Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 16
16 DV FMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 Skoðun Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvœmdastjóri: Hjalti Jónsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Ritstjórn: ritstjorn@dv,is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgialds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Pútín og Nató Líklega verður gamansemi Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, lengi minnst þar sem hann sat með helstu leið- togum Atlantshafsbandalagsins á mikilvægum fundi þess á ítaliu í fyrradag. Þar var til umræðu nýtt og sögulegt samstarfsráð Natós og Rússlands og lagði Pútín til nafn- gift á ráðið, að því er virtist í fullri alvöru. Hann kvaðst ekki geta bent á betra nafn en Sovét, sem er rússneska og þýðir ráð. Menn litu á Pútín i forundran en áttuðu sig fljótt á fyndninni. Það er timanna tákn að þessa dagana gantist menn með samskipti gömlu Sovétrikjanna og Atlantshafsbandalags- ins. Leiðtogar mestu hervelda heims hafa söguna i flimt- ingum og segja hverjir öðrum brandara um leið og þeir skrifa undir samkomulag sem markar ekki aðeins mikil- væg þáttaskil í seinni tíma sögu heldur lýsir í reyndinni lokunum á löngu og köldu stríði. Vladimír Pútín hefur á siðustu misserum stigið skrefið sem fyrirrennari hans hikaði við. Hann er kominn réttu megin striksins. Ekkert lýsir betur þeim breytingum sem orðið hafa á stjórnmálum heimsins á siðustu fimmtán árum en sæta- skipanin á leiðtogafundinum í Róm. Þar sat forseti Rúss- lands sem jafningi og samverkamaður helstu leiðtoga Vesturlanda þar sem brugðist var við þeim ógnum við frið og öryggi sem nú steðja helst að saklausum borgurum um heim allan. Fyrir áratug hefði þessi sætaskipan þótt með öllu vera óraunhæf. í því ljósi sést hversu mikil þáttaskil eru að verða i alþjóðastjómmálum. Því hefur verið haldið fram af stjórnmálamönnum og fréttaskýrendum að Atlantshafsbandalagið eigi við tilvist- arvanda að stríða. Tilgangur Natós hafi orðið óljós i meira lagi og markmið þess hafi riðlast verulega eftir að höfuð- andstæðingur þess lagði niður sjálfan sig við sólarlag síð- ustu aldar. Þetta er að mörgu leyti rétt. Aðgerðalítill er sá hermaður sem á sér ekki óvin. Forvígismönnum Natós hefur hins vegar tekist það óvænta - og sumpart vegna að- stæðna - að verða sér úti um ný verkefni. Samstarfsráð Rússlands og Natós er eðlileg afleiðing af þeirri breyttu heimsmynd sem varð til við endalok Sovét- ríkjanna. Samstarfsráðið er rökrétt afleiðing af atburðun- um þann ellefta september á siðasta ári. Samstarfsráðið er vitnisburður um sigur lýðræðis yfir ofríki og kúgun. For- sætisráðherra Breta, Tony Blair, hefur bent á að með sam- starfsráðinu fái Rússland í fyrsta skipti stöðu sem fullgilt samstarfsríki með sama rétt og Nató-rikin. Það sýnir best að nýr kafli sögunnar er að hefjast. Hálldór í Landinu helga Halldór Ásgrímsson utanrikisráðherra lét verða af því að halda utan til ísraels og kynnast af eigin raun því raf- magnaða andrúmslofti sem þar rikir á milli nágranna- þjóða. Efasemdum hafði verið lýst um tilgang ferðarinnar en Halldór hefur haldið sínu striki, rétt eins og hann hef- ur alltaf gert í ræðu og riti um málefni Miðausturlanda. Þar hefur Halldór skapað sér sérstöðu meðal stjórnmála- manna og talað án allrar tæpitungu um mikilvægi þess að Palestínumenn öðlist sjálfstæði nú þegar. Það er