Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Page 11
11
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 2.726 m.kr.
Hlutabréf 551 m.kr.
Húsbréf 882 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
| 0 fslenski prsjóöurinn 112 m.kr.
| Pharmaco 87 m.kr.
íslandsbanki 66 m.kr.
MESTA HÆKKUN
0 Landssíminn 2,7%
0 Pharmaco 2,1%
0 Ehf. Alþýðubankinn 0,5%
MESTA LÆKKUN
0 Marel 6,5%
0 Grandi 3,5%
Q SR-Mjöl 2,2%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.283
- Breyting 00,80%
Framtíðarsýn
kaupir
Magnús Hreggviðsson, framkvæmda-
stjóri Fróða, sem er eigandi að nálega
tveimur þriðju hlutaíjár í félaginu, hef-
ur keypt alla helstu hluthafa í hópi
stofnanaíjárfesta út úr Fróða. Magnús
er nú eigandi að 97% hlutafjár í félaginu
og stefiiir að uppkaupum þeirra sem eft-
ir eru á næstu mánuðum. Um leið hefur
Magnús selt vikublaðið Fiskifréttir til
Framtíðarsýnar, útgáfufélags Viðskipta-
blaðsins. Er gert ráð fyrir að ritstjórn
Fiskifrétta flytji í húsakynni Viðskipta-
blaðsins í Skaftahlíð 24 en útgáfa Fiski-
frétta verður að öðru leyti óbreytt. Þetta
kom fram í Viðskiptablaðinu sem kom
út í morgun.
Meðal stofnanafjárfesta, sem hann
hefur nú keypt út úr félaginu, eru Eign-
arhaldsfélagið Alþýðubankinn (EFA),
Lífeyrissjóður Austurlands, Lífeyris-
sjóðurinn Hlif, Saxhóll, eignarhaldsfélag
Nóatúns-fjölskyldunnar, og Jón Karls-
son, áður eigandi Iðunnar. Eftir eru um
70 litlir hluthafar, m.a. núverandi og
fyrrverandi starfsmenn fyrirtækisins,
sem verða væntanlega keyptir út á
næstu mánuðum. í kjölfar þessa hefur
verið mörkuð sú stefna að hætta við
skráningu á Verðbréfaþing íslands eins
og var ætlunin fyrir fjórum árum. Á
þessum ftórum árum hefur fyrirtækið
vaxið að veltu úr nálega 400 milljónum
í tæplega 1,1 miiljarð króna í ár.
í Viðskiptablaðinu er haft eftir Magn-
úsi að starfsemi Fróða verði í meginat-
riðum þríþætt eftir breytingamar: í
fyrsta lagi sé það tímaritaútgáfan, sem
sé fyrirferðarmest. Eftir sölu Fiskifrétta
séu gefln út átta tímarit hjá Fróða og
hafi félagið um 60% markaðshlutdeild. í
öðru lagi sé það síðan bókaforlagið Ið-
unn og í þriðja lagi sé það margmiðlun-
ardeildin sem byggð sé á grunni ís-
lenskra fyrirtækja. „Með þeim aðgerð-
um sem við höfum gripið til og með
þeirri skýru stefnu sem við höfum
markað fyrir reksturinn gerum við okk-
ur vonir um að ná jákvæðum rekstri
þegar í ár.“
Mikil aukning
hagnaðar HB
Hagnaður Haraldar Böðvarssonar hf.
var 562 milijónir króna á fyrsta ársfjórð-
ungi en var 20 milljónir króna á sama
tímabili árið áður. Hagnaður fýrir af-
skriftir var 615 milljónir króna og nem-
ur framlegð fyrirtækisins þannig 31,2%
af tekjum. Vegna styrkingar krónunnar
var gengishagnaður vegna lána i er-
lendri mynt að upphæð rúmlega 200
milljónir króna. Heildarafli skipa félags-
ins var tæplega 81 þúsund tonn á tíma-
bilinu, þar af um 6 þúsund tonn af bol-
fiski og 75 þúsund tonn af uppsjávar-
fiski.
