Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 30. MAl 2002 27 I>V Sport FH-KR 1-0 (0-0) 1-0 Valdas Trakis (59., skot úr teig, fylgdi eftir skoti Jóns Stefánssonar eftir að KR-ingum mistókst að hreina frá fyrirgjöf Hilmars Bjömssonar). Brotinn broddur FH (4-3-3) Daði Lárusson...........3 Hilmar Björnsson .......4 Freyr Bjarnason ........4 Róbert Magnússon........3 Magnús Ingi Einarsson ... 3 Ásgeir G. Ásgeirsson....4 Baidur Bett ............4 Jónas Grani Garðarsson .. 2 Jón Þ. Stefánsson.......2 (79., Guðmundur Sævarsson -) Valdas Trakis ..........4 (76., Benedikt Árnason ....-) Jóhann Möller...........2 (84., Sigmundur Ástþórsson -) Dómari: Eiríksson (2). Áhorfendur: 1750. Erlendur Gul spjðld: Jón (35. mín), Ásgeir (67.), Valdas (73.). FH, Veigar PáU (50.), Þorsteinn (71.), Jón (90.), KR. Rauð spiöld: Engin. Skot (á mark): 12 (6) - 11 (7) Horn: 1-6 Aukaspyrnur: 18-28 Rangstöður: 5-3 Varin skot: Daði 4 - Kristján 5. KR (4-3-3) Kristján Finnbogason ... 3 Sigþór Júlíusson........3 Gunnar Einarsson........2 Þormóður Egilsson ......4 Jökull Elísarbetarson ... 4 (76., Niholas Purdue ....-) Jón Skaftason ..........4 Sigurvin Ólafsson ......3 Þorsteinn Jónsson.......1 Amar Jón Sigurgeirsson . 2 (61., Magnús Ólafsson ... 2) Sigurður Ragnar Eyjólfsson 1 (61., Guðmundur Benediktss. 2) Veigar Páll Gutmarsson .. 2 Maður leiksins hjá DV-Sporti: Ásgeir G. Ásgeirsson, FH - FH-ingar unnu þriöja leik sinn í röö á KR FH-ingar náðu tveimur stórum takmörkum með 1-0 sigri á KR-ing- um í gær og brutu um leið broddinn af heitasta sóknarliði fyrstu tveggja umferðanna. KR-ingar, sem léku í bý- flugnabúningunum sínum að þessu sinni, voru ekki svipur hjá sjón frá því í fyrri leikjum og ógnuðu lítið baráttuglöðum Hafnfirðingum. FH vann fyrsta leik sinn í Síma- deild karla og náði loksins að landa sigri á fijálsíþróttavellinum þar sem liðið hefur leikið síðustu þrjá leiki á meðan skipt var um gras á sjáifum Kaplakrikavellinum. Reyndar hafa FH-ingar getað treyst á þrjú stig gegn vesturbæjarliðinu á síðustu misser- um en þetta var þriðji sigurinn í röð og sá sjöundi í síðustu níu leikjum. Það var nýr litháískur leikmaður FH, Valdas Trakis, sem skoraöi sig- urmarkið í fyrsta leik sínum en þessi stóri og stæðilegi leikmaður sýndi það að hann getur nýst FH-liðinu vel i sumar. Trakis er sterkur í loftinu og fljótur að þefa uppi skotfærin við teig- inn. Sigurmarkið kom þegar hann fylgdi eftir atlögu Jóns Þorgríms Stef- ánssonar upp við markið. FH-ingar gáfu allt í þennan leik og það var ljóst að leikmenn liðsins voru mættir til að berjast fyrir lífi sinu. Staðan hefði verið slæm hefði annar heimaleikur- inn tapast en með sigri eru FH-ingar búnir að gerbreyta henni. KR-ingar virtust værukærir og engan veginn tilbúnir að takast á við grimma Hafnflrðinga. Margir lykil- mannanna áttu slakan dag og þrátt fyrir góða frammistöðu ungu strák- anna höfðu þeir ekki burði til að halda leik liðsins uppi. Einar Þór Daníelsson lék ekki vegna meiðsla og munaði mikið um það. Vallarstæðið var einnig erfitt yfir- ferðar og bitnaði það mikið á gæðum leiksins og ekki hjálpaði furöuleg dómgæsla Erlends Eiríkssonar sem refsaði meðal annars mönnum fyrir að láta brjóta á sér með gulum spjöld- um. Það ranglæti fékk Veigar Páll Gunnarsson að þola eitt skiptið. Ásgeir Ásgeirsson leysti Heimi Guðjónsson af hólmi á miðjunni, lét finna vel fyrir sér og var