Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2002 DV Fréttir Verulega aukin ásókn í viðbótarlán: Umsóknir sveitarfé- laga slá öll fyrri met - lítið um vanskil en greiðsluerfiðleikalánum fjölgar hratt íbúðalánasjóður hefur óskað eft- ir viðræðum við sveitarfélögin og félagsmálaráðuneytið um þróun viðbótarlánakerfisins. Áætlanir um að mettun yrði á fasteigna- markaði eftir afar lífleg viðskipti á árnum 1998-2001 hafa ekki geng- ið eftir. Ástæður mikillar aukn- ingar í útgáfu hús- og húsnæðis- bréfa eru raktar til tveggja þátta - annars vegar þróunar umsókna sveitarfélaga um viðbótarlán, sem slegið hafa öll fyrri met, og hins vegar hefur verið mun meiri hreyfing á félagslegu húsnæði en gert var ráð fyrir í kjölfar afnáms kaupskyldu sveitarfélaga. Samkvæmt útgáfuspá íbúða- lánasjóðs í október er áætlað að gefin verði út húsbréf á þessu ári fyrir 33,8 milljarða króna. Þar er verið að tala um raunútgáfu, en samþykkt skuldabréfaskipti munu væntanlega nema hærri upphæð. Þrátt fyrir mikla útgáfu eru van- skil við sjóðinn enn í sögulegu lág- marki. Námu vanskil til 3ja mán- aða og eldri 0,3% í október af heildarúthlutuðum lánum sjóðs- ins. Er það reyndar á skjön við þró- un vanskila almennt í fjármála- kerfinu. Virðist skýringuna að einhverju leyti að finna í því að í vandræðum virðist sem fólki sé bjargað með greiðsluerfiðleikalán- um. Hefur umsóknum vegna greiðsluerfiðleikalána fjölgað verulega. Árið 1999 voru umsókn- irnar 149 en 233 árið 2000. Þeim fjölgaði í 456 árið 2001. Innkomn- um umsóknum um greiðsluerfið- leikalán fjölgaði síöan stórlega á þessu ári. Fyrstu tíu mánuði árs- ins voru þær orðnar 776. Það er mat innheimtustarfsmanna sjóðs- ins að mál viðskiptavina sem í vanskilum eru séu nú mun erfið- ari en áður. Framhaldsuppboðum fasteigna hefur fjölgað um 26% milli áranna 2001 og 2002. Útgáfa hús- og húsnæðisbréfa fyrir þetta ár var áætluð í janúar 47,2 milljarðar króna. Búist er við að hún geti farið yfir 50 milljarða, en í október var leiðrétt áætlun komin í 49,3 milljarða króna. Áætluð útgáfa fyrir árið 2003 er 52,5 milljarðar króna. Þá mun Ibúðalánasjóður greiða lánveit- endum sínum 40,5 milljarða króna á næsta ári. -HKr. Haldið sofandi Konunni sem slasaðist alvarlega þegar bíll fór í Hólmsá, rétt austan Reykjavíkur, á föstudag er haldið sofandi í öndunarvél á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hring- braut. Þegar að var komið var kon- an meðvitundarlaus. I bílnum voru einnig þrjú böm og önnur kona. Eitt bamanna slasaðist og var á sjúkrahúsi um helgina. -Ótt Með amfetamín Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann um helgina sem reyndist vera með eitt og hálft gramm af am- fetamíni í fórum sínum. Maðurinn var færður á lögreglustöð en var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu varð bilvelta á Hafnarvegi þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og ók á staur. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. -Ótt Bensínið lækkaði Öll olíufélögin, Olíufélagið, Oliu- verzlun íslands og Skeljungur, lækk- uði verðið á lítra af bensíni um 1,70 krónur. Eftir lækkunina kostar lítrinn af 95 oktana bensíni 96,30 krónur. Lítr- inn af gasolíu, dísilolíu, flotaoliu og svartolíu lækkaði um 50 aura. -hlh DV-MYND HH Kerlingarbeyglan hún Grýla er mætt Börnin í Húsdýragaröinum hittu Grýlu íjólastemningunni í gær. Sú gamia fór á kostum þegar hún gaf selunum æti meö aöstoö barnanna. Glatt var á hjalla og allir brostu út aö eyrum. Amerískur hvíldarstóll Ótrúlega