Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 21
2i r FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 Jl>"V Tilvera Bob Dylan 61 árs Frumkvöðull allra trúbadora, Bob Dyl- an, öðru nafni Ro- bert Allen Zimmer- man, er 61 árs í dag. Hann fagnar einnig 40 ára útgáfuaönæli sinu í ár en árið 1962 kom hans fyrsta plata á markaðinn og síðan þá hefur hann framleitt ógrynni af efni; meira en flestir aðrir tónlistar- menn. Hann hefur alltaf verið ötull baráttumaður mannréttinda en lík- legast er hann hvað frægasúir fyrir að hafa tengst beat-kynslóðinni sterkum böndum. Gildir fyrir laugardaginn 25. maí Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.): l Vinir þínir standa eink- ' ar vel saman rnn þessar mimdir og gætu verið að undirbúa ferðalag eða einhveija skemmtun. Þú tekur full- an þátt í þessari skipulagningu. Fiskarnir (19, febr.-20. marsl: Einhver reynir að fá Iþig til að tEika þátt í einhverju sem þú ert ekki viss um að þú viljir taka þátt í. Stattu fast á þínu. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): Reyndu að eiga stund fyrir sjálfan þig, þú þarfnast hvíldar eftir erfiðið undanfarið. Nautið (20. apríl-20. maí): / Vinur þinn biður þig að gera sér greiða og er mikilvægt að þú bregðist vel við. Eitt- hvað óvænt og skemmtilegt gerist á næstunni. Tvíburarnir (21. maí-21. iúníl: V Eitthvað sem hefur A^^breyst í íjölskyldunni I hefur truflandi áhrif á þig og áform þín. Þú þarft að skipuleggja þau upp á nýtt. Krabblnn (22. iúní-22. iúffl: Sjálfstraust þitt sem | venjulega er í góðu ' lagi er með minna móti þessa dagana. Taktu fagnandi á móti þeim sem eru vinsamlegir í þinn garð. Liónið (23. iúlí- 22. áeúsh: I Þú mátt vænta gagn- legrar niðurstöðu í máli sem lengi hefur beðið úrlausnar. Þú þarft að hvíla þig og góð leið til þess er að hitta góða vini. Mevian (23. áaúst-22. seot.l: Ekki dæma fólk eftir AYft fyrstu kynnum, hvorki ^l<»þvi sem það gerir eða ^ r segir. Athugaðu þess í stað hvem mann það hefúr að geyma. Vogin (23. sept.-23. okU: Þú syndir á móti straumnum um þessar mimdir og ert fullur orku og finnst engin vandamál þér ofviða. Eitthvað skemmtilegt gerist í félagslifinu. Sporðdrekinn (24. okt.-2l. nóv.): Þér var farið að leiðast tilbreytingarleysi hvers- fdagslifsins og eru þessir |dagar því mjög til að kæta þig þar sem þeir eru harla óvenjulegir. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.i: .Þú ert yfirleitt mjög fduglegur en núna er I eins og yfir þér hangi |eitthvert slen. Þetta gæti verið merki inn það að þú þarfnist hvíldar. Steingeitln (22. des.-19. ian.l: ^ Þú verður fyrir ein- hverri heppni og lífið virðist brosa við þér. Breytingar gætu orðið á búsetu þinni á næstunni. Vorhátíð Valhúsaskóla: Nýtt merki og upplýsingasjónvarp Dagskrá Lista- hátíðar á morg- un og hinn Bæjarlind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 5514 Odd-Vitinn • pub-skemmtistaður • Strandgata 53 • Akureyri • Sími 462 6020 • GSM 867 4069 Allir íþráttaviðburáir í beinni á risaskjám. Pool. Góður matseðill. Tökum að okkur hápa, starfsmannafélög. Stárt ag gott dansgálf. Krúttakór og kosn- ingakaffi Krúttakórinn, Litli kórinn og Stóri kórinn eru allir barnakórar í Selja- kirkju í Breiðholti. Þeir ætla að taka lagið á morgun, laugardag, í kirkj- unni sinni en á mismunandi tímum. Krúttakórinn byrjar kl 14, Litli kór- inn kl. 15.30 og Stóri kórinn kl. 17. Foreldrar elstu barnanna verða með kaSisölu í safnaðarheimilinu eftir hverja tónleika til fjáröflunar í ferða- sjóð Stóra