Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Side 20
20 - íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára Knútur Bjarnason, Kirkjubóli, Þingeyri. 75 ára________________________ Jóna Stefánsdóttir, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík. Rósa Fjóla Guðjónsdóttir, Boöagranda 2a, Reykjavík. Sigrún Hróbjartsdóttir, Hamri, Sauðárkróki. Guðjón Gíslason, Bakkastíg 8, Eskifiröi. 7Q ára________________________ Anna Hjaitested, Langholtsvegi 179, Reykjavík. Snjólaugur Þorkelsson, Hjarðarholti 1, Akranesi. Ásmundur Valdemarsson, Halldórsstööum 1, Fosshóli. Jónína Gunnarsdóttir, Fossgötu 7, Seyðisfiröi. 60 ára________________________ Sverrir Sigurðsson, Dragavegi 11, Reykjavík. Sólrún Jóhannesdóttir, Hagamel 51, Reykjavík. Valgarður Jóhannesson, Vallarási 4, Reykjavík. Karl Sigurgeir Óskarsson, Brekkugötu 16, Vogum. Elín Guörún Hafberg, Kelduhvammi 12a, Hafnarfiröi. Ottó B. Jakobsson, Reynihólum 9, Dalvík. Sigurður Olgeirsson, r Uppsalavegi 22, Húsavík. 50 ára____________________ Sigurður Viihjálmsson, Álakvísl 100, Reykjavík. Halldór Sigþór Harðarson, Furuhliö 17, Hafnarfirði. Jóhanna Magnúsdóttir, Ártúnum, Blönduósi. Grétar G. Ingvarsson, Ásvegi 15, Akureyri. 4Q ára________________________ Sigurður Þór Sigurðsson, Hverfisgötu 55, Reykjavík. Garðar Jón Bjarnason, Kaplaskjólsvegi 29, Reykjavík. Carl Friörik Möller, Hæðargarði 2, Reykjavík. Steinunn Böðvarsdóttir, Engjaseli 70, Reykjavík. Maríus Jóhann Ásbergsson, Veghúsum 31, Reykjavík. Katrín Pétursdóttir, Bakkavör 40, Seltjarnarnesi. Hannes Hjalti Giibert, Tjarnargötu 41, Keflavík. Sigrún Bjarnhéðinsdóttir, Urðargili 26, Akureyri. Snjólaug Kristinsdóttir, Kirkjuvegi 3, Ólafsfirði. Hanni Heiler, Dynjanda, Höfn. Ekta íhkur ehf. J S.4661016J Utvatnaður saltfískur, án beina, til að sjóða. Sérútvatnaður saltfiskur, án beina, til að steikja. Saltfisksteikur (Lomos) jyrir veitingabús. $mum lát Guðrún Lilja Gísladóttir, Logafold 76, fyrrum húsfreyja á Höfðabrekku í Mýr- dal, andaðist á líknardeild Landakots- spítala mánud. 20.5. Ragnheiöur Þórðardóttir, Grund, Akra- nesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness að morgni 20.5. Óskar Georg Jónsson lyfjafræöingur, Frostaskjóli 61, Reykjavík, lést af slys- förum sunnud. 19.5. Jóhann Kr. Sæmundsson, áður til heim- x ilis að Fornhaga 11, Reykjavík, lést á Hrafnistu, Reykjavík, mánud. 20.5. Sigrún Ólafsdóttir lést á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ laugard. 18.5. Geir Axelsson, fyrrum bóndi og vörubíl- stjóri, Brekkukoti, Hólavegi 40, Sauðár- króki, andaðist á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks mánud. 20.5. FIMMTUDAGUR 23, MAÍ 2002 DV Fólk í fmttum Stefán Ásmundsson þjóðréttarfræðingur hjá sjávarútvegsráðuneytinu Stefán Ásmundsson, þjóðréttar- fræðingur hjá sjávarútvegsráðu- neytinu og formaður sendinefndar íslands á fundi Alþjóða hvaiveiði- ráðsins, las formanni ráðsins, Sví- anum Bo Femholm, og fulltrúum Bandaríkjanna pistilinn, og yfirgaf síðan fundarsal Alþjóða hvalveiði- ráðsins ásamt sínu fólki á þriðju- daginn var. Starfsferill Stefán fæddist í Reykjavík 20.2. 