IÞHÆMÞl 23. 05. 2002 kl. 9.15
KAUP sala
F* ÍDollar 92,520 92,990
feSrÍPund 135,200 135,890
1*1: Kan. dollar 60,260 60,630
_]Dönsk kr. 11,5170 11,5800
HrlNorskkr 11,4390 11,5020
SSsænsk kr. 9,3780 9,4300
FFj Sviss. frankl 58,9500 59,2700
| • jjap. yon 0,7454 0,7499
^ECU 85,6592 86,1740
SDR 118,8000 119,5200
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaöið
Teymi yfirtekur danskt
hugbúnaðarfyrirtæki
Teymi A/S hefur gengið frá yflr-
töku á danska hugbúnaðarfyrirtæk-
inu PROGREZ sem hefur imdanfar-
in ár verið í fremstu röð þar í landi
hvað snertir umsjón og rekstur á
Oracle-gagnagrunnum og stöðluð-
um viðskiptahugbúnaði frá
Navision, einkum Concorde/XAL
og Axapta. Samningurinn hefur
meðal annars í för með sér að
Teymi A/S fær um eitt hundrað
nýja viöskiptavini og samstarfsað-
ila, ásamt því sem það ræður til sín
alla starfsmenn PROGREZ, segir í
tilkynningu frá félaginu. „Með þess-
ari yfirtöku á PROGREZ og nýleg-
um viðskiptasamningum, sem
Teymi A/S hefur gert við mörg
skandinavísk stórfyrirtæki, erum
við að treysta stööu fyrirtækisins til
Hagnaður af rekstri lyfjafyrirtæk-
isins Delta hf. nam 617 milljónum
króna á fyrstu þremur mánuðum
ársins en hagnaður fyrir afskriftir
nam 897 miiijónum króna. Niður-
staða uppgjörsins er mjög góð og
sem dæmi nemur framlegð félagsins
rétt tæpum 30%. Fjármagnsliöir
voru jákvæðir um 29 milijónir
króna og er það fyrst og fremst
vegna gengismunar af erlendum
lánum sem var jákvæður um 116
milljónir króna. Heiidareignir fé-
lagsins námu 11,6 miiljörðum í lok
mars sl. en eigið fé nemur 2.981
miiljón króna og eiginfjárhlutfall er
þannig 25,6%.
Þrjú ný félög bættust við Delta-
samstæðuna á timabilinu.ÝOmega
Farma kemur inn í rekstiu- sam-
stæðunnar frá áramótum og systur-
félögin United Nordic Pharma og
Dansk Lægemiddel Forsyning komu
inn í reksturinn 1. febrúar sl. Um
91% af tekjum Delta hf. eru vegna
sölu erlendis og nam salan ails 2,7
milljörðum króna. Sala á íslands-
iangframa. Teymi A/S hefur á
skömmum tíma getið sér orð fyrir
að vera einn öflugasti og traustasti
samstarfsaðili Oracle í Danmörku,
einkum í kringum þjónustu á
Oracle-hugbúnaði. Við erum hreyk-
in af því orðspori," sagði Elvar
Steinn Þorkelsson, forstjóri Teymis,
við undirritun samningsins i Kaup-
mannahöfn þann 13. mai sl.
Sérhæfing PROGREZ fólst eink-
um í vinnu með samtvinnuð um-
hverfi Oracle-lausna og Navision-
viðskiptahugbúnaðar á borð við
Concorde/XAL og Axapta. Fyrir-
tækið hefur jafnframt þróað og selt
hugbúnaðinn OraGuard til nokk-
urra tuga fyrirtækja á Norðurlönd-
um en þar er á ferðinni umsjónar-
og eftirlitsbúnaður fyrir Oracle-
markaði gekk einnig vel að mati
forsvarsmanna félagsins og námu
tekjumar alls 285 milljónum króna.
Rekstraráætlun samstæðunnar ger-
ir ráð fyrir að hagnaður á árinu
2002 verði um 1,7 miiljarðar króna
gagnagrunna. Teymi A/S tekur nú
við dreifingarrétti á OraGuard-bún-
aðinum á Norðurlöndum og, að
sögn forstjóra Teymis, binda menn
talsverðar vonfr við velgengni í
þeim efnum þar og síðar annars
staðar í Evrópu. Meðai viðskipta-
vina Teymis A/S eru nú TDC Kabel-
TV, Expert Danmcirk, Dansk El-for-
bund, Debitel, Rosti, Top Toy, Leo
Pharmachuticai, Chr. Hansen, Novo
Nordisk, Astra Danmark, Glaxo
Wellcome / Glaxo Smith&Kiine,
DBS, Mobilix, Telia og fleiri. Hjá
Teymi A/S starfa nú um tuttugu
manns af 70 manna starfsliði sam-
stæðunnar. Áætluð velta fyrirtækis-
ins á yfirstandandi ári er um 230
milijónir króna og reiknað er með
hagnaði af starfsemi félagsins.
