Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Framburður fyrrum stýrimanns hjá Eimskip sem kom við sögu í „Faxaflóamálinuc
Eg var feginn þeg-
ar ég var handtekinn
- segir að hótað hafi verið að gera börnum hans mein
DV-MYNO HARI
Héraösdómur Reykjavíkur
Ævintýralegt smygmál er nú til meöferöar fyrir dómi og minnir um margt á
reyfara. Máliö er nokkuö flókiö og er dómurinn fjölskipaöur.
„Lögreglumaðurinn sagðist ekki
hafa hitt neinn áður sem hefði ver-
ið feginn að vera handtekinn. Þama
var mér orðið hjartanlega sama um
allt,“ sagði fyrrum stýrimaður á
Mánafossi sem fór um borð í Goða-
foss (nú Skógafoss) seinni hluta
sumars árið 2000 og sótti þangað
pakka sem í voru 10 kíló af hassi.
Maðurinn var að lýsa því fyrir fjöl-
skipuðum héraösdómi í gær hvem-
ig það var að vera handtekinn eftir
taugastríð sem stóð yfir lungann úr
sumrinu. Hann kvaðst hafa verið
tilneyddur að sækja pakkann, hon-
um hefði verið hótað að bömum
hans yrði gert mein ef hann færi
ekki um borð i Goðafoss. Þá hafði sá
skipverji sem tók að sér að flytja
pakkann með skipinu til landsins,
háseti, gengiö úr skaftinu. Reyndar
hafði skipið farið nokkrar ferðir til
og frá landinu með efnin falin í
kassa fyrir gámaskó fremst í skip-
inu. Á því tímabili hafði stýrimað-
urinn farið ferðir út á land með ein-
um höfuðpaumum í innflutnings-
málinu til að reyna að komast um
borð. Á meðan fylgdist fikniefnalög-
reglan með svo vikum skipti. Sam-
tals era níu menn dregnir fyrir dóm
í málinu þar sem ákært er á ýmsan
hátt fyrir innflutning á samtals tæp-
um 25 kílóum af hassi í þremur
ferðum, þeirri fyrstu með flugvél til
landsins.
Börnum hótað
„Ég vissi að lögreglan væri að
fylgjast með mér. Það geröist strax
frá fyrsta degi,“ sagði stýrimaður-
inn. Þar átti hann við að hann hafði
hent öðrum pakka, einnig með 10
kílóum af hassi, í sjóinn norður af
Engey þegar Mánafoss, þar sem
hann var stýrimaður, var að sigla
inn til Sundahafnar í lok júlí þetta
sumar. Efnin höfðu komið um borð
í Rotterdam en þar var meintur höf-
uöpaur, íslendingur, búsettur og út-
vegaði hann efnin. Stýrimaðurinn
sagðist hins vegar hafa verið dreg-
inn inn í Goðafossmálið með hótun-
um. Auk þess hefði hann verið beitt-
ur miklum þrýstingi þar sem á þess-
um tíma höfðu verið farnir tugir ár-
angurslausra köfunarferða norður
fyrir Engey til að freista þess að ná
efnunum upp sem hann hafði sjálf-
ur kastað í sjóinn.
Hásetinn á Goðafossi (nú Skóga-
fossi) lýsti fyrir dóminum að hann
hefði verið fenginn til að taka með
1-3 kíló af hassi til landsins frá Rott-
erdam - „meira í gamni en alvöru",
eins og hann orðaði það. Maðurinn
sagðist telja að algengt væri að
menn tækju 10 til 20 prósent af and-
virði fíkniefna fyrir flutning sem
þennan. Hann kvaðst hafa verið í
verslunarfríi í Rotterdam þegar
hann hitti íslending, höfuðpaurinn,
sem afhenti honum tvo pakka - ekki
einn. Þá hafði annar skipuleggjandi,
sem var á íslandi, nefnt við hann að
flytja efni. Hásetinn kvaðst hafa sett
pakkana i umbúðir utan af leikföng-
um og þannig farið með efnin um
borð þannig að grunsemdir vökn-
uðu ekki hjá skipsfélögunum. Mað-
urinn kvaðst
reyndar hafa
talið að hann
hefði verið með
meira en umtöluð 1 til 3 kíló upp-
haflega og ágreiningur skapast við
íslendinginn ytra út af þvi. Við svo
búið hefði hann falið efnin í káetu
sinni i fyrstu en siðan i kassanum
undir gámaskóna fremst í skipinu.
