Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2002, Qupperneq 26
FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002
Eiður Smári Guðjohnsen kom íslenska liðinu á bragðið:
Allt aö koma hjá mér
Eftir að hafa rekist á nokkrar hindranir á undirbúnings-
tímabilinu með liði sínu er Eiður Smári Guðjohnsen allur
að braggast og ekki annað að sjá á honum en að hann muni
reynast íslenska landsliðinu og Chelsea vel í komandi átök-
> L
um. DV-Sport hitti hann að máli eftir leikinn gegn Andorra
og fékk að vita hvað hefur verið að hrjá hann síðustu vik-
urnar.
„Ég lenti í smávægilegum veikindum einmitt þegar ég
átti að fara að spila minn fyrsta æflngaleik
í sumar. Þá hafði ég lent í því að vera bólg-
inn í hné og byrja svo of snemma þannig að
þau meiðsli rifu sig aðeins upp aftur,“ sagði
Eiður.
„En þetta er allt að koma hjá mér þó að
þessi leikur hafi ef til vill ekki verið okkar
besti. Mér sýndist leikmenn Andorra koma
til leiks með þvi hugarfari að vera ekkert að
reyna að sækja og skora mark heldur frek-
ar að pakka í vörn. Það var því ágætt að ná
að skora þessi þrjú mörk á þá snemma i
leiknum en við hefðum kannski mátt bæta
meiri krafti í leik okkar í siðari hálfleik.
Andinn fínn í hópnum
Persónulega sá ég þennan leik sem ágæt-
isæflngu fyrir mig, ég hef eins og ég sagði
áður ekkert spilað á undirbúningstímabil-
inu og það var því ágætt fyrir mig að nota
þessar 45 mínútur sem ég fékk í kvöld til að
fá örlítið leikform. En hraðinn var auðvitað
ekki mikill í leiknum og ef ég segi alveg eins
og er þá er maður mjög varkár í leikjum
sem þessum og passar sérstaklega upp á að
lenda ekki í meiðslum og þess háttar. Það er
auðvitað mikilvægt tímabil fram undan og
maður þarf að vera tilbúinn í það.
En andinn og stemningin eru fln í lands-
liðshópnum, við vorum mjög afslappaðir og
ég held að við höfum aiveg fundið fyrir því
að þetta var æfingaleikur og við náðum að
æfa nokkur föst leikatriði inni á veflinum
sem var mjög gott að fá að gera. Þegar á
heildina er litið var margt jákvætt að gerast
í leiknum og það komu fram nokkrir ágæt-
ir punktar sem við getum lært af.“ -esá
Vináttulandsleikur í knattspyrnu, Laugardalsvöllur 21. ágúst 2002
Island-Andorra 3-0 (3-0)
1-0 Eiður Smári Guðjohnsen (með
®skoti af markteig eftir lága fyrir-
gjöf Amars Þórs Viðarssonar og
skemmtilegan samleik Amars og
Hjálmars Jónssonar á vinstri vængnum).
2-0 Ríkharður Daðason (með skoti
®úr markteig eftir sendingu
Hermanns Hreiðarssonar og
aukaspymu Eiðs Smára Guðjohnsen).
3-0 Ríkharður Daöason (vann
®„tæklingu“ við markstöngina þegar
vamarmaður ætlaði að hreinsa frá
eftir að Amar Þór Viðarsson hafði
átt skot í stöng. Skot Amars var það þriðja
í sókninni sem hófst með aukaspymu
íslenska liðsins rétt utan teigs).
Gul spjöid:
Brynjar Bjöm
(36.), Amar Þór
(89.), íslandi,
González (7.), I.
Lima (9.),
Sanchez (32.).
Rauð sniöld:
Antoni Lima á
48. mín fyrir að
slá Helga
Sigurðsson.
Skot (ú mark):
24 (13)-3(1)
Horn:
5-1
Aukaspyrnur:
17-23
Rangstöóur:
3-1
Varin skot:
Ámi 0, Kjartan 1
- Alvarez 4
Islensku leikmennirnir (4-4-2)
Ámi Gautur Arason (65. Kjartan Sturluson) - Gylfi
Einarsson (60. Ólafur Stígsson), ívar Ingimarsson (46.
Lárus Orri Sigurðsson), Hermann Hreiðarsson, Arnar
Þór Viðarssson - Jóhannes Karl Guðjónsson, Brynjar
Bjöm Gunnarsson (60. Sævar Þór Gíslason), Rúnar
Kristinsson, Hjálmar Jónsson - Ríkharður Daðason
(54. Marel Baldvinsson), Eiður Smári Guðjohnsen (46.
Helgi Sigurösson).
Lið Andorra: 5-4-1 Alvarez - Ramirez, Femandez, Antoni
Lima, Alonso Jonás, Garcia Luena (74. Escura) - Sanchez
(66. Pujol), Ruiz (87. Gil), Ildefons Lima, E. González (60.
Áyala) - Silva (50. Pol).
Engar einkunnir voru gefnar fyrir ieikinn í gær sökum
þess að ekki var nokkur leið að dæma frammistöðu ís-
lensku strákanna vegna lítillar mótspyrnu andstæö-
inganna í gær.