ekki sjálfgefið að málsmetandi stjórnmálamaður tali með þessum hætti. Miklu fremur hefur verið til siðs á meðal stjórnmálaleiðtoga á Vesturlöndum að fara i felur með skoðanir sínar á grimmd og voðaverkum ísraels- manna á heimastjómarsvæðum Palestínumanna. Engin þjóð hefur brotið jafn marga samninga og ísraelsmenn gegn Palestínumönnum. Enginn stjórnarher hefur á seinni tímum framið jafn marga glæpi og ísraelsher. Hall- dór hefur bent á það. Einn fárra leiðtoga. Sigmundur Ernir Er fjölmenningarsamfé- lagið ójafnaðarsamfélag? Kjallari Ármann Jakobsson íslensjufræðingur Nýlega sýndi könnun aö hérlend börn af asískum uppruna flosna gjarnan upp úr námi. Þaö er áhyggjuefni því að í ís- lensku samfélagi er góö menntun lykill að vel- gengni. Ef þetta ér rétt stefnir í ójöfnuö í samfélaginu og sá ójöfnuður er kynþáttalegur. Hann er líka óþarf- ur. Við vorum seinni til en grann- amir að taka við innflytjendum, þeir eru hér miklu færri og við ætt- um að geta lært af mistökum ann- arra. Standa höllum fæti Innflytendur hljóta að standa höllum fæti í nýju samfélagi, ekki síst ef þeir kunna ekki mál nýja heimalandsins. íslendingum frnnst erfitt að læra náskyld mál eins og dönsku og þýsku. Hvað má þá segja um asískar tungur þar sem mál- kerfíð er gjörólíkt? Og eins eru indóevrópsk tungumál erfið fyrir þá sem alast upp við málkerfi Aust- urlanda fjær. Sá sem er alinn upp við asískt mál og lærir góða íslensku vinnur ekki minna afrek en að klífa Ever- estfjall. Eðli málsins samkvæmt er málanám þó auðveldara fyrir börn af asiskum ættum sem flytja bráð- ung til íslands eða eru fædd hér. Hvers vegna flosna þau þá upp úr skólakerfinu? í fljótu bragði virðist líklegt að íslenskt skólakerfi sé erfiðara fyrir börn sem koma frá heimilum þar sem íslenska er lítið töluð, þó að þau kunni hana sjálf og tali. Hér skiptir hvatningin frá heimilunum kannski öllu máli. Þó að asískir foreldrar vilji að bömin læri íslensku eiga þeir óhægt um vik ef þeir kunna málið ekki sæmi- lega sjálfir. Kennsla og uppeldi Eins og flest annað í fjölmenning- arsamfélaginu lýsir þetta ekki að- eins stöðu innflytjenda hér heldur einnig okkur sjálfum. í íslensku samfélagi er æ meiri ábyrgð varpað á skólakerfið. Nú er tekið að bera saman skóla eftir árangri nemenda á prófum. En er sá samanburður ef til vill varasamur? Þegar allt kem- ur til alls er sá árangur að óveru- legu leyti háður „gæðum“ skólanna heldur „gæðum“ heimila nemend- anna (á nútímamáli!). Þó að hægt sé að bera saman böm eftir uppruna snýst vandinn kannski ekki aðeins um innflytj- endur. Vissulega standa börn inn- flytjenda höllum fæti en það gera fleiri böm, sem erfiðara er að festa hendur á sem hópi. I nútímasamfé- lagi er ætlast til að skólakerfið beri ábyrgð á menntun nemenda en það ræður ekki við það verkefni og get- ur aldrei gert það. Nemendur þurfa líka veganesti að heiman sem er jafnmikilvægt á prófum og skóla- námið. Einsetning grunnskóla var mikil- væg. Hún snýst hins vegar ekki síst um það að bömin eigi samastað á vinnutíma foreldranna. Ef skólinn á að skipta máli þarf nú að huga að öðru og einkum því að kennarar fái að sinna þeirri fmmskyldu sinni að mennta. Kennarar geta ekki bæði menntað og tekið um leið að sér þær uppeldisskyldur sem áður hvíldu á foreldrum. Að eyða ójöfnuði Markmiðið á að vera að skóla- kerfið eyði ójöfnuði i samfélaginu. Enginn má sitja eftir. Jafn ljóst er þó að skólakerfið getur ekki leyst