Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 19
19
$
I
r
l
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002
I>V Tilvera
lí f ið
E F T I R V I N N U
•T ónleikar
■Stefnumót á Gauknum
Hljómsveitin Mínus mun í
kvöld leika fyrir íslenska
aðdáendur sina á Gauki á
Stöng. Áður en kapparnir
sjálfir stíga á svið munu tvær
sveitir hita mannskapinn upp.
Önnur þeirra vakti á sér
talsverða athygli um og eftir
síðustu jól en forsprakkinn þar
kallast Ceres 4. Hin sveitin er
skipuð grunnskólanemum sem
hafa smám saman veriö að
komast til metorða síðasta
árið. Það er hljómsveitin
Desidia sem inniheldur meðal
annars Sindra Eldon Þórsson,
son Bjarkar og Þórs Eldons.
Gamanið fer fram á Gauki á
Stöng í kvöld og verður húsið
opnað upp úr kl. 21.
•Leikhús
■Nemendaleikhúsið
Nemendaleikhúsið sýnir í
kvöld verkið Sumargesti eftir
Maxim Gorkí. Leiksýningin er
hluti af lokaverkefni nem-
endanna sem brátt halda út í
hinn stóra leikhúsheim. Sýn-
ingin hefst kl. 20 í kvöld en
sýnt er á Nýja sviði Borgar-
leikhússins.
■ Sellófon
Sellófon er kærkomin inn-
sýn inn í daglegt lif Elinar sem
hefur tekið að sér það hlutverk
í lifinu að halda öllum ham-
ingjusömum, nema ef til vill
sjálfri sér. Á gamansaman hátt
er skyggnst inn í líf Elínar sem
er tveggja móðir í ábyrgðar-
stöðu hjá tölvufyrirtæki á
milli þess sem hún tekur til
sinna ráða til þess að viðhalda
neistanum í hjónabandinu.
Björk Jakobsdóttir er eini
leikari sýningarinnar og hefur
hún hlotið mjög góðar
viðtökur áhorfenda.
•Krár
■Góð kvöldganga með Úti-
vist
Góð kvöldganga í skemmti-
legum félagsskap að Jóru í
Jórukleif fer fram í kvöld.
Brottför á eigin bílum kl. 18.30
frá skrifstofu Útivistar. Ekkert
þátttökugjald.
•Sveitin
■KK á Hellissandi
Hinn góðþekki tónlistarmað-
ur Kristján Kristjánsson, KK,
er á ferð sinni um landið og
mun í kvöld stoppa á Hell-
issandi þar sem hann kemur
til með að spila á Svörtu Lofti.
Þar munu allir helstu slagarar
kappans heyrast auk annarra
laga sem fólk úr öllum áttum
ætti áð kannast við.
•Sýningar
■ Handprjónuð textílverk
Hulda Jósefsdóttir opnaði
um helgina sýningu á hand-
prjónuðum textilverkum í
Stöðlakoti, Bókhlöðustlg 6, og
stendur sýningin nú yfir.
Hulda hefur unnið að textil-
hönnun frá 1952 með aðal-
áherslu á prjón. Sýningin er
opin daglega frá 15-18 en henni
lýkur sunnudaginn 9. júní.
Lárétt: 1 máttlítil,
4 hamingju, 7 falskar,
8 lampi, 10 nöldur,
12 hræðslu, 13 æst,
14 kjökra, 15 bruðli,
16 slöngu, 18 tarfur,
21 hug, 22 hærra,
23 traustur.
Lóðrétt: 1 ákæra,
2 kraftar, 3 ólagnir,
4 þrálátt,
5 geislabaugur,
6 fjölda, 9 aflið,
11 lögmætu,
16 þannig, 17 hæðir,
19 leðja, 20 ferðalag.
Lausn neöst á síöunni.
Umsjón: Sævar Bjarnason
tefla á Evrópumeistaramóti kvenna.
Um næstu helgi byrjar ný bikar-
keppni FIDE í Moskvu og það þykja
mikil tíðindi að Kasparov ætlar að
vera með. Og Ponomariov einnig. Svo
kannski er Kaspi þá að reyna að
sættast við FIDE i alvöru?
Hvitt: Alexei Shirov (2704)
Svart: Bogdan Kurajica (2555)
Sikileyjarvöm.
