Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Blaðsíða 20
20
- íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára
Knútur Bjarnason,
Kirkjubóli, Þingeyri.
75 ára________________________
Jóna Stefánsdóttir,
Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík.
Rósa Fjóla Guðjónsdóttir,
Boöagranda 2a, Reykjavík.
Sigrún Hróbjartsdóttir,
Hamri, Sauðárkróki.
Guðjón Gíslason,
Bakkastíg 8, Eskifiröi.
7Q ára________________________
Anna Hjaitested,
Langholtsvegi 179, Reykjavík.
Snjólaugur Þorkelsson,
Hjarðarholti 1, Akranesi.
Ásmundur Valdemarsson,
Halldórsstööum 1, Fosshóli.
Jónína Gunnarsdóttir,
Fossgötu 7, Seyðisfiröi.
60 ára________________________
Sverrir Sigurðsson,
Dragavegi 11, Reykjavík.
Sólrún Jóhannesdóttir,
Hagamel 51, Reykjavík.
Valgarður Jóhannesson,
Vallarási 4, Reykjavík.
Karl Sigurgeir Óskarsson,
Brekkugötu 16, Vogum.
Elín Guörún Hafberg,
Kelduhvammi 12a, Hafnarfiröi.
Ottó B. Jakobsson,
Reynihólum 9, Dalvík.
Sigurður Olgeirsson,
r Uppsalavegi 22, Húsavík.
50 ára____________________
Sigurður Viihjálmsson,
Álakvísl 100, Reykjavík.
Halldór Sigþór Harðarson,
Furuhliö 17, Hafnarfirði.
Jóhanna Magnúsdóttir,
Ártúnum, Blönduósi.
Grétar G. Ingvarsson,
Ásvegi 15, Akureyri.
4Q ára________________________
Sigurður Þór Sigurðsson,
Hverfisgötu 55, Reykjavík.
Garðar Jón Bjarnason,
Kaplaskjólsvegi 29, Reykjavík.
Carl Friörik Möller,
Hæðargarði 2, Reykjavík.
Steinunn Böðvarsdóttir,
Engjaseli 70, Reykjavík.
Maríus Jóhann Ásbergsson,
Veghúsum 31, Reykjavík.
Katrín Pétursdóttir,
Bakkavör 40, Seltjarnarnesi.
Hannes Hjalti Giibert,
Tjarnargötu 41, Keflavík.
Sigrún Bjarnhéðinsdóttir,
Urðargili 26, Akureyri.
Snjólaug Kristinsdóttir,
Kirkjuvegi 3, Ólafsfirði.
Hanni Heiler,
Dynjanda, Höfn.
Ekta íhkur ehf.
J S.4661016J
Utvatnaður saltfískur,
án beina, til að sjóða.
Sérútvatnaður saltfiskur,
án beina, til að steikja.
Saltfisksteikur (Lomos)
jyrir veitingabús.
$mum
lát
Guðrún Lilja Gísladóttir, Logafold 76,
fyrrum húsfreyja á Höfðabrekku í Mýr-
dal, andaðist á líknardeild Landakots-
spítala mánud. 20.5.
Ragnheiöur Þórðardóttir, Grund, Akra-
nesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness að
morgni 20.5.
Óskar Georg Jónsson lyfjafræöingur,
Frostaskjóli 61, Reykjavík, lést af slys-
förum sunnud. 19.5.
Jóhann Kr. Sæmundsson, áður til heim-
x ilis að Fornhaga 11, Reykjavík, lést á
Hrafnistu, Reykjavík, mánud. 20.5.
Sigrún Ólafsdóttir lést á hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ laugard. 18.5.
Geir Axelsson, fyrrum bóndi og vörubíl-
stjóri, Brekkukoti, Hólavegi 40, Sauðár-
króki, andaðist á Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks mánud. 20.5.
FIMMTUDAGUR 23, MAÍ 2002
DV
Fólk í fmttum
Stefán Ásmundsson
þjóðréttarfræðingur hjá sjávarútvegsráðuneytinu
Stefán Ásmundsson, þjóðréttar-
fræðingur hjá sjávarútvegsráðu-
neytinu og formaður sendinefndar
íslands á fundi Alþjóða hvaiveiði-
ráðsins, las formanni ráðsins, Sví-
anum Bo Femholm, og fulltrúum
Bandaríkjanna pistilinn, og yfirgaf
síðan fundarsal Alþjóða hvalveiði-
ráðsins ásamt sínu fólki á þriðju-
daginn var.
Starfsferill
Stefán fæddist í Reykjavík 20.2.
