Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2002, Side 20
20
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára
Jónína Þorsteinsdóttir,
Ólafsvegi 19, Ólafsfirði.
85 ára________________________________
Jenný Magnúsdóttir,
Garðvangi, Garði.
Magnús G. Guðmundsson,
Hátúni 4, Reykjavík.
80 ára________________________________
Benedikt Sigurbjörnsson,
Þingholtsstræti 15, Reykjavík.
Benedikt Sigurðsson,
Vitabraut 19, Hólmavík.
Einar Jónsson,
Melgerði 8, Kópavogi.
Steingrímur Helgason,
Geitlandi 13, Reykjavík.
75 ára________________________________
Olga Ingibjörg Pálsdóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Sigurbergur Hávarðsson,
Fensölum 8, Kópavogi.
Þórhaliur Hermannsson,
Mararbraut 3, Húsavík.
70 ára _______________________________
Bryndís Alfreðsdóttir,
Laugarbrekku 11, Húsavík.
Brynhildur Hjálmarsdóttir,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi.
Guðrún Jónsdóttir,
Hólastekk 6, Reykjavík.
Leifur K. Jóhannesson,
Akurholti 6, Mosfellsbæ.
60 ára________________________________
Kristjana Þorkelsdóttir,
Norðurási 2, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er
Kristján Árni Ingólfsson.
Þau taka á móti
ættingjum og vinum í sal
Tannlæknafélagsins,
Síðumúla 35, laugard. 16.11. milli kl.
18.00 og 20.00.
Gestur Gunnar Axelsson,
Berjarima 28, Reykjavík.
Hörður Þorvaldsson,
Vesturgötu 40, Reykjavík.
Jóhanna 0. Ólafsdóttir,
Fellsmúla 22, Reykjavík.
Lovísa Ó. Guðmundsdóttir,
Hraöastöðum 4, Mosfellsbæ.
Óskar Þ. Karlsson,
Melagötu 4, Neskaupstað.
Svala H. Steingrímsdóttir,
Seftjörn 11, Selfossi.
Hún veröur að heiman.
50 ára________________________________
Elínborg Angantýsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Háaleitisbraut 121,
Reykjavík.
Eiginmaður hennar er
Hrólfur Gunnlaugsson
verktaki. Þau verða með
heitt á könnunni í allan dag.
Guðrún Sigurjónsdóttir,
Melseli 18, Reykjavík.
Marteinn B. Heiðarsson,
Lindasmára 45, Kópavogi.
Ragnar Hrelnn Ormsson,
Básbryggju 9, Reykjavík.
Sigfús Jóhannesson,
Hörgsholti 7, Hafnarfirði.
Sigurður Viðar Guðjónsson,
Laugavegi 24, Reykjavík.
Þóröur Hauksson,
Akurholti 4, Mosfellsbæ.
40ára_________________________________
Gunnhildur Loftsdóttir,
Miðbraut 26, Seltjarnarnesi.
Jóhann Berg Sigurðsson,
Ugluhólum 4, Reykjavík.
Jón Pétursson,
Fjólugötu 17, Vestmannaeyjum.
Natalía Chow,
Blikaási 8, Hafnarfirði.
Sigrún María Kolbeinsdóttir,
Skólabraut 14, Hólmavík.
Sólveig Jóna Jónasdóttir,
Hjallabraut 2, Hafnarfirði.
Valgerður Hansdóttir,
Háengi 12, Selfossi.
Þorbjörg Þráinsdóttir,
Fagrahjalla 3, Kópavogi.
Andlát
Elsa Kristjánsdóttir, Austurbrún 6,
Reykjavík, lést fimmtud. 31.10. Jarðar-
förin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látrtu.
Henný María Ottósdóttir Mac Henry
lést á St. Jósefssjúkrahúsinu New
Jersey í Bandaríkjunum laugard. 2.11.
Útförin fór fram miðvikud. 6.11.
Guðrún Margrét Árnadóttir, áður til
heimilis á Laugavegi 99, Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
fimmtud. 7.11.
ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002
DV
Andlát
Andrés H. Valberg
framkvæmdastjóri í Reykjavík
Andrés H. Valberg framkvæmda-
stjóri, Langagerði 16, Reykjavík,
lést fostudaginn 1.11. sl. Útför hans
fer fram frá Bústaðakirkju í dag og
hefst athöfnin kl. 15.00.
Starfsferill
Andrés fæddist á Syðri-Mælifellsá
í Skagafirði 15.10. 1919, ólst þar upp
fyrstu þrjú árin og kenndi sig við
þann bæ. Hann flutti með fjölskyldu
sinni að Kálfárdal í Gönguskörðum
þar sem fjölskyldan átti heima til
1931 er hún flutti á Sauðárkrók.
Andrés gekk í barna- og unglinga-
skóla á Sauðárkróki. Þá var hann
virkur í skátafélaginu Andvara og
stundaði ýmsar íþróttir.
Andrés var m.a. verkamaður, loð-
dýrabóndi og sjómaður á Sauðár-
króki. Þá tók hann meirapróf bif-
reiðarstjóra. Hann flutti til Reykja-
víkur 1946 þar sem hann var leigu-
bílstjóri um skeið. Lengst af vann
hann þó við jám- og trésmíðar á eig-
in verkstæði og starfrækti hann
eigin heildsölu um árabO.
Andrés var einn kunnasti hagyrð-
ingur þjóðarinnar og með hrað-
kvæðustu mönnum. Hann var félagi
og heiðursfélagi í kvæðafélaginu Ið-
unni og gaf út nokkrar ljóðabækur
og átti auk þess handrit í fleiri verk.
Andrés var mikill safnari. Mest
að vöxtum voru fomgripa- og forn-
bókasafn hans og náttúrugripasafn.
Valbergssafnið, fomminjadeild gaf
hann til Byggðasafnsins á Sauðár-
króki, hluta náttúrugripasafnsins
gaf hann að Varmahlíð en megin-
hluta náttúrugripasafnsins gaf hann
að Byggðasafninu að Skógum,
ásamt fágætum biblíum og öðrum
fornbókum. Þess má til gamans geta
að á safninu á Sauðárkróki er
valnastakkur Andrésar sem hann
föndraði við að setja saman úr
sauðavölum eftir að hafa hlustað á
Hellismannasögu sem bam. Hin síð-
ari ár vann Andrés langan vinnu-
dag og sat við skriftir á kvöldin auk
þess sem hann dundaði við náttúru-
gripi sína.
Fjölskylda
Andrés kvæntist 1951 Þuríði
Jónsdóttur, f. 12.12.1925, húsmóður.
Foreldrar hennar voru hjónin Jón
Jónsson, f. 12.2. 1886, og Guðný Ara-
dóttir, f. 2.7. 1891, bændur á Fagur-
hólsmýri.
Böm Andrésar og Þuríðar eru
Guðný Jónína Valberg, f. 2.10. 1953,
kennari og húsfreyja að Þorvalds-
eyri, gift Ólafl Eggertssyni bónda og
eiga þau fjögur börn og tvö barna-
bam; Gústaf Valberg, f. 27.7. 1955,
bifvélavirki og verslunarmaður, í
sambúð með Kanlaya Shitticot og
eiga þau eitt bam auk þess sem
Gústaf á þrjú böm frá fyrrv. hjóna-
bandi og eitt bamabarn; Hallgrímur
Indriði, f. 29.7. 1961, löggiltur raf-
verktaki, kvæntur Ingveldi Don-
aldsdóttur og eiga þau þrjú böm.
Sonur Andrésar frá því áður er
Gunnar, f. 1.2. 1950, ljósmyndari á
DV, kvæntur Önnu Ágústsdóttur og
eiga þau fjögur böm og átta bama-
böm.
Systkini Andrésar: Margeir, f.
25.2. 1922, d. 14.9. 1995, sjómaður og
kaupmaður; Guðrún, f. 27.1. 1934,
húsmóðir, gift Jóni Einarssyni.
