Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Page 9
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 9 Uppsagnahrina á höfuðborgarsvæðinu n>v HEILDARVIÐSKIPTI 4.112 m.kr. Hlutabréf 1.487 m. kr. Húsbréf 1.207 m. kr. MEST VIÐSKIPTI 0 Sæplast 592 m. kr. 0 Flugleiðir 260 m. kr. ©Jarðboranir 234 m. kr. MESTA HÆKKUN 0 Sæplast 21,9% 0 Íslandssími 5,0% © Rugleiðir 2,0% MESTA LÆKKUN 0 íshug 2,9% 0 Líf 1,9% 0 Baugur 1,0% ÚRVALSVÍSITALAN 1.321 - Breyting 00,13% Gengi krónunnar stöðugt um þessar mundir Gengi krónunnar hefur verið nokkuð stöðugt að undanfórnu og hefur flökt hennar ekki verið jafn lítið síðan krón- an var sett á flot i upphafl árs 2001. Litl- um viðskiptahalla og kaupum innlendra aðila á erlendum verðbréfum hefur ver- ið mætt með fjárfestingum erlendra að- ila hér á landi og erlendum lántökum. Greining íslandsbanka væntir þess að litlar breytingar verði á þessu á næst- unni og að verðgildi krónunnar verði nálægt núverandi gildi í lok árs. Stórar ákvarðanir eru hins vegar fram undan á næstu vikum og mánuðum varðandi hugsanlegar stóriðjuframkvæmdir. Þessar ákvarðanir munu eflaust kalla á breytingar á verðgildi krónunnar. ís- landsbanki spáir því að krónan auki verðgildi sitt á næsta ári, meðal annars vegna vaxandi umsvifa i efnahagslífmu og flárfestinga erlendra aðila hér á landi. 500 milljóna afgangur Frumvarp að fjárhagsáætlun Akur- eyrarbæjar fyrir árið 2003 hefur verið afgreitt í fyrri umræðu í bæjarstjóm. Heildartekjur Akureyrarbæjar verða tæpir 7,9 milljarðar króna en heildar- gjöld rétt um 7,4 mUljarðar skv. sam- stæðureikningi. Veltuíárhlutfall sam- stæðureiknings er 1,09 og eiginfjárhlut- fall er 40%. Gert er því ráð fyrir um 500 milljóna króna afgangi. í frétt frá Akureyrarbæ kemur íram að í fjárhagsáætlun ársins 2003 er áfram gert ráð fyrir miklum Qárfestingum í grunngerð samfélagsins og er það í sam- ræmi við málefnasamning meirihiuta- flokkanna. Samkvæmt framkvæmdayfirliti Ak- ureyrarbæjar eru framkvæmdir A-hluta rúmir 1,4 milljarðar. Þar af eru 220 milljónir vegna öldrunarþjónustu, rúm- ar 500 milljónir vegna fræðslu- og upp- eldismála, 250 milljónir vegna menning- armála og 268 milljónir vegna æskulýðs- og íþróttamála. I B-hluta eru 685 milljón- ir áætlaðar til framkvæmda og munar þar mest um framkvæmdir á vegum Norðurorku fyrir tæpar 400 milljónir og Fráveitu Akureyrarbæjar fyrir rúmar 100 milljónir. Skatttekjur aðalsjóðs eru áætlaðar tæpir 3,5 milljarðar lúóna og framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 360 milljónir. Aðrar tekjur Akureyrarbæjar eru rúmir 4 milljarðar skv. samstæðu- reikningi. Yfirverð á húsbréfum Sparisjóður Hafnarfiarðar gerir ráð fyrir að á næsta ári skapist aðstæður til yfirverðs í stað affalla á húsbréfum. Greiningardeild Sparisjóðs Hafnar- fjarðar telur að í Ijósi þess að áhrif stór- iðjuframkvæmda koma ekki strax fram í efnahagslífinu séu litlar blikur á lofti um að vextir hækki á ný á næsta ári. Líklegra er að slíkar