þœgilegur! Dýrt að aka fullur Það er dýrt spaug að aka undir áhrifum áfengis. Sektirnar eru háar, eins og meðfylgjandi tafla sýn- ir, og svipting ökuréttinda vegna fyrsta brots getur varað í allt að 12 mánuði. Neiti ökumaður að gefa öndunarsýni er svipting ökurétt- inda að lágmarki 12 mánuðir. En það getur verið dýrt að öðru leyti þar sem ölvaður ökumaður getur skaðað líf og limi sjálfs sín og ann- arra. Nú stendur yfir mikið átak gegn ölvunarakstri hjá Reykjavíkurlögregl- unni og í því sambandi minnir hún á að á síðasta ári hafi 939 ökumenn ver- ið stöðvaðir af lögreglu vegna gruns um ölvun viö akstur. -hlh Vínandamagn í blóði í prómillum 0,50-0,60 0,61-0,75 0,76-0,90 0,91-1,10 1,11-1,19 1,20-1,50 Vínandamagn í loftl í mg/l 0,250-0,300 0,301-0,375 0,376-0,450 0,451-0,550 0,551-0,599 0,600-0,750 Sektir Svipting 50.000 2 mán. 50.000 4 mán. 60.000 6 mán. 70.000 8 mán. 80.000 10 mán. 100.000 12 mán. Sektir Svipting 50.000 2 mán. 50.000 4 mán. 60.000 6 mán. 70.000 8 mán. 80.000 10 mán. 100.000 12 mán. Guðni vinsælastur Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra er langvin- sælasti ráðherra landsins samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups sem kannaði ánægju með fram- sóknarráðherra. Tveir af hverjum þremur lands- manna eru ánægðir með störf hans. Norðurlandameistarar Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir, Dansfélag- inu Gulltoppi, urðu Norðurlanda- meistarar unglinga í samkvæmis- dansi þriðja árið í röð þegar þau báru sigur úr býtum á Norðurlanda- móti í Stavanger í Noregi í gær. Mbl. greindi frá. Kona ársins Tímaritið Nýtt líf hefur valið Berg- lindi Ásgeirsdóttur, aðstoðarforsfjóra hjá Efnahags- og framfarastofnun- inni, OECD, konu ársins á íslandi. Stór bygging Líkur eru á að minjar um stóra byggingu, sem fundust við fomleifa- rannsóknir á Þingvöllum síðastliðið sumar, séu frá upphafi þinghalds á staðnum á 10. öld. RÚV greindi frá. Of mikið af kjöti 1 september og október varð fram- leiðslan á kjúklingum og svínakjöti meiri en salan. Birgðir söfnuðust því fyrir í mánuðunum. Sala á kindakjöti var 19,4% minni í októ- ber en í sama mánuði í fyrra. Sala á kjúklingum og svínakjöti var mjög mikil í september, en salan í októ- ber varð enn meiri. Mbl. greindi frá. Tapa útsvarstekjum Sveitarfélögin í landinu tapa nú út- svarstekjum vegna mikillar Qölgunar einkahlutafélaga, að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, for- manns Sambands íslenskra sveitarfé- laga. Hann telur að tekjurnar muni á ári minnka um allt að einn mUlj- arð króna, frá síðasta ári. Mbl. greindi frá. Heiðra minningu Indriða Samtök um leikminjasafn heiðra aldarminningu Indriða Waage í samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið með því að opna vefsíðu um hann á slóðinni leik- minjasafn.is. Engir krókódílar Yfirdýralæknir mælir ekki með innílutningi krókódila vegna hættu á salmonellusmiti. Landbúnaðarráð- herra ætlar því ekki að leyfa krókó- dílaeldi á Húsavik. RÚV greindi frá. Friðarlogi um landið Dreifing á Friðarloganum frá Betlehem um landið hófst í annað sinn í gær. Friðarloginn er logi sem færir boðskap friðar og vináttu manna og þjóða og er gefmn hvetjum sem vill. Eðlileg tekjuöflun Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að hækkun áfengis- og tóbaks- gjalds sé eðlileg tekjuöflun viö nú- verandi aðstæður í ríkisfjármálum. Afla þurfi tekna tii að standa undir nýjum útgjöldum. Ríkisstjórnin beri ábyrgð á þessari ákvörðun. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.