Foreldrar Andrésar voru Hall-
grímur A. Valberg, f. 27.5. 1882, d.
1.2. 1962, bóndi á Reykjavöllum,
Mælifellsá og í Kálfárdal og loks á
Sauðárkróki, og Indíana Sveinsdótt-
ir, f. 3.8. 1891, d. 2.7. 1968, húsfreyja
frá Mælifellsá.
Ætt
Hallgrímur var sonur Andrésar,
b. á Reykjavöllum Bjömssonar, b. á
Starrastöðum Björnssonar, b. á
Valabjörgum,
bróður Andrés-
ar á Álfgeirs-
völlum, afa Kon-
ráðs, afa Eyjólfs
Konráðs Jóns-
sonar alþm.
Andrés var
einnig afi séra
Jóns í Hvammi,
föður Magnúsar,
dósents og ráð-
herra, og Þóris
Bergssonar rit-
höfundar. Bjöm
var sonur Ólafs,
ættföður Vala-
dalsættar eldri
Andréssonar.
Móðir Bjöms á
Starrastöðum
var Margrét
yngri, systir Ólafs, fóður Arngríms,
pr. og alþm. á Bægisá. Annar bróð-
ir Margrétar var Guðmundur,
langafl Jóhönnu, móður Tryggva
Ófeigssonar útgerðarmanns. Mar-
grét var dóttir Björns, b. á Auðólfs-
stöðum Guðmundssonar, ættföður
Hafnarættar eldri Bjömssonar.
Móðir Andrésar var Halldóra Jóns-
dóttir yngra, b. á Leifsstöðum, bróð-
ur Björns Blöndal, ættfóður Blön-
dalsættar.
Móðir Hallgríms var Guðrún,
systir Jóhannesar Reykdal, afa Jó-
hannesar Reykdal tæknimanns.
Annar bróðir Guðrúnar var Ólafur
Reykdal, afi Ólafs Ragnarssonar
bókaútgefanda. Guörún var dóttir
Jóhannesar, b. á Litlu-Laugum
Magnússonar. Móðir Magnúsar var
Bergþóra, systir Sigurðar, afa Hall-
dórs á Jódísarstöðum, langafa Sig-
urðar Guðmundssonar vígslubisk-
ups, fóður Sigurðar vígslubiskups.
Bergþóra var dóttir Randvers í Ytri-
Villingadal, ættföður Randversætt-
arinnar Þórðarsonar.
Indíana var dóttir Sveins, hagyrð-
ings á Mælifellsá Gunnarssonar,
oddvita að Syðra-Vallholti Gunnars-
sonar, hreppstjóra á Skíðastöðum,
bróður Þorvalds, afa Ragnheiðar,
langömmu Magnúsar ráðherra frá
Mel og Halldórs Þormars sýslu-
manns. Þorvaldur var einnig afl
Ingibjargar, móður Jóns frá Akri,
fóður Pálma, fyrrv. ráðherra. Gunn-
ar var sonur Gunnars, ættföður
Skíðastaðaættar Guðmundssonar.
Móðir Indíönu var Margrét Þór-
unn, hálfsystir Margrétar, ömmu
Elínborgar Lárusdóttur rithöfund-
ar. Hálfbróðir Margrétar var Sæ-
mundur, langafl Jóhönnu, móður
Sighvats Björgvinssonar, fyrrv. ráð-
herra. Margrét var dóttir Árna, silf-
ursmiðs i Stokkhólma Sigurðsson-
ar, útvegsb. í Keflavík, bróður
Magnúsar, langafa Guðrúnar, móð-
ur Bjarna Benediktssonar forsætis-
ráðherra, fóður Björns, alþm. og odd-
vita sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Sextugur
Steingrímur Guöni Pétursson
símamaður í Reykjavík
Steingrímur Guðni Pét-
ursson símamaður,
Dverghömrum 2, Reykja-
vík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Steingrímur fæddist í
Reykjavik og ólst þar upp,
á Patreksfirði og í Kópa-
vogi. Hann starfaði hjá
ORA í Kópavogi, var
messi og háseti á Skjaldbreið, lærði
linulagnir og símsmíði hjá Pósti og
síma, tók hið meira ökupróf og öðl-
aðist þungavinnuvélaréttindi, ók
trukkum og var við staura- og
mastraflutninga.
