Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Side 12
12 Útlönd FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 DV Frelsisstyttan og Brooklyn-brúin í New York eru hugsanlega næstu skotmörk hryöjuverkamanna. Frelsisstyttan hugsanlega næsta skotmark Abu Zubaydah, háttsettur foringi í al-Qaeda-samtökunum, sem hand- tekinn var í Pakistan i lok mars, hefur varaö bandaríska gæslumenn sína við því að næstu skotmörk hryðjuverkamanna í Bandaríkjunum gætu hugsanlega orðið Frelsisstyttan, fjölmennar verslunarmiðstöðvar eða allt þar á miili. Bandariskir leyniþjónustumenn sem yfirheyrt hafa Zubaydah að undanfömu taka þessu þó með fyrirvara og segja að þetta kunni að vera blekkingaleikur hjá hryðju- verkaforingjanum, þar sem hann geri sér fulla grein fyrir spenntum taugum Bandaríkjamanna eftir hryðjuverka- árásimar þann 11. september. Bandarísk stjórnvöld telja hann heldur ekki beint trúverðugan, en hafa þó gefið út viðvörun um hugs- anlegar árásir um helgina, sem er löng fríhelgi í Bandaríkjunum og mikið um að vera. Ströng öryggis- gæsla er því við hugsanleg skotmörk, en auk Frelsisstyttunnar hafa Brook- lyn-brúin og ýmsar byggingar i New York verið nefndar til sögunnar. Bush og Pútín funda í Kreml^ Deilur um Iran skyggja á fund REUTERSMYND Forsetar stinga saman nefjum George W. Bush Bandaríkjaforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hófu fjögurra daga fundahöld sín innan glæsivegga Kremlar í Moskvu í morgun. Forsetarnir munu meöal annars undirrita tímamótasamning um fækkun lang- drægra kjarnorkuflauga. Lögreglan í Rússlandi hefur mikinn viöbúnaö vegna heimsóknar Bush og eru lögregluþjónar á hverju strái. Vladimír Pútín Rússlandsforseti og George W. Bush Bandaríkjaforseti hófu fundahöld sín innan glæsilegra Kremlarmúra í morgun. Þeir munu síðan undirrita tímamótasamkomulag sem kveður á um fækkun langdrægra kjarnaflauga um tvo þriðju hluta. Áður en leiðtogarnir settust niður í morgun var þó eitt ágreiningsefni þegar farið að varpa skugga sínum á viðræðumar. Þar er um að ræða ásak- anir Bandaríkjamanna um að Rússar veiti stjómvöldum í íran aðgang að hátækni. Bandaríkjamenn saka írana um að styðja við bakið á hryðjuverka- mönnum. Þeir Bush og Pútín ætla að ræðast við í fjóra daga og verður höfuðvið- fangsefni þeirra samningurinn um niðurskurð í kjarnavopnabúrinu. Sér- fræðingar segja hins vegar að samn- ingur þessi lykti af úreltum metingi rikjanna tveggja frá því á tímu kalda stríðsins. Samningurinn sé harla lítils virði í baráttunni gegn hryðjuverkum sem bæði Bush og Pútín líta á sem mestu hættuna sem steðjar að heims- byggðinni. „Velkominn til Moskvu, kæri vin- ur,“ sagði Pútín á ensku og ljómaði út að eyrum þegar hann tók á móti Bush í hinu glæsilega „græna herbergi" í Kreml. „En fallegt," svaraði þá Bandaríkja- forseti og virti fyrir sér gyiltar klukk- ur, risastór málverk og glæsileg hús- gögn. Pútín notaði tækifærið og æfði sig enn frekar i enskunni og spurði Bush hvort Evrópuferðin hefði ekki gengið vel. Bush kvað já við. Bandaríkjaforseti flaug til Moskvu frá Þýskalandi þar sem hann gaf til kynna að baráttan gegn hryðjuverk- um yrði meginþema vikulangrar heimsóknar sinnar til Evrópu. Hann sagði evrópskum bandamönnum sín- um að víkja ágreiningi sín í milli til hliðar og gera NATO að öflugu tæki í baráttunni gegn hryðjuverkum. Embættismenn í Washington sögðu óliklegt að Pútín tækist að tryggja þær efnahagslegu tilslakanir sem hann sækist eftir, eins og að fá Rúss- land skOgreint sem land með mark- aðshagkerfi og að reglugerðir frá 1970 sem takmarka viðskipti milii land- anna verði felldar úr gildi. UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir á eftir- farandi eignum: Aðalstræti 9, 0208, 8,5% 2. hæðar í miðhluta austurhliðar sunnan megin, 38,4 fm, Reykjavík, þingl. eig. Aðal- eign ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Ásvallagata 31, 0201, 2. hæð og 1/3 kjaliari, Reykjavík, þingl. eig. Elín Björk Bruun og Garðar Ólafsson, gerð- arbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Brautarholt 4, 0101, verslun og skrif- stofur á 1. hæð íV-enda m.m., Reykja- vík, þingi. eig. Sjófang hf., gerðarbeið- andi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00.