Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Page 32
iiÍLL S\:ajJj'Jd 'Jlid'J £i JjJujjJ]
Litla-Hraun:
Gæsla ekki hert
Milt veður
' á kjördag
Útlit er fyrir milt veður þegar
landsmenn ganga að kjörboröi á
morgun. Á höfuðborgarsvæðinu
verður skýjað með köflum en þó
úrkomulaust en spáð er súld eða
rigningu norðan- og austanlands.
Hæg norðanátt verður um land
allt.
-vig
Listahátíð:
Fótabað í beinni
Þjóðþekkt fólk fer i fótabað á
Skúlatorgi klukkan 17.05 í dag. Fóta-
baðið er hluti af níu virkum dögum
Listahátiðar í Reykjavík og Ríkisút-
varpsins. Verkið er eftir Gunnhildi
Hauksdóttur og Kristínu Ómars-
dóttur en í leikstjóm Hörpu Arnar-
dóttur. Fótabaðið er síðasta verkið í
þessari seríu sem útvarpaö hefur
verið að undanfornu. Fylgjast má
með fótabaðinu á torgi Skúla fógeta
eða hlusta eftir því i útvarpi. -aþ
F.RETTASKOTI0
SIMINN SEM ALOREISEFUB
I Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
I hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
I fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
I greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
I er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
I sólarhringinn.
550 5555
PAGUR VONAR!
Allianz(íij)
FOSTUDAGUR 24. MAI 2002
„Það er ekki brugðist við með
þeim hætti að herða gæslu á mönn-
um þegar svona atvik koma upp,“
sagði Kristján Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri fangelsisins á Litla-
^ Hrauni, spurður um viðbrögð við
umsvifum fanga þar sem miðuðu að
frekari afbrotum.
Eins og DV greindi frá í gær mun
Tryggingastofnun ríkisins kæra
fanga þar til lögreglunnar á næst-
unni vegna gruns um falsanir á
tannlæknakvittunum. Þá má nefna
mál sem dómur féll í í fyrradag þar
sem fangi á Litla-Hrauni skipulagði
og fjármagnaði stórfellt fíkniefna-
smygl.
Kristján sagði erfítt fyrir fangels-
ið að bregðast við með strangari
reglum. Það yrði að fara eftir þeim
lögum og reglugerðum sem því
væru sett. Ekki væri á valdi fangels-
isins að breyta þeim, enda myndu
slíkar breytingar væntanlega ná til
S ** allra fangelsa í landinu.
Kristján sagði hugsanlegt aö
talist gæti óréttlátt að láta misgjörð-
ir eins fanga bitna á saklausum, ef
svö mætti segja.
„Við erum nokkuö varnarlaus
gegn því að fólk brjóti af sér með
þessum hætti í fangelsinu," sagði
Kristján. Sjá einnig bls. 4 -JSS
DV-MYND GVA
Valgeröur Sverrisdóttlr meö samning viö Alcoa um áframhaldandi viöræöur
lönaöar- og viöskiptaráöherra var aö vonum ánægö í gær meö gang viöræöna við bandaríska álversrísann Alcoa.
Skrifaö hefur veriö undir samkomulag um áframhatdandi viöræöur og eru forsvarsmenn fyrirtækisins bjartsýnir á já-
kvæöa niðurstööu varöandi álver í Reyöarfirði. Hér er Valgerður Sverrisdóttir meö viðræðusamkomulag í höndunum,
en í baksýn má sjá forvera hennar í stóli iönaðarráöherra og er engu líkara en nokkurrar öfundar gæti í svip þeirra.
Viðbrögð leiðtoganna:
Þurfum að halda
vel á spöðunum
- segir
Forystumenn stærstu framboð-
anna í Reykjavík voru fremur var-
kárir í viðbrögðum við skoðana-
könnun DV í morgun. R-listinn
mælist nú með 8,5% forskot á D-
lista samkvæmt skoðanakönnun
sem gerð var í gærkvöld. Allir
leggja frambjóðendumir áherslu á
að áfram þurfi að halda uppi öflugri
baráttu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri var varfærin í yfirlýsingum
í samtali við DV í morgun. „Þetta er
auðvitað ágætt svo langt sem það
nær en það er ekki langt síðan DV
mældi varla marktækan mun á
þessum fylkingum. Þess vegna legg
ég áherslu á að menn þurfi að halda
vel á spööunum til að tryggja sigur
Reykjavikurlistans. Ég er í 8. sæt-
inu sem er baráttusætið og það
ræðst á laugardaginn hvort ég fæ
þann styrk og traust sem þarf til að
verða áfram borgarstjóri."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Björn Ingibjörg Sólrún
Bjarnason. Gísladóttir.
Olafur F.
Magnússon,
Bjöm Bjamason sagöi þetta í
samtali við DV i morgun:,
„Þessar kannanir nú skömmu
fyrir kjördag era allar á svipuðu
róli. Við höfum verið að sækja á
brattann í kosningabaráttunni og
höfum alltaf sagt að úrslitin ráðist
ekki fyrr en 25. maí. Við höfum lagt
okkar mál fram með mjög skýrum
og málefnalegum hætti. Við höfum
samhentan og breiðan lista og í okk-
ar starfi hefur verið mjög jákvæður
andi. Við treystum
því og trúum að
allt muni þetta
skila sér með góð-
um árangri þegar
kjósendur ganga að
kjörborðinu.“
Ólafur F. Magn-
ússon, oddviti F-
listans, var bjart-
sýnn þegar DV
hafði samband við
hann í morgun: „Þetta er hæsta
könnun sem hefur mælst hjá okkur
hingað til og sýnir að við emm á
hraðri siglingu inn i borgarstjóm.