1973 og ólst þar upp í Kleppsholtinu
og í Vogunum. Hann var í Voga-
skóla, lauk stúdentsprófi frá MS
1993, BA-prófi í sagnfræði frá HÍ
1997, stundaði nám í þjóðréttarfræði
við Lancaster University í Englandi
og lauk þaðan LL.M.-prófi í þjóðar-
rétti og alþjóðasamskiptum 1998.
Stefán stundaði ýmis almenn
verkamannastörf og var í bygginga-
vinnu á námsárunum.
Hann hóf störf við sjávarútvegs-
ráðuneytið 1998 og hefur verið þjóð-
réttarfræðingur hjá ráðuneytinu
síðan.
Stefán hefur sinnt ýmsum nefnd-
arstörfum er varða störf hans hjá
sjávarútvegsráðuneytinu.
Fjölskylda
Systir Stefáns er Gyða Ásmunds-
dóttir, f. 1.11. 1971, viðskiptafræð-
ingur og þjónustufulltrúi hjá Spari-
sjóði vélstjóra, búsett í Reykjavík en
maður hennar er Matthías Ásgeirs-
son forritari og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Stefáns eru Ásmundur
Stefánsson, f. 21.3. 1945, fram-
kvæmdastjóri hjá Eignarhaldsfélag-
inu Alþýðubankinn hf., og fyrrv.
forseti ASÍ, búsettur í Garðabæ, og
k.h., Guðrún Guðmundsdóttir, f.
13.2. 1945, viðskiptafræðingur og
framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins.
Ætt
Ásmundur er sonur Stefáns Odds,
fyrrv. framkvæmdastjóra Hreyfiis,
sonar Guðjóns Magnúsar, bílstjóra í
Reykjavík, Jónssonar, b. að Arnar-
felli í Þingvallasveit, Ólafssonar, b. í
Lónakoti í Hraunum, Sigurðssonar.
Móðir Guðjóns var Agnes Gísladótt-
ir, b. í Klausturhólakoti í Gríms-
nesi, Ólafssonar, b. í Traustholti í
Flóa, Jónssonar. Móðir Stefáns
Odds var Þórunn Einarsdóttir í
Óskoti í Mosfellssveit, Einarssonar
og Þóru Pálsdóttur.
Móðir Ásmundar Stefánssonar er
Áslaug, systir Jóns Óskars rithöf-
undar. Áslaug er dóttir Ásmundar,
rafvirkjameistara á Akranesi, Jóns-
sonar, b. í Hákoti á Akranesi, Ás-
mundssonar, b. í Miðvogi á Akra-
nesi, Jónssonar. Móðir Ásmundar í
Miðvogi var Guðrún Ásmundsdótt-
ir, b. í Elínarhöfða, Jörgenssonar, b.
í Elínarhöfða, Hanssonar, ættfóður
Klingenbergsættar. Móðir Jörgens
var Steinunn Ásmundsdóttir, systir
Sigurðar í Ásgarði, langafa Jóns for-
seta og Tómasar Fjölnismanns.
Móðir Ásmundar rafvirkja var Hall-
dóra Sigurðardóttir, b. á Karls-
brekku í Þverárhlíð, Sigurðssonar,
af Deildartunguætt. Móðir Sigurðar
á Karlsbrekku var Guðríður Torfa-
dóttir, b. á Hreðavatni, Jónssonar
og Halldóru Jónsdóttur, umboðs-
manns í Gvendareyjum, Ketilsson-
ar. Móðir Jóns var Guðrún Magnús-
dóttir, systir Skúla landfógeta. Móð-
ir Halldóru var Ástríður Elíasdóttir,
b. á Háreksstöðum, Magnússonar,
og Þorbjargar Þórðardóttur, pr. i
Hvammi í Norðurárdal, Þorsteins-
sonar. Móðir Áslaugar var Sigur-
laug Einarsdóttir, b. í Hliði á Akra-
nesi, Gíslasonar. Móðir Einars var
Guðbjörg Oddsdóttir, b. í Engey,
bróður Ólafar, langömmu Bjama
Jónssonar vígslubiskups og Guð-
rúnar, móður Bjama Benediktsson-
ar forsætisráðherra, föður Björns,
borgarstjóraefnis sjáifstæðismanna.
Oddur var sonur Snorra, b. i Engey,
Sigurðssonar og Guðrúnar Odds-
dóttur. Móðir Guðbjargar var Elín
Gísladóttir, b. á Morastöðum í Kjós,
Þorsteinssonar, og Kolfmnu Snorra-
dóttur, systur Odds.
Guðrún er dóttir Guðmundar, tré-
smiðs í Reykjavík, Jónssonar, b. og
verkamanns í Skarðskoti í Leirár-
sveit, Diðrikssonar, Pálssonar. Móð-
ir Jóns var Margrét Jónsdóttir.