Sarajevo (2), 23.05. 2002
1. e4 c5 2. Rf3 a6 3. c3 g6 4. d4
cxd4 5. cxd4 d5 6. exd5 Rf6 7. Rc3
Rxd5 8. Bc4 Rxc3 9. bxc3 Bg7 10.
h4 Dc7 11. Db3 e6 12. Bd3 Rc6 13.
h5 Bd7 14. Rg5 Hc8 15. Re4 0-0 16.
hxg6 hxg6 17. Bg5 f5 18. Rc5 Ra5
19. Db4 Hf7 20. Hbl Bf8 21. Kfl
Bc6 22. Kgl e5 23. dxe5 Dxe5 24.
Be3 Dd5 25. Bfl Dxa2 26. Dh4 Hg7
27. Hdl Bd5 (Stöðumyndin) 28. Hd2
Dxd2 29. Bxd2 Hxc5 30. Dd8 Hf7
31. Be3 Rc6 32. Dh4 Hg7 33. Bxc5
Bxc5 34. Bc4. 1-0.
Hvitur á leik!
Hafi maður áhuga á undarlegri
taflmennsku er kjörið m.a. að skoða
skákir Shirovs. Hann er nú staddur í
Sarajevo og vinnur hér fyrrum
heimsmeistara unglinga, Bogdan
Kurajica, í skemmtilegri skák sem ég
botna ekki of mikið i! En það er ým-
islegt á döfmni. Harpa Ingólfsdóttir
er nýfarin til Vama í Búlgaríu að
BB
uru 08 úne 61 ‘bsb Ll ‘oas 91 ‘npn§ n
‘umjjo 6 ‘Saes 9 ‘bjb g ‘juutaSubi \ ‘jujsjnBpi g ‘po z '30S 1 uiajpoq
■Jtu; 88 ‘Jejo 88 ‘nuuxs iz ‘ineu 81 ‘Hpus 91 ‘lós si
‘B(OA n ‘joijB 81 ‘25n 81 ‘88bu 01 ‘bioh 8 ‘JBBB l ‘subi f ‘siofs 1 ujajBi
—
DV4HYND HILMAR ÞÓR
Glatt á hjalla í frímínútum í Isaksskóla
,/lf k/ h % | p; ■ i SLgJr í
! B I
l
Dagfari
Kosningar og jól
Jæja! - Þá eru kosningarnar
gengnar um garð. Fyrir þá sem
tóku þátt í baráttunni af lífi og
sál eru fyrstu dagarnir eftir
kosningar svolítið eins og fyrstu
dagarnir eftir jól og áramót. Og
sama er að segja um aðdragand-
ann. Kosningabaráttan og jóla-
undirbúningurninn eiga líka ým-
islegt sameiginlegt.
Kosningar mynda spennu
vegna möguleikans á breytingum
og umskiptum á valdhöfum -
breytingum sem sumir óttast en
aðrir fagna. Að vísu hafa kosn-
ingaúrslit sjaldan í för með sér
mjög róttækar breytingar, eða
eins og stjórnleysingjar orða það:
„Það er sama hvern maður kýs -
maður kýs alltaf stjórnvöld."
En þó við getum ekki kosið
milli stjórnar og stjórnleysis
myndar kosningabarátta sívax-
andi spennu. Svo líður stóra
stundin hjá og þegar öllu er á
botnin hvolft, hefur furðu lítið
áunnist - eða tapast. Menn sitja
eftir, svolítið dasaðir, fara að
tína niður áróðursspjöldin eins
og jólaskrautið í janúar og setja
sig aftur í hversdagslegar stell-
ingar. Hinir flokkshollu finna
sér ný umræðuefni og fyrrver-
andi frambjóðendur geta hætt að
brosa og farið að kinka kolli í
stað þess að heilsa öllum með
handabandi.
Nú kynni einhver að reyna
eyðileggja þessa fallegu samlík-
ingu og benda á að ólíkt jólunum
þegar allir sigra, þá sigri bara
sumir í kosningum - hinir tapi.
En þetta er auðvitað ekki rétt:
Að kosningum loknum eru
málsvarar allra framboða sann-
færðir um að einmitt þeirra
framboð sé eini sigurvegarinn
þótt það liggi ekki alltaf í augum
uppi. Hinir hafa í mesta lagi
unnið varnarsigra.
„En til hvers er þá verið að
kjósa,“ kynni einhver að spyrja.
Jú, einmitt til þess að „allir fái
eitthvað fallegt” - og geti unað
glaðir við sitt - alveg eins og á
jólum.
Kjartan Gunnar
Kjartansson
blaöamaöur