1973 og ólst þar upp í Kleppsholtinu og í Vogunum. Hann var í Voga- skóla, lauk stúdentsprófi frá MS 1993, BA-prófi í sagnfræði frá HÍ 1997, stundaði nám í þjóðréttarfræði við Lancaster University í Englandi og lauk þaðan LL.M.-prófi í þjóðar- rétti og alþjóðasamskiptum 1998. Stefán stundaði ýmis almenn verkamannastörf og var í bygginga- vinnu á námsárunum. Hann hóf störf við sjávarútvegs- ráðuneytið 1998 og hefur verið þjóð- réttarfræðingur hjá ráðuneytinu síðan. Stefán hefur sinnt ýmsum nefnd- arstörfum er varða störf hans hjá sjávarútvegsráðuneytinu. Fjölskylda Systir Stefáns er Gyða Ásmunds- dóttir, f. 1.11. 1971, viðskiptafræð- ingur og þjónustufulltrúi hjá Spari- sjóði vélstjóra, búsett í Reykjavík en maður hennar er Matthías Ásgeirs- son forritari og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Stefáns eru Ásmundur Stefánsson, f. 21.3. 1945, fram- kvæmdastjóri hjá Eignarhaldsfélag- inu Alþýðubankinn hf., og fyrrv. forseti ASÍ, búsettur í Garðabæ, og k.h., Guðrún Guðmundsdóttir, f. 13.2. 1945, viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. Ætt Ásmundur er sonur Stefáns Odds, fyrrv. framkvæmdastjóra Hreyfiis, sonar Guðjóns Magnúsar, bílstjóra í Reykjavík, Jónssonar, b. að Arnar- felli í Þingvallasveit, Ólafssonar, b. í Lónakoti í Hraunum, Sigurðssonar. Móðir Guðjóns var Agnes Gísladótt- ir, b. í Klausturhólakoti í Gríms- nesi, Ólafssonar, b. í Traustholti í Flóa, Jónssonar. Móðir Stefáns Odds var Þórunn Einarsdóttir í Óskoti í Mosfellssveit, Einarssonar og Þóru Pálsdóttur. Móðir Ásmundar Stefánssonar er Áslaug, systir Jóns Óskars rithöf- undar. Áslaug er dóttir Ásmundar, rafvirkjameistara á Akranesi, Jóns- sonar, b. í Hákoti á Akranesi, Ás- mundssonar, b. í Miðvogi á Akra- nesi, Jónssonar. Móðir Ásmundar í Miðvogi var Guðrún Ásmundsdótt- ir, b. í Elínarhöfða, Jörgenssonar, b. í Elínarhöfða, Hanssonar, ættfóður Klingenbergsættar. Móðir Jörgens var Steinunn Ásmundsdóttir, systir Sigurðar í Ásgarði, langafa Jóns for- seta og Tómasar Fjölnismanns. Móðir Ásmundar rafvirkja var Hall- dóra Sigurðardóttir, b. á Karls- brekku í Þverárhlíð, Sigurðssonar, af Deildartunguætt. Móðir Sigurðar á Karlsbrekku var Guðríður Torfa- dóttir, b. á Hreðavatni, Jónssonar og Halldóru Jónsdóttur, umboðs- manns í Gvendareyjum, Ketilsson- ar. Móðir Jóns var Guðrún Magnús- dóttir, systir Skúla landfógeta. Móð- ir Halldóru var Ástríður Elíasdóttir, b. á Háreksstöðum, Magnússonar, og Þorbjargar Þórðardóttur, pr. i Hvammi í Norðurárdal, Þorsteins- sonar. Móðir Áslaugar var Sigur- laug Einarsdóttir, b. í Hliði á Akra- nesi, Gíslasonar. Móðir Einars var Guðbjörg Oddsdóttir, b. í Engey, bróður Ólafar, langömmu Bjama Jónssonar vígslubiskups og Guð- rúnar, móður Bjama Benediktsson- ar forsætisráðherra, föður Björns, borgarstjóraefnis sjáifstæðismanna. Oddur var sonur Snorra, b. i Engey, Sigurðssonar og Guðrúnar Odds- dóttur. Móðir Guðbjargar var Elín Gísladóttir, b. á Morastöðum í Kjós, Þorsteinssonar, og Kolfmnu Snorra- dóttur, systur Odds. Guðrún er dóttir Guðmundar, tré- smiðs í Reykjavík, Jónssonar, b. og verkamanns í Skarðskoti í