Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002
I>V
Fréttir
Einkavæðing Búnaðarbankans:
Fjárfestahóparnir stækka
— lífeyrissjóðir og fleiri með Kaldbaki; VÍS og franskur banki með S-hópi
Senn í höndum Kaldbaks
eöa S-hóps?
Fjárfestahópamir tveir hafa samkvæmt
heimildum blaösins báöir lýst áhuga á aö
kaupa allan hlut ríkisins í Búnaöarbank-
anum. Kaldbaki hefur nýveriö bæst liös-
styrkur nokkurra lífeyrissjóöa og annarra
fjárfesta en Sfiópurinn hefur fengiö VÍS
og franskan risabanka til liös viö sig.
festir aö sjóðurinn sé í þessum
hópi en aö um sé aö ræða mjög lít-
inn hlut. Haukur Hafsteinsson,
framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins, segir að LSR
hafi fyrir nokkrum vikum selt
Þorsteinn Már
Baldvinsson.
Nýir fjárfestar hafa samkvæmt
heimildum DV bæst við hvorn
fjárfestahópinn um sig sem í fyrra-
dag gaf einka-
væðingamefnd
svör um nokkur
lykilatriði varð-
andi hugsanleg
kaup á hlut rík-
isins í Búnaðar-
bankanum.
Þeir sem lýst
hafa áhuga á
kaupum eru sem
kunnugt er ann-
ars vegar Kald-
bakur, sem er að
stærstum hluta
til í eigu Kaupfé-
lags Eyfirðinga,
Samherja og Lif-
eyrissjóðs Norð-
urlands, og hins
vegar svokallað-
ur S-hópur, en í
honum eru And-
vaka ehf., Sam-
vinnutryggingar
ehf., Fiskiðjan
Skagfirðingur,
Kaupfélag Skag-
firðinga, Ker
(Esso), Samskip
og Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn.
Sigfús R.
Slgfússon.
Ólafur
Davíösson.
Lífeyrissjóð-
ir inn
Samkvæmt heimildum DV hafa
nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum
landsins og fleiri fjárfestar slegist
í hópinn með Kaldbaki. Bjami
Brynjólfsson, framkvæmdastjóri
Lifeyrissjóðsins Framsýnar, stað-
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Slmi: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
SNJÚKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
'mn#*
k o<>
BræÖraborgarstígur 7
Simi 575 5600
bróðurpartinn af hlut sínum í
Búnaðarbankanum eftir talsverð-
ar gengishækkanir en siðan lýst
því yfír að áhugi væri fyrir að
kaupa aftur hlut fyrir viðunandi
verð. Einkavæðingamefnd sé
kunnugt um þennan áhuga. LSR
hafi hins vegar ekki gert tilboð
sem kjölfestufjárfestir. „Ef við
kaupum yrði hlutur okkar aldrei
kjölfestuhlutur og við værum al-
gjörlega frjálsir að ráðstöfun
hans,“ segir Haukur.
Lífeyrissjóöur verzlunarmanna
er ekki í þessum hópi en meðal
annarra fjárfesta munu vera Sig-
fús R. Sigfússon í Heklu, nokkrir
sparisjóðir á Norðurlandi, Akur-
eyrarbær og fleiri.
Samkvæmt heimildum DV býð-
ur hópurinn í allan 45,8% hlut rík-
isins og mun Kaldbakur standa að
tilboði í 25% en lífeyrissjóðimir og
aðrir í afganginn.
Franskur banki og VÍS
Samkvæmt heimildum blaðsins
býður S-hópmúnn einnig í 45,8%
hlut. Samsetning hópsins hefur
hins vegar breyst á þann veg að
Vátryggingafélag íslands hefur
bæst við og einnig franski bank-
inn Société Générale, sem er sjötti
stærsti bankinn á evru-svæðinu og
mun vera skráður fyrir drjúgum
hluta í tilboði hópsins. Um er að
ræöa Þýskalandsdeild bankans.
Talið er líklegt að bankinn sé í
raun að lána hópnum fyrir stórum
hluta kaupverðsins og að gerður
hafi verið framvirkur samningur
um að S-hópurinn eignist hlut
bankans innan fárra missera þótt
bankinn sé skráður fyrir honum.
Skuldbindingar
Bjóðendur munu vera bundnir
af því að eiga hlut sinn í tvö ár og
breyta ekki innbyrðis hlutfóllum
þann tíma.
Sem fyrr ráða fjórir þættir því
hver verður fyrir valinu: fjárhags-
staða bjóðenda; verö og hve stóran
hluta boðið er í; framtíðarsýn um
rekstur; og loks mat á hæfi kaup-
enda til að starfa sem kjölfestu-
hluthafi.
