Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Qupperneq 15
15
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002
DV
Sköpun heimsins
Búningaskissur Fernards Léger við ballettinn Sköpun heimsins.
Allt um dans
- óskasafn dansáhugamanna er viö Gústav Adolfs torg í Stokkhólmi
Gestir Stokkhólms þetta afmœlisvor
og sumar ættu að athuga aó eitt
óvœntasta og fallegasta safnið í borg-
inni er Dansmuseet sem nýlega var
komið fyrir í glœsilegri bankahöll við
Gústav Adolfs torg, mitt á milli Hall-
ar erföaprinsins þar sem utanríkis-
ráðuneytið er til húsa og hinnar
glœsilegu Stokkhólmsóperu. Húsið
var reist á árunum 1914-18.
Danssafnið var upphaflega opnað í Par-
ís árið 1933 sem fyrsta safnið og rannsókn-
armiðstöðin fyrir dans í veröldinni, en sið-
an hafa verið sett á fót danssöfn i New York
og Köln. Stofnandi sænska Danssafnsins var
sænski aðalsmaðurinn Rolf de Maré
(1888-1964). Hann stofhaði líka hinn umtalaða
Sænska ballett - Ballets Suédois - í París árið
1920 sem keppti við sjálfan Rússneska ballett-
inn - Les Baflets Russes - í frumleika og fram-
úrstefhu.
Ometanlegir dýrgripir
Rolf de Maré ferðaðist um veröldina frá
unga aldri og snemma fór hann að viða að sér
forvitnilegum gripum. Hann fór til dæmis sem
ungur maður um Indland, til Síams, Egypta-
lands og Japans, og hvert sem hann kom
keypti hann alls konar muni sem hann sendi
heim til Sviþjóðar. Amma hans í móðurætt,
Wilhelmina von Hallwyl, var raunar þekktur
listaverkasafnari svo ástríðan var
honum í blóð borin. Margir
þessara gfipa frá framandi
löndum eru nú hvergi annars
staðar til og því ómetanlegir.
Safninu í París var lokað í
lok flmmta áratugar síðustu
aldar og hlutar af því fluttust
til Stokkhólms þar sem
Dansmuseet var opnað 1953 í
húsakynnum Óperunnar.
Danssafnið á miklar eignir í
búningum, myndum, leik-
munum og heilum leik-
myndum en sýnir jafnað-
arlega aðeins hluta af
þeim. í rauninni er
þetta menningar-
sögulegt safn því
þar sameinast
dans, leikhús og /
myndlist frá öll- |
um heimi. Til f
dæmis er for- I
vitnilegt að skoða
grímur og bún-
Sjávarsef
Búningur eftir
Nataliu Gontcharova
viö ballettinn Sadko
sem Rússneski ball-
ettinn sýndi.
inga galdramanna frá Afríku sem sumir eru
afar erfiðir í geymslu af því þeir eru búnir til
úr stráum og öðru lífrænu og forgengilegu
efni. Þar eru líka dýrmæt myndverk og módel
af leikmyndum frá Japan og víðar að úr Asíu.
Raunar má þarna afla sér upplýsinga í mynd-
um og máli um alls konar dans, allt frá tádansi
til tangós, þar ganga allan daginn myndbönd
með dönsurum á fyrstu áratugum 20. aldar og
önnur alveg ný.
Búninga- og leikmyndahönnuðir, myndlist-
armenn og listfræðingar, þjóðháttafræðingar
og almennir áhugamenn um listir og menn-
ingu geta fundið sér margt að skoða i þessum
fögru salarkynnum. Þar er líka heimfldasafn,
bókasafn og myndbandasafn fyrir þá sem eru
að rannsaka dans, og í hvelfing-
unni undir aðalsýningarsalnum
- þar sem áður voru geymdir
peningar - eru haldnar sérsýn-
ingar af ýmsu tagi. Þar hafa for-
stöðumenn safnsins áhuga á að
sýna íslenska höggmyndalist við
tækifæri og nefndi leiðsögumað-
ur blaðamanns, Constance af
TroUe, sérstaklega verk eftir Ás-
mund Sveinsson.
Heimsþekktir hönnuðir
Mestan áhuga safngesta vekja heim-
Udir um ballettflokkana tvo, hinn rúss-
neska og hinn sænska, í París á fyrstu
áratugum 20. aldar. Rússneski baflettinn
hans DiaghUews gerði baflett að list-
formi í sínum eigin rétti þar sem sam-
einuðust litir, form, tónlist og hreyfing
og hélt áhorfendum hvaðanæva úr
heiminum hugföngnum í tuttugu ár,
1909-1929. Þar dönsuðu stjömur á borð
við Vaslav Nijinsky og Önnu Pavlovu
og svið og búningar voru eftir mynd-
listarmenn sem sumir urðu heims-
þekktir, tU að mynda Picasso, Matisse,
Léon Bakst, Juan Gris, Miró og
Braque. Árið 1924 gerðu þau meira að
segja saman svið og búninga fyrir
baUettinn Le train bleu Pablo
Picasso og Coco Chanel! Þó að
ýmsir baUettamir séu glataðir og
gleymdir verða skissur lista-
mannanna æ verðmeiri, að
ekki sé talað um búningana
sjálfa. Danssafnið í Stokk-
hólmi á eitt stærsta safn þess-
ara muna i heimi. Þarna má sjá
ótrúlega flotta handavinnu á
búningum, útsaum með perl-
um og paUíettum, hvers kon-
ar applikasjónir og lika eru
munstur máluð beint á efn-
ið.
