Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Page 2
2 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 I>V Fréttir Einkavæðing Búnaðarbankans: Fjárfestahóparnir stækka — lífeyrissjóðir og fleiri með Kaldbaki; VÍS og franskur banki með S-hópi Senn í höndum Kaldbaks eöa S-hóps? Fjárfestahópamir tveir hafa samkvæmt heimildum blaösins báöir lýst áhuga á aö kaupa allan hlut ríkisins í Búnaöarbank- anum. Kaldbaki hefur nýveriö bæst liös- styrkur nokkurra lífeyrissjóöa og annarra fjárfesta en Sfiópurinn hefur fengiö VÍS og franskan risabanka til liös viö sig. festir aö sjóðurinn sé í þessum hópi en aö um sé aö ræða mjög lít- inn hlut. Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, segir að LSR hafi fyrir nokkrum vikum selt Þorsteinn Már Baldvinsson. Nýir fjárfestar hafa samkvæmt heimildum DV bæst við hvorn fjárfestahópinn um sig sem í fyrra- dag gaf einka- væðingamefnd svör um nokkur lykilatriði varð- andi hugsanleg kaup á hlut rík- isins í Búnaðar- bankanum. Þeir sem lýst hafa áhuga á kaupum eru sem kunnugt er ann- ars vegar Kald- bakur, sem er að stærstum hluta til í eigu Kaupfé- lags Eyfirðinga, Samherja og Lif- eyrissjóðs Norð- urlands, og hins vegar svokallað- ur S-hópur, en í honum eru And- vaka ehf., Sam- vinnutryggingar ehf., Fiskiðjan Skagfirðingur, Kaupfélag Skag- firðinga, Ker (Esso), Samskip og Samvinnulíf- eyrissjóðurinn. Sigfús R. Slgfússon. Ólafur Davíösson. Lífeyrissjóð- ir inn Samkvæmt heimildum DV hafa nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins og fleiri fjárfestar slegist í hópinn með Kaldbaki. Bjami Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Lifeyrissjóðsins Framsýnar, stað- Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Slmi: 544 4656 Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is SNJÚKEÐJUR Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða 'mn#* k o<> BræÖraborgarstígur 7 Simi 575 5600 bróðurpartinn af hlut sínum í Búnaðarbankanum eftir talsverð- ar gengishækkanir en siðan lýst því yfír að áhugi væri fyrir að kaupa aftur hlut fyrir viðunandi verð. Einkavæðingamefnd sé kunnugt um þennan áhuga. LSR hafi hins vegar ekki gert tilboð sem kjölfestufjárfestir. „Ef við kaupum yrði hlutur okkar aldrei kjölfestuhlutur og við værum al- gjörlega frjálsir að ráðstöfun hans,“ segir Haukur. Lífeyrissjóöur verzlunarmanna er ekki í þessum hópi en meðal annarra fjárfesta munu vera Sig- fús R. Sigfússon í Heklu, nokkrir sparisjóðir á Norðurlandi, Akur- eyrarbær og fleiri. Samkvæmt heimildum DV býð- ur hópurinn í allan 45,8% hlut rík- isins og mun Kaldbakur standa að tilboði í 25% en lífeyrissjóðimir og aðrir í afganginn. Franskur banki og VÍS Samkvæmt heimildum blaðsins býður S-hópmúnn einnig í 45,8% hlut. Samsetning hópsins hefur hins vegar breyst á þann veg að Vátryggingafélag íslands hefur bæst við og einnig franski bank- inn Société Générale, sem er sjötti stærsti bankinn á evru-svæðinu og mun vera skráður fyrir drjúgum hluta í tilboði hópsins. Um er að ræöa Þýskalandsdeild bankans. Talið er líklegt að bankinn sé í raun að lána hópnum fyrir stórum hluta kaupverðsins og að gerður hafi verið framvirkur samningur um að S-hópurinn eignist hlut bankans innan fárra missera þótt bankinn sé skráður fyrir honum. Skuldbindingar Bjóðendur munu vera bundnir af því að eiga hlut sinn í tvö ár og breyta ekki innbyrðis hlutfóllum þann tíma. Sem fyrr ráða fjórir þættir því hver verður fyrir valinu: fjárhags- staða bjóðenda; verö