besti maður FH-liðsins en einnig áttu þeir Hilmar Björnsson, Freyr Bjamason og Valdas Takris góðan leik. Hjá KR stóðu ungu, strákamir Jök- ull Elísarbetarson og Jón Skaftason, sig vel, auk þess sem Þormóður Egils- son var traustur í vöminni. -ÓÓJ Baráttan gerði gæfumuninn - sagði Hilmar Björnsson, fyrirliði FH „Okkar eina markmið í þessum leik var að halda hreinu eftir að hafa fengið á okkur sjö mörk í fyrstu tveimur leikjunum og ég er mjög ánægður með að það tókst,“ sagði Hilmar Bjömsson, fyrirliði FH, í samtali við DV-Sport eftir sigurinn á KR i gærkvöld. „Við lögðum upp með skipu- lagða vörn og KR-ingamir fundu ekki leið í gegnum hana. Fyrstu tveir leikimir hjá okkur voru heldur slappir vamarlega og við vissum að við ættum mikið inni. Það þurfti bara að ná í það og það gekk í þessum leik. Menn þjöpp- uðu sér saman, börðust eins og ljón og þá er ekki að sökum að spyrja," sagði Hilmar. Aðspurðm- hvort það hefði ekki verið slæmt að vera án Heimis Guðjónssonar, sem lék ekki með vegna meiösla, sagði Hilmar að það kæmi alltaf maður í manns stað en viðurkenndi að hann vildi ekki vera án Heimis í mörgum leikjum. Voru skipulagöari Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, var daufúr í dálkinn eftir leik- inn en sagðist þó hafa verið ánægður með sína menn að því leytinu að þeir gáfúst ekki upp. „Við vorum að reyna allan tím- ann og með það er ég ánægður. Við vissum að þeir kæmu til með liggja aftarlega og beita skyndi- sóknum en því miður fundum við ekki leiðina fram hjá þeim. Þeir voru skipulagðari að þessu sinni. Það koma svona leikir hjá öllum liðum og við ætlum okkur ekki að dvelja lengi við þennan leik. Það er leikur á sunnudaginn gegn KA og það mun öll okkar orka fara í aö gera okkur klára fyrir þann leik,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR. -ósk Nýr lithaiskur leikmaður FH, Valdas Trakis. skoraði sigur- mark FH / tyrsta leik sintiin með liðinu. Her glímir há’nn við Jón Skaftason og Gunnai Einarssön (leiknum i gær. DV-mynd E.ÓI. Keflavik a toppnum - eftir 3-1 sigur á Fylkismönnum í Keflavík Keflvíkingar skelltu sér á topp Símadeildarinnar í gærkvöld er þeir sigruðu Fylkismenn, 3-1, í Keflavík. Leikurinn var fjörugur í upphafi þótt liðin sköpuðu sér ekki nein færi og á 23. mínútu gerði Jóhann Benedikts- son glæsilegt mark af löngu færi þar sem Kjartan Sturluson, markvörður Fylkis, truflaðist af sólinni og boltinn yfir hann og í netið. Fylkismenn virt- ust ekki eiga svör við sterkum vamar- leik og Aðalsteinn Víglundsson, þjálf- ari Fylkismanna, setti Theodór Ósk- arsson inn fyrir Björgvin Vilhjálms- son strax eftir 36 mínútur og breytti úr 4-4-2 í 4-3-3. Fylkismönnum tókst þó ekki að skapa sér nein umtalsverð færi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en á fýrstu 15 mínútum síðari hálfleiks lá þungt á Keflvíkingum og hreint með ólíkindum að Fylkismenn skyldu ekki nýta sér þau fínu færi sem þeir fengu. Besta færi Fylkis fékk Sævar Þór á 53. mínútu er Ómar, markvörður Kefla- víkur, missti knöttinn frá sér og Sæv- ar skaut af markteigi en Jóhann Bene- diktsson bjargaði á marklínu. Mínútu síðar áttu Fylkismenn svo góða sókn upp hægri kantinn og frn sending rataði beint á Sævar Þór á markteig en skot hans fór hátt yfir. Það er ljóst að Fylkismenn voru að leika undir getu að þessu sinni en það spilar víst enginn betur en andstæð- ingurinn leyfir og taktík