Þekktasti myndlistar-
maðurinn sem vann
fyrir Sænska baUettinn
var Femard Léger og er
sviðsmynd hans viö
Sköpun heimsins, baUett
eftir Blaise Cendrars, end-
urgerð í ftUlri stærð í
sýningarsalnum. En fjöl-
margir aðrir frjóir
hönnuðir gerðu svið
og búninga fyrir
Sænska baUettinn í
París - eins og
glöggt má sjá þegar
gengið er um sali
Dansmuseet í
Stokkhólmi. -SA
___________________Menning
Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is
Guðirnir gala
Enginn bókmennta- eða tónlistaráhuga-
maður lætur vísvitandi fram hjá sér fara að
annað kvöld kl. 21 verður endurvakið hið
foma kvæði Hrafnagaldur Óðins í Laugar-
dalshöllinni. Eins og frægt er orðið var þetta
verk hins nafnlausa og löngu liðna höfundar
og fuUtrúa hans í samtimanum, Hilmars
Arnar Hilmarssonar tónskálds, hljómsveitar-
innar Sigur Rósar og kvæðamannsins
frækna Steindórs Andersens, frumflutt í
ófuUkominni mynd í Barbican Centre í
London og gerði aUt vitlaust. Nú gefst lönd-
um þessara snfllinga einstakt tækifæri tU að
njóta þessa stórvirkis. Auk áðurnefndra taka
kórinn Schola cantorum og 32 manna hljóm-
sveit þátt í gjörningnum og tvær forláta
steinhörpur úr íslensku grjóti, gerðar af Páli
myndlistarmanni á HúsafeUi, koma einnig
við sögu. Á steinhörpurnar leika Páll sjálfur
og María Huld Markan Sigfúsdóttir. Svo hafa
félagamir í Sigur Rós gert myndband í anda
Hrafnagaldurs sem sýnt verður á stórum
skjá aftast á sviðinu.
Utan um allt þetta heldur stjórnandinn:
Ámi Harðarson.
Geturðu misst af þessu?
Skugginn
af svartri flugu
Bókaútgáfan SmáragU
hefur sent frá sér skáldsög-
una Skugginn af svartri
flugu eftir Erlend Jónsson,
rithöfund og gagnrýnanda.
Þetta er sakamálasaga með
þjóðsögulegu ívafi sem ger-
ist í Reykjavik og víðar,
um og fýrir nýliöin alda-
mót. Aðalsöguhetja og
söguþulur, Gunnar Sveinsson fuUtrúi, er op-
inber starfsmaður á miðjum aldri. Hann er
einhleypur og fáskiptinn, drykkfeUdur af
leiðindum en lætur lítið fyrir sér fara - uns
utanaðkomandi atburðir raska jafnvæginu í
lifi hans. Undirheimamir reynast eiga full-
trúa sína víða, jafnvel í virðulegum ráðu-
neytum ...
Hetjudáðir franskra
sjómanna
I kvöld kl. 20.30 heldur Jean Pol Dumont le
Douarrec fyrirlestur i húsakynnum Alliance
franqaise, Hringbraut 121, sem hann nefnir:
„Sjómennirnir við ísland: Hetjudáðir
frönsku sjómannanna.
Jean Pol Dumont le Douarrec er afkom-
andi franskra sjómanna sem veiddu við
strendur Islands og höfundur bókar um þá.
Hann ætlar að fjalla um samskipti Frakka og
íslendinga sem tengjast sjónum og kynna
rannsóknir Frakka á högum forfeðra þeirra
hér við land. Allir velkomnir. Petrína Rós
Karlsdóttir mun þýða fyrirlesturinn á ís-
lensku.
Á sjómannadaginn, 2. júní, verður vígður
minnisvarði á Patreksfirði til heiðurs frönsk-
um sjómönnum. Minnisvarðann gerði mynd-
höggvarinn Patrick Stein.
Grænskinna
Mál og menning og Um-
hverfisstofnun Háskóla ís-
lands hafa gefið út greina-
safnið Grænskinnu um
helstu umhverfismál samtím-
ans í alþjóðlegu samhengi en
skoðuð frá íslenskum sjónar-
hóli. Ritstjóri er Auður H.
Ingólfsdóttir sem einnig á
greinina „Umhverfi og efna-
hagur" en meðal annarra höfunda eru Guðrún
Pétursdóttir sem skrifar um hafið, Snorri Bald-
ursson sem skrifar um vistkerfi norðurhjara,
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir sem skrifar um
regnskógana og vatn í veröldinni og Tryggvi
Felixson sem skrifar um loftslagsbreytingar af
mannavöldum.
Siðustu greinina í bókinni á Guðmundur
Páll Ólafsson og heitir hún „Á ábyrgð okkar“.
Þar segir hann m.a.: „Blikur eru á lofti á ver-
aldarvísu. Átök um náttúruauðlindir eru harð-
vítug glíma um alla jörð og framtið lífheims er
stefnt í voða vegna hamagangs og græðgi
mannsins. Aldrei fyrr í sögu jarðar hefur ein
tegund haft svo afdrifarík áhrif og það sem
verra er - þvermóðska mannsins er einstök,
hann er iðulega óviljugur til að laga hlutina
vegna sérhagsmuna og fordóma."