Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 DV Fréttir Ósætti frænda Mikla athygli vakti þegar í odda skarst milli Máa og Þorsteins Vil- helmssonar, frænda hans. Sá síðar- nefndi seldi hlut sinn í Samherja og fluttist til Reykjavíkur. Hlutur hans var metinn á rúma þrjá milljarða króna og urðu blaðaskrif um órétt- læti þeirrar ráðstöfunar fjármuna úr sameiginlegri auðlind þjóðarinn- ar. Ekki ber heimildum DV saman um nákvæmar ástæður þess að Þor- steinn hætti hjá Samherja en hermt er að þeir frændur hafi ekki talað saman næstu misseri. Sjálfur sagði Þorsteinn Vilhelmsson um viðskiln- aðinn að þar réðu hagkvæmnissjón- armið einkum. Fagnar með Big Mac í nóvember árið 2000 birti DV út- tekt um valdamestu einstaklingana á landinu. Þar var Þorsteini Má Baldvinssyni lýst sem ókrýndum konungi sægreifanna. „Hann er stærsti eigandi og framkvæmda- stjóri stærsta sjávarútvegsfyrirtæk- is landsins, sem auk þess teygir Þorsteinn Már Baldvinsson hjá Samherja: erfiðlega gangi oft að ná tali af hon- um. Jafnvel er hermt að Þorsteinn Már vilji ráða umræðuefninu og ferðinni i samskiptum við fjölmiðla en þegar honum ofhýður umræðan er hann óhræddur að viðra skoðan- ir sínar. Stundum hefur orðbragð hans valdið fjaðrafoki í samfélag- inu. „Hann er dálítill Akureyringur en þó ekkert rosalega upptekinn af því. Hans viðskipti eru alþjóðleg og ég held hann sé fyrst og fremst upp- tekinn af starfsemi síns fyrirtækis," segir einn náinna samstarfsmanna Þorsteins Más. „Vinnan er hans ástríða" - efnaður dugnaðarforkur sem færist stundum of mikið í fang Nafn: Þorsteinn Már Baldvinsson Aldur: 49 ára Fjölskylda: Kvæntur Helgu Steinunni Guömundsdóttur, 2 börn. Menntun: Stýrimaður og skipaverkfræðingur Heimlli: Akureyri Staða: Framkvæmdastjóri Efni: Aukin umsvif Samheija hf. Þorsteinn Már Baldvinsson, 50 ára, er með umsvifamestu við- skiptamönnum íslandssögunnar. Hann er lykilstjórnandi hjá Sam- herja og á stóran hlut í félaginu sem hann stofnaði sjálfur. Umsvif hans teygja sig þó langt umfram ítök hans í sjávarútvegi, án þess þó að Mái - eins og hann er kallaður á Ak- ureyri - hafi sérstaka viðskipta- menntun. Hann er skipaverkfræð- ingur og stýrimaður að mennt og bakgrunnur hans tengdist áður fyrr fyrst og fremst útgerð. Hann sá skip liggja í Hafnarfjarðarhöfn árið 1992 sem síðar hlaut nafnið Akureyrin. Skömmu síðar varð Samherji stór- veldi en í seinni tíð hefur nafn hans tengst harðri alþjóölegri viðskipta- baráttu sem teygir anga sina víða. Þar má nefna ORCA-hópinn og átök- in um íslandsbanka. Nærmynd Björn Þorláksson blaðamaöur Vinir og samstarfsmenn Þor- steins Más lýsa honum sem vinnu- þjarki sem veiti sér fáar afþreying- arstundir. Hann skreppi örsjaldan í veiði eða í einstaka skíðaferð en fylgist ágætlega með íþróttaviðburð- um, einkum frammistöðu KA, og komi fyrir að hann gangi nánast af göflunum í hita leiksins. Hann þyk- ir standa fast á sínu og minnast menn deilu milli hans og Þorsteins Vilhelmssonar sem endaði með því að sá síðarnefndi seldi hlut sinn í Samherja og fluttist frá Akureyri. „Hann er á kafi