Dómari: Lassin Isaksen frá Færeyjum (2) auk Gæði leiks:
færeysku aðstoðardómaranna Tummas Pauli
Olsen og Jens Albert Simonsen.
Áhorfendur: 2982.
bb
Maður leiksins hjá DV-Sporti:
Arnar Þór Viðarsson, íslandi
A mynd Hilmars Þórs
Guðmundssonar hér
að ofan skorar Eiður
Smári Guðjohnsen
fyrsta mark íslenska
liðsins gegn Andorra
í gær.
Hér til hliöar sést Rík-
harður Daðason
skora fyrra mark sitt í
gær en hann hefur nú
skoraö 14 mörk fyrir
íslenska landsliðið og
vantar aöeins þrju til
aö ná afa sínum Rík-
harði Jónssyni sem á
markametiö.
DV-mynd E.ÓI.
Ríkharður Daðason
14 mörk fyrir
A hælum afa
Færeyingurinn Lassin Isaksen hafði í nóg að snúast að glíma við öflug
mótmæli leikmanna Andorra í gær. DV-mynd Hilmar Þór
Ríkharður Daðason skoraði tvö
mörk í 3-0 sigrinum á Andorra í
gær og komst um leið upp í annað
sætið yflr þá sem hafa skorað flest
landsliðsmörk fyrir ísland. Ríkharð-
ur er nú kominn á hæla afa sínum
sem á markametið, gerði þremur
mörkum fleira í þeim 33 landsleikj-
um sem hann spilaði á árunum 1947
til 1965.
„Það er alltaf gaman að spiia
landsleiki og sérstaklega hérna
heima. Hópurinn er búinn að vera
mjög samrýmdur og skemmtilegur
undanfarin 4-5 ár og það hefur ekk-
ert breyst. Það er núna rúmt ár lið-
ið síðan ég lék síðast með landslið-
inu og það hefur ekkert breyst.
Maður fyilist ailtaf jafnmiklu stolti
þegar maður gengur út á völlinn,
sama hvaöa leikur það er.“
Þad eru ekki mikil ósannindi
að segja að heilladísirnar hafi
fylgt þér i dag?
„Það var alla vega heppnisstimp-
ill á seinna markinu sem ég skoraði
- boltinn datt í stöngina og til varn-
armannsins sem gerði ekki betur en
að sparka boltanum beint í hnéð á
mér og inn í markið. En við af-
greiddum hins vegar fyrra markið
mjög vel, við náðum að klára rang-
stöðugildruna þeirra og Hemmi var
mjög óeigingjam þegar hann lagði
boltann á mig. Þetta er nú samt að
ég held eitt af einfaldari mörkum
sem ég hef skorað á mínum ferli,
verð ég að segja."
Hvað viltu segja um framhaldið
hjá landsliðinu?
„Næst er á dagskrá vináttuleikur
við Ungverja sem vonandi verður
meiri „alvöruleikur". Við mættum
lítilli mótspymu hér í dag og ég
verð nú að segja hreint út að mér
fannst þeir vera mun betri fyrir
þremur árum þegar við mættum
þeim síðasL Þá vora þeir mun
skipulagðari í leik sínum og það var
erfiðara að brjóta þá niður. En Ung-
verjamir eru með gott lið og eftir
það byrjar alvaran. Og það er sama
hverjir koma til með að spila þá
Flest landsliösmörk:
Ríkharður Jónsson 17 mörk (33 leikir)
Ríkharður Daðason . . . 14 (41)
Amór Guðjohnsen . . . 14 (73)
Pétur Pétursson . . . 11 (41)
Þórður Guðjónsson . . . 11 (42)
Matthlas Hallgrímsson . . . . . 11 (45)
Eyjólfur Sverrisson . . . 10 (66)
leiki, þá skiptir öllu máli að fá gott
start.
Ég held að markmiðið hljóti að
vera að taka einn leik fyrir í einu og
ef við horfum á leikjaniðurröðunina
þá eigum við sennilega tvo erfiðustu
leikina síðast, þannig að það skiptir
miklu máli að einbeita sér vel að
hverjum leik og sjá svo hvar við
stöndum þegar við fórum i tvo síö-
ustu leiki undankeppninnar."
Hvað með sjálfan þig, hvernig
hefur þér liðið á fótboltavellinum
siðustu vikurnar?
„Mjög vel. Ég er loksins heill
heilsu eflir að hafa farið í tvær að-
gerðir á hné síðastliðið haust og var
að ná mér aftur í gang um vorið
þegar ég lenti í því rétt undir lok
tímabilsins að rífa liðband í ökkla.
En það hefur gróið vel og ég finn
ekkert fyrir meiðslum í ökklanum
og hnéð hefur verið mjög gott sem
hefur kannski verið minn akkiles-
arhæll og fylgt mér eiginlega alla
mína tíð. Nú er formið alltaf að
verða betra og betra eftir því sem ég
spila fleiri leiki í Noregi og það
hjálpar sjálfstraustinu að hafa skor-
að tvö mörk og það er vonandi að
maður haldi áfram á þeirri braut.“
-esá