Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2002, Qupperneq 1
TILÞRIFAMIKILL
SIGUR BLS. 27
DAGBLAÐIÐ VISIR
122. TBL. - 92. ARG. - FOSTUDAGUR 31. MAI 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
Eftirvænting
Ungmenni 1 Japan og Suður-Kóreu gátu vart hamið sig í morgun við upphaf heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem stendur út júnímánuð.
Átta milljarða afgangur á vöruskiptum fyrstu fjóra mánuði ársins:
13,7 milljarða
\ króna viðsnúningur
Vöruskiptajöfnuður fyrstu fjóra
mánuði ársins var hagstæður um
átta milljarða króna samkvæmt
tölum um utanríkisverslun sem
Hagstofan birti í morgun. Á sama
tíma í fyrra voru vöruskiptin
óhagstæð um rúma 5,6 milljarða.
Vöruskiptajöfnuðurinn það sem af
er árinu er því tæpum 13,7 millj-
örðum króna hagstæðari en á
sama tima í fyrra.
Innflutningur fyrstu fjóra mán-
uði ársins var 7,7 milljörðum
minni en á sama tíma í fyrra og
dróst því saman um 11%. Sam-
dráttinn má að
stærstum hluta
rekja til minni
innflutnings á
fjárfestingarvör-
um, flutninga-
tækjum og
neysluvörum,
öðrum en mat-
og drykkjarvör-
um.
Útflutningur-
inn var sex milljörðum meiri en á
sama tíma í fyrra og jókst því um
9%. Verðmæti útfluttra sjávaraf-
Edda Rós
Karlsdóttlr.
urða jókst um 12% en alls nema
sjávarafurðir 63% útflutnings
fyrstu fjóra mánuði ársins. Út-
flutningur iðnaðarvöru hefur
einnig aukist og er að stórrnn
hluta um að ræða lyfjavörur og
lækningatæki. Verðmæti álút-
flutnings dróst hins vegar saman.
Alls voru fluttar út vörur fyrir
tæpa 74 milljarða króna fyrstu
íjóra mánuði ársins en inn fyrir
tæpa 66 milljarða.
Mjög jákvætt
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Búnaðar-
banka, segir þessar tölur sýna að
innflutningur sé að dragast saman
og það sé mjög jákvætt. „Afgang-
urinn nemur 8 milljörðum króna
en ef tekin eru með í reikninginn
vöruskipti án flugvéla og skipa er
afgangurinn 16 milljarðar.“ Hún
segir jafnframt að það sé líklegt að
krónan verði stöðugri. „Þetta ætti
að skapa grundvöll fyrir því að
krónan haldist stöðug og það er
gott fyrir verðbólguna," segir
Edda Rós.
-ÓTG/Vig
Flautað
til leiks
í dag klukkan 10.30 að ís-
lenskum tíma verður flautað til
leiks á HM-2002 sem fram fer í
Japan og Suður-Kóreu og
standa mun til loka júní. Fyrsti
leikurinn milli heimsmeistara
Frakka og Senegala fer fram í
Seoul að aflokinni setningarat-
höfn sem hefst klukkan 10.00.
Þar með er lokið fjögurra ára
eftirvæntingarfullri bið knatt-
spymuflkla um allan heim eftir
þessum mesta íþróttaviðburði
heims. Að sögn mótshaldara er
búist við mikilli aukningu
áhorfenda, en í síðustu keppni,
sem fram fór í Frakklandi árið
1998, mættu alls um 2,8 milljón-
ir manna á völlinn. Þá er búist
við því að vel á fjórða tug millj-
arða manna um allan heim
muni fylgjast með henni í sjón-
Þetta er í fyrsta skipti
sem keppnin er hald-
in í Asíu og er það
œtlan gestgjafanna að
hún verði sú glœsileg-
asta og eftirminnileg-
asta til þessa.
varpi, sem er svipaður fjöldi og
fylgdist með útsendingum frá
Frakklandi.
Þetta er í fyrsta skipti sem
keppnin er haldin í Asíu og er
það ætlan gestgjafanna að hún
verði sú glæsilegasta og eftir-
minnilegasta til þessa. Enda er
ekkert til sparað og má segja að
undirbúningur hafi staðið yfir
allt frá því flautað var til
leiksloka í París fyrir fjórum ár-
um.
Að venju taka 32 þjóðir þátt í
keppninni og er keppt í átta
fjögurra liða riðlum þar sem tvö
efstu liðin komast áfram í milli-
riðla, en alls verða leiknir 64
leikir í keppninni allri.
Mikill öryggisviðbúnaður er í
báðum löndunum í sambandi
við keppnina og er ætlað að
meira en 400 þúsund lögreglu-
menn verði við gæslu í hvoru
landanna.
FOKUS I MIÐJU BLAÐSINS
Drama, grín
og nóg af
blóði
YFIRÞYRMANDI KRAFTUR:
Risa-béin
þrjú tekin
með áhlaupi
15
Veiðistaður fjölskyldunnar
Reynisvatn
Opið alla daga
Borgarvelðl ehf.