Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 10
10
Innkaup
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002
DV
Kjarval & 11-11
Tilboðin gilda til 29. maí.
Maxwell House kaffi 368 kr.
Emmess jógúrtís, allarteg. 11 399 kr.
Ömmu heimshorn 439 kr.
LU Prince súkkulaðikex 2x175 g 189 kr.
LU Mikado kex 149 kr.
LU Pims Orange 179 kr.
Bónus
Tilboðin gilda til 26. maí.
Goða pylsur 30% afsl. 559 kr. kg
Prins póló 30 stk. 999 kr.
Maryland kex 33% extra 85 kr.
Gold kaffi 500 g 179 kr.
Frosin ýsa með roði 399 kr. kg
Frosnir ýsubitar roð- og beinlausir 679 kr. kg
Frosin útvatnaður saltfiskur 449 kr. kg
Reykt ýsa 679 kr. kg
Úrval & Samkaup
Tilboðin gilda til 27. maí.
I Kjarnagrautur jarðarberja 1 I 199 kr.
2 Kjarnagrautur sveskju 1 I 199 kr.
3 Kjamagrautur epla 1 I 239 kr.
4 Kjarnagrautur bl. ávextir 1 I 199 kr.
S Nói bitar malta 200 g 189 kr.
6 Nói bitar hrís 200 g 189 kr.
7 Nói bitar smellir 200 g 199 kr.
8 Cadb. Diary milk 200 g 199 kr.
9 Cadb. Wholenut 200 g 229 kr.
10 Cadb. Fruit/Nut 200 g 229 kr.
Skeljungur
Tilboðin gilda til 29. maí.
1 Freyju rís stórt 85 kr.
2 Nóa kropp, 150 g 179 kr.
3 BKI kaffi 500 g 339 kr.
4 Lorenz kartöfluflögur 25 g 79 kr.
S Lorenz kartöfluflögur í stauk 100 g 199 kr.
6 McVites Caramel kex 300 g 236 kr.
7 Drykkjarjógúrt, 2 teg. 250 ml 69 kr.
8 Pantene Cls sjampó 200 ml 379 kr.
9 Pantene Cls hárnæring 200 ml 379 kr.
10 Turtle wash & shine - sápubón 239 kr.
Þín verslun
Tilboðin gilda til 29. maí.
Hamborgarar og brauð 20% afsl.
Kryddlegnar svínakótilettur 20% afsl.
Hunt's BBQ sósur 510 g 198 kr.
Hunt's tómatsósa 680 g 139 kr.
Orville örb. popp 297 g 169 kr.
Freyju Rís kubbar 198 kr.
Party mix 170 g 189 kr.
8 Swiss Miss 489 kr.
Esso
Tilboðin gilda til 31. maí.
1 Góa Lindubuff 50 g 49 kr.
2 Góa Æðibitar stórir 220 g 219 kr.
3 Hersheys Almond Joy 49 g 99 kr.
4 Hersheys Reese Stick 42 g 99 kr.
Krónan
Tilboðin gilda til 29. maí.
1 SS rauðvínslegin bógsteik 824 kr. kg
2 SS kryddlegin lambarif 326 kr. kg
3 Ritz saltkex 68 kr.
4 Pepsi 21 999 kr.
5 7-up 21 999 kr.
6 Smarties 199 kr.
7 Doritos 200 g 189 kr.
_
Uppgrip-verslanir Olís
Tilboðin gilda í maí. |
i Freyju lakkrísdraumur, stór 89 kr.
2 Rolo kex 199 kr.
3 Toffy Crisp 85 kr.
4 Fresca 1/2 1 plast 109 kr.
5 Hjólreiðahjálmar 2499 kr.
6 Hjólreiðaahjálmar 1999 kr.
Smáauglýsingar
550 5000
Hef hlegið
síðan ég vann
„Þetta kom mér svo sannarlega á óvart
og ég er búin að hlæja síðan ég frétti af
þessum vinningi," segir Gyða Ásgeirsdótt-
ir sem vann matarkörfu DV og Bónuss
þessa vikuna en í hverri viku er dreginn
út einn skilvis áskrifandi DV og fær hann
ávísun á úttekt í Bónus að upphæð 15.000
kr. Ágætis búbót þar.
Gyða segir að hún hafi hingað til ekki
verið heppin og hafi aldrei unnið neitt
fyrr en nú. Hún segist kaupa inn í
Bónus þegar gera þarf
stórinnkaup, eins og fyrir
afmæli og þess háttar
en annars verslar hún
í Hagkaupum. „Mér
finnst gott að kaupa
inn i Bónus, mín búð
er i Spönginni þar
sem ég bý í Grafar-
vogi og hún er f!n.“
Matarreikningur
heimilisins er ekki
mjög hár að sögn
Gyðu. „Maðurinn
minn er sjó-
maður
þannig
að yfirleitt erum við bara tvö heima, ég og
sonurinn, og það fer ekki mikiö ofan í
okkur. Þessi úttekt á því eftir að duga vel
og lengi, en hún verður notuð til að fylla
skápa heimilisins af góðum og hollum
mat.“
Bónus hefur rekið lágvöruverðsverslan-
ir í meira en áratug og hafa þær iðulega
komið best út í verðkönnunum sem DV
hefur gert á matvöru. -ÓSB
Gyða Ásgeirsdóttir ásamt synl sínum Ásgeiri Páli.
