Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 DV Fréttir Steingrímur J. Sigfússon um grein formanns Samfylkingarinnar í DV í gær: Osvifni og rangfærslur Kjallaragrein Össurar Skarphéö- inssonar formanns Samfylkingar- innar i DV í gær, þar sem hann fjallar um niðurstöður sveitar- stjórnarkosninganna undir yfír- skriftinni „Sóknarsigur Samfylk- ingarinnar," fellur ekki í góðan jarðveg hjá Steingrími J. Sigfús- syni formanni Vinstri hreyflngar- innar - græns framboðs. Steingrím- ur svarar Össuri i kjallaragrein í DV í dag. Össur sagði í grein sinni i gær, að kosningamar hefðu verið próf- steinn á nýju flokkana tvo á vinstri vængnum; það blasti nú við öllum hvaða flokki stjómarandstöðunnar kjósendur treystu best til að verða - að eigna sér sameiginleg framboð Össur Steingrímur J. Skarphéðinsson. Sigfússon. mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn: „Kjósendur völdu Samfylkinguna." 1 svargreininni segir Steingrím- ur J. að löngunin til að ganga milli bols og höfuðs á VG hafi greinilega borið Össur ofurliði. „Hann missir alla dómgreind og leiðist út í ótíma- bær skrif um þríflokkinn," segir Steingrimur. Steingrímur segir það ósvífni og rangfærslur hjá Össuri að eigna Samfylkingunni framboð sem alls ekki séu á hennar vegum frekar en annarra flokka. Þetta gUdi t.d. um Siglufjarðarlistann og Samstöðu I Dalabyggð, sem Össur taldi upp sem Samfylkingarframboð. Steingrímur segir einnig óviðeig- andi og beinlínis rangt hjá Össuri að Samfylkingin hafi öðrum frem- ur lagt fram „burðarása" framboða eins og á Ólafsfirði og Húsavík. Sama gUdi um það, að bókfæra hjá Samfylkingunni persónulega fram- göngu Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, sameiginlegs borgarstjóra- efnis flokkanna allra. Össur sagði í grein sinni að per- sónulegur styrkur borgarstjóra „úr röðum Samfylkingarinnar" hefði tryggt yfirburðasigur á Sjálfstæðis- flokknum. Árni Þór Sigurðsson, efsti maður á framboðslista R-listans, sagðist í samtali við DV í gær ekki líta svo á að borgarstjóri væri „úr röðum Samfylkingarinnar“. Ingibjörg Sól- rún sagði í viötali við DV skömmu fyrir kosningar að Kvennaframboð og Kvennalistinn væru „einu póli- tisku samtökin sem [hún hefði] starfað i“. Sjá bls. 17 Umdeild ráðning hjá RÚV: „A5 minnsta kosti siðlaus" Sigurður Þór Salvarsson, einn umsækjenda um stöðu dagskrár- stjóra Rásar 2 á Akureyri, segist ætla að kanna rétt- arstöðu sína og hvort eðlilega hafi verið staðið að Siguröur Þór ráðningu. Fimm Salvarsson. sóttu um þegar staðan var auglýst og var hluti um- sækjenda hæfur að mati Sigurðar Þórs. Þrátt fyrir það ákvað Ríkisút- varpið að auglýsa starfið aftur og framlengja umsóknarfrest. Þá bætt- ust 13 við og var Jóhann Hauksson, svæðisstjóri RÚV á Austurlandi, í þeim hópi. Hann hlaut hnossið. „Það hafa margir sagt við mig að þeir telji þetta vægast sagt einkenni- lega afgreiðslu en hvort hún er lög- leg eða bara siðlaus er annar hand- leggur,“ sagði Sigurður Þór í samtali við DV frá ítaliu í gær. Hann tók þó fram að hann óskaði Jóhanni til hamingju með ráðninguna. Dagskrárstjórinn mun hafa aðset- ur á Akureyri og verður starf for- stöðumanns svæöisútvarpsins á Ak- ureyri lagt niður samhliða breyting- unni. Sigurður Þór hefur gegnt þeirri stöðu og telur hann líklegast að störfum hans hjá RÚV á Akur- eyri sé lokið. Hins vegar hafi enginn frá stofnuninni rætt við sig um málið. „Ef