Móðir Guðmundar var Guðrún
Guðnadóttir, b. á Sarpi í Skorradal,
bróður Magnúsar, langafa Sigríðar,
móður Þórs Magnússonar, fyrrv.
þjóðminjavarðar, en bróðir Sigríðar
var Bjöm, faðir Lýðs sagnfræðmgs.
Annar bróðir Guðna var Guðmund-
ur, afi Bjöms Fr. Bjömssonar alþm.
Guðni var sonur Hjálmars, b. í Graf-
ardal, Jónssonar, og Guðrúnar Sig-
urðardóttur. Móðir Guðrúnar
Guðnadóttur var Jóhanna Bluga-
dóttir, b. á Þverfelli í Lundarreykja-
dal, Ásgrímssonar, og Gróu Ólafs-
dóttur.
Móðir Guðrúnar Guðmundsdótt-
ur er Þuríður Ingibjörg, húsmóöir
og saumakona í Reykjavík, Stefáns-
dóttir, b. og sjómanns í Glettinga-
nesi og á Útskálum á Bakkagerði,
síðar vekamanns í Reykjavík, Þórð-
arsonar. Móðir Þuríðar var Þor-
gerður Árnadóttir.
Sjötug
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja í Skarðshlíð undir Austur-Eyjafjöllum
Kristm Jónsdóttir,
húsfreyja i Skarðshlið
undir Austur-Eyjafjöll-
um, verður sjötug á
morgun.
Starfsferill
Kristín fæddist að
Núpi undir Vestur-Eyja-
fjöllum og ólst þar upp.
Hún gekk í bamaskóla
Vestur-Eyjafjalla, fór ung
í vist til móðursystur
sinnar í Vestmannaeyjum og vann
auk þess í fiski í Eyjum. Hún starf-
aði síðan í mötuneyti Héraðskólans
í Skógum.
Er Kristín gifti sig sinnti hún bú-
störfum ásamt almennum heimilis-
störfum. Þau hjónin keyptu verslun-
ina í Skarðshlíð 1989 sem þá hafði
verið í eigu Kaupfélagsins Þórs á
Hellu. Starfræktu þau verslunina til
1997.
Kristín er nú búsett í Reykjavík
en á sumrin er hún mikið austur í
Skarðshlíð.
Fjölskylda
Kristín giftist 31.5.
1956 Tómasi Jónssyni, f.
25.4. 1929, d. 1.8. 1998,
bónda og kaupmanni.
Hann var sonur Jóns
Hjörleifssonar, f. 12.7.
1898, d. 23.7. 1973, bónda
og oddvita, og Guðrúnar
Sveinsdóttur, f. 25.8.
1897, d. 15.5. 1983, hús-
freyju.
Böm Kristínar og
Tómasar eru Guðrún Anna Tómas-
dóttir, f. 20.1. 1956, húsmóðir og
skólaliði, en maður hennar er Þor-
gils Gunnarsson, f. 14.2. 1956, raf-
virkjameistari og em böm þeirra
Gunnar, f. 7.10.1978, Tómas, f. 20.11.
1981, Þorgils, f. 14.1. 1992, d. 15.1.
1992, og Sævar, f. 18.1. 1993; Auð-
björg Tómasdóttir, f. 23.3. 1957, hús-
móðir en maður hennar er Her-
mann Hansson, f. 23.7.1959, bílamál-
arameistari og eru dætur þeirra
Kristín Thelma, f. 30.9. 1983, Hanna
Sif, f. 21.9. 1986, og Ama Björg, f.
20.4. 1993; Guðbjörg Tómasdóttir, f.
22.1.1960, húsmóðir en maður henn-
ar er Sveinn Borgar Jóhannesson, f.
6.10. 1961, pípulagningameistari og
eru synir þeirra Sveinn Aron, f.
11.4. 1987, og Sölvi Borgar, f. 27.2.
1992; Hjördís Tómasdóttir, f. 27.8.
1964, húsmóðir en maður hennar er
Þórir Ingvarsson, f. 7.11.1959, sendi-
bílstjóri og eru synir þeirra Hjörleif-
ur Steinn, f. 11.8. 1993, Hendrik, f.
5.6.1997 og Jón Bjartmar, f. 5.6.1997;
Guðmar Jón Tómasson, f. 20.11.
1967, sláturhússtjóri en kona hans
er Helena Kjartansdóttir, f. 19.8.
1972, húsmóðir og eru böm þeirra
Tómas Ingi, f. 24.8. 1992, og Karen
Dís, f. 14.5. 2000.
Systkini Kristinar: Guðrún, f. 5.4.
1930, var gift Sigurði Þorsteinssyni,
f. 10.12. 1921, d. 20.7. 2001; Jónas, f.