Alltaf grænna hinum megin
Helga Hauksdóttir garöyrkjufræöingur segir aö lífrænn áburöur sé bestur þar sem hann byggi upp jarö-
veginn til lengri tíma. Þeir sem ekki vilji hann geti þó notaö tilbúinn áburö.
Grasið:
Alltaf grænna
hinum megin
- en góð umhirða skilar sér í fallegri flöt, segir Helga Hauksdóttir,
garðyrkjufræðingur í Garðheimum
„Á þessum tíma er grasið að byrja að spretta
og þá er rétti tíminn til að bera á,“ segir Helga
Hauksdóttir, garðyrkjufræðingur í Garöheimum.
Hún segir að lífrænn áburður sé bestur þar sem
hann byggi upp jarðveginn til lengri tima og ör-
verumar þar. Lífrænn áburður sem hentugt er
að nota er vel staðinn húsdýraáburður, þörunga-
mjöl eða kjötmjöl.
„Þessi áburður hefur þó þann ókost að hann
lyktar í nokkra daga eftir að hann er borinn á og
ekki eru allir hrifnir af þvi. Þeir hafa þá annan
kost sem er tilbúinn áburður sem líta má á sem
eins konar skyndifæði fyrir flötina."
Heppilegt er að hefja sumargjöfma á graskomi,
sem á þessum árstíma hentar grasinu því það
inniheldur meira af köfnunarefni sem eflir yfir-
vöxtinn í grasinu. Þeir sem vilja einn áburð á all-
an gróður í garðinum velja blákom í stað
graskomsins. Hæfdegt magn er um 4 kg áburðar
á hverja 100 m2.1 júní eða byrjun júlí ætti síðan
að endurtaka áburðargjöf með 2 1/2 kg af blá-
korni eða lífrænum áburði á hverja 100 m2.
Aðspurð segir Helga að áburðarkalk megi nota
allt árið meðan grasið er þurrt og að í lagi sé að
gefa það samhliða öðrum áburði.
„En best er að bera það á flötina á haustin. í
áburðarkalkinu er örlítill áburður en aðalmark-
mið þess er að gera súran jarðveg basískari og
gljúpari."
Mosinn
Flestir sem bera áburðarkalk á grasflatir gera
það vegna mosa.
„En mosinn getur líka komið þótt jarðvegur sé
ekki súr. Hann nær sér á strik á mildum vetrum
því hann vex best þegar hitastigið er 0-4"C og
grasið er visið. Þá hafa margir tekið það til
bragðs að slá ekki grasið eftir 15. ágúst og eru
kenningar um að mosinn nái sé ekki á strik um
veturinn þar sem hann er kæfður undir grasinu.
Einnig er ráð að slá grasið oftar og lítið, með
sláttuvélina í hæstu stillingu þannig að það haldi
meiri blaðmassa og geti þannig eflst og styrkt rót-
arkerfið."
Helga segir að það hjálpi einnig til að fjarlægja
mosann með því að raka hann í burtu með hrífu
eða nota til þess tætara.
„Þegar það hefur verið gert er stungið í gras-
flötina með gaffli, eins þétt og hver og einn nenn-
ir og nokkuð grófum sandi stráð yfir. Ef jarðveg-
ur er súr má nota skeljasand. Við þetta koma
væntanlega skeflur í grasið og þá þarf að sá gras-
fræi í þær og halda þeim rökum á meðan fræið
spirar."
Illgresið
Fíflar, skriðsóley og einært illgresi hafa gert
mörgum garðeigandanum lífið leitt.
„Áhrifaríkast er að uppræta það jafnóðum, og
fyrir alla muni áður en það blómstrar. Þá er kom-
ið í veg fyrir að það sái sér i flötina og komi
margfalt til baka eftir nokkrar vikur. Gæta skal
þess að fjarlægja flflana eftir að þeir hafa verið
slegnir því blómin halda áfram að þroskast og
mynda fræ þótt þau hafi verið skorin af. Skriðsól-
ey þarf einnig að fjarlægja um leið og blöð henn-
ar fara að gægjast upp úr moldinni og alls ekki
bíðá með það í t.d. viku. Með því er komið í veg
fyrir að þær rætur sem e.t.v. verða eftir í mold-
inni fái næringu til að dafna."
Að lokum vifl Helga benda fóiki á að gott get-
ur verið að sá stöku sinnum yfir flötina til að
endumýja grasið.
„Við erum afltaf að klippa af því og nær það
því ekki að halda sér við nema með rótinni. En
sé hugsað vel um grasið og iflgresi og mosa hald-
ið í skefjum þá getur verið að engin þörf sé á
því.“ -ÓSB
Garðheimar Graskorn, 5 kg. 535 Blákorn, 10 kg 890 Áburðarkalk, 5 kg 465 Garðamjöl, 10 kg 1325
Blómaval 495 890 399 1386
Frjó 420 777 347 1295
MR búðin 795 400 1100
Byko 426 676 353 ekki til
Húsasmiðjan j: 495 890 399_ ekki tilj