og hve stóran hluta boðið er í; framtíðarsýn um rekstur; og loks mat á hæfi kaup- enda til að starfa sem kjölfestu- hluthafi. Ólafur Davíðsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir að ákveðið verði fljótlega eftir helgi hver verður fyrir valinu. -ÓTG Eigandi Holts skuldaði 9 milljónir í vörsluskatta: Engar ráðstafanir gerðar til lokunar - þó gjaldþrots væri óskað 3. október Hinn löglærði og löggilti fasteigna- sali, forsvarsmaður Holts í Kópavogi, sem á yfir höfði sér eina stærstu ákæru í fjársvikamáli síðari ára, a.m.k. um 80 miiljóna króna fjárdrátt, má einnig bú- ast við að rikislögreglustjóri sæki hann til saka fyrir um 9 milljóna króna skuld á vörslusköttum. Þann 3. október tók Héraðsdómur Reykjaness fyrir beiðni Sýslumannsins í Kópavogi um að maö- urinn yrði úrskurðaður gjaldþrota. Hann andmælti ekki kröfunni en full- trúi sýslumanns féllst engu að síður á að hann fengi frest. Engar ráðstafanir voru þá gerðar til að stöðva rekstur fasteignasölunnar. Fyrirtaka í gjaldþrotamálinu fór fram á fimmtudag, daginn sem frestur- inn rann út og daginn eftir að maður- inn gekk á fund ríkislögreglustjórans og lagði málið á borðið. Hann viður- kenndi fjárdráttinn gagnvart 15 við- skiptavinum fasteignasölunnar Holts á um tveggja ára tímabili. Einnig skjalafals Á fasteignamarkaðnum eru gefm út fasteignaveðbréf sern skipt er yfir í húsbréf en þau eru seld á verðbréfa- markaðnum. Samkvæmt upplýsingum DV gerðist það í tilfelli forsvarsmanns Holts í Kópavogi að hann tók við fjár- munum og húsbréfum frá viðskiptavin- um sínum. Hann lét framselja sér hús- bréfm en átti síðan að aflétta ýmsum skuldum af fasteignunum. Eftir það fékk hann verðbréfasala til að fiár- magna viðskiptin fyrir sig á meðan hann var að aflétta veðum. I sumum til- fellum var bréfúnum hins vegar ekki skilað og heldur ekki peningunum. Hjá íbúðalánasjóði hefúr komið fram að brögð hafi verið að því að um fólsuð framsöl hafi verið að ræða. Einn viðskiptavinur Holts kæröi fasteignasalann snemma á árinu fyrir skjalafals tengt húsbréfúm. Hann fékk um síðir greitt það sem honum bar en kærði engu að síður skjalafalsið tO lög- reglu enda taldi hann að um fullframið brot hefði verið að ræða þótt hann hefði ekki tapað á viðskiptunum. Kær- an var búin að vera 8 mánuði hjá lög- reglunni í Kópavogi þegar aðrir hlutir tengdir sama fasteignasala gerðust hjá sama embætti. Fasteignasalinn hafði þá ekki skilað vörslusköttum, stað- greiðslu launa og virðisaukaskatti upp á um 9 milljónir króna. Árangurslaust fiámám hafði verið gert löngu áður í fyrirtækinu og gjaldþrots krafist í byij- un október. -ótt Héraðsdómur Reykjavíkur: Ólögmætt samráð í verði ávaxta og grænmetis - fyrsti dómur sinnar tegundar á íslandi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrjú fyrirtæki á ávaxta- og græn- metismarkaði sek um ólögmætt sam- ráð. Fyrirtækin Sölufélag garðyrkju- manna, Bananar og Mata voru sektuð um samanlagt 37 milljónir króna eftir að fiölskipaður dómur komst að þeirri niðurstöðu að þau hefðu skipt með sér mörkuðum og haft með sér samráð um verð. „Dómurinn felur í sér skýr skilaboö til fyrirtækja á markaði um að stunda ekki samráð. Þessi brot fara mjög leynt og verða ekki upplýst nema með umfangsmiklum aðgeröum Sam- keppnisstofnunar eins og húsleit," segir Heimir Öm Herbertsson, lög- maður Samkeppnisstofnunar. Þetta er í fyrsta skipti sem dómur um ólöglegt samráð fellur á íslandi en hann fylgir í kjölfar þess að