Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Page 17
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002
17
Ossur sker refina
Steingrímur i.
■L*,| Sigfússon
DV í dag (gær) er nokkuð
skondin lesning. Á bls. 6
er fréttaskýring eftir Óiaf
Teit Guðnason blaðamann
þar sem hann greinir úr-
slit kosninganna um helg-
ina og spáir í spilin. Nið-
urstaðan, studd tilvitnun-
um í tvo stjórnmálafræð-
inga, er að úrslit sveitar-
stjórnarkosninganna nú
gefi litlar vísbendingar
um líkleg úrslit í þing-
kosningum. í opnu blaðs-
ins, á bls. 17, er hins
vegar heilsíðu grein eftir
Össur Skarphéðinsson
þar sem hann fer mikinn
og kemst að ailt annari
niðurstöðu.
Nú er það 1 sjálfu sér ekki nema
eðlilegt að Össur túlki úrslitin
Samfylkingunni í hag. Sá sem hér
heldur á penna hefur endurtekið
sagt að Samfylkingin getur vel við
sina útkomu unað og ber þar hæst
öfluga útkomu hennar í nokkrum
sveitarfélögum á suðvesturhorni
landsins, umfram allt annað í
Hafnarfirði auðvitað. Samfylking-
in verður auðvitað fyrir sinum
áföllum líka, bæði þar sem hún
býður sjálf fram og einnig í
nokkrum tilvikum þar sem um
sameiginlegt framboð er að ræða.
Um það ræðir Össur ekkert í grein
sinni.
Blendin úrslit
Ekki hvarflar að mér að þrátta
viö formann Samfylkingarinnar
um túlkun kosningaúrslita nú.
Hvað okkur í Vinstrihreyfmgunni
- grænu framboði snertir er niður-
staðan blendin. Sums staðar urð-
um viö fyrir vonbrigðum og viður-
kennum það hreinskilnislega.
Þannig vantar okkur herslumun-
inn að koma inn manni í Kópavogi
eða 1,1% atkvæða í viðbót, og mað-
ur er ekki langt undan í ísafjarðar-
bæ, á Akranesi og í Árborg. Ann-
ars staðar unnum við sigra eða átt-
um hlutdeild í þeim. Glæsilegur
sigur í Skagaflrði, góð útkoma í
Grundarfirði, bæjarfulltrúi þrátt
fyrir útkomu undir væntingum á
Akureyri, ævintýrið á Húsavík,
fall gamla ihaldsmeirihlutans í
Ólafsfirði, meirihluti vinstri
manna á Siglufiröi, úrslit á A-Hér-
aði, í Vesturbyggð, í Bolungarvík
o.s.frv. að ógleymdri sjálfri Reykja-
vík. í heild er ég þokkalega sáttur
við útkomuna og met flokkinn hik-
laust sterkari eftir en fyrir. Við
höfum eignast okkar fyrstu sveit
flokksmanna og stuðningsmanna í
sveitarstjómum sem telur a.m.k.
vel á þriðja tuginn. Flokkurinn
hefur styrkst hvað varöar skipulag
og reynslu og félögum hefur fjölg-
að umtalsvert. Við háðum mál-
efnalega og einarða kosningabar-
áttu og ég get glatt Össur og aðra
lesendur með því að upplýsa að
það er án undantekninga góður
andi og baráttuhugur í okkar fólki.
Þetta hef ég sannreynt með samtöl-
um við tugi félaga sem stóðu í eld-
línunni og með heimsóknum á
staðina, sem nú standa yfir.
Ef menn vilja leita skýringa á
okkar útkomu þá eru þær nærtæk-
ar og augljósar. Vinstrihreyfingin
- grænt framboð er nýr flokkur.
Við urðum til á landsvísu fyrir
rúmum þremur árum og á allra
síðustu mánuðum og misserum
hvað skipulagt, staðbundið stjóm-
málastarf snertir. Við erfðum ekk-
ert flokksskipulag, ekki félagatöl,
hús, blöð eða annað þvíumlíkt.
Nær allir frambjóðendur okkar
voru nýir og óþekktir, en hinir
flokkamir tefldu víðast hvar fram
reyndum, sitjandi sveitarsfjómar-
mönnum. Á stöðum eins og í Hafii-
arfirði og Árborg iá fyrir að staöa
okkar væri ekki sérlega sterk. Þar
og víðar, þar sem staðan var sam-
bærileg, brá svo við að Samfylk-
ingin var ekki til viðtals um sam-
starf. Annars staðar þar sem við
höfum sterka stöðu og höfum
mælst með mikið fylgi í könnun-
um erum við aðilar að samstarfi.
Dæmi um það gætu verið Reykja-
vík, Húsavík, A-Hérað, Ólafsfjörð-
ur o.s.frv. Með öðmm orðum, fara
verður mjög varlega í að draga víð-
tækar ályktanir af útkomunni og
ennþá hæpnara er að yfirfæra þær
á landsmálastöðuna.
