Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 17 Ossur sker refina Steingrímur i. ■L*,| Sigfússon DV í dag (gær) er nokkuð skondin lesning. Á bls. 6 er fréttaskýring eftir Óiaf Teit Guðnason blaðamann þar sem hann greinir úr- slit kosninganna um helg- ina og spáir í spilin. Nið- urstaðan, studd tilvitnun- um í tvo stjórnmálafræð- inga, er að úrslit sveitar- stjórnarkosninganna nú gefi litlar vísbendingar um líkleg úrslit í þing- kosningum. í opnu blaðs- ins, á bls. 17, er hins vegar heilsíðu grein eftir Össur Skarphéðinsson þar sem hann fer mikinn og kemst að ailt annari niðurstöðu. Nú er það 1 sjálfu sér ekki nema eðlilegt að Össur túlki úrslitin Samfylkingunni í hag. Sá sem hér heldur á penna hefur endurtekið sagt að Samfylkingin getur vel við sina útkomu unað og ber þar hæst öfluga útkomu hennar í nokkrum sveitarfélögum á suðvesturhorni landsins, umfram allt annað í Hafnarfirði auðvitað. Samfylking- in verður auðvitað fyrir sinum áföllum líka, bæði þar sem hún býður sjálf fram og einnig í nokkrum tilvikum þar sem um sameiginlegt framboð er að ræða. Um það ræðir Össur ekkert í grein sinni. Blendin úrslit Ekki hvarflar að mér að þrátta viö formann Samfylkingarinnar um túlkun kosningaúrslita nú. Hvað okkur í Vinstrihreyfmgunni - grænu framboði snertir er niður- staðan blendin. Sums staðar urð- um viö fyrir vonbrigðum og viður- kennum það hreinskilnislega. Þannig vantar okkur herslumun- inn að koma inn manni í Kópavogi eða 1,1% atkvæða í viðbót, og mað- ur er ekki langt undan í ísafjarðar- bæ, á Akranesi og í Árborg. Ann- ars staðar unnum við sigra eða átt- um hlutdeild í þeim. Glæsilegur sigur í Skagaflrði, góð útkoma í Grundarfirði, bæjarfulltrúi þrátt fyrir útkomu undir væntingum á Akureyri, ævintýrið á Húsavík, fall gamla ihaldsmeirihlutans í Ólafsfirði, meirihluti vinstri manna á Siglufiröi, úrslit á A-Hér- aði, í Vesturbyggð, í Bolungarvík o.s.frv. að ógleymdri sjálfri Reykja- vík. í heild er ég þokkalega sáttur við útkomuna og met flokkinn hik- laust sterkari eftir en fyrir. Við höfum eignast okkar fyrstu sveit flokksmanna og stuðningsmanna í sveitarstjómum sem telur a.m.k. vel á þriðja tuginn. Flokkurinn hefur styrkst hvað varöar skipulag og reynslu og félögum hefur fjölg- að umtalsvert. Við háðum mál- efnalega og einarða kosningabar- áttu og ég get glatt Össur og aðra lesendur með því að upplýsa að það er án undantekninga góður andi og baráttuhugur í okkar fólki. Þetta hef ég sannreynt með samtöl- um við tugi félaga sem stóðu í eld- línunni og með heimsóknum á staðina, sem nú standa yfir. Ef menn vilja leita skýringa á okkar útkomu þá eru þær nærtæk- ar og augljósar. Vinstrihreyfingin - grænt framboð er nýr flokkur. Við urðum til á landsvísu fyrir rúmum þremur árum og á allra síðustu mánuðum og misserum hvað skipulagt, staðbundið stjóm- málastarf snertir. Við erfðum ekk- ert flokksskipulag, ekki félagatöl, hús, blöð eða annað þvíumlíkt. Nær allir frambjóðendur okkar voru nýir og óþekktir, en hinir flokkamir tefldu víðast hvar fram reyndum, sitjandi sveitarsfjómar- mönnum. Á stöðum eins og í Hafii- arfirði og Árborg iá fyrir að staöa okkar væri ekki sérlega sterk. Þar og víðar, þar sem staðan var sam- bærileg, brá svo við að Samfylk- ingin var ekki til viðtals um sam- starf. Annars staðar þar sem við höfum sterka stöðu og höfum mælst með mikið fylgi í könnun- um erum við aðilar að samstarfi. Dæmi um það gætu verið Reykja- vík, Húsavík, A-Hérað, Ólafsfjörð- ur o.s.frv. Með öðmm orðum, fara verður mjög varlega í að draga víð- tækar ályktanir af útkomunni og ennþá hæpnara er að yfirfæra þær á landsmálastöðuna. Loks urðum við í nokkrum til- vikum fómarlömb þess að gert var út á óvissuna um að við næðum manni kjömum og beinlínis reynt að hræða fólk frá því að greiða okkur atkvæði þar sem þau myndu