Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 Rafpóstur. dvsport@civ.is - keppni í hverju orði Keane ætlaði heim Svo virðist sem eitthvert ósætti hafi komið upp í írska landsliðshópnum í knattspymu sem nú er kominn til Suð- ur-Kóreu. Roy Keane frá Manchester United og fyrirliði írska liðsins átti erfitt með sig eftir æfingu í gær og hót- aði því að fara heim og leika ekki með liðinu á HM. Keane lenti í orðaskaki við Pat Bonner aðstoðarþjálfara, en Mick McCarthy aðalþjáifari náði að koma öll- um á jörðina og Keane lagði hótanir sin- ar til hliðar og andrúmsloftið er komið í lag, eins og McCarthy orðaði það í gærdag. -JKS Bland í Landsliðið sem keppir í Belgíu Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari i handknattleik, valdi í gær hópinn sem tekur þátt í fjögurra landa móti sem hefst í Belgíu á morgun. Mark- menn liðsins eru Guðmundur Hrafnkelsson, Conversano, Bjarni Frostason, Haukum, Birk- ir ívar Guðmundsson, Torre- vieja. Homa- og linumenn eru Jón Karl Bjömsson, Haukum, Einar Örn Jónsson, Wallau Massenheim, Gylfi Gylfason, Dússeldorf, Sigfús Sigurðsson, Val, Róbert Sighvatsson, Dússel- dorf. Útileikmenn eru Dagur Sig- urðsson, Wakunaga, Rúnar Sig- tryggsson, Haukum, Halldór Sig- fússon, KA, Halldór Ingólfsson, Haukum, Heimir Felixson, KA, Snorri Steinn Guðjónsson, Val, Gunnar Berg Viktorsson, Paris St. Germain, Ragnar Óskarsson, Dunkerque. Auk íslands taka Danir, Svíar og Júgóslavar þátt í mótinu. Eft- ir mótið verður landsliðið valið sem leikur gegn Makedóníu í forkeppni heimsmeistaramóts- ins. Þá koma til móts við liðið leikmenn sem leika með liðum I þýsku úrvalsdeildinni. -JKS Atli Eövaldsson landsliösþjálfari þakkar norska starfsbróöur sínum, Nils Johan Semb, fyrir leikinn á blaöamannafundi. DV-mynd Rygg Lunde/Böde Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari kátur með frammistöðu liðsins: Léku með hjartanu Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf- ari i knattspymu, gat ekki leynt ánægju sinni með liðið gegn Norð- mönnum í Bodö í gærkvöld. Hann sagði að þessi úrslit sýndu að hann hefði úr mun breiðari hópi leik- manna að velja en áður. Liðsheild- in hefði verið einstök, allir lögðust á eitt og unnu vel saman. Stoltur af þessum hópi „Það er ekki sjálfgefið að gefa ungum leikmönnum tækfæri gegn jafnsterku liði og Norðmenn hafa á að skipa. Ungu strákarnir stóðu sig í einu orði frábærlega og ég er stoltur af þessum hópi. Þeir stóðu allir fyllilega undir væntingum og gott betur,“ sagði Atli Eðvaldsson. Atli sagði að liðið hefði leikið með hjartanu og það hefði verið unun á köflurn á sjá hvernig liðið vann sig áfram. „Norska liðið reyndi mikið að koma háum boltum inn i teiginn enda flestir höfðinu hærri en mín- ir menn. íslenska vörnin hafði á móti hugrekki að vinna sig út úr vandanum þegar hann kom upp hverju sinni. Það var alveg ótrú- legt að sjá hvað óreyndir leik- menn, sem ég notaði í þessum leik, komust vel frá sínu. Þeir voru alls óhræddir og báru enga virðingu fyrir andstæðingnum. Liðsheildin var einstök," sagði Atli. Atli bætti við að Rúnar Kristins- son, Marel Baldvinsson, Indriði Sigurðsson og Heiðar Helguson hefðu skilað mikilli vinnu. ívar Ingimarsson og Bjarni Þorsteins- son hefðu leikið eins og greifar og Gylfi Einarsson hefði enn fremur átt frábæran leik. - Þessi leikur hlýtur að vera gott veganesti i þau verkefni sem bíða liðsins? „Það er ekki nokkur spurning að liðið fékk ómetanlega reynslu með þessum leik og þetta er tvímælaust gott veganesti fyrir framhaldið." Varnarleikur íslenska liðsins vel skipulagður „Þetta var mikill baráttuleikur og mér fannst varnarleikur íslend- inga mjög vel skipulagður. ís- lenska liðið varðist vel og Norð- menn fengu ekki mörg tækifæri. Úrslitin verða að teljast mjög góð fyrir íslendinga. Atli Eðvaldsson var að reyna nýja menn í nýjum stöðum og þeir leystu það vel úr hendi. Gylfi Einarsson stóð sig vel í hægri bakverðinum og Bjarni Þorsteinsson og ívar Ingimarsson voru sterkir í miðvarðarstöðunum. Þrir af fjórum leikmönnumnn voru að leika í fyrsta sinn í öftustu línu og komust vel frá sinu. Norð- menn eru sterkir og þegar það er haft í huga má íslenska liðið vel við una,“ sagði