Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 13 *\ ' , : Sumargladmnáw, Stangarhyl 3A • 110 Reykjavik • Sími: 591 9000 • terranova.is DV Utlönd NATO og Rússar staðfestu samvinnu: Gömlu óvinirnir féllust í faöma Atlantshafsbandalagið (NATO) og Rússland gerðu endanlega út af við kalda stríðið i gær þegar leiðtogar þeirra staðfestu samning um sam- starfsráð þar sem vinna á saman gegn hryðjuverkastarfsemi og að af- vopnunarmálum. „Tveir fyrrum óvinir eru nú orðnir félagar, þeir hafa sigrast á funmtíu ára klofningi og tíu ára óvissu,“ sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti við undirritun samningsins á Pratica di Mare-her- stöðinni skammt fyrir utan Róm. Tuttugu þjóðaleiðtogar, þar á meðal Davíð Oddsson forsætisráð- herra, voru saman komnir í her- stöðinni í tilefni dagsins. Samkomu- lagið sem var undirritað í gær þyk- ir til marks um vaxandi hlutverk NATO sem pólitísks afls sem vinnur að stöðugleika langt út fyrir eigin landamæri. „Húllumhæið í dag snerist um pólitíska hlið NATO. Það þýðir þó ekki að við séum ekki lengur hem- aðarbandalag, en við þurfum nú að glirna við þann þátt,“ sagði stjórnar- erindreki nokkur á fundinum við fréttamann Reuters. I hinu nýja samstarfsráði standa Rússar jafn- fætis NATO-ríkjunum þegar rætt er um hryöjuverkavána og afvopnun- armál. Rússar fá þó ekki neitunar- vald gegn aðgerðum NATO. Sam- starfsráðið er eins konar þakklætis- vottur Vesturlanda í garð Pútíns Rússlandsforseta fyrir liðveislu hans í baráttunni gegn hryðjuverk- um eftir 11. september. Húsgögn eftir þínum þörfum hornsófar stakir sófar stólar hvíldarstólar svefnsófar veggeiningar borðstofuhúsgögn og fl Höfðatúni 12 105 Reykjavík Sfmi 552 5757 www.serhusgögn.is ALGARVE-PORTUGAL 21. JUNI __ Ferðaávisun DVmeð Terra Nova-Sól hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá áskrifendum biaðsins og nú gerum við enn betur. Með sérstöku samkomulagi við Terra Nova-Sól munum við nú bjóða áskrifendum þriggja vikna Portúgalsferð á verði tveggja vikna auk 35.000 kr. ferðaávísunar DV tii frekari lækkunar. Þessi einstöku kjör bjóðast aðeins i þessa einu brottför. Alltaö m.v. 2 fullorðna og 2 böm á Paraiso deAlbufeira, einu allra glæsilegasta íbúðahóteli sem í boði erhjá íslenskum ferðaskrifstofum. 35.000kr. Ferðaávísun DVnotuð. Tveir fullorðnir og tvö börn í íbúð m. einu svefnherbergi og stofu Cantinho do Mar 59.713 kr. ámann Paraiso deAlbufeira 78.713 kr. á mann Verðdæmi með föstum aukagjöldum Tveir fullorðnir í stúdió-íbúð 79M0kr. afsláttur. m.v. 2 fullorðna í fallegu og vel búnu stúdíó á Paraiso deAlbufeira. 35.000kr. Ferðaávísun DVnotuð. Alltað Cantinho do Mar 71.845 kr. á mann Paraiso deAlbufeira 85.845 kr. á mann Verðdæmi með föstum aukagjöldum uðum fjöldái -SPENNANDt VALK0STUR- mm Stephen Byers. Stephen Byers sagði af sér Stephen Byers, samgönguráðherra Bretlands og náinn samstarfsmaður Tony Blairs forsætisráðherra, sagði af sér í gær eftir mánaðalanga þrauta- göngu í ráðuneyti sínu þar sem vandamálin hafa elt hann á röndum. Byers hefur verið harðast gagnrýndur fyrir þá ákvörðun sína að láta ríkið yfirtaka aftur rekstur Railtrack-lestar- fyrirtækisins, en rekstur þess var í molum. Þá varð honum það á að taka málstað helsta ráðgjafa sins, Jo Moore, eftir að hún hafði sent út tölvupóst til starfsmanna samgöngu- ráðuneytisins skömmu eftir hryöju- verkin þann 11. september, þar sem hún sagði að nú væri rétti tíminn til að láta slæmu fréttimar leka út, en fyrir það var hún síðar rekin. Byers viðurkennir að hafa gert mistök í starfl en segist ekki vera lygari. „Ég stæði ekki í þessum sporum í dag ef ég hefði ákveðið að standa ekki með Jo Moore og látið hana strax hætta störfum í ráðuneytinu," sagði Byers. Suu Kyi ætlar að stofna dagblað Búrmíska baráttukonan Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjómarand- stöðunnar og handhafl friðarverð- launa Nóbels, ætlar að hleypa af stokkunum dagblaði stjómarand- stæðinga í Búrma þar sem herfor- ingjar halda um valdataumana. í viðtali við Suu Kyi sem birtist í dag segist hún ætla að sækja um leyfi fyrir útgáfunni. Suu Kyi var nýlega leyst úr stofufangelsi þar sem hún þurfti aö dúsa í meira en hálft annað ár. Herforingjastjómin stjómar dag- blöðum Búrma, útvarpi og sjón- varpi og er litið á þessa fjölmiðla sem málsvara hennar. Erlendir fjöl- miðlar em aðeins aðgengilegir er- lendum ferðamönnum á fimm stjömu lúxushótelum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.