Loks urðum við í nokkrum til-
vikum fómarlömb þess að gert var
út á óvissuna um að við næðum
manni kjömum og beinlínis reynt
að hræða fólk frá því að greiða
okkur atkvæði þar sem þau
myndu þá falla dauð. Jafnvel var
lagst svo lágt að segja að atkvæði
greitt okkur væri í reynd stuðning-
ur við, t.d. Sjálfstæðisflokkinn.
Skyldi hvergi vera óbragð í
munni?
Langt seilst
Það sem vekur sérstaka athygli
mín í grein Össurar um hina
glæstu sigra Samfylkingarinnar er
eftirfarandi:
Maðurinn sem talaði öðrum oft-
ar um að ekki mætti taka of mikið
mark á skoðanakönnunum og að
ekki væri hægt að taka kosninga-
sigra út fyrirfram, hvomtveggja
hárrétt, er nú búinn að afgreiða
framhaldið. Sá andi svífur yfir í
greininni að það sé næstum aðeins
formsatriði að innbyrða stórsigra
Samfylkingarinnar í framhaldinu.
Er nokkur að taka út fyrirfram?
í öðru lagi vekur athygli sú
ósvífni að eigna Samfylkingunni
framboð sem alls ekki eru á henn-
ar vegum frekar en annarra
flokka. Þetta gildir um t.d. Siglu-
fjarðarlistann og L-lista Samstöðu
í Dalabyggð, sem Össur telur upp í
greininni sem dæmi um Samfylk-
ingarframboð. Fullyrðingar um að
Samfylkingin leggi öðrum sam-
starfsaðilum fremur fram burða-
rása framboða eins og á Ólafsfirði
eða Húsavík eru óviðeigandi og
reyndar rangar. Sama gildir um að
reyna að bókfæra hjá Samfylking-
unni einni persónulega framgöngu
borgarstjórans í Reykjavík, sam-
eiginlegs borgarstjóraefnis flokk-
anna allra. Loks sleppir Össur að
geta þess að á nokkrum stöðum
þar sem Samfylkingin bauð fram
varð það niðurstaða okkar félaga
að fara ekki út í framboð á vegum
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs að þessu sinni, oftast
vegna þess að of skammur tími
hafði gefist til undirbúnings. Það
liggur í augum upp að líklegasti
kosturinn fyrir þá, sem okkur
fylgja að málum á landsvísu, voru
framboð Samfylkingarinnar, eða
hvað skyldi okkar fólk á Suður-
nesjum hafa kosiö. Það er hins
vegar mikill misskilningur að
Samfylkingin hafi þar með eignast
sál þess og Össur eykur nú ekki
beinlinis á líkumar um að svo
verði með skrifum sínum.
Það þriðja og allra athyglisverð-
asta viö skrif Össurar er rauði
þráðurinn í grein hans, saman-
burðurinn við Vinstrihreyfinguna
- grænt framboð. Er það þá niður-
staðan eftir allt saman að Samfylk-
ingin hafi litið á okkur, félagana í
stjómarandstöðunni og hinn flokk-
inn til vinstri í íslenskum stjóm-
málum, sem sinn höfuðandstæð-
Gengið til kosninga. -
„Flokkurinn hefur
styrkst hvað varðar
skipulag og reynslu og
félögum hefur fjölgað
umtalsvert. Við háðum
málefnalega og einarða
kosningabaráttu og ég
get glatt Össur og aðra
lesendur með því að
upplýsa að það er án
undantekninga góður
andi og baráttuhugur í
okkar fólki. “
ing? Getur verið aö ljóst, en þó að-
allega leynt, hafi allt kapp verið
lagt á aö klekkja á okkur, sam-
starfsflokknum í Reykjavík og víð-
ar, þar sem færi gáfust? Var ekki
borin gagnkvæm virðing fyrir því
að félagar okkar á einstökum stöð-
um völdu sínar aðferðir, sumstað-
ar samstarf, annars staðar sjálf-
stætt framboð? Leiðinlegar eru
a.m.k. kveðjurnar frá Akranesi þar
sem helst er á Samfylkingarmönn-
um að skilja að VG hafi engan rétt
haft til að bjóða fram og kjósendur
þaðan af síður leyfi til að kjósa
okkur.
Löngunin til að ganga milli bols
og höfuðs á Vinstrihreyfingunni -
grænu framboði ber formann Sam-
fylkingarinnar greinOega ofurliði.
Hann missir alla dómgreind og leið-
ist út í ótimabær skrif um þríflokk-
inn. Flokkarnir á Alþingi eru fimm
og ekki fararsnið á neinum þeirra
það ég best veit. Fijálslyndir sem
þar standa veikast mega vel við úr-
slit helgarinnar una og því get ég
lofað Össuri Skarphéðinssyni sem
ég heiti Steingrímur Jóhann Sigfús-
son að Vinstrihreyfingin - grænt
framboð mun halda áfram sókn
sinni í íslenskum stjórnmálum. Það
gerum við glaöbeitt í trúnni á okk-
ar góða málstað og okkur sjálf,
blessunarlega laus við krumpur og
kalbletti úr fortíðinni.