast á því að valið standi einfaldlega á milli áframhaldandi forystu sjálfstæðismanna eða afturhvarfs til vinstri stjórnar Samfylkingarinnar. Það sýnist líka augljóst að einungis örfá atkvæði muni ráða úrslitum. Sjálfstæðismenn hafa staðið við stjórnvölinn í Hafnarfirði síðastliðin fjögur ár. Þrátt fyrir þrönga fjárhagsstöðu í upphafi kjörtímabilsins hefur Grettistaki verið lyft í bænum. Með vandaðri stefnumótunarvinnu og áætlanagerð var kúrsinn settur á umtalsverða uppbyggingu eftir langt tímabil stöðnunar og stjórnleysis. Samtímis var böndum komið á fjárhag bæjarsjóðs sem nú stendur traustum fótum. Hafnarfjörður hefur tekið miklum stakkaskiptum á skömmum tíma.Við leggjum verk okkar á liðnum árum óhikað í dóm kjósenda og hvetjum þá til þess að kynna sér framtíðarsýn okkar í stefnuskránni. Síðast en ekki síst hvetjum við stuðningsmenn okkar til þess að láta ekki sitt eftir liggja á kjördag. Hvert atkvæði getur ráðið úrslitum og alltof oft hafa sjálfstæðismenn gefið verulega eftir miðað við skoðanakannanir vegna slælegrar mætingar á kjördegi. Slíkt má ekki henda nú.Til þess verður alltof mjótt á mununum. oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. sé* fólk Hafnarfj&fTur % www.xdhafnarfjordur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.