Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Side 11
ETMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 11 DV Útlönd Kosningabaráttan hafin í ísrael: Sharon styður tillögur Bush um stofnun palestínsks ríkis - lofar ad leggja málið fyrir þingið fái hann til þess stuðning í kosningunum Ariel Sharon, forsætisráðherra Israels, sem nýlega var endurkjör- inn leiðtogi Likud-bandalagsins, sagöist í gær styðja tiliögur Bush Bandaríkjaforseta um stofnun pal- estínsks ríkis í kjölfar væntanlegra umbóta og uppstokkunar í palest- ínsku heimastjóminni. Tillögumar, sem Bush lagði fram fyrr á árinu, gera ráð fyrir stofnun palestínsks ríkis innan hluta Vest- urbakkans og Gaza-svæðins með tímabundnum landamærum tO bráðabirgða frá og með næsta ári en varanlegum frá árinu 2005. Sharon sagðist þó setja þau skil- yrði fyrir stuðningi sínum að endi yrði fyrst bundinn á ófriðinn og hryðjuverkin og umframt allt að palestínsku öryggissveitimar yrðu leystar upp. Hann gerir sem fyrr einnig þá kröfu að Yasser Arafat hverfi frá völdum. Þetta kom fram i ræði Sharons á ráðstefnu sem haldin var í nágrenni Ariel Sharon í kosningaham Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, sagðist í gær styðja tiilögur Bush Bandaríkjaforseta um stofnun palestínsks ríkis í kjölfar væntanlegra umbóta og uppstokkunar í palestínsku heimastjórninni, fái hann til þess stuðning. Tel Aviv í gær og hét hann því jafn- framt að leggja væntanlegar friðar- tiilögur fyrir ísraelska þingið til samþykktar strax eftir kosningar, fái hann til þess stuðning þjóðarinn- ar í kosningunum eins og fastlega er búist við. Þegar Sharon var spurður um nánari útfærslu á hugmyndum sín- um um palestínskt ríki sagðist hann sjá fyrir sér að íraelsmenn myndu fallast á að það næði yflr hluta af Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum með fullri öryggisábyrgð Palestínu- manna eða að hluta til eftir atvikum og átti þá við að íraelar færa með öryggisgæslu á ákveðnum svæðum sem að mestu væru byggð gyðing- um. „Palestína yrði lýst vopnlaust svæði en yrði leyfilegt að halda úti léttvopnuðum löggæslusveitum. ísraelar færu með landamæragæslu og loftferðaeftirlit," sagði Sharon sem kallar hugmyndir sinar raun- sæjar og framkvæmanlegar. REUTERS-MYND Gerhard Schröder Þýskalandskanslari tekur beiðni Tyrkja um inngöngu í ESB ekki fjarri. Frakkar og Þjóð- verjar jákvæðir Gerhard Schröder Þýskalands- kanslari sagði í gær að Þjóðverjar og Frakkar myndu taka sameigin- lega og jákvæða afstöðu til beiðni Tyrklands um inngöngu í Evrópu- sambandið þegar leiðtogar þess koma saman tU fundar í Kaup- mannahöfn í næstu viku. Schröder og Jacques Chirac Frakklandsforseti urðu ásáttir um það á fundi sínum í gær að sam- ræma afstöðu sína á fundinum tU allra annarra mála sem snerta fyrir- hugaða stækkun Evrópusambands- ins tU austurs. REUTERS-MYND Bændur vilja betri skilmála Nokkur þúsund tékkneskir bændur efndu til mótmælaaðgerða í höfuðborginni Prag í gær þar sem þeir kröfðust betri inngönguskilmála áður en Tékkland gengur í Evrópusambandið á árinu 2004. Þeim var greinilega heitt í hamsi. Allt með kyrrum kjörum í Dili í morgun: Mörg fyrirtæki eru lokuð og