öll vandamál. Ábyrgðin á menntun barna er ekki síst foreldra þeirra og samfélagið verður því að koma til móts við þá foreldra sem standa höllum fæti, bæði innflytjendur og þá sem eiga erfitt um vik af öðmm orsökum. Það verður alltaf auðveld- ara og ódýrara en að leysa þau þjóðfélagsvandamál sem annars verða til. „Sá sem er alinn upp við asískt mál og lœrirgóða íslensku vinnur ekki minna afrek en að klífa Everestfjall. Eðli málsins samkvæmt er málanám þó auðveld- ara fyrir böm af asískum ættum sem flytja bráðung til íslands eða eru fædd hér. “ - Á íslenskunámskeiði. Margvíslegar línur brotnar „Hins vegar fer því víðs fjarri að úrslit sveitarstjómarkosninganna hafi ekki þýðingu fyrir landsmálin, þó ekki væri fyrir annað en það að þeir leiðtogar sem sveitarstjómim- ar skapa láta oft að sér kveða í landsmálunum. Um síðustu helgi voru brotnar margvíslegar línur í landsmálunum. Til að mynda ætti slæm útreið Vinstri grænna víða um landið að vekja flokkinn til um- hugsunar ... Líkur hafa aúkist á því að Fijálslyndir lifi fram yfir næsta kjörtímabil ... Úrslitin verða enn fremur aö teljast fremur ánægjuleg fyrir Framsóknarflokkinn sem viröist hafa unnið sig upp úr þeirri kreppu sem hann var í fyrir ári síð- an - ef marka má skoðanakannan- ir. Tap fyrir Sjálfstæöisflokkinn í borginni var nær alltaf fyrirséð, þó munurinn hafi verið mun meiri en búist var við.“ Úr leiöara Viöskiptablaösins. Birtingarmyndir breyttrar heimsmyndar „Hver hefði trúað því fyrir örfá- um árum að Rússland yrði með ein- hverjum hætti aðili að Atlantshafs- bandalaginu? Alveg örugglega ekki Rússar sjálfir. Fátt sýnir betur breytta heimsmynd en það sam- komulag sem var undirritað í Róm ... Samhliða því er samningur Bandaríkjanna og Rússlands um tvíhliða afvopnun með stórfelldri fækkun kjamaflauga sögulegur. Má með sanni segja að George W.'Bush sé - mörgum aö óvörum - að skipa sér á bekk með helstu forsetum Bandaríkjanna í utanríkis- og ör- yggismálum." Eyþór Arnalds á heimasíöu sinni. Móður og sár í valnum „Sjálfstæöisflokk- ■k urinn liggur móður og sár í valnum eftir T afhroðið. Félags- hyggjufrakkinn fór flokknum illa og sáu H kjósendur í gegnum tvískinnunginn og höfnuðu honum þrátt fyrir pen- ingaflóðið í auglýsingabaráttunni. Sjálfstæðisflokkurinn stormaði inn á miðjuna og taldi sig trúverðugan valkost við Reykjavíkurlistann með félagslegum yfirboðum. Árangur flokksins í ríkisstjóm talar hins vegar sínu máli um hið sanna eðli hans og hver man ekki eftir hrotta- skapnum í garð öryrkja þegar hinn frægi öryrkjadómur féll? En hveiju skipta þessir sigrar félagshyggju- fólks þegar til lengri tíma er litið? Mjög miklu. Þeir gefa tóninn fyrir kosningamar á næsta ári og gefa til kynna að sóknarfæri vinstrimanna séu mörg.“ Björgvin G. Sigurðsson í Málinu á Skjá einum. Titringur og spenna a„Það er furðulegt gefi tilefni til forspár um næstu alþingis- kosningar. Framboð Samfylkingar mun hvorki teljast trú- verðugur, né góður kostur fyrir kjósendur ef Ingibjargar Sólrúnar nýtur ekki við. En af þessum um- mælum [Össurar Skarphéðinssonar um að úrslitin sýni að Samfylking- in sé trúverðugri en VG í augum kjósenda] má ráða, að búast megi við titringi og spennu milli hreyf- inga á vinstri væng íslenskra stjómmála, a.m.k. fram að næsta vori. Þá er spuming hvort slíkt hafi áhrif á samstarf innan R-listans.“ Jón Hákon Halldórsson á Frelsi.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.