Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 íslendingaþættir_________________________________________________________________________________________________________PV Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Fimmtugur Halldór Kristjánsson verkfræðingur í Hafnarfirði 1950, ljósmóðir og hjúkrunar- fræðingur í Reykjavík, maki Ingibjörn Haf- steinsson kaup- maður; Sigurð- ur, f. 23.2. 1955, barnalæknir í Reykjavík, maki Anna Daníels- dóttir tann- læknir; Hjalti, f. 23.11. 1958, læknir á heilsu- gæslustöðinni í Vestmannaeyj- um, maki Vera Björk Einars- dóttir hjúkrun- arfræðingur; Guðrún Þura, f. 28.1. 1966, 85 ára_________________________________ Gunnar Guðjónsson, Hjarðarholti 2, Akranesi. 80 ára_________________________________ Hörður V. Vílhjálmsson, Barðastöðum 9, Reykjavík. Ólafur Tryggvi Jónsson, Stóragerði 1, Hvolsvelli. 75 #ra_________________________________ Magnea Bergmann Franzdóttir, Laufásvegi 6, Reykjavík. Leifur Steinarsson, Hofteigi 14, Reykjavík. Iðunn Vigfúsdóttir, Kirkjulundi 6, Garðabæ. Reynir Ólafsson, Bláskógum 13, Hveragerði. 70 áru_________________________________ Anna Margrét Jafetsdóttir, Dalbraut 16, Reykjavík. Fanney Sigurgeirsdóttir, Grýtubakka 26, Reykjavík. Sigríður Kristín Magnúsdóttir, Miðvangi 41, Hafnarfirði. Ólafur V. Sverrisson, Sunnubraut 4, Grindavík. 60_ára_________________________________ Ingunn ívarsdóttir, Fáfnisnesi 4, Reykjavlk. Gústav Óskarsson, Lindasmára 7, Kópavogi. Stefanía Magnúsdóttir, Markarflöt 22, Garðabæ. Sigurður Guðmundsson, Sviðugörðum, Selfossi. 50 ára_________________________________ Lára Ágústa Gunnarsdóttir, Goðheimum 3, Reykjavík. Sólveig Ingibergsdóttir, Rofabæ 27, Reykjavík. Gestur Halldórsson, Dverghömrum 32, Reykjavík. Arngrímur Brynjólfsson, Jörvabyggð 4, Akureyri. Páll Elíasson, Sléttu, Kirkjubæjarklaustri. 40 ára_________________________________ Pétur Einar Pétursson, Miklubraut 66, Reykjavík. Ingunn Alda Sigurðardóttir, Ásgaröi 145, Reykjavik. Ingi Már Gunnarsson, Lundarbrekku 4, Kópavogi. Sighvatur Stefánsson, Hlöðum III, Akureyri. Jón Hákonarson, Marbakka, Akureyri. Henryk Jan Snarski, Hlíðargötu 57, Fáskrúðsfirði. Auðunn Árnason, Böðmóðsstöðum 1, Selfossi. Ellen Þóra Snæbjörnsdóttir, Stífluseli 8, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtud. 23.5. Þórunn Lárusdóttir, frá Neskaupstað, lést á hjúkrunarheimilinu í Víðinesi mánud. 27.5. Svanur Jónsson, Langholtsvegi 187, Reykjavík, lést á Landspítalanum I Fossvogi sunnud. 26.5. Jóhanna Sigríður Guðmundsdóttir, frá Þingeyri, lést á Droplaugarstöðum, fimmtud. 23.5. Elín Rut Kristinsdóttir, Tunguseli 7, Reykjavik, lést af slysförum i Arisona, Bandaríkjunum, föstud. 24.5. Halldór Kristjánsson verkfræð- ingur, Hraunbrún 52, Hafnarflrði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Halldór fæddist í Reykjavik. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1972 og prófi í rafmagnsverkfræði frá HÍ 1976. Halldór réðst til starfa hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur eftir há- skólanámið og vann í verkáætlana- deild til 1978. Hann hóf þá störf hjá Smith og Norland og hafði þar um- sjón með sölu og þjónustu síma-, fjarskipta- og tölvukerfa. Halldór stofnaði Tölvu- og verk- fræðiþjónustuna 1986 en þetta einkafyrirtæki hans hefur með höndum námskeiðahaldi og hefur veitt mörgum fyrirtækjum ráðgjöf um tölvumál um langt árabil. Halldór hefur kennt við Ht, bæði í Reykjavík og á Akureyri, einnig við endurmenntunarstofnun HÍ og á fjölda námskeiða í eigin fyrirtæki og hjá öðrum. Halldór var formaður Lions- klúbbins Ásbjarnar í Hafnarfirði 1982, var skipaður í umdæmisstjóm hreyfingarinnar árið eftir og síðar fjölumdæmisráð og var enn fremur gjaldkeri Lionshreyfingarinnar í tvö ár. Hann hefur gegnt fjölmörg- um trúnaðarstöfum fyrir Lions- hreyfinguna og var m.a. umdæmis- Jón Sæmundsson, Kirkjubraut 17 í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ, varð áttræður þann 27.5. sl. Starfsferill Jón fæddist á Krakavöllum í Fljótum í Skagafirði og ólst upp í Fljótunum. Hann hefúr lengst af verið til sjós, skipstjóri eða vél- stjóri, á hinum ýmsu skipum, sín- um eigin eða annarra. Þá vann hann um árabil hjá Keflavíkurbæ, var síðast gangavörður í Myllu- bakkaskóla í Keflavík um árabil. Eftir að Jón kvæntist bjuggu þau hjónin fyrstu hjúskaparár sín í Grímsey en fluttu til Siglufjarðar 1949 þar sem þau áttu heima til 1964. Þá fluttu þau í Kópavoginn og ári síðar til Keflavíkur þar sem Jón hefur búið síðan. Fjölskylda Kona Jóns var Bára Sveinbjöms- dóttir, f. 16.8. 1924, d. 6.6. 1982, hús- móðir. Hún var dóttir Sveinbjöms Jóhannessonar bónda og Jónínu Jónsdóttur húsfreyju. Jón og Bára eignuðust fjögur böm. Böm þeirra eru Guðrún Jóns- dóttir, f. 15.12. 1942, kennari, gift Gylfa Guðmundssyni skólastjóra og eignuðust þau þrjú böm, Gylfa Jón, stjóri 1997-98 og fjölumdæmisstjóri 1998-99. Hann er nú ritari Norður- landasambands Lionshreyfingar- innar, NSR og er kjörinn til þess embættis til ársins 2004. Halldór var formaður Skýrslu- tæknifélags Islands um margra ára skeið og átti sæti í stjórn Samtaka norrænna skýrslutæknifélaga sam- hliða. Hann var varaformaður Upp- lýsingatæknistaðlanefndar og for- maður Ráðgjafamefndar ríkisins um upplýsingatækni eitt ár, hefur setið i verkefnisstjórn um símennt- un sem fulltrúi menntamálaráð- herra í nær fimm ár og gegnt fleiri trúnaðarstörfum. Halldór er höfundur margra bóka um tölvumál og hefur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit um sama efni auk þess að hafa gefið út tvö tímarit um tölvur. Fjölskylda Halldór kvæntist 6.9. 1975 Jennýju Ágústsdóttir, f. 6.9. 1953, tannlækni. Foreldrar hennar: Ágúst Guðmundur Sigurðsson skipa- tæknifræðingur, og Guðrún Helga Lárusdóttir, útgerðarmaður í Hafn- arfirði. Dætur Halldórs og Jennýjar: Val- gerður Guðrún, f. 30.5. 1982, há- skólanemi; Guðrún Helga, f. 29.11. 1991, nemi. Systkini Halldórs: Hildur, f. 14.10. Svein Gunnar er lést 1983 og Báru Kolbrúnu; Kolbrún Jónsdóttir, f. 28.11. 1944, fulltrúi, gift Páli Jóns- syni skipstjóra og eiga þau þrjú börn, Jón Pálma, Báru Sif og Rúnar Ágúst; óskírð stúlka, f. 21.2. 1948, d. 9. júlí sama ár; Hrafnhildur Jóns- dóttir, f. 13.1. 