framkvæmdir ein- faldlega haldi aftur af áframhaldandi hr- inu vaxtahækkana. Áhrifa stóriðju gæti farið að gæta eftir nokkur misseri og hækkað vaxtastig aftur. Þar sem meiri óvissa ríkir um vaxtahorfur eftir árið 2003 en nú er viðbúið að ávöxtunarkrafa til bréfa með lengri gildistíma lækki minna en skuldabréfa með styttri gildis- tíma. Því er viðbúið að kúrfan á ávöxt- unarkröfu húsbréfa hallist upp á við. Þar sem verðbólguálag á óverðtryggðum rikisbréfum er komið á svipaðar slóðir og verðbólgumarkmið Seðlabankans, eða um 2,5%, er líklegt að ávöxtunarkrafa verðtryggðra skuldabréfa hreyfist í svip- uðum takti og óverðtryggð skuldabréf. Vegna þess geta skapast aðstæður til yfir- verðs í stað afalla á húsbréfúm. Síðustu daga hefur nokkuð borið á fiöldauppsögnum hjá fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir skömmu var tilkynnt um uppsagnir 33 starfs- manna hjá Heklu hf. og á þriðjudag var tilkynnt um uppsagnir 76 starfsmanna hjá Íslandssíma hf. og Tali hf. auk þess sem AcoTæknival sagði upp 10 starfs- mönnum. Hjá þessum þremur fyrir- tækjum hafa því alls 119 starfsmenn misst vinnuna á skömmum tíma. Þessar uppsagnir bætast við versn- andi atvinnuástand á höfuðborgar- svæðinu. Atvinnuleysi hefúr verið að aukast á landinu öllu og mældist í októ- ber 2,5%, en 2,8% á höfuðborgarsvæð- inu. Það jafngildir því að í október hafi að jafnaði um 2.500 manns verið at- vinnulausir á höfuðborgarsvæðinu. Á landinu öllu var atvinnuleysið í októ- ber sl. um það bil tvöfalt meira en í október fyrir ári. Þá var aukning at- vinnuleysis milli októbermánaðar og septembermánaðar mun meiri en með- altalsaukning síðustu ára. Atvinnuástandið versnar iðulega í nóvember miðað við október. Sam- kvæmt upplýsingum frá Vinnumála- stofnun hefúr atvinnuleysi aukist að meðaltali um 9,5% frá október til nóv- ember ef litið er til síðustu tíu ára. Vinnumálastofhun telur því líklegt að atvinnuleysið í nóvember aukist og verði á bilinu 2,7% til 3,0%. Uppsagna- hrinan á höfuðborgarsvæðinu siðustu daga gefur svo tilefrii til að ætla að þró- unin muni áfram vera á þann veg að atvinnuleysi aukist eftir því sem líður á veturinn. ________________Viðskipti Umsjón: Viðskiptablaöid Hausaþurrkunarlínur til Laugafisks Laugafiskur og Skaginn hafa gengið frá samningi sem felur í sér að Skaginn muni framleiða vinnslulínu sem geti nýst til hausaþurrkunar fyrir verk- smiðju Laugafisks á Akranesi. Það sem af er árinu hefur Skaginn þegar sett upp tvær slíkar vinnslulínur til að þurrka þorskhausa í tveimur verksmiðjum Laugafisks. Fyrsta vinnslulínan var sett upp í verksmiðju í Færeyjum sem er að hluta til i eigu Laugafisks. Hin vinnslulínan er í verk- smiðju félagsins að Laugum. Laugafisk- ur er um þessar mundir að reisa nýja verksmiðju á Akranesi og eins og áður sagði verður sett upp slík vinnslulína frá Skaganum þar. Ætlunin er að taka verksmiðjuna i notkun í febrúar 2003. SÉDOGHEYRT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.