Steingrímur var síðan vagnstjóri
hjá SVR í rúm sjö ár, síðan bílstjóri
hjá Pósti og síma, síðan deildar-
verkstjóri á bifreiðadeild Símans og
starfar nú í birgðadeildinni.
Fjölskylda
Fyrri kona Steingríms var Sólrún
Konráðsdóttir, f. 1946. Þau skildu.
Seinni kona Steingríms var Guð-
rún Eiríksdóttir, f. 1941, d. 1995.
Sambýliskona Steingríms er Sig-
ríður Jónsdóttir Lepore, f. 12.2.1951.
Dóttir Steingríms og
Sóleyjar Njarðvík er Erla
Hafdís, f. 8.3. 1965, búsett
á Bláfeld í Staðarsveit.
Synir Steingríms og
Sólrúnar eru Hilmar, f.
18.8. 1967, í Svíþjóð; Al-
bert Indriði, f. 16.7. 1969, í
Hafnarflrði; Sæþór, f.
31.7. 1973, í Kópavogi.
Böm Guðrúnar Eiríks-
dóttur eru Hugrún Helgadóttir, f.
17.2.1962, í Hafnarfirði; Eiríkur Ingi
Sigurjónsson, f. 13.10. 1964, á Sel-
fossi; Sigurlin Sigurjónsdóttir, f. 3.6.
1966, í Hafnarfirði; Sigurgeir Sigur-
jónsson, f. 31.7. 1973,í Reykjavík.
Foreldrar Steingríms: Pétur Pét-
ursson, fyrrv. strætisvagnsstjóri í
Reykjavík, og Hulda Ólafsdóttir, nú
látin, húsmóðir. Stjúpmóðir Stein-
gríms er Sigríður Skarphéðinsdóttir
húsmóðir.
Fósturforeldrar Steingrims: Ind-
riði Jónsson, nú látinn, skósmiður
og starfsmaður Þjóðleikhússins, og
Pétrína Jóna Elíasdóttir húsmóðir.
Steingrímur tekur á móti gestum
í Perlunni sunnud. 17.11. kl.
14.00-16.00.
Fimmtugur
Magnús Torfason
vörubílstjóri í Garði
Magnús Torfason vöru-
bílstjóri, Sunnubraut 12,
Garði, er fimmtugur I
dag.
Starfsferill
Magnús fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Miðhúsum í Garði. Hann
hefur starfað við verkun
og akstur hjá Saltfisk-
verkun Karls Njálssonar sf. frá 1972.
Magnús hefur gegnt trúnaðar-
störfum í Verkalýðs og sjómannafé-
lagi Gerðahrepps um tíu ára skeið.
Hann var sveitarstjórnarmaður í
Gerðahreppi 1998-2002 og hefur
gegnt ýmsum nefndarstörfum fyrir
hreppinn. Hann starfar nú í ung-
lingaráði knattspyrnudeildar Víðis.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 12.11. 1977 Jós-
efinu Kr. Ambjömsdóttur, f. 30.8.
1956, húsmóður og starfsstúlku í
Garðvangi, aðhlynningu aldraðra.
Hún er dóttir Arnbjörns V. Kristins-
sonar sem er látinn, og Jóhönnu
Sigurðardóttur, húsmóður og verka-
konu á Kópaskeri.
Börn Magnúsar og Jós-
efinu eru Brynja Magnús-
dóttir, f. 12.5. 1975, BA í
mannfræði, búsett í
Reykjavík en sambýlis-
maður hennar er Karl
Einarsson nemi; Jónína
Magnúsdóttir, f. 7.4. 1977,
kennari í Garði en sam-
býlismaður hennar er
Guðni Ingimundarson
rafvirki og er sonur þeirra Ingi-
mundur Aron Guðnason, f. 29.3.
