Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 25
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002
HelQorhlctö 33 V
25
DV-myndir Þök
Sigríður setur hakkaðan kóri-
ander út í paprikumaukið sem
komið er í pottinn. Þar út í fer
líka limesafi og svo er maukið
látið malla í nokkrar mínútur.
Paprikumaukið er gott sem
ídýfa með snakki og grænmeti
og hér er Sigríður að hella því
í eitt hólfanna í margskiptri
skál.
Smátt skornar ferskar paprik-
ur eru sannkallað augnayndi.
Því er þær oft notaðar til
skrauts og stráð yfir rétti af
ýrnsu tagi.
Tvö afbragðsvín frá Villa
Mt. Eden í Kaliforníu
- er val Sverris Eyjólfssonar hjá Lind
Vínin að þessu sinni koma bæði frá sama
framleiðanda, Villa Mt. Eden en hjarta þeirrar
víngerðar slær í Napadalnum í Kaliforníu.
Stendur víngerðin hátt og sjá má vínekrur allt i
kring. Víngarðar Villa Mt. Eden ná frá
Mendocino til Santa María Valley og eru alls um
900 ekrur. Stefna Villa Mt. Eden er að verða leið-
andi fyrirtæki í Kaliforníu og er ekki annað
hægt að segja en að sú stefna hafi gengið prýði-
lega eftir. Vín Villa Mt. Eden hafa fengið 66 gull-
verðlaun á vínsýningum, 24 vín hafa fengið 90
stig eða meira í smökkun og yfir 16 vín hafa
fengið einkunnina „Bestu kaup“.
Víngerðarmeistarar Villa Mt. Eden trúa því
að kalt loft sem kemur inn að ekrunum með
ströndipni, allt frá Monterey til Santa Barbara,
hafi mjög góð áhrif á gerð þeirra vína sem hér
eru til umfjöllunar, annars vegar fágað vín úr
Pinot Noir rúgunni og hins vegar „feitt“ og fal-
legt vín úr Chardonnay þrúgunni. Bæði vínin
eru úr svokallaðri Coastal Wines línu fyrirtæk-
isins sem útleggja mætti sem Strandlínu. Einnig
er fyrirtækið með vín sem sett eru á markað
sem Grand Reserve og Signature Series.
Fyrra vínið, Villa Mt. Eden Pinot Noir, kemur
úr víngörðunum í Carneros og Santa María
Valley. Þetta vín hefur rúbínrauðan en tæran
lit. Það hefur fjölbreytta angan þar sem
merkja má mokka, kanil og þéttan berjakeim.
Þegar vínið er komið inn fyrir varirnar er
það silkimjúkt og fágað og mjög gott jafn-
vægi er milli sætu, sýru og stemmu.
Þetta er flott Pinot Noir vín sem hent-
ar með alls konar mat, t.d. þeim sem
kynntur er hér til hliðar. Villa Mt.
Eden Pinot Noir fæst í ÁTVR og kost-
ar flaskan 1.580 krónur.
Seinna vínið, Villa Mt. Eden
Chardonnay, gengur einnig vel með rétt-
unum sem sjá má hér til hliðar. Þetta er
allt að því gyllt vín með gríðarmikla fyll-
ingu, bæði þegar þefað er að því og tekinn
er sopi. Það nánast blómstrar þegar það er
komið i glasið þar sem ilmur blandaður
angan af karamellu, ferskjum og perum er
áberandi. Jafnvel má finna keim af rjóma,
svo vel liggur Villa Mt. Eden Chardonnay
í munni. Þetta er afbragðs vín eitt og sér
en gengur einnig með ýmsum mat. Villa
Mt. Eden Chardonnay fæst i ÁTVR og
kostar þar 1.450 krónur.
Umsjón
Ilaukur Lárus
llauksson