1955, sjúkraliði, gift Skúla Þórarinssyni vélfræðingi og eru börn þeirra Tinna Ösp og Ró- bert Orri. Langafaböm Jóns eru níu. Foreldrar Jóns voru Sæmundur Dúason, f. í Langhúsum 10.11. 1889, d. 1988, kennari og bóndi á Kraka- völlum í Fljótum, og k.h., Guðrún Valdný Þorláksdóttir, f. 11.5.1892, d. 13.5. 1980, húsfreyja. Ætt Sæmundur var sonur Dúa Krist- jáns, b. og smiðs á Krakavöllum Grímssonar, græðara yngri, b. í Reykhúsum og að Minni-Reykjum í Flókadal Magnússonar, græðara, spitala- og klausturhaldara á Möðruvöllum í Eyjafirði Grímsson- ar, græðara eldri, b. á Espihóli í Eyjafirði Magnússonar. Móðir Magnúsar á Möðruvöllum var Sig- urlaug Jósefsdóttir, b. að Ytra- Tjarnarkoti Tómassonar, b. að Hvassafelli, ættfóður Hvassafells- sjúkraþjálfari og nuddari í Reykja- vík. Foreldrar Halldórs: Kristján Stef- án Sigurðsson, f. 14.11. 1924, fyrmm héraðslæknir á Patreksfirði og fyrr- rnn yfirlæknir á Sjúkrahúsi Kefla- víkur og Valgerður Guðrún Hall- dórsdóttir, f. 20.4. 1929, húsmóðir. Þau eru bæði látin. Ætt Kristján var sonur Sigurðar Sig- urðssonar og Stefaníu Guðnadóttur frá Hælavík á Homströndum. Rit- ættar Tómassonar, ættfóður Kollu- gerðarættar Sveinssonar. Jósef var langafi Kristjáns, afa Hriflu-Jónasar, Jóhannesar, afa Jó- hanns Sigurjónssonar skálds, Ingiríðar, langömmu Steins Stein- ars, og Finns Jónssonar ráðherra, afa Hallgríms Snorrasonar hag- stofustjóra. Bróðir Jósefs var Jónas, afi Jónasar Hallgrímssonar. Móðir Sigurlaugar var Ingibjörg, systir Gunnars í Upsum, föður Gunnars í Laufási, afa Hannesar Hafstein. Móðir Gríms á Minni- Reykjum var Margrét Benediktsdóttir, vinnu- manns á Höfða, Benediktssonar. Móðir Margrétar var Halldóra Sig- fúsdóttir, prófasts á Höfða Jónsson- ar. Móðir Dúa Kristjáns var Ólöf Ólafsdóttir, b. á Rifkelsstöðum Jós- höfundamir Fríða og Jakobína Sig- urðardætur em systur Kristjáns. Jakobína er nú látin. Valgerður var dóttir Halldórs Ámasonar, bónda í Garði í Mývatnssveit, og k.h., Sig- ríðar Jónsdóttur. Þura í Garði og Jón Árnason, afi Ólafs Jóhanns Ólafssonar, voru systkini Halldórs Árnasonar. Halldór og Jenný halda daginn hátíðlegan með fjölskyldu og vin- um, í Hafnarfirði, á afmælisdaginn. efssonar, bróður Sigurlaugar. Móðir Sæmundar var Eugenía Jónsdóttir Norðmanns, pr. á Barði í Fljótum Jónssonar, frá Fomhaga í Hörgárdal Guðmundssonar, bróður Vatnsenda-Rósu. Móðir Jóns Norð- manns var Margrét Jónsdóttir, pr. og skálds á Bægisá Þorlákssonar. Guðrún Valdný var dóttir Þor- láks, b. og skipstjóra á Lambanes- Reykjum í Fljótum Þorlákssonar, b. þar Þorlákssonar, b. á Illugastöðum Þorlákssonar, b. þar Bjömssonar, b. þar Þorlákssonar, b. þar Ólafssonar, Þorlákssonar, pr. á Miklabæ, Ólafs- sonar. Móðir Þorláks, eldra á Lamba-Reykjum var Anna Jónsdótt- ir rika á Brúnastöðum, Jónssonar, skólakennara í Noregi Jónssonar, frá Löngmnýri í Skagafirði Rafns- sonar á Skefilsstöðum í Laxárdal Jónssonar, pr. í Hvammi í Laxárdal Þórðarsonar. Móðir Þorláks skip- stjóra var Guðrún Jónsdóttir, b. á Lambanes-Reykjum Jónssonar, b. á Lambanesi Þorfinnssonar, b. á Lambanes-Reykjum Magnússonar, b. á Kálfsá í Ólafsfirði. Móðir Jóns á Lambanesi var Ingibjörg Bjama- dóttir. Móðir Guðrúnar var Sigur- laug Sæmundsdóttir frá Lambanesi. Móðir Guðrúnar Valdnýjar var Margrét Halldóra ljósmóðir, systir Dúa Kristjáns. Jón Sæmundsson fyrrv. skipstjóri og vélstjóri m Jóhann Kr. Sæmundsson, áður til heim- ilis á Fornhaga 11, Reykjavík, lést á Hrafnistu, Reykjavík, mánud. 