Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Qupperneq 13
13
FÚSTUDAGUR 24. MAÍ 2002______________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Öryggisvörður kom í veg fyrir meiri háttar harmleik í Tel Aviv:
Stödvaði akandi sjálfsmorðs-
liða á leið inn í næturklúbb
Palestinskur sjálfsmorðsliði var í
gærkvöld skotinn tO bana fyrir utan
næturklúbb í miðborg Tel Aviv þegar
hann reyndi að aka bfl sínum inn í
klúbbinn þar sem hundruð manna
voru að skemmta sér.
Öryggisvörður við klúbbinn sá
manninn koma akandi og hóf þegar
skothríð á bflinn sem sprakk á sama
andartaki með þeim afieiðingum að
einn maður slasaðist.
Að sögn talsmanns lögreglunnar i
Tel Aviv kom árvekni öryggisvarðar-
ins í veg fyrir meiri háttar harmleik,
en sprengjan, sem var mjög öflug, var
að hans sögn hlaðin málmhlutum og
rörasprengjum sem að mestu dreifð-
ust ósprungnar um nágrennið og
gerði lögreglan þær óvirkar.
Þetta var önnur sprengiárásin í Tel
Aviv á sama sólarhringnum, en i gær-
dag sprakk öflug sprengja sem komið
hafði verið fyrir undir eldsneytis-
flutningabifreið sem sprakk við stóra
bensinbirgðastöð hersins í norður-
hluta borgarinnar.
Að sögn Yossis Sedbons, yfirmanns
Eldsneytisflutningabifreið sprengd í Tel Aviv.
lögreglunnar i Tel Aviv, ber árásin á ur hryðjuverkahópanna, sem beina
birgðastöðina vott um breyttar áhersl- nú í fyrsta skipti spjótum sínum að
hemaðarmannvirki. Að hans sögn
munaði mjóu að eldur kæmist í
birgðatanka sem staðsettir eru nálægt
fjölmennri íbúðabyggð og aðeins fyrir
kraftaverk að slökkviliði tókst að
hefta útbreiðslu eldsins.
Ekki er vitað með vissu hver stóð
fyrir árásunum í gær en grunur leik-
ur á að al-Aqsa-samtökin hafi staðið
fyrir þeim tfl að hefna drápa ísraels-
manna á þremur liðsmanna þeirra,
sem jarðsettir voru í gær, en samtök-
in höfðu hótað áframhaldandi árásum
eftir sjálfsmorðsárásina í skemmti-
garði í bænum Rishon Letzion á mið-
vikudaginn, með þeim afleiðingum að
tveir óbreyttir borgarar létu lífíð.
ísraelskar hersveitir réðust í gær
inn í bæinn Hebron og nokkur þorp í
Jenin á Vesturbakkanum og munu að
minnsta kosti tuttgu meintir hryðju-
verkamenn hafa verið handteknir,
auk þess sem tveir Palestínumenn
létu lífið þegar sprengja sprakk í húsi
í Balata-flóttamannabúðunum. Ekki
er vitað hvað orsakaði sprenginguna.
REUTERSMYND
Hvalkjötið matreitt
Japanskur kokkur matreiöir hvalkjöt
fyrir fulltrúa á fundi hvalveiðiráösins.
Hvalakvóti Græn-
lendinga í höfn
Alþjóða hvalveiðiráðið samþykkti
í morgun hvalveiðikvóta Grænlend-
inga til næstu flmm ára á ársfundi
sínum í Shimonoseki i Japan. Ein-
hugur var um þá niðurstöðu í hval-
veiðiráðinu.
Grænlendingar fá að veiða 175
hrefnur við vesturströndina og tólf
hrefnur við austurströndina, svo og
nítján langreyðar á ári hverju.
Hvalveiðiráðið endumýjaði
einnig leyfl Makah-indíána á norð-
vesturströnd Bandarikjanna til að
veiða fimm gráhvali og íbúar St.
Vincent og Grenadines í Karíbahafi
fá að tvöfalda hnúfubakskvóta sinn
og veiða fjögur dýr.
Tillögur um að heimila frum-
byggjum í Bandaríkjunum og Rúss-
landi að veiða norðurhvali voru
hins vegar fefldar öðru sinni þar
sem ekki tókst að koma til móts við
kröfur Japana um aö veiða fimmtíu
hrefnur við strendur landsins.
REUTERSMYND
Gengið fyrir páfa
Jóhannes Páll páfi söng messu í borginni Bakú í Aserbaídsjan í gær og aö henni lokinni blessaði hann Kíjazím
nokkurn Azízov, sem kallar sig „Prins heimsins“. Azízov haföi fyrr tekist aö klifra á hækjum sínum upp á sviöiö þar
sem páfi var en var færöur burt þegar hann átti aöeins eftir þrjá metra til hans heilagleika. Eftir nokkra rekistefnu var
Azízov, sem segist sjálfur sjá sýnir, úrskuröaöur meinlaus og fékk aö fara fijáls feröa sinna. Hann fékk síðan aö
kyssa hönd páfa aö messunni lokinni. Páfi fór til Búigaríu frá Aserbaídsjan.
Martha Louise Noregsprinsessa.
Prinsessan
kyssti froskinn
Martha Louise Noregsprinsessa og
unnusti hennar, rithöfundurinn Ari
Behn, ganga í heflagt hjónaband i dag
og fer athöfnin fram í Niðaróssdóm-
kirkju í Þrándheimi. Hátíðarbragur
hefur verið á Þrándheimi í heila viku
þar sem brúðarparið hefur dvalið á
staðnum, bæjarbúum tfl mikillar
gleði.
Forleikurinn að brúðkaupinu náði
hámarki í gær þegar prinsessan og
rithöfundurinn heimsóttu Lerkendal,
höfúðstöðvar knattspyrnuliðsins Ros-
enborgar, þar sem Ari Behn fékk
tækifæri til að hitta hinn litríka þjálf-
ara liðsins, Nfls Ame Eggen, en rit-
höfundurinn æfði og lék knattspyrnu
með Moss, sem Eggen þjálfaði þá, á
sínum yngri árum.
Eftir heimsóknina á Lerkendal
heiðruðu þau Þrándheimsbúa á torgi
Ólafs Tryggvasonar þar sem fjöldi
ungmeyja skartaði kórónu á höfðinu.
Að sjálfsögðu fékk alvöruprinsessan
líka kórónu og var síðan boðið að
kysssa frosk, sem hún gerði og um
leið steig hinn hamingjusami brúð-
gumi fram á torgið og tók prinsess-
una í faðm sér. -GÞÖ
GENGK)
KAUP SALA
BHÉPollar 92,390 92,860
SSPund 134,140 134,830
1*1 Kan. dollar 59,960 60,340
BSSPönsk kr. 11,3900 11,4520
H~ Norskkr 11,3680 11,4300
EBsænsk kr. 9,3130 9,3650
O Sviss. franki 58,1300 58,4500
1 ♦ liap. yen 0,7374 0,7419
^ECU 84,6767 85,1855
SDR 118,0400 118,7500
Smáauglýsingar
Þjónustu-
auglýsingar
►I 550 5000
Champion 's Café kynnir:
HELGKN 24. OG 25. MAÍ
Ruth Reginalds og hljómsveit
Eurovision á breidtjöldum í góðu soundi
Kosningavaka allra flokka!
Stórhöfði 17 • www.champions.is • Textavarp 668 • Hádegishlaðborð virka daga