Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Qupperneq 45
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
HeIgairblctð H>‘V"
49
Sexý bílar?
Að lokum eitt dæmi um bíla og kynlíf sem er þó
mjög fjarri því sem þessi grein átti að fjalla um. Þeg-
ar verið var að slæða hið næstum því alvitra Internet
í leit að gögnum rakst leitarhundur á
nokkrar vefslóðir sem er haldið úti af
aðilum sem segjast stunda kynlíf með
bílum. Þar er að finna ítarlegar lýs-
ingar á aðferðafræði slíkra atlota og
vandlega farið í ýmsar varúðarráð-
stafanir sem nauðsynlegt er að við-
hafa. Sömuleiðis er þar að finna
myndir af þeim bíltegundum sem höf-
undum finnst vera mest „sexý“ og
þar eru ameriskir bílar i flestum
efstu sætunum. Nokkuð erfitt er að
átta sig á þvi hvort hér sé um „raun-
verulegar“ vefsíður að ræða en les-
endur geta lagt sitt eigið mat á það
með þvi að skoða slóðina.
http:// www.geocities.com/gnxlover/
PÁÁ
NOTAÐAR VINNUVELAR
Massey Ferguson 3085
105 hö., 4WD frambúnaður
með aflúttaki, 6100 vst.
Ingvar
Helgason hf.
VÉLADEILD
Það kemur fram í téðum vísum að þarna var ort um
náin samskipti kynjanna í skemmtiferð í bíl.
Það er reyndar hætt að nota fjaðrasófa í bílum en
enn eimir eftir af hugsunarhættinum um að bíllinn sé
framlenging karlmennskunnar þegar menn horfa á
eftir stórum jeppum og tuldra: Stór bíll, lítið tippi.
Þetta viðhorf virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá
yngri kynslóðinni í dag því undanfarna áratugi hafa
bílar stöðugt orðið minni og það þykir sennilega frek-
ar töff að vera á mjög litlum bíl.
Hvemig á að fara að þessu?
En fyrst verið er að ræða um ástalif fólks í þessu
samhengi er vert að íhuga hversu vel bílar eru falln-
ir til mökunar. Sérfræðingur blaðsins í tæknifræði
kynlífsins hafði það um málið að segja að hún taldi að
þegar gullöld bílakynlífs hófst í Ameríku á fimmta
áratugnum hafi einkum verið um munnmök, gagn-
kvæmt fitl og gælur að ræða. Það stjórnaðist af því út-
breidda viðhorfi að meydómurinn væri dýrmætara en
allt annað og hann bæri að varðveita uns í hjóna-
sængina væri komið.
Þegar kemur fram á rokktímabilið og bítlaárin fer
fólk í auknum mæli að hafa samfarir í bílum enda
viðhorf að verða frjálslegri. Þegar horft er á tækni-
hliðina er auðvitað Ijóst að ameriskir bílar skara
framúr hvað varðar aðstöðu til kynmaka og olnboga-
rými. Þar skiptir mestu máli að framsætið í mörgum
amerískum bílum er heill bekkur og stýrisskiptingar
voru og eru vinsælar svo það er engin gírstöng stand-
andi úr gólfi sem er að flækjast fyrir ástleitnum hönd-
um. Amerískir bílar eru líka nógu breiðir til þess að
flest fólk af meðalstærð og þaðan af minna getur l’eg-
ið endilangt í sætinu hvort heldur er framsæti eða aft-
ursæti. Það mun hafa verið algengt í amerískum bíla-
bióum að þegar litið var yfir bílastæðið þá sýndust
allir bílarnir vera mannlausir því fólk var í láréttri
stöðu í öllum bílum.
Þetta er þröngt
Gallinn er hins vegar sá að rýmið býður ekki upp
á miklar kúnstir aðrar en hefðbundna trúboðastell-
ingu. Vilji konan vera á fjórum fótum og maðurinn
fyrir aftan hana er líklegt að hann rekið höfuðið
uppundir og verði því að vera óþægilega álútur. Vilji
maðurinn sitja og konan sitja klofvega á honum er
hinsvegar líklegt að hún rekið höfuðið upp i bílþakið
auk þess sem hún nær þá augnsambandi við fólk í
nærliggjandi bílum eða vegfarendur og það truflar án
efa einbeitinguna.