þá falla dauð. Jafnvel var lagst svo lágt að segja að atkvæði greitt okkur væri í reynd stuðning- ur við, t.d. Sjálfstæðisflokkinn. Skyldi hvergi vera óbragð í munni? Langt seilst Það sem vekur sérstaka athygli mín í grein Össurar um hina glæstu sigra Samfylkingarinnar er eftirfarandi: Maðurinn sem talaði öðrum oft- ar um að ekki mætti taka of mikið mark á skoðanakönnunum og að ekki væri hægt að taka kosninga- sigra út fyrirfram, hvomtveggja hárrétt, er nú búinn að afgreiða framhaldið. Sá andi svífur yfir í greininni að það sé næstum aðeins formsatriði að innbyrða stórsigra Samfylkingarinnar í framhaldinu. Er nokkur að taka út fyrirfram? í öðru lagi vekur athygli sú ósvífni að eigna Samfylkingunni framboð sem alls ekki eru á henn- ar vegum frekar en annarra flokka. Þetta gildir um t.d. Siglu- fjarðarlistann og L-lista Samstöðu í Dalabyggð, sem Össur telur upp í greininni sem dæmi um Samfylk- ingarframboð. Fullyrðingar um að Samfylkingin leggi öðrum sam- starfsaðilum fremur fram burða- rása framboða eins og á Ólafsfirði eða Húsavík eru óviðeigandi og reyndar rangar. Sama gildir um að reyna að bókfæra hjá Samfylking- unni einni persónulega framgöngu borgarstjórans í Reykjavík, sam- eiginlegs borgarstjóraefnis flokk- anna allra. Loks sleppir Össur að geta þess að á nokkrum stöðum þar sem Samfylkingin bauð fram varð það niðurstaða okkar félaga að fara ekki út í framboð á vegum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs að þessu sinni, oftast vegna þess að of skammur tími hafði gefist til undirbúnings. Það liggur í augum upp að líklegasti kosturinn fyrir þá, sem okkur fylgja að málum á landsvísu, voru framboð Samfylkingarinnar, eða hvað skyldi okkar fólk á Suður- nesjum hafa kosiö. Það er hins vegar mikill misskilningur að Samfylkingin hafi þar með eignast sál þess og Össur eykur nú ekki beinlinis á líkumar um að svo verði með skrifum sínum. Það þriðja og allra athyglisverð- asta viö skrif Össurar er rauði þráðurinn í grein hans, saman- burðurinn við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð. Er það þá niður- staðan eftir allt saman að Samfylk- ingin hafi litið á okkur, félagana í stjómarandstöðunni og hinn flokk- inn til vinstri í íslenskum stjóm- málum, sem sinn höfuðandstæð- Gengið til kosninga. - „Flokkurinn hefur styrkst hvað varðar skipulag og reynslu og félögum hefur fjölgað umtalsvert. Við háðum málefnalega og einarða kosningabaráttu og ég get glatt Össur og aðra lesendur með því að upplýsa að það er án undantekninga góður andi og baráttuhugur í okkar fólki. “ ing? Getur verið aö ljóst, en þó að- allega leynt, hafi allt kapp verið lagt á aö klekkja á okkur, sam- starfsflokknum í Reykjavík og víð- ar, þar sem færi gáfust? Var ekki borin gagnkvæm virðing fyrir því að félagar okkar á einstökum stöð- um völdu sínar aðferðir, sumstað- ar samstarf, annars staðar sjálf- stætt framboð? Leiðinlegar eru a.m.k. kveðjurnar frá Akranesi þar sem helst er á Samfylkingarmönn- um að skilja að VG hafi engan rétt haft til að bjóða fram og kjósendur þaðan af síður leyfi til að kjósa okkur. Löngunin til að ganga milli bols og höfuðs á Vinstrihreyfingunni - grænu framboði ber formann Sam- fylkingarinnar greinOega ofurliði. Hann missir alla dómgreind og leið- ist út í ótimabær skrif um þríflokk- inn. Flokkarnir á Alþingi eru fimm og ekki fararsnið á neinum þeirra það ég best veit. Fijálslyndir sem þar standa veikast mega vel við úr- slit helgarinnar una og því get ég lofað Össuri Skarphéðinssyni sem ég heiti Steingrímur Jóhann Sigfús- son að Vinstrihreyfingin - grænt framboð mun halda áfram sókn sinni í íslenskum stjórnmálum. Það gerum við glaöbeitt í trúnni á okk- ar góða málstað og okkur sjálf, blessunarlega laus við krumpur og kalbletti úr fortíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.