Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Page 18
>12----- Skoðun FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 DV Staðreyndir um málefni aldraðra Tinna Traustadótlir frambjóöandi D-listans A Kjallari Það er athyglisvert að skoða viljayfirlýsingu R- listans og heilbrigðisráð- herra í Ijósi vanefndra loforða R-listans við aldr- aða tvö síðustu kjör- tímabil. Þá er ekki síður athyglisvert að bera saman íjárfestingar i þágu aldr- aðra í valdatíð Sjálfstæðisflokksins, 1987-1994, og fjárfestingar núverandi borgaryfirvalda, 1995-2002. Að þeim samanburði loknum ætti borgarbú- um ekki að dyljast hvor flokkurinn hefur lagt meira kapp á uppbyggingu í þágu aldraðra í borginni og er þar af leiðandi betur til þess fallinn að efna fyrirheit um átak í byggingu hjúkrunarrýma. Vanefnd loforð R-listans 1994 R-listinn lofaði í kosningun- um að leggja áherslu á uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir aldraða. 1998 R- listinn lofaði að byggja tvö ný hjúkr- unarheimili á kjörtímabilinu. R-list- inn bar ekki gæfu til þess að standa við þessi loforð, frekar en svo mörg önnur, og hefur ekkert frumkvæöi haft að byggingu nýrra hjúkrunar- heimila fyrir aldraða á kjörtímabil- unum 1994-1998 og 1998-2002. Þvert á móti hefur R-listinn dregið stórlega úr fjárframlögum til uppbyggingar í þágu aldraðra frá því sem var þegar Sjálfstæðisflokkurinn var við völd. Þannig voru fjárfestingar í þágu aldraðra sem hlutfall af skatttekjum að meðaltali 3,4% af skatttekjum í valdatíð Sjálfstæðisflokksins. í valda- tíð R-listans hefur þetta hlutfall hins vegar lækkað niður í 0,4%. Heildar fjárframlög til uppbyggingar í þágu aldraðra námu 3,3 milljörðum þegar sjálfstæðismenn voru við völd 1987-1994 en aðeins um 600 milljón- um í valdatíð R-listans 1995-2002. Þannig hefur R-listinn verið að lækka fjárframlög í þágu aldraða um 2,7 milljarða frá því sem var, þegar litið er yfir átta ára tímabil. Staðreyndir um fjárframlög í þágu eldri borgara Meðfylgjandi tafla sýnir áhuga- leysi R-listans á uppbyggingu i þágu aldraðra glöggt. I valdatíð sjálfstæöis- manna, á árunum 1987-1994, var rúm- lega 2,6 milljörðum (150-535 milljónir á ári) varið í þjónustuíbúðir og þjón- ustumiðstöðvar. Til samanburðar hefur R-listinn hins vegar aðeins lagt Sjálfstæ&isflokkuiinn Reykjavíkurlistinn Þjónustuíb. og I 1 , Þjónustuíb. og Ár miðstöSvar Hjúkrunarrými Samtals Ar mi&stö&var Hjúkrunarrými Samtals 1987 152827983 68421769 221249752 1995 127509605 27569865 155079470 1988 285479929 50817745 336297674 1996 66674688 164756352 231431040 1989 333439747 52872433 386312180 1997 5963347 18253199 24216546 1990 280557894 38492637 319050531 1998 21073997 43810400 64884397 1991 475712355 105052498 580764853 1999 26245700 0 26245700 1992 536597793 110691741 647289534 2000 15175820 0 15175820 1993 322207935 105945630 428153565 2001 20000000 0 20000000 1994 255335300 111068491 366403791 2002 11000000 30000000 41000000 Samtals 2642158936 643362944 3285521880 Sgmtals 293643157 284389816 578032973 um 300 milijónir (6-130 milljónir á ári) í þjónustuibúðir og þjónustumið- stöðvar á síðustu tveimur kjörtimabil- um. Samsvarandi tölur vegna bygging- ar hjúkrunarheimila í valdatíð Sjálf- stæðisflokksins 1987-1994 eru um 640 milljónir á móti 280 milljónum í tíð R- lista 1995-2002. Þar af var engum fjár- munum varið til þessa á yflr þriggja ára tímabili, 1999-2001, af hálfu R-list- ans. Málefni aldraðra ekki á stefnuskrá R-listans Það margumtalaða vandræðástand sem nú ríkir á stóru sjúkrahús- unum á höfuð- borgarsvæðinu má að hluta rekja til áhugaleysis R- listans á bygg- ingu