Ég er viss um að við eigum meira
fylgi en mælist í könnuninni, það
höfum við fundið. Ég hvet fólk ein-
dregið til að sýna kjark, fylgja sann-
færingu sinni og hleypa nýju afli F-
listans i borgarstjóm," sagði Ólafur
F. Magnússon.
-BÞ/VG
Hreinlætisreglur BSR eru farnar að skila árangri:
Ekki ein einasta kvörtun
- eftir að þær voru hengdar upp, segir framkvæmdastjóri
„Menn era betur vakandi fyrir
snyrtimennsku og þeir sem máttu
laga hlutina em að standa sig bet-
ur,“ sagði Guömundur Börkur
Thorarensen, framkvæmdastjóri
leigubílastöðvarinnar BSR, þegar
DV spurði hann hvort nýlega settar
hreinlætisreglur fyrirtækisins um
bílstjóra og bila væru famar að
virka.
Reglumar umræddu eru mjög
hnitmiöaðar. Bilstjómnum var m.a.
bent á að nota rakspírann í hófi,
lauga sig daglega og skipta um
sokka og nærfót, fara í andlits-
hreinsun og klippa hár úr nefi og
eyrum. Fólk hafði samband við DV
í kjölfar fréttar blaðsins af nýju
reglunum og kvaðst fagna þessu
framtaki stjórnenda stöðvarinnar.
Guðmundur Börkur sagði að eng-
in kvörtun vegna ófullnægjandi
hreinlætis bílstjóra hefði borist eft-
ir að reglumar voru hengdar upp.
Áður hefðu þær verið allt að 10 tals-
ins á mánuði. Þetta segði sina sögu.
„Við reynum að fylgjast með
þessu og sjá til þess að það sé í lagi,“
sagði Guðmundur Börkur. „Menn
taka því yfirleitt vel ef þeim er bent
á að þeir geti lagað hlutina. Þetta er
fjölmermur hópur og hann tekur
þessu vel yfir höfuð. Ef einhver
væri ekki tilbúinn að laga það sem
betur mætti fara og myndi vilja
halda uppteknum hætti þá yrði
hann að hverfa til starfa á annarri
stöö.“
-JSS
Skaftárveita
hagkvæmust
Skaftárveita er langhagkvæmust
15 virkjunarkosta en í öðru sæti
kemur Norðlingaöldulón. Kára-
hnjúkavirkjun er um miðbik en
Fljótshnjúkavirkjun er langslökust.
Auk Skaftárveitu og Norðlingaöldu-
lóns eru virkjun Jökulsár á Fjöllum
og Fljótsdalsvirkjun hagkvæmari
en Kárahnjúkavirkjun.
Þetta kemur fram í frumniður-
stöðum vinnuhóps um gerð ramma-
áætlunar um nýtingu vatnsafls og
jarðvarma. Verkefnisstjórn skilaði í
síðasta mánuði frumskýrslu um til-
raunamat á 15 virkjunarkostum
vatnsafls en niðurstöðumar eru
ekki opinberar. Eins og DV greindi
frá í gær era umhverfisáhrif sam-
fara Kárahnjúkavirkjun þau mestu
af þessum kostum ásamt virkjun
Jökulsár á Fjöllum.
Sjá nánar á bls. 6 -BÞ
206 skjálftar á
og við landið
1 vikunni mældust 206 skjálftar á
og við landið samkvæmt upplýsing-
um Veðurstofu Islands. Laust fyrir
klukkan 9 á miðvikudagsmorgun
hófst lítil hrina austan við Grimsey.
Þar mældist einnig stærsti skjálfti
vikunnar, 2,2 á Richterskvarða, og
varð hann kl. 9.13 á miðvikudags-
morgun. Aðfaranótt fimmtudags
varð skjálfti undir Heimaey. Fjórir
skjálftar urðu á Reykjaneshrygg á
fimmtudagseftirmiðdag. Við Öskju
mældust 9 skjálftar aðfaranótt fóstu-
dags. Á laugardag og sunnudag
mældust samtals fjórir skjálftar í
Skeiöarárjökli. Á laugardag og
sunnudag urðu svo átta skjálftar í
Öxarfirði. -HKr.
Kópavogur:
80% vilja
sama bæjar-
stjóra áfram
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í
Kópavogi, nýtur langmestrar hylli
allra frambjóð-
enda i bæjarfélag-
inu samkvæmt
könnun Kópa-
vogspóstsins í
gær. Sigurður,
sem er oddviti
framsóknar-
manna, nýtur
þannig stuðnings sigurður Geirdal.
langt ut fyrrr rað-
ir flokksmanna. Áttatíu prósent bæj-
arbúa vilja samkvæmt þverpólitískri
könnun hafa Sigurð áfram sem bæj-
arstjóra. Úrtakið í könnuninni var að
vísu ekki mjög stórt, eða 300 manns,
en gefúr eigi að síður þessa athyglis-
verðu niðurstöðu. -HKr.
Sportvörugerðin
Skipholt 5, s. 562 8383
/
/
/
/
/
/