1999; Jóhann Daði Magnússon, f.
15.5. 1991.
Systkini Magnúsar: Guðrún, f.
6.5. 1936; Gíslína, f. 8.6. 1937; Þór-
unn, f. 19.9. 1938; Sæmundur, f. 4.1.
1940; Þorsteinn, f. 3.5. 1941; Geirdís,
f. 16.6. 1942; Ólafur, f. 7.10. 1943, nú
látinn; Sigurjón, f. 20.9. 1944; Sigur-
geir, f. 20.3. 1946; Torfhildur, f. 15.1.
1948; Jón Gunnar, f. 29.6. 1949; Rafn,
f. 29.9. 1950; Svandís, f. 29.9. 1951.
Foreldrar Magnúsar: Torfi Sigur-
jónsson, f. 14.3. 1906, d. 13.2. 1996,
bóndi í Miðhúsum, og Margrét Sæ-
mundsdóttir, f. 9.6. 1914, húsfreyja i
Miðhúsum, nú á Garðvangi.
Magnús verður að heiman.
Vilborg Torfadóttir
húsmóöir og fyrrv. fiskvinnslukona
Vilborg Torfadóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði, er
sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Vilborg fór ung í fóstur
til hjónanna Matthildar
og Kristjáns sem bjuggu
síðast á Njálsgötu 20,
Reykjavík. Á stríðsáran-
um var hún í Asparvík á
Ströndum hjá hjónunum Bjama og
Laufeyju í góðu atlæti.
Fjölskylda
Vilborg giftist 3.8. 1950
Pétri Birni Jónssyni, f.
26.6. 1927, d. 6.3. 1969.
Dóttir Vilborgar frá þvi
áður er Matthildur Krist-
jana Jónsdóttir, f. 2.1.
1946 og eru böm hennar Pétur Ólaf-
ur Einarsson, f. 7.12. 1964, Ang-
Vilborg starfaði í Fé-
lagsprentsmiðjunni en
lengst af við fiskvinnslu.
elique Kelley, f. 28.3. 1968, Kevin
Joseph Kelley, f. 19.11. 1969, og
Michelle Phyllis Giles, f. 14.10. 1973.
Börn Vilborgar og Péturs Björns
eru Kristinn Pétur, f. 4.11. 1950 en
kona hans er Ragnheiður Braga-
dóttir, f. 20.11.1955 og eru börn hans
Sverrir Gretar, f. 30.12. 1972 og
Ellisif, f. 1.11.1981; Jón, f. 4.11. 1950
en kona hans er Sigfríð Þormar, f.
13.10. 1950 og eru böm þeirra Pétur
Björn, f. 29.10. 1971, Eva Sigríður, f.
3.11. 1974, og Kolbrún, f. 15.2. 1977;
Hafdís Lilja, f. 29.1. 1952 en börn
hennar eru Torfi Freyr Alexanders-
son, f. 12.9. 1973, Bjarki Þór Alex-
andersson, f. 2.4. 1976, Soffia Ösp
Bæringsdóttir, f. 28.7. 1979, og Hlyn-
ur Elías Bæringsson, f. 6.7. 1982;
Sveinn Kristján, f. 22.8.1954 en kona
hans er Sigurborg Kristjánsdóttir, f.
15.4. 1955 og eru synir þeirra Hall-
dór S., f. 21.6. 1975, og Kristján G„ f.
9.3.1979; Ingibjörg Mjöll, f. 16.3. 1956
og eru böm hennar Ólafur Ragnar
Osvaldsson, f. 20.11. 1974, og Sandra
Vilborg Guðlaugsdóttir, f. 27.7. 1979;
Bjami Leifur, f. 15.6. 1958.
Vilborg er dóttir Maríu Ólafsdótt-
ur, f. 4.4. 1901, d. 31.7. 1971, og Torfa
Bjömssonar, f. 13.7. 1884, d. 17.7.
1967.