maður stendur uppi at- vinnulaus þarf að bregðast við því og það er ekki Jóhann mikið um fjöl- Hauksson. miðlatækifæri á Akureyri," segir Sigurður Þór sem útilokar ekki bú- ferlaflutninga frá Akureyri. Gestur Einar sótti um Umsækjendur um stöðuna voru: Birgir Ragnar Baldursson, Bjami Pétur Magnússon, Gestur Einar Jónasson, Gísli Þór Gunnarsson, Gísli Magnússon, Gunnlaugur Helgason, Helgi Már Barðason, Hjálmar Hjálmarsson, Jóhann Hauksson, Jóhann Jóhannsson, Njáll Gunnar Sigurðsson, Pjetur St. Arason, Reynir Þór Finnbogason, Sigfús E. Amþórsson, Sigrún Inga Hansen, Sigurður Þór Salvarsson, Vigfús Ingvarsson og Ævar Örn Jós- epsson. Útvarpsráð mælti með Jóhanni Haukssyni með fimm atkvæðum en Kristín Halldórsdóttir sat hjá við af- greiðsluna. Jóhann hefur störf á Ak- ureyri 1. júní. nk. -BÞ DV-MYND PJETUR Með bros á vör yfir góðum afla Menn voru brosandi út ab eyrum yfirgóðum smábátaafla sem verið var að landa í Reykjanesbæ þegar Ijósmyndari DV átti þar leið um í gær. Ekki var annaö aö sjá en þorskurinn væri mjög vænn. Meint líkamsárás kennara á nemanda sinn í Hvassaleitisskóla: Héraðsdómur heimilar vitnaleiðslur - ákvörðun um skaðabótamál tekin í kjölfar þeirra Vltnalelðslur Héraösdómur hefur heimilaö vitnaleiöslur vegna meintrar árásar kennara í Hvassaleitisskóla á nemanda sinn. Héraðsdómur hefur heimilað að farið verði i svokallað vitnamál, að beiðni lögmanns nemanda sem varð fyrir meintri lík- amsárás í Hvassaleitis- skóla árið 2000. Um er aö ræða þinghald meö þeim vitnum sem talin eru geta skýrt málið en hafa enn ekki verið yfirheyrð. Það fer fram í næsta mánuði. í kjölfar vitnaleiðslnanna verður tekin ákvörðun um hvort höfðað verður skaðabótamál á grundvelli þeirra upplýsinga sem kunna að koma fram við þær. Umrætt mál kom upp 1. mars 2000 vegna meintrar líkamsárásar kenn- ara í Hvassaleitisskóla á einn nem- enda sinna. Móðir piltsins lagði fram kæru í kjölfarið. Eftir langvar- andi rannsóknir lögreglu var málið sent til saksóknara. Hann vísaði því til baka til frekari rannsóknar. Að henni lokinni vísaði saksóknari því frá á þeirri forsendu að ekki væru fleiri til frásagnar um atburðinn en viðkomandi kennari og nemandi. Móðir drengsins leitaði til dóms- málaráðuneytisins þar sem hún og lögfræðingur hennar töldu að máliö hefði ekki verið nægilega vel rann- sakað. T.d. hefðu nemendur í stof- unni ekki verið yfirheyrðir. Umboðsmaður Alþingis er einnig með málið til athugunar. Atburðurinn sjálfur var á þá lund að kennari I Hvassaleitisskóla vísaði ein- um nemanda sínum, þá 15 ára, út úr kennslustimd þar sem hann taldi að hinn síð- arnefndi hefði kastað fram- an í sig „tyggjóklessu". Ann- ar nemandi viðurkenndi síðar aö hafa hent tyggjóinu og baðst afsökunar á því. Drengurinn umræddi vildi fá að taka dótið sitt með og bankaði aftur á hurðina. Samkvæmt vitnis- burði hans í lögregluskýrslu kom kennarinn þá út, tók drenginn hálstaki og gekk með hann eftir ganginum. Bar drengurinn að kenn- arinn hefði skellt höfði sinu tvisvar í vegg; í síðara skiptið með því að lyfta honum upp á hálsinum og skella höfði hans í vegginn. Hann segir sig hafa svimað og orðið óglatt strax í kjölfar fyrra höggsins og eft- ir seinna höggið hefði hann munað lítiö. Kennarinn bar að ekki hefði kom- ið til átaka milli sín og nemandans. Umræddur nemandi 'fór þegar til skólastjóra Hvassaleitisskóla og bað um að kallað yrði á lögreglu. Hann