Maðurinn lýsti því að lögreglan
hefði leitað um borð í skipinu en þá
hefði hann helst viljað henda þeim í
sjóinn. Það hefði hann ekki þorað af
ótta viö eigenduma sem hann vissi
ekki deili á.
Eftir að komið var tO íslands fór
maðurinn í frí en efnin urðu eftir
um borð. Hann kvaðst hafa farið á
ísfisktogara og síðan farið á fund
þar sem handsalað var að hann yrði
laus allra mála af hálfu skipuleggj-
enda ef hann segði framangreindum
stýrimanni
hvar efnin væri
að finna. Þá var
skipið löngu
farið aftur úr landi með efnin um
borð. Þegar stýrimaðurinn hafði svo
sætt lagi og náð efnunum hér heima
var hann handtekinn. Sat þá háset-
inn í tvo mánuði í gæsluvarðhaldi
og hafði þá bæði veriö rekinn frá
Eimskip og Granda.
„Stelpa meö tösku“
Segja má að tveir höfuðpaurar
séu í málinu - annar sem býr hér á
íslandi en hinn hefur búiö í
Hollandi um árabil. Leikin voru
símtöl þeirra fyrir dóminum í gær
sem fikniefnalögreglan hleraði. Var
þaö m.a. vegna ákæru á hendur
þeim fyrir að hafa staðið að inn-
flutningi á rúmum 4 kílóum af
hassi, fyrst framangreint sumar.
Mennimir viðurkenna báðir brot
sín greiðlega. Þeir fengu þriðja aðil-
ann til að flytja efnin með sér í flug-
vél til íslands en hann hefur þegar
fengið dóm fyrir það brot.
í símtölum þessara tveggja skipu-
leggjenda kom m.a. fram að þeir
ræddu einnig um að fá „stelpu með
tösku“ til að flytja fyrir sig efni með
flugvél til íslands - hún gæti tekið
mun meira. Af því varð þó ekki.
Hollandsmaðurinn er í farbanni
hér á landi. Réttarhöldin halda
áfram í dag en þeim lýkur á morg-
un, fostudag.
Ottar Sveínsson blaöamaöur
Formaður VR:
Erum búin að
sjá botninn
„Það hafa riðið yfir okkur nokkur
stór áfóll á undanfómum mánuðum,
uppsagnir á stórum vinnustöðum sem
vissulega virka illa á okkur í VR. Þó tel
ég að við höfum séð botninn í þessari
uppsagnahrinu og að stórar uppsagnir
komi ekki í þeim gusum sem komið
hafa undanfarið," sagði Gunnar Páll
Pálsson, formaður Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur, í gær.
„Þrátt fyrir allt eru nokkur góð teikn
á lofti. Ég vil nefna að vanskil fyrir-
tækja við okkur hafa ekki aukist. Enn
fremur að núna eru 200 færri atvinnu-
lausir en voru i júlí í sumar. Þá vom
1.577 atvinnulausir en 1.362 núna, þar af
eru 847 félagar í VR. Út frá þessu leyfum
við okkur að vera bjartsýn um framtíð-
ina þrátt fyrir allt," sagði Gunnar.
VR er stærsta verkalýðsfélag lands-
ins með um 20 þúsund félaga. Stétt
verslunarfólks er Qölmenn og við upp-
sagnir í fyrirtækjum er hópur VR-fólks
oft Qölmennastur. Meðal stóra áfallanna
undanfarið era uppsagnir Íslandssíma,
íslenskrar erfðagreiningar, Samvinnu-
ferða, Netverks og Töltheima.