Leirár- sveit, Diðrikssonar, Pálssonar. Móð- ir Jóns var Margrét Jónsdóttir. Móðir Guðmundar var Guðrún Guðnadóttir, b. á Sarpi í Skorradal, bróður Magnúsar, langafa Sigríðar, móður Þórs Magnússonar, fyrrv. þjóðminjavarðar, en bróðir Sigríðar var Bjöm, faðir Lýðs sagnfræðmgs. Annar bróðir Guðna var Guðmund- ur, afi Bjöms Fr. Bjömssonar alþm. Guðni var sonur Hjálmars, b. í Graf- ardal, Jónssonar, og Guðrúnar Sig- urðardóttur. Móðir Guðrúnar Guðnadóttur var Jóhanna Bluga- dóttir, b. á Þverfelli í Lundarreykja- dal, Ásgrímssonar, og Gróu Ólafs- dóttur. Móðir Guðrúnar Guðmundsdótt- ur er Þuríður Ingibjörg, húsmóöir og saumakona í Reykjavík, Stefáns- dóttir, b. og sjómanns í Glettinga- nesi og á Útskálum á Bakkagerði, síðar vekamanns í Reykjavík, Þórð- arsonar. Móðir Þuríðar var Þor- gerður Árnadóttir. Sjötug Kristín Jónsdóttir húsfreyja í Skarðshlíð undir Austur-Eyjafjöllum Kristm Jónsdóttir, húsfreyja i Skarðshlið undir Austur-Eyjafjöll- um, verður sjötug á morgun. Starfsferill Kristín fæddist að Núpi undir Vestur-Eyja- fjöllum og ólst þar upp. Hún gekk í bamaskóla Vestur-Eyjafjalla, fór ung í vist til móðursystur sinnar í Vestmannaeyjum og vann auk þess í fiski í Eyjum. Hún starf- aði síðan í mötuneyti Héraðskólans í Skógum. Er Kristín gifti sig sinnti hún bú- störfum ásamt almennum heimilis- störfum. Þau hjónin keyptu verslun- ina í Skarðshlíð 1989 sem þá hafði verið í eigu Kaupfélagsins Þórs á Hellu. Starfræktu þau verslunina til 1997. Kristín er nú búsett í Reykjavík en á sumrin er hún mikið austur í Skarðshlíð. Fjölskylda Kristín giftist 31.5. 1956 Tómasi Jónssyni, f. 25.4. 1929, d. 1.8. 1998, bónda og kaupmanni. Hann var sonur Jóns Hjörleifssonar, f. 12.7. 1898, d. 23.7. 1973, bónda og oddvita, og Guðrúnar Sveinsdóttur, f. 25.8. 1897, d. 15.5. 1983, hús- freyju. Böm Kristínar og Tómasar eru Guðrún Anna Tómas- dóttir, f. 20.1. 1956, húsmóðir og skólaliði, en maður hennar er Þor- gils Gunnarsson, f. 14.2. 1956, raf- virkjameistari og em böm þeirra Gunnar, f. 7.10.1978, Tómas, f. 20.11. 1981, Þorgils, f. 14.1. 1992, d. 15.1. 1992, og Sævar, f. 18.1. 1993; Auð- björg Tómasdóttir, f. 23.3. 1957, hús- móðir en maður hennar er Her- mann Hansson, f. 23.7.1959, bílamál- arameistari og eru dætur þeirra Kristín Thelma, f. 30.9. 1983, Hanna Sif, f. 21.9. 1986, og Ama Björg, f. 20.4. 1993; Guðbjörg Tómasdóttir, f. 22.1.1960, húsmóðir en maður henn- ar er Sveinn Borgar Jóhannesson, f. 6.10. 1961, pípulagningameistari og eru synir þeirra Sveinn Aron, f. 11.4. 1987, og Sölvi Borgar, f. 27.2. 1992; Hjördís Tómasdóttir, f. 27.8. 1964, húsmóðir en maður hennar er Þórir Ingvarsson, f. 7.11.1959, sendi- bílstjóri og eru synir þeirra Hjörleif- ur Steinn, f. 11.8. 1993, Hendrik, f. 5.6.1997 og Jón Bjartmar, f. 5.6.1997; Guðmar Jón Tómasson, f. 20.11. 1967, sláturhússtjóri en kona hans er Helena Kjartansdóttir, f. 19.8. 1972, húsmóðir og eru böm þeirra Tómas Ingi, f. 24.8. 1992, og Karen Dís, f. 14.5. 2000. Systkini Kristinar: Guðrún, f. 5.4. 1930, var gift Sigurði Þorsteinssyni, f. 10.12. 1921, d. 20.7. 2001; Jónas, f. 4.4. 1931, d. 2.5. 1931; sveinbam, f. 9.8. 1933, d. 8.9. 