hjúkrunar- rýmis í borginni. Mörg dæmi eru um að sjúklingar liggi á göngum eða sé jafnvel holað niður á skolherbergjum og salernum á sjúkrahúsum í borginni. Hluti „Heildarfjárframlög til uppbyggingar í þágu aldraðra námu 3,3 milljörðum þegar sjálfstœðismenn voru við völd 1987-1994 en aðeins um 600 milljónum í valdatíð R-listans 1995-2002. Þannig hefur R-listinn verið að lcekka fjárframlög í þágu aldraðra um 2,7 milljarða frá því sem var, þegar litið er yfir átta ára tímabil. “ vandans er kominn til vegna þess að ekki er unnt að útskrifa sjúklinga, þar sem hjúkrunarrými skortir fyrir þá sem ekki hafa heilsu til að snúa aftur til síns heima eftir útskrift. Af- leiðingin er sú að margir liggja leng- ur á sjúkrahúsunum en þörf krefur, en vistun á sjúkrahúsi er langtum dýrari en á hjúkrunarheimili. I stefnuskrá R-listans fyrir borgar- stjómarkosningamar í ár, sem birt var i Morgunblaðinu 26. apríl sl., er ekki minnst á málefni aldraðra einu einasta orði. Sú staöreynd er í sam- ræmi við það áhugaleysi sem málefn- um aldraðra i borginni hefur verið sýnt á undanfómum átta árum. Af- leiðingar aðgerðaleysis síðustu ára endurspeglast í niðurstöðum skýrslu sem var gefin út af Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í febrúar sl., þar kemur fram aö algjörlega óviðunandi ástand hafi skapast hvað hjúkrunarrými í Reykjavík varðar. Viljayfirlýsingin um uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir aldraða í Reykjavík sem undirrituð var nýlega af borgarstjóra og heilbrigðisráðherra ber þess merki að vera unnin 10 dög- um fyrir kosningar og ljóst er að sú undirbúningsvinna sem fram þarf að fara áður en slík yfirlýsing er undir- rituð hefur ekki verið innt af hendi. Fyrir vikið er aðeins um marklaust plagg að ræða. Heíði þeim áformum sem sjálfstæðismenn höíðu uppi á ár- inu 1994 um áframhaldandi uppbygg- ingu i þágu aldraðra ekki verið ýtt út af borðinu væri ástandið ekki jafn slæmt og raun ber vitni. Komist Sjáif- stæðisflokkurinn til valda í borginni á ný verður haldið áfram þar sem frá var horfið og milljarði varið í bygg- ingu á hjúkrunarrými á kjörtimabil- inu sem nú fer í hönd til þess að mæta þeirri brýnu þörf sem fyrir hendi er og R-listinn heiúr átt sinn þátt í að skapa. Aldraðir í Garðabœ afskiptir Ragnar M. Magnússon framkvæmdastjóri Guðjón Ólafsson fuiltrúi Sjáifstæöismenn á B-lista Oháöra og framsóknarmanna Komin er út skýrsla frá v heilbrigöis- og trygginga- ráðuneyti, „Áætlun um uppbyggingu öldrunar- þjónustu 2002- 2007, 5 ára áætlun". - Þar er m.a. tafla sem sýnir áætl- un um fjölgun hjúkrunar- rýma í Garöabæ. Ekki er minnst á Garðabæ. Með öðrum orðum er ekki gert ráð fyrir neinni fjölgun þar þótt þar sé gert ráð fyrir búsetu 1000 eldri borgara árið *2003. Garðabær er með hæsta hlutfall aldraðra íbúa allra bæja á landinu og því hlýtur það að vera óþolandi hvernig sjálfstæðismeirihlutinn í bænum hefur sniðgengið eldri borg- ara sína - þá sem byggt hafa upp bæ- inn. Það er með ólíkindum hvernig málum aldraðra er alltaf slegið þar á frest. Það var ekki fyrr en hjúkrunar- fræðingur kom inn í bæjarstjórn á núverandi kjörtímabili að byrjað var að huga að þessum málum og komið var upp bráðabirgöa-dvalarheimili fyrir þá i Holtsúð - í fyrrverandi nunnuklaustri þar. Vífilsstaðaland Lítt hugsandi hópur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna, undir forystu Jóns Guðmundssonar fasteignasala og Ásdísar Höllu bæjarstjóra, hrakti þennan hjúkrunarfræðing út af nú- verandi framboðslista sjálfstæðis- manna og varð það til þess að hópur stuðningsmanna flokksins, sem annt er um mannorð sitt, hóf að kanna