Af 76 starfsmönnum Islandssíma,
sem sagt var upp í fyrradag, era rúm-
lega 60 manns úr VR. -JSS
Mál einstæðu móðurinnar hafa snúist til betri vegar:
Mæðginin hafa húsnæði
fram yfir hátíðarnar
- Viktoría hyggst opna athvarf fyrir einstæða, illa stadda foreldra
„Ég fæ að vera í íbúðinni fram
yfir jól og áramót, en þá þarf ég að
finna annað húsnæði," sagði unga,
einstæða móðirin, Viktoría Jónas-
dóttir, sem DV ræddi viö á dögun-
um, í gær. Eins og fram kom í DV í
síðustu viku býr Viktoría, sem er 22
ára, ásamt 4 ára syni sínum í kjall-
araíbúð í Safamýri. Þegar blaðið tók
viðtalið við hana virtust henni öll
sund lokuð. Hún kom úr meðferð í
sumar, var komin út á vinnumark-
aðinn en lenti þá í slæmum veikind-
um. Hún gat ekki lengur greitt
húsaleiguna, sem er 70 þúsund á
mánuði, né leikskólann fyrir soninn
Theodór. Hún átti aö fara úr íbúð-
inni um mánaöamótin. Hún hafði
beðið um hjálp hjá Félagsþjónust-
unni. Hún hafði fengið mat og fatn-
að hjá Mæðrastyrksnefnd. Það leit
út fyrir að hún yrði húsnæðislaus
um jólin þar sem aðstæður fjöl-
skyldu hennar eru með þeim hætti
að þangað gat hún ekki flutt. En
með góðri hjálp samborgara og fé-
lagsþjónustu hefur dæmið snúist
við.
Viðtalið vakti gífurleg viðbrögð
og fjöldi lesenda hringdi á ritstjóm
til að bjóða fram aðstoð í einhverri
mynd, sumir peninga, aðrir mat,
enn aðrir herbergi fyrir mæðginin
svo þau lentu ekki á götunni. Fjöldi
DV-MYND ÞÖK
Betri horfur
Theodór byrjaöi aftur í leikskólanum
í dag. Viktoría leitar enn húsnæöis
en horfurnar eru betri en áöur.
fólks hringdi einnig í Viktoríu í
sömu erindum. Fólk sem hún hafði
aldrei séð færði henni poka fulla af
matvælum, veitti henni ráðlegging-
ar og bauð henni aUa þá aðstoð sem
það gæti látið af hendi. Hún fékk
meir að segja senda miða á Harry
Potter-myndina og gat farið með son
sinn í bíó um helgina.
„Tilgangurinn með viðtalinu var
fyrst og síðast að standa upp og vekja
athygli á aðstæðum einstæðra for-
eldra sem lenda í sömu aðstöðu og
ég,“ sagði hún við DV í gær. „En það
er yndislega góð tilfinning að vita að
þarna úti er fullt af fólki sem vill gera
allt til þess að hjálpa manni. Það hef-
ur gefið mér aukna von og vakið hjá
mér löngun til þess að hjálpa öðrum
sem eru nú jafn vonlausir og ég var
orðin í síöasta mánuði."
Viktoría leitar nú aö húsnæði
sem stendur autt og ónotað. Þar
hyggst hún búa ásamt a.m.k. einni
annarri einstæðri móður sem ekki
ræður viö að vera á húsaleigumark-
aðnum. Viktoría ætlar aö setja upp
fundaaðstöðu fyrir einstæða for-
eldra, sem hafa farið í vímuefna-
meöferð og eru illa á vegir staddir.
Hún hefur þegar fengið til liös við
sig ráðgjafa sem er jafnframt trún-
aðarmaður hennar eftir hennar eig-
in meðferð. Hún sagði að hópur
fólks væri tilbúinn til að aðstoða sig
í þessum efnum.