Aðrar bíltegundir með tvískiptu framsæti henta
afar illa til náinna kynna nema fólk kjósi að færa sig
aftur í sem er auðvitað ágætur kostur. Einnig er hægt
að opna bíla að aftan og leggja sætin fram og breiða
teppi á gólf farangursrýmis en þá þarf að gæta þess að
allt aukadrasl sé af skornum skammti svo þáttakend-
ur fái ekki tjakk í höfuðið þegar síst skyldi.
Er þetta hægt Matthías?
Svo eru sumir bílar svo litlir og þröngir að það er
undrunarefni að nokkuð skyldi vera hægt að aðhafast
í þeim. Volkswagen bjallan er gott dæmi um þetta en
bjallan var einmitt afar útbreiddur bíll á íslandi fyr-
ir 20-30 árum ekki síst meðal ungs fólks. Er ekki að
efa að oft hefur dregið til tíðinda í Voffanum eins og
þessir bílar voru oft kallaðir.
Til er íslensk gamansaga af barnfaðernismáli sem
rekið var fyrir sýslumanni úti á landi. Þar kom í
vitnaleiðslum að móðir barnsins bar að náin kynni
hefðu farið fram í aftursætinu á Volkswagen. Sýslu-
maður horfði stórum augum á vitnið og ávarpaði síð-
an dómvörðinn sem átti slíkan bil og sagði:
„Er þetta hægt, Matthías?“
Sumir segja að dómvörðurinn hafi ekki viljað svara
en þe'gar réttarhöldum var fram haldið daginn eftir
hafi hann ræskt sig og sagt stundarhátt við sýslu-
mann:
„Þetta er hægt, herra sýslumaður."
Þessi glæsilegi ameríski vagn eða hvelja eins og svona bílar voru stundum kallaðir hefur ótvírætt marga kosti
umfram aðra bíla liugsi fólk sér að stunda náin kynni. Einn kosturinn er stærðin eii fullorðið fólk getur legið
endilangt í sætum svona bíls. Annar kosturinn er síðan hin dúnmjúka anieríska fjöðrun.
Toyotur á Netinu
Það er ekki auðvelt um vik að gera einhverja úttekt
eða rannsókn á því hvort kynlif í bílum á enn vin-
sældum að fagna meðal ungs fólks. En það er hægt að
líta á nokkur dæmi sem gefa ástandið til kynna.
Að undanfórnu hafa komið upp tvö tilvik á íslandi
þar sem myndum af fólki að hafa samfarir í bíl hefur
verið dreift á Netinu. Annað tilvikið kom upp fyrir
tveimur árum og snerist um myndir sem voru teknar
bakvið hús í Hafnarfirði. í hinu tilvikinu var um að
ræða myndir sem voru teknar á Landsmóti hesta-
manna á Vindheimamelum í sumar.
Það sem vekur athygli er að í báðum þessum tilvik-
um var um að ræða fremur lítinn japanskan bíl af
gerðinni Toyota Corolla. Þetta staðfestir að líklega er
þetta vinsæll bíll og ekki eins lítill og hann sýnist
kannski vera. Þetta getur líka staðfest að einbeittur
brotavilji á þessu sviði brýtur af sér allar takmarkan-
ir sem umhverfið setur.
í nýrri kvikmynd Baltasars Kormáks, Hafinu
bregður kynlífi í bílum fyrir en þar má sjá hvar ungt
fólk athafnar sig í litlum bíl sem gæti verið Corolla en
margir muna eflaust eftir háttbundum slætti berra
þjóhnappa mannsins í hallandi afturrúðu bifreiðar-
innar. Myndin er almennt talin endurspegla vel það
líf sem lifað er í sjávarþorpum íslands um þessar
mundir.
Þessi þrjú dæmi sem nefnd eru hér að framan stað-
festa hvert með sínum hætti að enn leikur bíllinn
stórt hlutverk í ástalífi ungu kynslóðarinnar eins og
hann hefur gert síðustu fimmtíu árin.
Volkswagen bjalla var mjög vinsæl ungmcnnabifreið og hefur undanfarin ár komist mjög í tísku aftur. Að eiga
ástarfund í bjöllu krefst mjög einbeitts vilja til verksins og talsverðrar lipurðar beggja aðila.
Landrover hefur verið óbreyttur í meginatriðum síðan 1947. Hann var mjög algengur bíll til sveita á íslandi í
áratugi og án efa hefur hann stundum verið notaður til náinna kynna þótt erfitt sé að ímynda sér bíl sem er
verr fallinn til slíkra hluta. Það er hvaða lilaða eða rjóður sem er betra en aftursætin í Landróver.