Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Qupperneq 32
 LOFTNETSEFNI GERVIHNATTABÚNAÐUR r »r w.oreind.is MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2002 Reyk j avíkurk j ördæmi: Davíð leiðir í Rvík-norður Davíð Oddsson. Davíð Oddsson forsætisráðherra mun skipa 1. sæti framboðslita Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavíkur- kjördæmi norður í alþingiskosning- unum í vor. Geir H. Haarde íjár- málaráðherra verður í 1. sæti listans í Reykjavík- urkjördæmi suður. Dregið var um það i Valhöll í gær hvort kjördæmið Davíð og Geir mundu leiða. Útlit er fyrir formannaslag í Reykjavíkurkjördæmi norður en Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra mim leiða lista Framsóknar í kjördæminu og líkur þykja á að Öss- ur Skarphéðinsson muni leiða þar lista Samfylkingarinnar. -hlh Rydenskaffi og Innnes saman Skrifað var undir viljayfirlýsingu um sameiningu Innness og Rydens- kaffls á fimmtudag. Var starfsmönnum tilkynnt um sameiningaráformin á fostudag. Með sameiningunni verður til afar öflugt heildsölufyrirtæki en samanlögð velta fyrirtækjanna á árinu er rúmir 1,6 milljarðar króna. ^ Að sögn Ólafs Bjömssonar, fram- kvæmdastjóra Innness, er ástæða sam- einingarinnar hagræðing. Um 60 starfsmenn vinna hjá báðum fyrirtækj- um. Uppsagnir em ekki fyrirhugaðar. Innnes flytur inn þekktar vörur eins og Hunt’s og Rydenskaffi vörur eins og Gevalia og Maamd. Framkvæmdastjóri sameinaðs fé- lags verður Ólafur Bjömsson en stjóm- arformaður Þórir Baldursson. Nýtt na&i hefur ekki verið ákveðið á fyrir- tækið en það verður með starfsemi í húsnæði Innness að Fossaleyni. -hlh VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU! Sími 580 7000 | www.securitas.is HVER VER9UR LJÓN NORÐURSINS? V 112 EINN EINN TVEIR NEYÐARLÍNAN LÖGREGLA SLÖKKVIUÐ SJÚKRAUÐ DVJJYND KÖ Sælir strákar - eruö þlö aö stoppa mlg? Bílbelti, handfrjáts símabúnaöur, ástand ökumanns, ökuskírteini, aöalskoöun og Ijós - allt þarf þetta aö vera í lagi en mest er þó um vert er aö vera allsgáö- ur. Þessi unga kona tók Árna Friöleifssyni lögreglumanni og félögum hans vel í „gleöskaparátaki" lögreglunnar um helgina. Átak hjá lögreglunni í Reykjavík í upphafi gleðskaparmánaðar: A annað þusund ökumenn stöðvaðir Lögreglumenn stöðvuðu á annað þúsund ökumenn um helgina þar sem ástand ökumanna og bila var kannað. Átakið var gert af því til- efni að þetta var fyrsta helgin í des- ember en hún markar gjarnan upp- hafið á jólagleðskap landsmanna. Lögreglan gaf ökumönnum miða með nákvæmum upplýsingum um hvað það hefur í fór með sér að aka undir áhrifum áfengis, það er hve háar sektir eru greiddar, gjaman 50 til 100 þúsund krónu Árs ökuleyfis- svipting er algeng ef menn em teknir undir áhrifum áfengis. Þegar menn óku um Gullinbrú í Grafarvogi á fóstudagskvöldið stöðvaði lögreglan alla bíla sem þar fóm um. Þegar upp var staðið höfðu á sjöunda hundrað ökumenn rætt við lögregluna. Sumir voru látnir blása i mælitæki en aðeins einn var tekinn grunaður um ölv- unarakstur í öllum þessum hópi. Ástand bílanna var einnig kannað, t.a.m. hvort þeir hefðu verið færðir í aðalskoðun. Lögreglan segir að ökumenn hafi langflestir tekið átakmu vel og oftast hefði bros sést. Á laugardagskvöldið færðu lög- reglumenn sig um set og fóru niður að Sæbraut við Kirkjusand. Þar voru allir stöðvaðir, samtals um 450 ökumenn. Einn reyndist grunaður um ölvun þetta kvöld. Lögreglan mun halda áfram að stöðva öku- menn um helgar í desember, dreifa upplýsingum og kanna ástand þeirra sem em á ferðinni. Um tug- ur lögreglumanna tók þátt i aðgerð- um helgarinnar. -Ótt Sjá einnig bls. 2 Þjófar ráðast á garðinn þar sem síst skyldi: Stolið frá krabbameinssjúkum börnum Brotist var inn á skrifstofu Styrktarfélags krabbamemssjúkra barna aðfaranótt laugardags og það- an stolið tölvubúnaði fyrir mörg hundruð þúsund krónur. Rósa Guð- bjartsdóttir segir þennan þjófnað lama þá fjáröflunarvertíð sem fram undan er, meðal annars jólakorta- sölu. Hún skorar á þá sem hafa tölv- umar undir höndum, Bell-fartölvu og stóra Compaq Pentium, báðar nýlegar, að skila þeim, ekki síst hugbúnaöinum. í tölvunum er mik- ið af gögnum og kemur það sér mjög illa fyrir starfið í kringum fjáröflun til styrkar krabbameinssjúkum bömum - aö missa grundvöllinn fyrir þvi sem fram undan er. Kemur sér illa Tölvuþjófnaöur hjá Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna kemur sér afar illa fyrir félagiö. „Ég vona að þeir sjái aö sér og skili þessu,“ sagði Rósa. Samtökin eru til húsa í Hlíða- smára í Kópavogi. Öryggisverðir komu um 5 mínútum eftir að við- vörunarkerfi fór í gang en þá voru ógæfumennimir, sem þama voru á ferð, á bak og burt. Næstu nótt virðast sömu inn- brotsþjófar hafa verið á ferð. Þá brutust þeir inn í nýtt fyrirtæki, Tölvuvirkni, sem einnig er til húsa í Hlíðasmára. Þar var tölvu- búnaður í kössum sem þjófamir tóku með sér. Ljóst er að tölvur eru vinsælar hjá innbrotsþjófum og þeim sem eru að fjármagna fíkniefnakaup eða greiða skuldir fyrir slík efni. Lögreglan í Kópa- vogi vinnur að rannsókn þessara mála. -Ótt tllboAsverA kr. 2.750,- Merkilega heimilistækiðS Nú er unnt aö "o merkja allt á o heimilinu, kökubauka, spólur, skóla- Rafport STT Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport i Q_ Sjálfvirk slökkvitæki fyrír sjónvörp Síml 517-2121 j Auábrekku 2 ■ Kópavogi Innflutnlngur og sala ■ www.hblondal.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.