20.5. Út- för hans fer fram frá Neskirkju mið- vikud. 29.5. kl. 13.30. Ágúst Ásgrímsson, fyrrv. leigubílstjóri, Barðavogi 11, sem lést á Landspitalan- um í Fossvogi sunnud. 19.5. verður jarösunginn frá Áskirkju miðvikud. 29.5. kl. 13.30. Páll Ólafur Gíslason, Jökulgrunni 2, lést laugard. 25.5. Jarðsungið verður frá Ás- kirkju fimmtud. 30.5. kl. 10.30. Baldur Reynir Baldursson, Skúlabraut 23, Blönduósi, lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Blönduósi föstud. 24.5. sl. Jarðsett verður frá Blönduóskirkju föstud. 31.5. kl. 14. Útför Sesselju Pálsdóttur (Stellu) frá Sléttu í Reyðarfirði, áðurtil heimilis í Arahólum 2, Breiðholti, fer fram frá Bú- staðakirkju föstud. 31.5. kl. 13.30. Útför Steingríms Björnssonar, Garða- byggö 6, Blönduósi, fer fram frá Blöndu- ósskirkju laugard. 1.6. kl. 11. Fertug Halldóra Ingimundardóttir bóndi í Brautartungu í Lundarreykjadal Halldóra Ingimundardóttir, bóndi í Brautartungu, Lundarreykjadal, er fertug í dag. Starfsferill HaUdóra fæddist á Blönduósi og ólst upp í Enni í Refsborgarsveit viö Blönduós. Hún stundaði grunn- skólanám á Húnavöllum og síðasta árið á Blönduósi. Hún stundaði síð- an nám við Húsmæðraskólann að Varmalandi í Borgarfirði 1979-80. Halldóra hóf sambúð á Akranesi 1981 með unnusta sínum, þar sem hún stundaði almenn verkakvenna- störf. Hún flutti þaðan í Brautar- tungu í Lundarreykjadal 1990 og hefur búið þar síðan. Halldóra hefur verið formaður kvenfélags Lunddæla frá 1999 og syngur í Freyjukómum. Fjölskylda Hálldóra giftist 30.5.1997 Guðna Eðvarðsyni, f. 20.7. 1960, bónda, en þau hófu sambúð 1981. Guðni er sonur Eðvarðs Péturs Torfasonar, f. 14.6. 1919, og k.h., Guðfinnu Torf- hildar Guðnadóttur, f. 7.12. 1928. Böm Halldóru og Guðna eru Ingi- mundur Pétur Guðnason, f. 27.10. 1980, starfsmaður Norðuráls, búsett- ur á Akranesi en sambýliskona hans er Ríkey Björk Magnúsdóttir og sonur þeirra er Aron Kristinn, f. 3.10. 1999; Einar Öm Guðnason, f. 31.7.1991; Guðfinna Sif Guðnadóttir, f. 20.5. 1994. Systkini Halldóru eru Jósteinn Ingimundarson, f. 12.4. 1966, lager- stjóri, búsettur í Reykjavík; Fjóla Ævarsdóttir, f. 22.12. 1970, leiðbein- andi og nemi, búsett á Skagaströnd, gift Kristjáni Karlssyni sjómanni og eiga þau þrjú böm; Ingibjörg Ingi- mundardóttir, f. 17.2. 1972, kjötiðn- aðarmaður, búsett í Enni og á hún eitt bam en unnusti hennar er Kristófer Máni Bogason. Foreldrar Halldóru: Ingimundur Ævar Þorsteinsson f. 1.3. 1937, og k.h. Ingibjörg Jósefsdóttir 9.7. 1944, bændur í Enni. Ætt Ingimundur Ævar er sonur Guð- mundar Þorsteins Sigurðssonar, bónda í Enni, og k.h., Halldóru Sig- ríðar Ingimundardóttur. Ingibjörg er dóttir Jósefs Sigfús- sonar og Fjólu Kristjánsdóttur, þau eru búsett á Sauðárkróki. Halldóra og Guðni taka á móti fjölskyldu og vinum þann 31. maí í félagsheimilinu Brautartungu frá kl. 20.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.