gæsluliðar SÞ á hverju horni Allt var með kyrrum kjörum í DUi, höfuðborg Austur-Tímors, í morgim eftir blóðug uppþot náms- manna þar í gær. Mörg fyrirtæki voru hins vegar lokuð í morgun og friðargæsluliðar Sameinuðu þjóð- anna voru um aUt. Átökin í gær voru þau alvarleg- ustu sem hafa orðið á Austur-Tímor frá því landið fékk sjálfstæði fyrr á árinu og þykja mikið áfaU fyrir tU- raunir manna tU að koma þar á frið- samlegu lýðræðisskipulagi. Sumir sjónarvottar sögðu að þrir tU fimm menn hefðu látið lífið í uppþotunum í gær en SÞ og stjórn- völd í DUi segja að aðeins einn mað- ur hafi látist. Nokkrar byggingar, þar á meðal heimUi forsætisráðherra landsins, urðu brennuvörgum eða skemmdar- vörgum að bráð og rafmagnslaust REUTERS-MYND Óeirðlr í Dili Mótmælendur kveiktu í stolnum varningi á götum Dili á Austur-Tímor í miklum ólátum þar í gær. var í sumum hverfum borgarinnar í morgun. Caroline O’Brien, starfsmaður ut- anríkisráðuneytis Austur-Tímors, sagði fréttamanni Reuters á staðn- um að fimm lögregluþjónar og einn þingmaður hefðu særst. Hún hafði ekki á reiðum höndum fjölda særðra meðal mótmælendanna. Ólætin upphófust þegar um fimm hundruð námsmenn lentu í átökum við lögreglu þegar efnt var til göngu til að mótmæla handtöku lögregl- unnar á námsmanni daginn áður. Sjónarvottur sagði að mikil reiði heíði brotist út í hópnum eftir að lögreglan skaut einn göngumanna. O’Brien sagði aftur á móti að gangan hefði farið friðsamlega fram til að byrja með en ólætin hefðu brotist út eftir að annar hópur slóst í för og tók að kasta grjóti. VE I Q I K LÆ R VEIQI-MATARGERQ-NÁTTÚRA Jólagjöf matgœðingsins Myndbandsspólan VEIÐIKLÆR Fæst í Hagkaupum, Esso og betri veiöibúöum. “áhorfandinn ærist um stund af matarlöngun" Sæbjörn Valdimarsson mbl. 31.10.02 575 1230 Opið mnn-fös 09-18 og lau 10-16 Grjóthálsi 1 bilaland.is UPPB0Ð Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Dalsel 36, 0102, Reykjavík, þingl. eig. Björn Stefánsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, mánudaginn 9. desember 2002 kl. 15.00.____________________ Fluggarðar 29C, flugskýli nr. 29C, Reykjavík, þingl. eig. Ragnar J. Magn- ússon, gerðarbeiðandi SP Fjármögnun hf., mánudaginn 9. desember 2002 kl. 11.00. Flúðasel 81, Reykjavík, þingl. eig. Hanna Hannesdóttir, Bogi Baldursson, Steinunn Jónsdóttír og Baldur Jó- hannsson, gerðarbeiðendur íbúða- lánasjóður, Sparisjóður Hafnarfjarð- ar, Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis, útibú, og Tollstjóraembættið, mánudaginn 9. desember 2002 kl. 15.30. Hálsasel 10, 50% ehl., ásamt bílskúr Reykjavík, þingl. eig. Friðrik Þór Hall dórsson, gerðarbeiðendur Greiðslu miðlun hf. og Tollstjóraembættið mánudaginn 9. desember 2002 kl 16.00. Hjaltabakki 30, 0301, Reykjavík, þingl. eig. Jóhann Dagur Björnsson, gerðarbeiðendur Hjaltabakki 18-32, húsfélag, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, og Tollstjóraembætt- ið, mánudaginn 9. desember 2002 kl. 14.00. Maríubakki 4, 0302, 50% ehl. Reykja- vík, þingl. eig. Jóhanna Birna Einars- dóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, mánudaginn 9. desember 2002 kl. 13.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.