Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Síða 6
Texti: Snæfríður Ingadóttir Fókus-myndir: Hilmar Þór Fatnaður stelpnanna: Morgan, Sautján, Centrum, Andrea Magnúsdóttir. „Það má kannski segja að þátturinn sé blanda af þremur sumarþáttum SkjásEins frá því í fyrra: Taxi, Glamúr og Hjartslætti," útskýrir Þóra Karítas og glott- ir. „Já, SkjárEinn hafði ekki efni á að halda úti svona mörgum sumarþáttum. Það er smániðurskurður í gangi þannig að við tók- um að okkur alla þættina," segir Maríkó. Marlkó Margrét og Þóra Karít- as eru vel þekkt sjónvarps- andlit af SkjáEinum. Maríkó sá í fyrravetur um hinn vin- sæla þátt Djúpu laugina og Þóra Karítas er þekkt úr þátt- unum Pensúm og Hjartslætti. í sumar munu stelpurnar hins vegar leiða saman hesta sína í sjóðheitum sumarþætti á Skjánum sem kallast „Hjart- sláttur í strætó“. í strætó gegnum sumorið „Ég hef ekki tekið strætó nýlega en ég notaði strætó í mörg ár til þess að komast úr Breiðholtinu í skólann þannig að ég er ansi sjóuð hvað strætóferðir varðar," seg- ir Maríkó Margét Ragnarsdóttir sem er annar umsjón- armaður þáttarins „Hjartsláttur í strætó“ sem hefúr göngu sína á SkjáEinum þann 13. júní en sá þáttur mun meir og minna gerast í strætó. „Litróf mannlífsins er í strætó og þess vegna er flott að taka upp sjónvarps- þátt þar en ætli við getum nokkum tíma ferðast með strætó eftir sumarið, a.m.k. ekki án þess að vera með hauspoka," segir Þóra Karítcis Ámadóttir en hún sér um strætóstjómina ásamt Maríkó. Sjálf er hún álfka sjóuð í strætóferðum og Maríkó en á unglingsárunum sat hún að eigin sögn oft marga klukkutíma í strætó fyr- ir hreinan misskilning þar sem hún kunni lítið á strætókerfið þá nýflutt í bæinn frá Skógum þar sem hún ólst upp.“ Ég lenti oft úti á Nesi þegar ég ætlaði í Kringluna,“ minnist Þóra sem lofar að hafa meiri stjórn á strætóferðunum í sumar á Skjánum Leita að þátttakendum í strætóleikinn Að sögn stelpnanna er þátturinn hreinn og klár skemmtiþáttur en þær munu keyra borgina þvera og endilanga á sérmerktum strætó og vera alls staðar þar sem einhvem hjartslátt er að finna. „Við munum taka viðtöl við alls konar fólk og forvimast um hvemig það nýtur sumarsins, við komum til með að kíkja á smíða- völlinn til krakkanna og koma við í strætóskýlum og bjóða fólki far á áfangastað,“ segir Þóra Karítas og held- ur áffam. „Nokkrir fastir liðir verða í þættinum, m.a ætlum við líklega að vekja „frægt“ fólk, leika okkur með falda myndavél og svo verður strætóleikurinn „Sex í strætó“ á sínum stað.“ Sá leikur minnir að einhverju leyti á Þraukarann þrjú sem var í gangi á skjánum í fyrrasumar nema hvað Þraukarinn reyndi meira á þol en strætóleikurinn reynir meira á hugmyndaauðgi. „Leik- urinn gerist á þremur sólarhringum í Reykjavík þar sem sex þáttakendur munu keppa um vikuferð til Portúgals meðTerraNova-Sól. Þátttakendur verða umfram allt að vera skemmtilegir og hressir en þeir verða t.d. Iátnir taka viðtöl við fólk og búa til auglýsingar, auk þess að leysa ýmsar þrautir - og þetta gerist að sjálfsögðu meira og minna allt í Hjartsláttarstrætónum," útskýrir Maríkó en þessa dagana er einmitt verið að leita að þátt- takendum í leikinn. „Það má kannski segja að þátturinn sé blanda af þremur sumarþáttum SkjásEins frá því í fyrra: Taxi, Glamúr og Hjartslætti,“ útskýrir Þóra Kar- ítas og glottir. ,Já, SkjárEinn hafði ekki efhi á að halda úti svona mörgum sumarþáttum. Það er smániðurskurð- ur í gangi, þannig að við tókum að okkur alla þættina,“ segir Maríkó kímin og svo springa þær báðar úr hlátri. Femínisti, kynblendingur og hommi Nú virðist þið vera frekar ólíkar týpur, hvemig gengur ykkur eiginlega að vinna saman? „Við erum ólíkar en við höfum samt smollið alveg ótrúlega vel saman,“segir Þóra Karttas. Og það þrátt fyr- ir að Maríkó kjósi D-listann en Þóra R-listann. „Þóra er mikill pælari, femínisti og mannréttindasinni. Hún er ákveðin en á sama tíma getur hún verið algjör trúður. Hún hefur mjög gaman af skrýtnum hlutum,“ segir Maríkó en stelpumar þekktust lítið áður en þær byrjuðu að vinna saman við þáttinn. „Maríkó er mikill grallaraspói og þar náum við sam- an. Hún er brosmild, samviskusöm, metnaðargjöm og skipulögð, svo er hún náttúrlega asísk í útliti og ég er svo ánægð með það þar sem mér finnst svo mikilvægt að f ó k u s 6 24. maf2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.