4.4. 1931, d. 2.5. 1931; sveinbam, f.
9.8. 1933, d. 8.9. 1933; Sigurður, f.
15.10. 1934, d. 9.2. 1997, var kvæntur
Mörtu Kristjánsdóttur, f. 6.11. 1929;
Jóna Vigdis, f. 9.1. 1936, gift Jóni E.
Guðjónssyni, f. 17.5. 1930; Einar
Ingi, f. 1.3. 1937, kvæntur Grétu
Ágústsdóttur, f. 14.2. 1936; Páll Ingi,
f. 20.2. 1939, kvæntur Þómýju Odds-
dóttur, f. 28.12. 1940; Sigríður Júlía,
f. 7.11. 1940, var gift Vigfúsi Guð-
mundssyni, f. 15.3.1934, d. 30.3.1990;
Guðlaug, f. 17.4. 1942, gift Guðgeir
Ólasyni, f. 14.4. 1941; Jóhanna, f.
21.6. 1944, gift Guðmari Ragnars-
syni, f. 21.7. 1941; Benóný, f. 3.2.
1946, d. 24.4.1946; Rúna Björg, f. 25.8.
1947, gift Herði Bjömssyni, f. 22.11.
1944; Guðjón, f. 13.9. 1950, kvæntur
Ástu Sveinbjömsdóttur, f. 3.2. 1956;
Oddur Helgi, f. 3.1. 1955, kvæntur
Valdísi Leifsdóttur, f. 27.4. 1958.
Foreldrar Kristínar voru Jón Ein-
arsson, f. 30.4. 1902, d. 22.5. 1979,
bóndi að Núpi undir Vestur-Eyja-
fjöllum, og Auðbjörg Jónína Sigurð-
ardóttir, f. 25.4. 1910, d. 15.3. 1985,
húsfreyja.
Kristín verður heima í Skarðs-
hlíð og tekur á móti gestum laugar-
daginn 25.5. nk.
Merkir Islendingar
Jón Ólafsson, prófastur í Holti i Önundar-
firði, fæddist að Fjósatungu í Fnjóska-
dal 22. maí 1902. Hann var sonur Ölafs
Sigurðssonar, bónda á Kotungsstöðum í
Fnjóskadal, og k.h., Guðnýjar Ámadótt-
ur húsfreyju.
Jón lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum i Reykjavík 1924 og embætt-
isprófi í guðfræði frá Háskóla íslands
1928.
Jón var heimiliskennari í Reykjavík
1925-1928 og kenndi síðan einn vetur
við MR. Lengst af var hann þó prestur
aö Holti í Önundarfirði eða frá 1929-1963
og stundaði þar jafnframt búskap. Hann
var prófastur í Vestur-ísafjarðarsýslu á ár-
unum 1941-1963, stundaði unglingakennslu á
Jón Ólafsson
Flateyri og í Holti 1931-1945 og starfaði í Út-
vegsbanka Islands á ísaflrði 1963-1969.
Jón sat í stjóm Prestafélags Vestfjarða
og var formaður þess, sat í yfirkjörstjóm
Vestur-ísafjarðarsýslu um árabil, var
fulltrúi á fyrstu kirkjuþingum, sat
lengi í stjóm Kaupfélags Önflrðinga og
var formaður þess, sat lengi i hrepps-
nefnd og oddviti, sat í skattanefhd í
tuttugu og tvö ár, var formaður fram-
kvæmdanefndar Vestfjarða IOGT, var
sfmstöðvarstjóri og bréfhirðingamaður
1930-1963, formaður og var gjaldkeri
sjúkrasamlagsins 1945-1963.
Jón bjó í Holti 1929-1963, á ísafirði
1963-1975 og siðan í Hafnarfirði.
Jón lést 29. maí 1995.
Helgi Jóhannsson frá Núpum, Bröttuhlíð
6, Flveragerði, verður jarðsunginn frá
Flveragerðiskirkju fimmtud. 23.5. kl.
14.00. .
Útför Sigríðar Elínar Guðbjartsdóttur,
Seljahlíð, Hjallaseli 55, fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtud. 23.5. kl.
13.30.
Reynir Örn Kristinsson, Heiðarholti
10A, Keflavík, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju föstud. 24.5. kl. 14.00.
Útför Hólmfríðar Jónsdóttur, Grundarstíg
11, Sauðárkróki, fer fram frá Sauðár-
krókskirkju föstud. 24.5. kl. 13.00.
Útför Jóns Jörgensonar Kjerúlf, Holti,
frá Húsum í Fljótsdal, fer fram frá Ás-
ólfsskálakirkju föstud. 24.5. kl. 14.00.
Ursula Hauth, Þórufelli 8, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju
föstud. 24.5. kl. 13.30.