í sínum bissness og hugfanginn af starflnu. Vinnan er hans ástríða og hún tekur hans tíma allan," segir einn samstarfs- manna Þorsteins Más. Sanngjarn stjórnandi Þeir eðliskostir sem menn þakka velgengni hans er að Mái þykir vel geflnn þrátt fyrir „einstaka snögga bletti", eins og einn viðmælenda DV orðaði það. Þá þykir hann sann- gjarn stjómandi alla jafna. Á hinn bóginn hefur Þorsteinn Már stund- um verið gagnrýndur fyrir að dreifa ekki ábyrgðinni nægilega mikið og færast of mikið í fang. Fjölmiðla- menn hafa einnig kvartað undan að arma sína til margra annarra landa.“ í umsögn blaðsins sagði þá um þennan harðduglega viðskiptajöfur: „Hann fagnar milljarðasamningum með því að fá sér Big Mac.“ Berst lítið á Einn samstarfsmanna Máa segir rétt að hann berist ekki mikið á. Hann fari vel með fé og geri sömu kröfu til vinnufélaganna. Hann sé alltaf að pæla í sjávarútvegi og þekking hans á greininni sé feiknar- leg og nái til allrar Evrópu. Hann hafl fyrst komist á sjó 6-7 ára gam- all með fóður sínum. Sé talnaglögg- ur enda margir stærðfræðingar i ættinni. Hann er sagður þekkja flestöll stærri fiskiskip í smáatrið- um. Eiginkona Máa er Helga Steinunn Guðmundsdóttir og eiga þau tvö uppkomin böm. Iðnaðarráðherra segir óvissukostnað orkufyrirtækja allt of mikinn: Vill setja skorður á umhverfisrannsóknir - ótrúleg ummæli sem lýsa valdhroka að mati Vinstri grænna Valgerður Sverrisdóttir, við- skipta- og iönaðarráðherra, boðar breytingar á löggjöf um virkjanir og umhverfismat vegna þess mikla kostnaðar sem orkufyrirtæki standi frammi fyrir áður en ráðist er í framkvæmdir. Þetta kom fram I ræðu ráðherra á ársfundi RARIK sem haldinn var á Akureyri í gær. „Nú hafa hins vegar skipast veð- ur í lofti varðandi ný virkjunar- mannvirki frá því sem var á árdög- um rafvæðingarinnar og jafnvel þeir aðilar sem einna mest fá í sinn hlut og best hafa notið nálægðar virkjana vilja ekki lengur stuðla að uppbyggingu orkuiðnaðarins í sinni heimabyggð. Hér kemur eflaust flestum í hug hin mikla umræða um umhverflsmál virkjana sem áber- andi hefur verið á undanfömum misserum. Eins og kunnugt er verða nýjar virkjanir í dag ekki reistar nema að undangengnu mati á umhverfisáhrifum. Kröfur sem gerðar eru til rannsókna vegna matsvinnunnar hafa stóraukist og þessi rannsóknakostnaður er orð- inn verulega íþyngjandi fyrir fram- kvæmdaraðila þar eð sú óvissa er alltaf fyrir hendi að ekki verði fall- ist á viðkomandi framkvæmd í úr- skurði stjómvalda um niðurstöður matsins,“ sagði ráðherra. Valgerður sagði brýnt að breyta lögum þannig að orkufyrirtæki þurfi ekki að eyða tugiun eða himd- ruðum milljóna króna í mismun- andi gagnlegar rannsóknir vegna mats á umhverfisrannsóknum sem hugsanlega skipti engu máli um það hvort ráðist veröur í framkvæmd eða ekki. „í raun eru þessar rann- sóknir komnar langt umfram eðli- legar kröfur sem gera verður til að komast að raun um hvort viðkom- andi mannvirki hafi óviðunandi áhrif á umhverfi sitt. Við endur- skoðun laga um mat á mnhverfisá- hrifum er nauðsynlegt að setja ein- Valgerður Ögmundur