fyr- irtækin áfrýjuðu til áfrýjunamefnd- ar samkeppnismála ákvörðun sam- keppnisráðs um að sekta þau um rúmar 100 milljónir króna. Áfrýjunarnefndin staðfesti ólög- mætt samráð en lækkaði sekt sam- keppnisráðs um ríflega helming. í dómi Héraðsdóms var sektin lækk- uð um tíu milljónir króna. Þetta er í fyrsta skipti sem fyrir- tæki áfrýja úrskurði Samkeppnis- stofnunar alla leið til Héraðsdóms og eru taldar nokkrar líkur á því að dómnum verði áfrýjað. -jtr Dæmt í Costgo-málinu Rúmlega þrítugur maður var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyr- ir að hafa blekkt 85 manns til að greiða 5000 krónur fyrir Costgo- pöntunarlistann sem fékkst svo aldrei afhentur. Hann var einnig sakfelldur fyrir að svíkja vörur út úr BYKO og fyrir að brjóta umferð- arlögin, allt á sama tíma og hann af- plánaði skilorðsbundinn dóm. Grétar sjálfkjörinn Grétar Þorsteins- son mun sitja áfram sem forseti Alþýðusambands íslands næstu tvö árin í kjölfar árs- fundar sambands- ins í gær. Ekki komu fram aðrar tillögur um fólk í miðstjórn en sú sem kjömefnd lagði fram. Hægagangur í hvalamálinu Aðalfundur Landssambands ís- lenskra útvegsmanna samþykkti í gær ályktun þar sem lýst er undrun yfir hægagangi íslenskra stjórnvalda í hvalamálinu. Þykir útvegsmönnum sem stjórnvöld séu að draga í land með að hefia hvalveiðar í atvinnu- skyni og er skorað á þau að láta þeg- ar af undanlátsseminni. Heilahimnubólga á Akureyri Bólusetning fyrir heilahimnu- bólgu er hafin í Brekkuskóla á Ak- ureyri eftir að nemandi í skólan- um greindist með sjúkdóminn. Bólusetningin átti upphaflega að hefiast eftir hálfan mánuð en var fiýtt í kjölfar smitsins. Nemandinn hefur verið settur í einangrun á sjúkrahúsinu í bænum og er ekki talið líklegt að sjúkdómurinn breiðist út. RÚV greindi frá. Sóttð bíllyklana ölvaður Selfyssingur á þrítugsaldri á yfir höíði sér tvær kærur fyrir ölv- unarakstur, eftir að hann keyrði ölvaður á lögreglustöðina klukkan átta á miðvikudagsmorgun til að sækja bíllyklana sem hann hafði verið sviptur fyrir ölvunarakstur um nóttina. Af honum lagði megna áfengislykt og leiddi blóð- rannsókn i ljós ölvun mannsins. ÚA kaupir í Bretlandi Útgerðarfélag Akureyringa hf. keypti í gær upp allt hlutafé í breska útgerðarfyrirtækinu Boyd Line Management Services Ltd frá Hull á 950 milljónir króna. Fyrir- tækið á 40 prósent af þorskkvóta Breta í Barentshafi og veltir tæp- um milljarði á ári. -jtr Haldið til haga Haldið til haga Með frétt blaðsins sl. mánudag um erfiðan fiárhag Hveragerðisbæjar var birt lítil mynd sem sýndi Hótel Örk. Að gefnu tilefiii skal tekið fram að rekstur nýrra eigenda hótelsins kemur slakri fiárhagsstöðu sveitarfélagsins ekkert við, enda ekkert í fréttinni sem tengist hótelinu. Eru forsvarsmenn Hótel Ark- ar því beðnir velvirðingar á myndbirt- ingunni í þessu samhengi. -HKr. Óðal í bullandi starfsemi Grétar Bemdsen, eigandi Óðals, seg- ir það alrangt að enginn nætiu-klúbbur sé starfandi í Reykjavík eins og mætti skilja á viðtali við Geira í Maxím's í DV á fimmtudag. Óðal hafi lagað sig að strax að breyttri lögreglusamþykkt, reksturinn sé í fullum gangi og hafi sjaldan fagnað meiri vinsældum. „Við breyttum húsnæðisskipulaginu og lögðum niður einkadansa í lokuðu rými. Við munum reka staðinn með þessu fyrirkomulagi þar til niðurstaða hefúr fengist fyrir dómstólum um lög- mæti þess aö breyta lögreglusamþykkt- inni,“ segir Grétar Bemdsen. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.