Keflvíkinga með sterkum vamarleik og stórhættu- legum skyndisóknum er svo sannar- lega að bera árangur. Það er ljóst að Fylkismenn voru að leika undir getu að þessu sinni, en það spilar víst enginn betur en and- stæðingurinn leyfir og taktik Keflvík- inga með sterkum vamarleik og stór- hættulegum skyndisóknum er svo sannarlega að bera árangur. Vöm þeirra heimamanna, með Ómar Jó- hannsson í fararbroddi, lék stórvel og voru þeir Ómar og Jóhann Benedikts- son bestu menn vallarins. Þeir Magnús og Adolf vom síógn- andi á köntunum, og þá átti Guð- mundur Steinarsson einnig fínan leik í framlínunni. Annars verður að hrósa öllu Keflavíkurliðinu fyrir mikla baráttu og ljóst að þeir ætla að leggja allt í sölumar og blása á allar hrakspár í sumar. Það var enginn einn sem stóð upp úr liði Fylkis að þessu sinni en aðstand- endur Fylkis fdjóta að hafa hugsað til Steingríms Jóhannessonar á meðan öfl færin sem þeir fengu nýttust ekki. Þeir vora ótrúlega lánlausir uppi við markið og leikmenn eins og Sævar Þór láta ekki svona færi fara fram hjá sér fara mikið oftar í sumar. Spilum skemmtilegan bolta Kjartan Másson, þjálfari Keflvík- inga, var að vonum kampakátur í leikslok. „Við spilum skemmtilegan bolta og við áttum helling af færum upp úr skyndisóknum okkar. Við vor- um rólegir og yfirvegaðir í leik okkar og vömin sterk. Framhaldið er bara barátta og við ætlum að halda áffam að spila þennan bolta og sjá hvað það skilar okkur langt." Aðalsteinn Viglundsson, þjálfari Fylkis, var ekki sáttur við niðurstöð- una að leik loknum. „Við fengum á okkur slysalegt mark þegar Kjartan sá ekki boltann og það var það síðasta sem mátti gerast í þessum leik því að þeir lögðust aftar á völlinn og við þurftum að koma hátt upp á völlinn og þeir nýttu sér það vel með skyndi- sóknum. En eins og seinni hálfleikur spilaðist þá áttum við að skora 4-5 mörk, miðað við fjölda færa og með ólíkindum að við skyldum ekki skora úr öllum þessum fæmm.“ -EÁJ Keflavík-Fylkir 3-1 (1-0) 1- 0 Jóhann Benedlktsson (23., skot utan teigs, sending Guðmundar Steinarss.). 2- 0 Guðmundur Steinarsson (28., skot úr teig, sending Magnúsar Þorsteinss.). 2- 1 Sverrir Sverrisson (87., skalli úr teig, aukaspyma Finns Kolbeinssonar). 3- 1 Þórarinn Kristjánsson (90., í annarri tilraun eftir stungusendingu Guðmundar). Ómar Jóhannsson .... Georg Birgisson....... Zoran Daníel Ljubicic . Haraldur Guðmundsson Jóhann Benediktsson .. Kristján H. Jóhannsson Þórarinn Kristjánsson . Hólmar Öm Rúnarsson (77., Jónas Sævarsson Magnús Þorsteinsson . (84., Hafsteinn Rúnarsson Adolf Sveinsson.......... (70., Ólafur ívar Jónsson . Guðmundur Steinarsson . Dómari: Garðar Hinriksson (4). Áhorfendur: 750. öm Gul spiftld: . .5 . .4 . .4 .. 4 Þórarinn (44.), Ljubicic (85.), Keflavík. Rauð spiöld: .. 5 Engin. . . 4 ..4 . .3 Skot (á tnark): 9 (6) - 12 (7) Horrv 4-5 Aukaspyrnur: 9-12 Rangstöður: 4-1 Varin skot: Ómar5- Kjartan 3. Fylkir (4-3-3) Kjartan Sturluson......3 Björgvin Vilhjálmsson ... 3 (36., Theódór Óskarsson .. 3) Ómar Valdimarsson .... 3 Þórhallur Dan Jóhannss. . 4 Gunnar Þór Pétursson ... 3 (77., Kristinn Tómasson .. -) Valur Fannar Gíslason .. 3 Sverrir Sverrisson.....4 Finnur Kolbeinsson.....3 Hrathkell Helgason.....4 Bjöm Viðar Ásbjömsson . 3 Sævar Þór Gíslason......3 Gæðl leiKs; Maður leiksins hjá DV-Sporti: Ómar Jóhannsson, Kefiavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.