ber að ekki hafi verið orðið viö því. Þá gekk hann sjálfur yfir á slysa- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Hann kastaði upp bæði á leiðinni og inni á spítalanum. Hann var greind- ur með heilahristing. Skömmu síðar þurfti hann að leita aftur á slysadeild. Hafði hann þá verið slappur og sljór og kvartað mikið um verki í brjóstbaki og hnakka. Var hann þá hljóðandi af verkjum, að þvi er fram kemur í vottorði læknis á slysa- og bráða- móttöku. Að þessu sinni var hann greindur með hálstognun og tognun á brjóstbaki. Hann fór síðan til taugasérfræð- inga sem rannsökuðu hann. Þeir töldu að ástand hans gæti samrýmst „frásögn hans af árásinni". Hann hefur verið til meðferðar hjá lækn- um og sjúkraþjálfurum. -JSS Bensín: Hækkandi verð á heimsmarkaði Heimsmarkaðsverð á 95 oktana bensini hefur farið hækkandi frá áramótum. í janúar var tonnið á 180 dollara en stendur nú í um það bil 260 dollurum, samkvæmt upplýsing- um Magnúsar Ásgeirssonar, for- stöðumanns olíustýringardeildar Esso. Hæst fór það í 280 dollara á þessu tímabili. Ekki er ljóst hvort verðbreyting- ar verða á bensíni og olíuvörum hér á landi um næstu mánaðamót. Síð- ustu tvær verðbreytingar voru til lækkunar, hin síðari til að stuðla að því að rauða strikið í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins héldi. -JSS Suðurland: Verslunum lokað Kaupás hf. ætlar að loka Kjarval- verslunum sínum á Stokkseyri og Eyrarbakka þann 1. júlí næstkom- andi. Óánægjuraddir hafa heyrst hjá bæjarbúum með þessa ákvörðun en þetta hefur í för með sér að íbú- ar þurfa að fara til Selfoss eða ann- arra nálægra bæja til að kaupa í matinn. Heimildir DV segja að Matthías Sigurðsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri hjá Nóatúni, sé i við- ræðum við norska aðila um að opna nýjar verslanir á Suðurlandi. „Nú er ég einfaldlega að spá í framtíð mína og hvemig hún verður. Ég get ekki sagt öllu meira en það,“ sagði Matthías þegar DV náði tali af hon- um í gær. Radíónaust tekur yfir þjón- ustu Svars Símafyrirtækið Svar hefur selt rekstur sinn á Akureyri til Radíó- nausts. Starfsemi Svars við Ráöhús- torgið á Akureyri hefur verið hætt og flytjast starfsmenn Svars þar yfir til Radíónausts. Að sögn Rúnars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Svars, er ástæð- an fyrir þessu fyrst og fremst hag- ræðing. „Markaðurinn er lítill á Ak- ureyri og því þótti hagkvæmara að sameina rekstur þessara tveggja fyrirtækja þar. Með þessu verða ein- ingamar hagkvæmari sem þá von- andi skilar sér í bættri afkomu." Rúnar tekur það fram að fyrirtækið eigi ekki við neina fjárhagserfið- leika að etja, heldur sé ástæðan fyr- ir þessu einungis að gera rekstur- inn hagkvæmari. Svar hefur séð um símkerfaþjón- ustu fyrir norðan en hér eftir verð- ur sú þjónusta í sérstakri deild inn- an Radíónausts. -HI Ekki Eskimo Eskimo Módels hefur að undan- fomu borist fjöldi ábendinga, ýmist frá ungum stúlkum eða foreldmm þeirra, um símhringingar í nafni Eskimo þar sem stúlkum á aldrin- um þrettán til fimmtán ára hefur verið boðin þátttaka í fegurðarsam- keppnum, námskeiðum og þess hátt- ar. Andrea Brabin hjá Eskimo Mód- els segir að þessar hringingar séu ekki á vegum fyrirtækisins og hvet- ur fólk til að hunsa þær. Eskimo hafi ekki staðiö fyrir fegurðarsam- keppni unglingsstúlkna og það standi ekki til. -ÓTG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.