„Það er svo algengt að fólk falli út
af áhyggjum af því að geta ekki
haldið heimili fyrir sig og sína,“
sagði hún. „Þetta er verkefnið mitt
og mig langar til að hjálpa þeim sem
eiga við vanlíðan að stríða sem ég
þekki af eigin raun.“ -JSS
Vilja 500 milljónir í Sement
Þingmennimir Árni Steinar Jó-
hannsson og Jón Bjarnason vilja að
ríkissjóði verði
heimilað í fjár-
lögum fyrir
næsta ár að auka
hlutafé Sements-
verksmiöjunnar
á Akranesi um
allt að 500 miRj-
ónir króna. í
greinargerð með
breytingartillögu
þeirra við fjár-
lagaframvarpið,
sem lögð var fram á Alþingi í gær,
segir að tilgangurinn sé að vinna
tíma til að gera áætlun um framtíð-
arstöðu fyrirtækisins. Tap verk-
smiðjunnar í fyrra hafi numið tæp-
um 230 milljónum króna og það geti
orðiö annað eins á þessu ári. Slæm
staða sé afleiðing samkeppni og því
hafi verið haldið fram að innflytj-
andi hafi beitt undirboðum undan-
farin tvö ár, segir í greinargerð með
tUlögunni.
1,7 í afgang án eignasölu
Tekjuafgangur rikissjóðs á þessu
ári verður 16,9 mUljarðar króna
samkvæmt nýjum tUlögum meiri-
hluta fjárlaganefndar vegna af-
greiðslu fjáraukalaga. Að frádregn-
um hagnaði af sölu ríkisfyrirtækja
verður tekjuafgangurinn 1,7 mUlj-
arðar. Hefur þá verið tekið tUlit tU
ýmissa nýrra útgjalda sem lagt er tU
að verði heimUuð á þessu ári og
vegur þyngst 410 milljóna króna
viðbótarframlag í Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga vegna nýgerðs sam-
komulags rikis og sveitarfélaga. í
fjárlögum ársins var stefnt að því að
tekjuafgangur yrði 18,5 mUljarðar
eða 3 mUljarðar án hagnaðar af sölu
ríkisfyrirtækja.
200 milljónir í álver
Undirbúningur að byggingu ál-
vers í Reyðarfirði hefur kostað rík-
issjóð rétt tæpar 200 mUljónir króna
samtals frá 1997. Þetta kemur fram í
skriflegu svari Valgerðar Sverris-
dóttur iðnaðarráðherra viö fyrir-
spurn Kolbrúnar HaUdórsdóttur en
jafnframt er tekið fram að hluti
kostnaðarins fáist endurgreiddur ef
tU framkvæmdanna kemur.
Margir á hjúkrunarheimilum
Mun hærra hlutfaU eldra fólks
býr á öldrunarstofnunum á íslandi
en annars staðar á Norðurlöndum.
Þetta kom fram í svari Jóns Krist-
jánssonar heUbrigðisráðherra við
fyrirspum Ástu Möller á Alþingi í
gær. Ásta sagði ljóst að flestir kysu
að vera heima hjá sér eins lengi og
kostur væri; þær óskir væru byggð-
ar á fjárhagslegum, félagslegum og
heUsufarslegum sjónarmiðum. Jón
Kristjánsson tók undir að leita
þyrfti nýrra leiða og taldi nokkuð
samhljóma álit að aukin heimaþjón-
usta gæti bætt þennan vanda að ein-
hverju leyti.
Starfshópur um eyrnasuð
Starfshópur á vegum landlæknis-
embættisins leggur tU að stofnuð
verði göngudeUd hjá Heyrnar- og
talmeinastöð ís-
lands fyrir þá
sem þjást af
eymasuði. Jón
Kristjánsson heU-
brigðisráöherra
sagði í svari við
fyrirspum Þuríð-
ar Backman á Al-
þingi í gær að
ætla mætti að á
þriðja tug íslend-
inga þjáðust af
eymasuði. Um er að ræða suð sem
dynur í eyrum einstaklings aUan
sólarhringinn, aUt frá vægu hvísli
upp í óþolandi hávaða. Jón sagði að
engin lyfjameðferð hefði borið af-
gerandi árangur við eymasuði, það
væri í raun ólæknandi, en tilraunir
væra gerðar með dáleiðslu og slök-
un. -ÓTG
Jón
Kristjánsson.
Jón
Bjarnason.