1933; Sigurður, f. 15.10. 1934, d. 9.2. 1997, var kvæntur Mörtu Kristjánsdóttur, f. 6.11. 1929; Jóna Vigdis, f. 9.1. 1936, gift Jóni E. Guðjónssyni, f. 17.5. 1930; Einar Ingi, f. 1.3. 1937, kvæntur Grétu Ágústsdóttur, f. 14.2. 1936; Páll Ingi, f. 20.2. 1939, kvæntur Þómýju Odds- dóttur, f. 28.12. 1940; Sigríður Júlía, f. 7.11. 1940, var gift Vigfúsi Guð- mundssyni, f. 15.3.1934, d. 30.3.1990; Guðlaug, f. 17.4. 1942, gift Guðgeir Ólasyni, f. 14.4. 1941; Jóhanna, f. 21.6. 1944, gift Guðmari Ragnars- syni, f. 21.7. 1941; Benóný, f. 3.2. 1946, d. 24.4.1946; Rúna Björg, f. 25.8. 1947, gift Herði Bjömssyni, f. 22.11. 1944; Guðjón, f. 13.9. 1950, kvæntur Ástu Sveinbjömsdóttur, f. 3.2. 1956; Oddur Helgi, f. 3.1. 1955, kvæntur Valdísi Leifsdóttur, f. 27.4. 1958. Foreldrar Kristínar voru Jón Ein- arsson, f. 30.4. 1902, d. 22.5. 1979, bóndi að Núpi undir Vestur-Eyja- fjöllum, og Auðbjörg Jónína Sigurð- ardóttir, f. 25.4. 1910, d. 15.3. 1985, húsfreyja. Kristín verður heima í Skarðs- hlíð og tekur á móti gestum laugar- daginn 25.5. nk. Merkir Islendingar Jón Ólafsson, prófastur í Holti i Önundar- firði, fæddist að Fjósatungu í Fnjóska- dal 22. maí 1902. Hann var sonur Ölafs Sigurðssonar, bónda á Kotungsstöðum í Fnjóskadal, og k.h., Guðnýjar Ámadótt- ur húsfreyju. Jón lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum i Reykjavík 1924 og embætt- isprófi í guðfræði frá Háskóla íslands 1928. Jón var heimiliskennari í Reykjavík 1925-1928 og kenndi síðan einn vetur við MR. Lengst af var hann þó prestur aö Holti í Önundarfirði eða frá 1929-1963 og stundaði þar jafnframt búskap. Hann var prófastur í Vestur-ísafjarðarsýslu á ár- unum 1941-1963, stundaði unglingakennslu á Jón Ólafsson Flateyri og í Holti 1931-1945 og starfaði í Út- vegsbanka Islands á ísaflrði 1963-1969. Jón sat í stjóm Prestafélags Vestfjarða og var formaður þess, sat í yfirkjörstjóm Vestur-ísafjarðarsýslu um árabil, var fulltrúi á fyrstu kirkjuþingum, sat lengi í stjóm Kaupfélags Önflrðinga og var formaður þess, sat lengi i hrepps- nefnd og oddviti, sat í skattanefhd í tuttugu og tvö ár, var formaður fram- kvæmdanefndar Vestfjarða IOGT, var sfmstöðvarstjóri og bréfhirðingamaður 1930-1963, formaður og var gjaldkeri sjúkrasamlagsins 1945-1963. Jón bjó í Holti 1929-1963, á ísafirði 1963-1975 og siðan í Hafnarfirði. Jón lést 29. maí 1995. Helgi Jóhannsson frá Núpum, Bröttuhlíð 6, Flveragerði, verður jarðsunginn frá Flveragerðiskirkju fimmtud. 23.5. kl. 14.00. . Útför Sigríðar Elínar Guðbjartsdóttur, Seljahlíð, Hjallaseli 55, fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtud. 23.5. kl. 13.30. Reynir Örn Kristinsson, Heiðarholti 10A, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstud. 24.5. kl. 14.00. Útför Hólmfríðar Jónsdóttur, Grundarstíg 11, Sauðárkróki, fer fram frá Sauðár- krókskirkju föstud. 24.5. kl. 13.00. Útför Jóns Jörgensonar Kjerúlf, Holti, frá Húsum í Fljótsdal, fer fram frá Ás- ólfsskálakirkju föstud. 24.5. kl. 14.00. Ursula Hauth, Þórufelli 8, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstud. 24.5. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.