Ólafur Davíðsson, formaður
einkavæðingarnefndar, segir að
ákveðið verði fljótlega eftir helgi
hver verður fyrir valinu.
-ÓTG
Eigandi Holts skuldaði 9 milljónir í vörsluskatta:
Engar ráðstafanir
gerðar til lokunar
- þó gjaldþrots væri óskað 3. október
Hinn löglærði og löggilti fasteigna-
sali, forsvarsmaður Holts í Kópavogi,
sem á yfir höfði sér eina stærstu ákæru
í fjársvikamáli síðari ára, a.m.k. um 80
miiljóna króna fjárdrátt, má einnig bú-
ast við að rikislögreglustjóri sæki hann
til saka fyrir um 9 milljóna króna skuld
á vörslusköttum. Þann 3. október tók
Héraðsdómur Reykjaness fyrir beiðni
Sýslumannsins í Kópavogi um að maö-
urinn yrði úrskurðaður gjaldþrota.
Hann andmælti ekki kröfunni en full-
trúi sýslumanns féllst engu að síður á
að hann fengi frest. Engar ráðstafanir
voru þá gerðar til að stöðva rekstur
fasteignasölunnar.
Fyrirtaka í gjaldþrotamálinu fór
fram á fimmtudag, daginn sem frestur-
inn rann út og daginn eftir að maður-
inn gekk á fund ríkislögreglustjórans
og lagði málið á borðið. Hann viður-
kenndi fjárdráttinn gagnvart 15 við-
skiptavinum fasteignasölunnar Holts á
um tveggja ára tímabili.
Einnig skjalafals
Á fasteignamarkaðnum eru gefm út
fasteignaveðbréf sern skipt er yfir í
húsbréf en þau eru seld á verðbréfa-
markaðnum. Samkvæmt upplýsingum
DV gerðist það í tilfelli forsvarsmanns
Holts í Kópavogi að hann tók við fjár-
munum og húsbréfum frá viðskiptavin-
um sínum. Hann lét framselja sér hús-
bréfm en átti síðan að aflétta ýmsum
skuldum af fasteignunum. Eftir það
fékk hann verðbréfasala til að fiár-
magna viðskiptin fyrir sig á meðan
hann var að aflétta veðum. I sumum til-
fellum var bréfúnum hins vegar ekki
skilað og heldur ekki peningunum. Hjá
íbúðalánasjóði hefúr komið fram að
brögð hafi verið að því að um fólsuð
framsöl hafi verið að ræða.
Einn viðskiptavinur Holts kæröi
fasteignasalann snemma á árinu fyrir
skjalafals tengt húsbréfúm. Hann fékk
um síðir greitt það sem honum bar en
kærði engu að síður skjalafalsið tO lög-
reglu enda taldi hann að um fullframið
brot hefði verið að ræða þótt hann
hefði ekki tapað á viðskiptunum. Kær-
an var búin að vera 8 mánuði hjá lög-
reglunni í Kópavogi þegar aðrir hlutir
tengdir sama fasteignasala gerðust hjá
sama embætti. Fasteignasalinn hafði
þá ekki skilað vörslusköttum, stað-
greiðslu launa og virðisaukaskatti upp
á um 9 milljónir króna. Árangurslaust
fiámám hafði verið gert löngu áður í
fyrirtækinu og gjaldþrots krafist í byij-
un október. -ótt
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Ólögmætt samráð í verði
ávaxta og grænmetis
- fyrsti dómur sinnar tegundar á íslandi
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær þrjú fyrirtæki á ávaxta- og græn-
metismarkaði sek um ólögmætt sam-
ráð. Fyrirtækin Sölufélag garðyrkju-
manna, Bananar og Mata voru sektuð
um samanlagt 37 milljónir króna eftir
að fiölskipaður dómur komst að þeirri
niðurstöðu að þau hefðu skipt með sér
mörkuðum og haft með sér samráð
um verð.
„Dómurinn felur í sér skýr skilaboö
til fyrirtækja á markaði um að stunda
ekki samráð. Þessi brot fara mjög
leynt og verða ekki upplýst nema með
umfangsmiklum aðgeröum Sam-
keppnisstofnunar eins og húsleit,"
segir Heimir Öm Herbertsson, lög-
maður Samkeppnisstofnunar.
Þetta er í fyrsta skipti sem dómur
um ólöglegt samráð fellur á íslandi
en hann fylgir í kjölfar þess að fyr-
irtækin áfrýjuðu til áfrýjunamefnd-
ar samkeppnismála ákvörðun sam-
keppnisráðs um að sekta þau um
rúmar 100 milljónir króna.