og að hagnaður fyrir afskriftir verði
3,4 milljarðar króna. Delta gerir ráð
fyrir að fimm ný lyf fari á markað í
Evrópu,Ýen Delta hefur nú 25 ný lyf
í þróun í þremur þróimareiningum,
í Hafnarfirði, Reykjavik og á Möltu.
Tap hjá SS
Tap varð af rekstri Sláturfélags
Suðurlands á fyrstu þremur mán-
uðum ársins að upphæð 8,5 millj-
ónir króna, sem er nokkuð betri
niðurstaða en árið áður þegar tap-
ið nam 36 milljónum króna.
Ástæðan fyrir minna tapi nú er
fyrst og fremst lækkun fjármagns-
gjalda vegna styrkingar krónunn-
ar. Tekjur og gjöld félagsins juk-
ust í jöfnum hlutföllum á tímabil-
inu og námu tekjur alls 837 millj-
ónum króna. Hlutdeild í afkomu
hlutdeildarfélaga var neikvæð um
6 milljónir en árið áður var þessi
hlutdeild neikvæð um 200 þúsund
krónur. Eigið fé Sláturfélagsins er
l. 184 milljónir króna og nemur
eiginfjárhlutfallið 40%.
í tilkynningu frá SS kemur
fram að afkoman á fyrstu þremur
mánuðunum sé óviðunandi og
einkennist af mikilli verðsam-
keppni sem hafi neikvæð áhrif á
afkomu félagsins. Afkoma Slátur-
félagsins hefur jafnan verið
þyngst framan af árinu en best á
síðasta ársfiórðungi. Þetta stafar
m. a. af afkomu afurðadeildar en
umsvif hennar aukast við haust-
slátrun sauðfiár. Gripið hefur ver-
ið til aðhaldsaðgerða til að draga
úr útgjöldum auk þess sem fiár-
festingar í varanlegum rekstrar-
fiármunum verða dregnar saman
á næstu misserum. Gert er ráð
fyrir að framangreindar aðgerðir
og aðstæður á markaði muni leiða
til bættrar afkomu Sláturfélagsins
á árinu.
Mjög góð afkoma Delta
Cámaverð:
S.900 kr.
Gámaverð:
3.990 kr.
Höfum fengið gám af Ijósum
á hreint ótrúlegu verði...
...og þú ert boðin(n) í
Gámaveislu á gámaverði:
Cámaverð:
9.900 kr.
Gámaverð:
990 kr.
Gámaverð:
5.900 kr.
Gámaverð:
1.490 kr.
Gámaverð:
2.490 kr.
Gámaverð:
1.990 kr.
Rafkaup
Ljós & Lampar ■
Cámaverð:
5.900 kr.
Gámaverð:
1.990 kr.
Armúla 24
Sími 585 28 00
Gámaverð:
5.900 kr.
Gámaverð:
990 kr.
Gámavelslan nær líka tll:
Mosraf Mosfellsbæ, RnfbúOln ÁlfeakelSI Hafnartiröi, Gelall
Vestmannaeyjum, Rafþjónusta Slgurdórs Akranesi, Reynlr
ólafsson Keflavfk, Fossraf Selfossi, Lónlð Höfn, Svelnn
Guðmundsson Egilsstðöum, Kaupfélag Vopnfirðinga, Johan
Rönning Akureyri, öryggl Húsavík, Rafbær Siglufiröi, Rafsjá
Sauöarkrók, Kaupfélagið Hvammstanga, Rafalda
Neskaupstaö, Straumur ísafiröi, Blómaturvellir
Hellissandi, Guðni E. Hallgríms Gaindarfiröi, Kaupfélaglð
Blönduósi, Húslð Grindavík.
Gámaverð:
1.990 kr.
1 ,ii
Mfl Gámaverð: 1
jl ii "1 4.990 kr. 1