Sverrisdóttir. Jónasson. hverjar skorður á kröfugerð um rannsóknir og ekki síður þarf að setja skýrari reglur um inntak leyf- isveitinga vegna virkjunarmann- virkja,“ sagði ráðherra. Ótrúleg ummæli „Þetta eru ótrúleg ummæli og hljóma nánast sem ögrun gagnvart náttúruvemdarsinnum. Þótt ég geri mér grein fyrir að Valgerður Sverr- isdóttir hafi ráðherravald nú um stundarsakir þarf að fara vel með það vald og láta það ekki snúast upp í valdhroka. Ég sé ekki betur en það sé að gerast," segir Ögmundur Jón- asson, þingflokksformaður Vinstri grænna. Hann segir að virkjanir og þær breytingar sem þær hafi í för með sér á náttúrunni séu ekkert stund- arfyrirbrigði heldur þýði þær óaft- urkræf spjöU og menn hafi ekki leyfi til annars en ráðast í slíkar breytingar að undangengnum ítar- legum rannsóknum. „Þótt þær kosti sitt er sá kostnaður smámunir í þvi samhengi. Það eina sem skýrt gæti ummæli ráðherrans er að stjóm- völd ætli að hunsa niðurstöður rannsókna eins og dæmin hafa sannað. Þá er til lítils að leggjast í mikinn kostnað en rannsóknrinar em til þess að taka þær alvarlega. Þessi ummæli Valgerðar Sverris- dóttur eru fullkomlega ábyrgðar- laus, ekki síst gagnvart komandi kynslóðum," segir Ögmundur. -BÞ RÉYKJAVÍK AKUREYRI Sólnrlag í kvöld 23.25 23.11 Sólarupprás á morgun 03.25 03.11 Síðdegisflóð 21.26 14.23 Árdegísflóð á morgun 09.50 01.59 Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Þokusúld um landið austanvert og við norðurströndina en skýjað með köflum og skúrir í öðrum landshlutum. Hiti víða 10 til 15 stig að deginum en svalara á annesjum norðan- og austanlands. Skýjað og víða úrkoma Víða rigning á norðanverðu landinu á morgun en skýjað með köflum sunnan til og skúrir síðdegis. Heldur kólnandi veður. mg'm mmm J Laugardagur Sunnudagur Mánudagur O o Hiti 7* Hiti 5° Hiti 5° til 18° til 15° til 16° Vindur: 3-8 "V* Vindur: 3-8m/« Vindur: 3-8 nV* Suðlægeða breytileg átt. Skýjað meö köflum en lítíl úrkoma. Hæg breytíleg átt, skýjaö meö köflum og skúrir er líöur á daginn. Áfram hæg breytíleg átt og víöa hafgola. Birtír víöa tíl og áfram hlýtt í veðri. t * Logn Andvari Kul Gola Stinnlngsgola Kaldl Stinningskaldi Allhvasst Hvassviðrí Stormur Rok Ofsaveður Fárviðri m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7 AKUREYRI rigning 9 BERGSSTAÐIR B0LUNGARVÍK hálfskýjaö 8 EGILSSTAÐIR rigning 5 KIRKJUBÆJARKL. skýjað 9 KEFLAVÍK skýjaö 9 RAUFARHÖFN rigning 7 REYKJAVÍK hálfskýjaö 9 STÓRHÖFÐI rigning 9 BERGEN súld 10 HELSINKI léttskýjaö 17 kaupmannahofn léttskýjað 13 OSLO rigning 11 STOKKHÓLMUR 15 ÞÓRSHÖFN skýjaö 9 ÞRÁNDHEIMUR skýjað 18 ALGARVE heiöskírt 18 AMSTERDAM skýjaö 12 BARCELONA léttskýjaö 15 BERLÍN heiðskírt 13 CHICAGO léttskýjaö 21 DUBUN skúr 10 HAUFAX þoka 10 FRANKFURT léttskýjaö 11 HAMBORG léttskýjaö 12 JAN MAYEN þoka 2 LONDON skýjaö 11 LÚXEMBORG léttskýjað 10 MALLORCA heiöskírt 18 MONTREAL 19 NARSSARSSUAQ skýjað 5 NEW YORK hálfskýjað 18 ORLANDO alskýjað 24 PARÍS léttskýjaö 11 VÍN léttskýjaö 16 WASHINGTON þokumóða 17 WINNIPEG þoka 16 H3FT7T7T3HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.