________ Brautarholt 24, 0101, 1. hæð og geymsla í kjallara, Reykjavík, þingl. eig. Merking ehf., gerðarbeiðendur fs- landsbanki-FBA hf. og Lífeyrissjóður- inn Framsýn, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00.________________ Bugðulækur 1, 0201, 6 herb. íbúð á 2. hæð og 2/3 bílskúr fjær lóðarmörkum, Reykjavík, þingl. eig. Bragi Friðfinns- son, gerðarbeiðandi Tolistjóraembætt- ið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Dofraborgir 13, Reykjavík, þingl. eig. Petra Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Engjasel 84, 0101, 4ra herb. íbúð á 1. hæð t.v. og bílskýli, merkt nr. 27, Reykjavík, þingl. eig. Hrafnhildur Ei- ríksdóttir, gerðarbeiðandi Leifur Árnason, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Flétturimi 22, íbúð 0302, 83,60 fm íbúð á 3. hæð m.m. Reykjavík, þingl. eig. Ragna Sigríður Reynisdóttir, gerð- arbeiðendur íslandsbanki hf. og S24, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Flúðasel 81, Reykjavík, þingl. eig. Hanna Hannesdóttir, Bogi Baldursson, Steinunn Jónsdóttir og Baldur Jó- hannsson, gerðarbeiðendur Frjálsi líf- eyrissjóðurinn, íbúðalánasjóður, Sparisjóður Hafnarfjarðar og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Garðastræti 40, 010201,141,3 fm íbúð á 2. hæð ásamt geymslu 0006, Reykja- vík, þingl. eig. Ingibergur E. Þorkels- son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembætt- ið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Garðastræti 42, Reykjavík, þingl. eig. Smári Arnarsson og Þuríður Þórðar- dóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóraemb- ættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Langahlíð 23, 0201, 68,4 fm 2ja herb. íbúð á 2. hæð t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig. db. Svövu Kristjánsd., b.t. Stefaníu Sæmundsd. hdl., gerðarbeið- endur Búnaðarbanki íslands hf., Hellu, Langahlíð 23, húsfélag, og Sam- einaði lífeyrissjóðurinn, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Langirimi 21, 0201, sólbaðsstofa á 2. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Kristrún Kristinsdóttir og Pétur Guð- mundsson, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., þriðjudag- inn 28. maí 2002, kl. 10.00. Laufásvegur 17,0203,2ja herb. íbúð á 2. hæð án lóðarréttinda, Reykjavík, þingl. eig. Gæðakaup ehf., gerðarbeið- endur Tollstjóraembættið og Þyrnirós ehf., þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10,00. Merkjateigur 4, 0101, aðalhæð, sól- skýli og bflskúr, Mosfellsbæ, þingi. eig. Bjarni Bærings Bjamason, gerðar- beiðendur Mosfellsbær og Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Miðtún 10, 0001, 2ja herb. kjallaraí- búð, Reykjavík, þingl. eig. Hjörtur Markússon, gerðarbeiðandi Byggða- stofnun, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Móri RE, skipaskrárnúmer 6665, ásamt vélum, tækjum, búnaði og öllu því sem fylgja ber skipinu eins og það verður framast veðsett, þar á meðal lausafjármunum og öllum veiðiheim- ildum, þingl. eig. Sigríður Hrefna Sig- urðardóttir, gerðarbeiðandi Byggða- stofnun, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00._____________________________ Möðrufeli 11, 0202, 50% ehl. í 2ja herb. íbúð á 2. hæð í miðju m.m., Reykjavík, þingl. eig. Jóhann Rúnar Kjartansson, gerðarbeiðandi Spari- sjóður Reykjavíkur og nágrennis, úti- bú, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Njarðargata 25, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Rakel Pálsdóttir, gerðar- beiðandi Leikskólar Reykjavíkur, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Rauðalækur 45, 0201, 2. hæð og bfl- skúr fjær húsi, Reykjavík, þingl. eig. Rósa Sigríður Gunnarsdóttir og Hann- es Kristinsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Tollstjóraembætt- ið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00.___________________ Reynimelur 84, 0101, 50% ehl. í 4ra herb. íbúð á 1. hæð t.v., Reykjavík, þingl. eig. Þorvaldur Baldurs og Hrafn- hildur Óskarsdóttir, gerðarbeiðandi Toflstjóraembættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Sólvallagata 33,0201,4ra herb. íbúð á 2. hæð, Reykjavík, þingl. eig. íslenska kvikmyndastofan ehf., gerðarbeiðend- ur Sparisjóður Kópavogs og Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Starengi 20A, 0101, íbúð á 1. hæð, geymsla, merkt 0021, í kjallara á nr. 18 m.m. og bflastæði nr. 25, Reykjavík, þingl. eig. Jóhanna Lovísa Stefáns- dóttir, gerðarbeiðandi Selecta fyrir- tækjaþjónusta ehf., þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Unufell 21, 0202, 4ra herb. íbúð, 92,2 fm, á 2. hæð t.h. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Kristín Pálína Ingólfsdóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Víðimelur 34,0101,1. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Valgerður Franklínsdóttir og Ingvar Jónsson, gerðarbeiðandi ís- landsbanki-FBA hf., þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00.__________ SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- _______um sem hér segir:______ Furubyggð 13, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hafdís Kristjánsdóttir og Jón Jónsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 11.30. Merkjateigur 4, 0102, jarðhæð, Mos- fellsbæ, þingl. eig. Bjarni Bærings Bjarnason, gerðarbeiðandi Tolistjóra- embættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, ki. 11,00,____________________ Stóriteigur 34, Mosfellsbæ, þingl. eig. Jóhanna Eysteinsdóttir og Pétur Steinn Sigurðsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður sjó- manna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, B-deild, Lífeyrissjóðurinn Framsýn og Sparisjóður Kópavogs, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.30. Torfufeli 50, 0402,4ra herb. íbúð, 92,2 fm, á 4. hæð t.h. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Finnbogadóttir, gerðarbeiðendur fbúðalánasjóður og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 15.00. Viðarhöfði 2, 0206, 528 fm eining, Reykjavík, þingl. eig. Globai hf., gerð- arbeiðendur Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. ogToil- stjóraembættið, þriðjudaginn 28. maí 2002, kl. 10.00. Völvufell 50,0202,4ra herb. íbúð, 92,2 fm, á 2. hæð t.h. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Ingibjörg Hauksdóttir, gerð- arbeiðendur Fróði hf., Ingvar Helga- son hf., Kreditkort hf., Tollstjóraemb- ættið ogVölvufell 50, húsfélag, þriðju- daginn 28. maí 2002, kl. 14.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Atal Behari Vajpayee, forsætis- ráðherra Indlands, ætlar að taka sér frí um helgina og dvelja við rætur Himalajafjalla. Ráð- herrann telur það óhætt þar sem held- ur hefur dregið úr ótta manna við stríð milli Indverja og Pakistana vegna deilunnar um Kasmír. Ind- verjar ætla að gefa Pakistönum tvo mánuði til viðbótar til að ráða nið- urlögum harðlínumúslíma. Öryggiö dýrara Öryggisráðstafanir í jarðgöngun- um í Færeyjum verða helmingi dýr- ari í framkvæmd en reiknað var með vegna nýrra krafna sem gengn- ar eru í gildi. Óttast um sextíu manns Óttast er að rúmlega sextíu manns hafl látið lífið í morgun þeg- ar ferja sökk á fljóti einu í Bangla- dess, að sögn lögreglu. Frakkar viija loka Frönsk stjórnvöld stefna að því að loka flóttamannabúðum skammt frá Ermarsundi en þaðan flýja margir til að reyna að komast yfir til Bretlands. Engin dagsetning hef- ur þó verið nefnd. Leitað að dauðaorsök Lögregla í Washington reynir nú að komast að því hvemig þinglær- lingurinn Chandra Levy lést. Lík hennar fannst á miðvikudag, rúmu ári eftir að hún hvarf. Duhaide hótar að hætta Eduardo Duhalde, forseti Argentinu, hefur hótað að segja af sér embætti vegna gremju yfír því að deilur stjómmála- manna hafa tafið fyrir nauðsynlegum umbótum sem Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn fer fram á áður en hann veitir peningaaðstoð til að rétta af efnahagslífið. Erkibiskup greiöir fé Kaþólski erkibiskupinn í Milwaukee í Bandaríkjunum hefur viðurkennt að hafa greitt fé manni sem sakaöi hann um kynferðislega misbeitingu 1979. Chirac í vandæðum Bandamenn Jacques Chiracs Frakklandsforseta reyndu í gær hvað þeir gátu að vísa á bug ásökunum vinstrimanna um að þeir æluðu að hjálpa hægriöfga- manninum Le Pen og flokki hans til að ná mönnum kjömmn á þing í næsta mánuði til að tryggja meiri- hluta hægriflokkanna. Teknir vegna myndar Afgönsk yfirvöld hafa handtekið þrjá stuðningsmenn talibana fyrir að dreifa áróðri með myndum af Osama bin Laden. Aukinn skjáifti í fjalli íbúar og yfirvöld í vesturhluta Mexíkós eru mjög á varðbergi þessa dagana vegna aukinnar skjálfta- virkni djúpt í iðrum eldfjalls sem þar er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.