Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Side 7
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002
7
DV
Fréttir
Eldavél með blástursofnl,
undir- og yfirhita ásamt grilli
og grillmótor. Geymsluskúffa. HxBxD:
85x49,5x60 cm
Innbyggður ofn með
1 helluborði. Fullkominn
fjölkerfa blástursofn með undir- og yfirhita
ásamt grilli og grillmótor.
Innbyggður veggofn með
i keramik helluborði.
Fullkoiminn fiölkerfa blástursofn með undir-
og yfirhita ásamt grilli og grillmótor.
Téhn
hraðsuðuhellur.
Helluborð með fjórum
hellum þ.á.m. tvær
STveggja hellu eldavél með
góðum ofni sem m.a. býður
uppá grill, undir- og yfirhita. Timaklukka
og Ijós i ofni.
Opið virka daga 9.00-18.00 og laugandaga 10.00-16.00
Suðurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Sími 5880500
Miðstöð smáríkjarannsókna stofnuð:
„Mikilvægt aö ísland líti á sig
sem jafningja annarra þjóða"
- segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
Rektor Háskóla Islands, utanríkisráð-
herra og formaður Samtaka iðnaðarins
undirrituðu í gær samstarfssamning
um stjóm og starfsemi Alþjóðamála-
stofnunar og Rannsóknarseturs um
smáriki við Háskóla íslands. Þessir aðil-
ar auk Samtaka atvinnulífsins eiga sæti
í stjóm Alþjóðamálastofnunar sem
heyrir undir háskólaráð Háskóla ís-
lands.
Ný Alþjóðamálastofnun
Alþjóðamálastofnun Háskóla íslands
er rannsóknar-, fræðslu- og þjónustu-
stofnun. Rannsóknarsetur um smáriki
starfar innan hennar. Alþjóðamálastofn-
un er vettvangur fyrir þverfaglegt sam-
starf á sviði alþjóðamála og smáríkja-
rannsókna. Utanríkisráðuneytið, Sam-
tök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins
eiga aðild að stofnuninni. Auk inn-
lendra aðila taka yfir sextíu erlendir
fræðimenn þátt í starfi stofhunarinnar
og em þeir víða að úr Evrópu og Norð-
ur-Ameríku. Undirbúningur að stofnun
rannsóknarseturs um smáríki hófst
haustið 2001 að frumkvæði Baldurs Þór-
hallssonar, dósents i stjómmálafræði.
Utanrikisráðherra sagði það afar
mikilvægt að stofnuð hefði verið Al-
þjóðamálastofhun við Háskóla íslands
nú þegar miklar breytingar eigi sér stað
á sviði alþjóðamála og staða íslands
þurfi að vera í stöðugri endurskoðun.
Vitað sé um breytingamar i Evrópu-
sambandinu, Atlantshafsbandalaginu
og á sviði alþjóðavæðingar.
Önnur sýn smáríkjanna
- Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, hefur lýst yfir áhuga sínum á
að stofnanir Sameinuðu þjóðanna vinni
með rannséknarsetrinu að rannsóknum
á smáríkjum. Er athygli Sameinuðu
þjóðanna meira að beinast að smáríkj-
um?
„Það er mikilvægast fyrir íslendinga
að lita á sig sem jafningja annarra þjóða
í heiminum. Það hefur reynst okkur far-
sælt í Atlantshafsbandalaginu og Sam-
einuðu þjóðunum. En smærri riki hafa
aðra sýn og aðra reynslu og mörg hver
mikinn styrk í alþjóðasamfélaginu en
við megum ekki líta á smærri riki sem
einhverja sérstaka einingu. Styrkurinn
felst í því að vera jafhingi annarra þjóða
í alþjóðasamstarfmu. í samstarfi okkar
við stærstu þjóð í heimi, Kina, hafa þeir
ítrekað að þeir starfi með okkur með
sama hætti og öðrum þjóðum. Við erum
ekki haldin minnimáttarkennd og engin
ástæða til þess að halda því fram að við
séum lítil þjóð. Við höfum oft verið í for-
ystu, t.d. í hafréttarmálum. Það er hrein
undantekning ef við höfum verið að líta
niður til smærri þjóða en íslendingar.
Ég ber t.d. mikla virðingu fyrir vinum
okkar, Færéyingum," segir Halldór Ás-
grímsson.
Baldur Þórhallsson dósent segir að til
standi að endurútgefa þá kenn-
19 dagar til jóla
Þaö styttist í gjafírnar og Telma litla
Rut er eins og aörir krakkar á
hennar reki komin í svolítiö
jótaskap. Myndin er tekin í
Biómavali þar sem litlir karlar vekja
forvitni smáfölksins.
ingarramma sem gerðir hafa verið um
hegðum smærri rikja í alþjóðasamstarfi
enda hafi verið mikil eftirspum eftir
því. Gefm verður út ritröð þar sem sér-
staklega verður skoðuð staða smærri
rikja og hegðum í samfélagi þjóða.
Styrkur hefur fengist frá Evrópusam-
bandinu til að reka sumarskóla um
smáríki í alþjóðakerfmu og það munu
sækja um 30 erlendir stúdentar auk 10
erlendra fræðimanna og fyrirlesara.
Vaxandi áhugi sé meðal fræðimanna á
að sinna rannsóknum á stöðu smærri
þjóðfélaga og sérstöðu og hvað þau hafi
fram að færa. Frábært sé að hittast i
einu smáríkinu, í miðju Atlantshafmu, í
ríki sem stendur mjög vel að vígi í upp-
byggingu. -GG
Rannsóknarsetur um smáríki oröiö aö veruleika
Samstarfssamningur um stjórn og starfsemi Alþjóðamálastofnunar og Rann-
sóknarseturs um smáríki viö Háskóla íslands undirritaður í gær af Halldóri
Ásgrímssyni utanríkisráöherra, Páli Skúlasyni háskóiarektor og Vilmundi Jós-
efssyni, formanni Samtaka iönaöarins, í fundarherbergi háskóiaráös.
WúW-
Frábær eldavél með undir- og yfirhita
ásamt grilli. Stór og rúmgóður bökunarofn.
Fjórar hellur og p.á.m. hraösuðuhella. Rúmgott
geymsluhólf fyrir fylgihluti. HxBxD: 85x59,5x60 cm.
Aðeins 50 cm breið eldavél með undir-
og yfirhita ásamt grilli. Fjórar hellur p.á.m.
hraðsuðuhella. Geymsluhólf fyrir fylgihluti.
HxBxD: 85x49,5x60 cm.
Vönduð eldavél með
keramik helluborði, fjölkerfa
blástursofni, grilli og grillmótor. Stór og
rúmgóður ofn. HxBxD: 85x59,5x60 cm
Veggofn með fjölvirkum
ÉA . blástursofni, undir- og
yfirhita ásamt grilli og grillmótor.