Áfrýjunarnefndin staðfesti ólög-
mætt samráð en lækkaði sekt sam-
keppnisráðs um ríflega helming. í
dómi Héraðsdóms var sektin lækk-
uð um tíu milljónir króna.
Þetta er í fyrsta skipti sem fyrir-
tæki áfrýja úrskurði Samkeppnis-
stofnunar alla leið til Héraðsdóms
og eru taldar nokkrar líkur á því að
dómnum verði áfrýjað. -jtr
Dæmt í Costgo-málinu
Rúmlega þrítugur maður var í
gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyr-
ir að hafa blekkt 85 manns til að
greiða 5000 krónur fyrir Costgo-
pöntunarlistann sem fékkst svo
aldrei afhentur. Hann var einnig
sakfelldur fyrir að svíkja vörur út
úr BYKO og fyrir að brjóta umferð-
arlögin, allt á sama tíma og hann af-
plánaði skilorðsbundinn dóm.
Grétar sjálfkjörinn
Grétar Þorsteins-
son mun sitja
áfram sem forseti
Alþýðusambands
íslands næstu tvö
árin í kjölfar árs-
fundar sambands-
ins í gær. Ekki
komu fram aðrar
tillögur um fólk í miðstjórn en sú
sem kjömefnd lagði fram.
Hægagangur í hvalamálinu
Aðalfundur Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna samþykkti í
gær ályktun þar sem lýst er undrun
yfir hægagangi íslenskra stjórnvalda í
hvalamálinu. Þykir útvegsmönnum
sem stjórnvöld séu að draga í land
með að hefia hvalveiðar í atvinnu-
skyni og er skorað á þau að láta þeg-
ar af undanlátsseminni.
Heilahimnubólga á Akureyri
Bólusetning fyrir heilahimnu-
bólgu er hafin í Brekkuskóla á Ak-
ureyri eftir að nemandi í skólan-
um greindist með sjúkdóminn.
Bólusetningin átti upphaflega að
hefiast eftir hálfan mánuð en var
fiýtt í kjölfar smitsins. Nemandinn
hefur verið settur í einangrun á
sjúkrahúsinu í bænum og er ekki
talið líklegt að sjúkdómurinn
breiðist út. RÚV greindi frá.
Sóttð bíllyklana ölvaður
Selfyssingur á þrítugsaldri á
yfir höíði sér tvær kærur fyrir ölv-
unarakstur, eftir að hann keyrði
ölvaður á lögreglustöðina klukkan
átta á miðvikudagsmorgun til að
sækja bíllyklana sem hann hafði
verið sviptur fyrir ölvunarakstur
um nóttina. Af honum lagði
megna áfengislykt og leiddi blóð-
rannsókn i ljós ölvun mannsins.
ÚA kaupir í Bretlandi
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
keypti í gær upp allt hlutafé í
breska útgerðarfyrirtækinu Boyd
Line Management Services Ltd frá
Hull á 950 milljónir króna. Fyrir-
tækið á 40 prósent af þorskkvóta
Breta í Barentshafi og veltir tæp-
um milljarði á ári. -jtr
Haldið til haga
Haldið til haga
Með frétt blaðsins sl. mánudag um
erfiðan fiárhag Hveragerðisbæjar var
birt lítil mynd sem sýndi Hótel Örk. Að
gefnu tilefiii skal tekið fram að rekstur
nýrra eigenda hótelsins kemur slakri
fiárhagsstöðu sveitarfélagsins ekkert
við, enda ekkert í fréttinni sem tengist
hótelinu. Eru forsvarsmenn Hótel Ark-
ar því beðnir velvirðingar á myndbirt-
ingunni í þessu samhengi. -HKr.
Óðal í bullandi starfsemi
Grétar Bemdsen, eigandi Óðals, seg-
ir það alrangt að enginn nætiu-klúbbur
sé starfandi í Reykjavík eins og mætti
skilja á viðtali við Geira í Maxím's í
DV á fimmtudag. Óðal hafi lagað sig að
strax að breyttri lögreglusamþykkt,
reksturinn sé í fullum gangi og hafi
sjaldan fagnað meiri vinsældum. „Við
breyttum húsnæðisskipulaginu og
lögðum niður einkadansa í lokuðu
rými. Við munum reka staðinn með
þessu fyrirkomulagi þar til niðurstaða
hefúr fengist fyrir dómstólum um lög-
mæti þess aö breyta lögreglusamþykkt-
inni,“ segir Grétar Bemdsen. -GG