Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002
13
*\ ' , :
Sumargladmnáw,
Stangarhyl 3A • 110 Reykjavik • Sími: 591 9000 • terranova.is
DV
Utlönd
NATO og Rússar staðfestu samvinnu:
Gömlu óvinirnir
féllust í faöma
Atlantshafsbandalagið (NATO) og
Rússland gerðu endanlega út af við
kalda stríðið i gær þegar leiðtogar
þeirra staðfestu samning um sam-
starfsráð þar sem vinna á saman
gegn hryðjuverkastarfsemi og að af-
vopnunarmálum.
„Tveir fyrrum óvinir eru nú
orðnir félagar, þeir hafa sigrast á
funmtíu ára klofningi og tíu ára
óvissu,“ sagði George W. Bush
Bandaríkjaforseti við undirritun
samningsins á Pratica di Mare-her-
stöðinni skammt fyrir utan Róm.
Tuttugu þjóðaleiðtogar, þar á
meðal Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, voru saman komnir í her-
stöðinni í tilefni dagsins. Samkomu-
lagið sem var undirritað í gær þyk-
ir til marks um vaxandi hlutverk
NATO sem pólitísks afls sem vinnur
að stöðugleika langt út fyrir eigin
landamæri.
„Húllumhæið í dag snerist um
pólitíska hlið NATO. Það þýðir þó
ekki að við séum ekki lengur hem-
aðarbandalag, en við þurfum nú að
glirna við þann þátt,“ sagði stjórnar-
erindreki nokkur á fundinum við
fréttamann Reuters. I hinu nýja
samstarfsráði standa Rússar jafn-
fætis NATO-ríkjunum þegar rætt er
um hryöjuverkavána og afvopnun-
armál. Rússar fá þó ekki neitunar-
vald gegn aðgerðum NATO. Sam-
starfsráðið er eins konar þakklætis-
vottur Vesturlanda í garð Pútíns
Rússlandsforseta fyrir liðveislu
hans í baráttunni gegn hryðjuverk-
um eftir 11. september.
Húsgögn eftir þínum þörfum
hornsófar
stakir sófar
stólar
hvíldarstólar
svefnsófar
veggeiningar
borðstofuhúsgögn og fl
Höfðatúni 12 105 Reykjavík Sfmi 552 5757
www.serhusgögn.is
ALGARVE-PORTUGAL 21. JUNI __
Ferðaávisun DVmeð Terra Nova-Sól hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá
áskrifendum biaðsins og nú gerum við enn betur.
Með sérstöku samkomulagi við Terra Nova-Sól munum við nú bjóða áskrifendum
þriggja vikna Portúgalsferð á verði tveggja vikna auk 35.000 kr. ferðaávísunar
DV tii frekari lækkunar. Þessi einstöku kjör bjóðast aðeins i þessa einu brottför.
Alltaö
m.v. 2 fullorðna og 2 böm
á Paraiso deAlbufeira, einu allra glæsilegasta íbúðahóteli
sem í boði erhjá íslenskum ferðaskrifstofum.
35.000kr. Ferðaávísun DVnotuð.
Tveir fullorðnir og tvö börn í íbúð
m. einu svefnherbergi og stofu
Cantinho do Mar 59.713 kr. ámann
Paraiso deAlbufeira 78.713 kr. á mann
Verðdæmi með föstum aukagjöldum
Tveir fullorðnir í stúdió-íbúð
79M0kr. afsláttur.
m.v. 2 fullorðna í fallegu og vel búnu stúdíó
á Paraiso deAlbufeira.
35.000kr. Ferðaávísun DVnotuð.
Alltað
Cantinho do Mar 71.845 kr. á mann
Paraiso deAlbufeira 85.845 kr. á mann
Verðdæmi með föstum aukagjöldum
uðum fjöldái
-SPENNANDt VALK0STUR-
mm
Stephen Byers.
Stephen Byers
sagði af sér
Stephen Byers, samgönguráðherra
Bretlands og náinn samstarfsmaður
Tony Blairs forsætisráðherra, sagði af
sér í gær eftir mánaðalanga þrauta-
göngu í ráðuneyti sínu þar sem
vandamálin hafa elt hann á röndum.
Byers hefur verið harðast gagnrýndur
fyrir þá ákvörðun sína að láta ríkið
yfirtaka aftur rekstur Railtrack-lestar-
fyrirtækisins, en rekstur þess var í
molum. Þá varð honum það á að taka
málstað helsta ráðgjafa sins, Jo
Moore, eftir að hún hafði sent út
tölvupóst til starfsmanna samgöngu-
ráðuneytisins skömmu eftir hryöju-
verkin þann 11. september, þar sem
hún sagði að nú væri rétti tíminn til
að láta slæmu fréttimar leka út, en
fyrir það var hún síðar rekin. Byers
viðurkennir að hafa gert mistök í
starfl en segist ekki vera lygari. „Ég
stæði ekki í þessum sporum í dag ef
ég hefði ákveðið að standa ekki með
Jo Moore og látið hana strax hætta
störfum í ráðuneytinu," sagði Byers.
Suu Kyi ætlar að
stofna dagblað
Búrmíska baráttukonan Aung
San Suu Kyi, leiðtogi stjómarand-
stöðunnar og handhafl friðarverð-
launa Nóbels, ætlar að hleypa af
stokkunum dagblaði stjómarand-
stæðinga í Búrma þar sem herfor-
ingjar halda um valdataumana.
í viðtali við Suu Kyi sem birtist í
dag segist hún ætla að sækja um
leyfi fyrir útgáfunni. Suu Kyi var
nýlega leyst úr stofufangelsi þar
sem hún þurfti aö dúsa í meira en
hálft annað ár.
Herforingjastjómin stjómar dag-
blöðum Búrma, útvarpi og sjón-
varpi og er litið á þessa fjölmiðla
sem málsvara hennar. Erlendir fjöl-
miðlar em aðeins aðgengilegir er-
lendum ferðamönnum á fimm
stjömu lúxushótelum.