framboð eldri borgara í bænum. Það leiddi til þess að úr varð framboð Óháðra og framsóknarmanna, undir merkjum B-lista. Viö sem að þessu stóðum höfum m.a. átt langan og góðan fund með heilbrigðisráðherra og aðstoðar- manni hans um hugsanlega uppbygg- ingu Vifilsstaðalands til að mæta þörfum þessa ört vaxandi hóps bæjar- búa. Þar yrði m.a. gert ráð fyrir bygg- ingu lítilla íbúða, bæði í einbýli og fiölbýli, sem og þjónusturýmum fyrir þá sem ekki gætu nýtt sér þessa að- stöðu. Við höfum lagt áherslu á að þeir eldri íbúar bæjarins, sem fljót- lega vilja minnka við sig í húsnæði, geti keypt sér þarna hentugar íbúðir, Fjölgun hjúkrunarrýma í iandinu: Reykjavík 236 Hafnarfjörður 30 Seltjarnarnes 30 SuSurnes 25 Mosfellsbær 20 Akureyri 20 Hella 12 Höfn í Hornafirði 10 Selfoss 5 Kirkjubæjarklaustur 5 Eskifjörður 5 Hólmavík 2 Þórshöfn 2 TaOan sýnlr áætlun um fjölgun hjúkrunarrýma í landinu. jafnvel á mismunandi byggingarstig- um, því margir eru við hestaheilsu og vildu gjarnan sjálfir geta tekið til hendinni við að standsetja sinar íbúð- ir. Þannig gæfist mörgum tækifæri til að komast í enn ódýrara hentugt hús- næði. Bryggjuhverfi Hið svokallaða Bryggjuhverfi eða Strandahverfi, sem íyrirhugað er í Garðabæ, mun ekki þjóna eldri borg- urum vel. Fyrir því eru fiórar ástæð- ur: íbúðir þar verða dýrar, miklu dýr- ari en þær sem nú risa i bryggju- hverfi Grafarvogs, en þar kosta íbúð- ir á milli 22 og 30 millj. kr. Þama verður enga þjónustu að fá. Þarna mun verða umferðaröngþveiti þegar yfir 3000 nýir íbúar bætast við á þetta litla svæði. Á þessum stað er veðrátt- an slæm - verri en á mörgum öðrum stöðu í bænum, þar sem staðurinn er opinn fyrir norðlægum hafáttum. Auk þessara atriða hefur bæði landsigi og hækkun yfirborðs sjávar verið spáð á næstu árum. Fjárfest- ingu í húsnæði á þessum stað tel ég vera vafasama vegna áhættu, nema því aðeins að fasteignasalinn leggi fram raunhæfa tryggingu vegna áður- nefndra atriða. Leggjumst á eitt Félag um nýtingu Vífilsstaðalands í framangreindum tilgangi verður stofnað fiótlega. Vonandi koma allir flokkar og hagsmunafélög i bænum að þessu mikilsverða máli. Gamla spítalahúsið á staðnum gæti síðar komið inn í myndina og nýst í ýms- um tilgangi, svo sem fyrir stjórnsýslu staðarins, sem húsnæði fyrir félags- og afþreyingarstarfsemi, húsnæði fyr- ir lækna og hjúkrunarfók, eftirlits- menn o.fl. o.fl. Skemmtilegra væri að þama gæti byggð blandast saman með yngra og miðaldra fólki og orðið þannig með tíð og tíma eins og hvert „Garðabœr er með hœsta hlutfall aldraðra íbúa allra bœja á landinu og því hlýtur það að vera óþolandi hvemig sjálf- stœðismeirihlutinn í bœnum hefur sniðgengið eldri borgara sína - þá sem byggt hafa upp bæinn.“ annað blandað hverfi í bænum, enda þótt sérstaklega yrðu skapaðar að- stæður fyrir eldri borgara þar. Staðurinn býður upp á mikla nátt- úrufegurð, fallegan golfvöll, vatn fyr- ir veiðimenn, aðstöðu fyrir hesta- menn í næsta nágrenni og yfirleitt kjöraðstæður fyrir skjól í framtíð- inni, þegar meiri ræktun hefur átt sér stað. Staðurinn er I jaðri Heiðmerk- urinnar sem býður upp á endalausa möguleika til gönguferða - allt fiarri umferðinni. Auðvelt yrði að koma upp hæfilegri útisundlaug og heitum pottum á staðnum, án þess að kostn- aður yrði óhóflegur. Við Garðbæing- ar getum gert þetta að veruleika á allra næstu árum ef við leggjumst á eitt og ákveðum að hrinda málinu í framkvæmd. JJU% iMiitt ii j jiJJjjjJj JjjJJjírlUJjJJdJjjj Komdu með bílinn -við græjum hann Verð frá 29.900 .þegar hljómtæki skipta máli BRÆÐURNIR HLJOMTÆKI Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.