kórsins sem þegar hefur gert garðinn frægan, söng m.a. i Dóm- kirkjunni við upphaf Kirkjuþings og við setningu Ljósahátíðarinnar á Lækjartorgi. Skemmtistaður . Laugardagskvöld STÓRDANSLEIKUR ifr Danshljómsveit Geirmundar Vatýssonar skemmtir! Árshátíðir og samkvæmi. Tökum að okkur matarveislur og skemmtanahald. Upplýsingar í síma 867 4069 og 892 5431 Á vorhátíð sem var haldin í Val- húsaskóla á Seltjarnamesi í gær voru kynntar ýmsar nýjungar í skólanum. Tekið var í notkun nýtt merki, upplýsingarsjónvarp form- lega opnað og rafrænu greiðslukerfi komið á i mötuneytinu. Tvö síðar- nefndu atriðin eru nýnæmi í ís- lenskum grunnskólum. Þá var sýn- ing á þeirri upplýsingatækni sem þróuð hefur verið í skólanum af kerfisstjóranum, Frosta Heimissyni, og undirritaður samstarfssamning- ur við hugbúnaðarfyrirtækið Voice Era um þróun hjálparbúnaðar með aðstoð talgervils. Nemendur buðu upp á söng, dans og hljóðfæraslátt og hátiðinni lauk með kafFi og vöffl- um sem þeir reiddu einnig fram. -Gun. DV-MYND HARI Kaffitíminn Tómas Ingi Olrich menntamálaráö- herra gæddi sér á vöfflum hjá krökkunum í Valhúsaskóla. Hafnarhússkvöld Tónleikar verða í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi bæði á laugardags- og sunnudagskvöld. Danski fiðluleikarinn Kristian Jörg- ensen, gítarleikarinn Björn Thoroddsen og kontrabassaleikar- inn Jón Rafhsson leika á kosninga- kvöldi og byrja kl. 21. Japanski flautuleikarinn Teru- hisa Fukuda og Kolbeinn Bjarnason mætast svo á sunnudagskvöldið kl. 20 í tvíleik á flautur af austrænum og vestrænum uppruna. Meðal þeirra er hin ævafoma Shakuhachi bambusflauta. Sápukúlusýning Tveir spænskir trúðar leika sér með litskrúðugar sápukúlur og gera með þeim ótrúlegar myndir í sýn- ingunni Ambrossia sem verður í ís- lensku óperunni bæði á laugardag og sunnudag kl. 14 og einnig ld. 17 á sunnudag. Aernout Mik í Nýió Hollenski listamaðurinn Aemout Mik opnar myndlistarsýningu í Ný- listasafninu kl. 16 á sunnudag. Sér- grein hans er vídeóinnsetningar. Enn flýgur Hollendingurinn Fimmta sýning á Hollendingnum fljúgandi eftir Richard Wagner er i Þjóðleikhúsinu á sunnudagskvöld kl. 20. Breyting á dagskrá Örleikverkið Fótabað sem átti að sýna á Ingólfstorgi kl. 17.05 í dag færist yfir í Fógetagarðinn. Ustakonan „Kvennamenningin er mér hugfólgin," segir Alda Ármanna. Sýningin Konur í borginni í Galleríi Reykjavík: Hef pottana og draslið með - segir listakonan Alda „Ég er lengi búin að vera að daðra við konumálverkið," segir Alda Ár- manna Sveinsdóttir brosandi, en hún opnar sýninguna Konur í borginni í GaUeríi Reykjavík, við Skólavörðustíg 16, í dag, kl. 16. Þar eru olíumálverk sem unnin eru á þessu ári og við- fangsefnið er konur og ýmislegt sem þær hafa fengist við í gegnum tíðina, svo sem matarstúss, ávextir og blóm. Inn í þetta blandast svo draumar og sitthvað úr hugarheimum. „Ég næ yf- irleitt góðu sambandi við módelin mín og spjaUa mikið við þau. Kvenna- menningin er mér hugfólgin og ég hef gaman af að blanda saman uppstiU- ingum og einhverju úr daglega lífmu - sveigja fram hjá hátíðleikanum og hafa pottana og draslið með,“ segir Alda Ármanna glettnisleg á svip. Sjálf er Alda Ármanna frá Norðfírði og kveðst hafa byrjað í myndlistamámi þar eystra, en eftir að hún flutti tU Reykjavíkur með börnin fjögur hafí hún drifið sig í Myndlistarskólann í Reykjavík. Sýningin hennar verður opin virka daga frá 12-18 og laugar- daga frá 11-16 út mánuðinn. -Gun « * >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.