Logi Ólafsson, að- stoðarþjálfari norska liðsins Lille- ström, í samtali við DV eftir leik- inn. Logi bætti við að honum hefði fundist Rúnar Kristinsson leika mjög vel í fyrri hálfleik og um hann skapaðist gott spil eins og honum er einum lagið þegar hann nær sér á strik. Logi sagði að Norð- menn væru fúlir með niðurstöðu leiksins en þeir hafa eflaust haldið að þeir væru komnir á strik eftir stórsigur á Japönum í síðasta leik. -JKS Bikarmeistarar Hauka í hand- knattleik eru að líta í kringum sem eftir markverði í stað Magnúsar Sigmundssonar sem gekk í raðir FH á dögunum. Haukarnir hafa ver- ið að leita á EES-svæðinu en utan þess má einungis hafa tvo leikmenn og það eru Shamkuts og Pauzoul- is. Viðræöur eru í gangi við Sham- kuts um nýjan samning. Finnar unnu Letta, 2-1, í vináttu- landsleik í Helsinki í gærkvöld. Dómari leiksins var Kristinn Jak- obsson og aöstoðardómarar voru Pjetur Sigurösson og Eyjólfur Finnsson. Luis Van Gaal, sem tók við stjórn- inni hjá Barcelona í síðustu viku, er sagður mjög hrifinn af landa sín- um Jimmy Floyd Hasselbaink, fé- laga Eiðs Smára hjá Chelsea. Aldrei að vita nema að annar þessara miklu markaskorara yfirgefi her- búðir Chelsea í sumar. íslenska kvennalandsliðið i blaki tapaði fyrsta leik sínum á Evrópu- mótinu fyrir San Marínó i Lúxem- borg í gær. San Marinó vann allar hrinurnar, 27-25, 29-27 og 25-11. Ekki er víst að franski landsliðs- maðurinn Thierry Henry leiki með á heimsmeistaramótinu sem hefst eftir viku. Henry fékk sýkingu í hnéð og ætlar Roger Lemerre landsliðsþjálfari að bíða með til næstu helgar hvort hann velur ann- an mann í stað Henrys. Sven Göran Eriksson, landsliðs- þjálfari Englendinga, hefur kallað Kieron Dyer inn í landsliðshópinn en hann átti við hnémeiðsli að stríða. Trevor Sinclair tók sæti hans tímabundið en er farinn til Engiands á ný og veröur þar til taks. Danny Murphy meiddist á æfingu í gær og er ekki vitað hversu alvarleg meiðslin eru Eggert Magnússon, formaður KSÍ, Halldór B. Jónsson varaformaður og Geir Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri halda utan til Suður- Kóreu um næstu helgi þar sem þeir munu sitja þing Alþjóða knatt- spyrnusambandsins (FIFA). Stóra mál þingsins, sem allra augu munu beinast að, er sjálft forsetakjörið en kosning um hann fer fram 29. maí. Eggert Magnússon verður síöan áfram úti eftir þingið þar sem hann hefur verk að vinna samfara heims- meistaramótinu en eins og kunnugt er var Eggert kosinn í fram- kvæmdastjórn UEFA. -JKS 'ó Winterthur á eftir Hilmari Svissnesku meistararnir Pfadi Winterthur í handknattleik eru á höttunum eftir Hilmari Þór- lindssyni landsliðsmanni, en hann lék með ítalska liðinu Modena á síðasta keppnistimabili. Hilmar lék mjög vel á Ítalíu og varð næst- markahæsti leikmaður deildarinnar. Pfadi Winterthur hefur um árabil verið eitt sterkasta félagslið í Sviss og hefur margsinnis unnið titil- inn þar í landi. Liðið vantar skyttu fyrir næstu leiktíð og hefur af þeim sökum sett sig í sam- band við Hilmar Þórlindsson. „Mér finnst það mjög spennandi kostur að fara til Sviss og leika með þessu sterka félagi. Ég stefni að þvi að leika áfram erlendis næsta vet- ur og set það raunar á oddinn. Ef hins vegar að mál þróast með þeim hætti að ekkert verði úr því þá mun ég leika með Gróttu/KR,“ sagði Hilmar Þórlindsson. Hann hélt utan til Belgiu í morgun með lands- liðinu sem tekur þar þátt í fjögurra landa móti sem hefst á morgun. í ferðinni ætlar Hilmar að hitta umboðsmann sinn og er hann að vonast eftir að hægt verði þá að loka málinu og komast síðan í sumarfrí. Barakaldo sýnir áhuga Hilmar staðfesti það í samtalinu við DV að spænska 1. deildarliðið Barakaldo hefði verið í sambandi við umboðsmann sinn og liðið fylgdist með hvað kæmi út úr viðræðunum við Pfadi Winterthur. Spænska liðið vantar einnig til- fmnanlega skyttu en þó nokkur breyting verður á liðinu á næsta timabili, en lið- ið lenti í 14. sæti í vor og var ekki fjarri því að falla í 2. deild. „Ég er spenntari fyr- ir svissneska liðinu þó ég útiloki ekkert í þessum efnum,“ sagði Hilmar. -JKS Hilmar Þórlindsson lék vel með Modena á Ítalíu á sl. vetri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.