Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 Skoðun DV Halldór Björnsson, starfsmaóur Hagkaupa: Litla stúlkan meö eldspýturnar, þaö er mjög hugljúf saga. Björg Vlgnlsdóttlr neml: Sagan um Grýlu og Leppalúöa. Þau hræddu mig mjög þegar ég var yngri. Hver er uppáhalds-jólasagan þín? Arnar Friöriksson, starfsmaöur Hagkaupa: Ég er ekki viss. Hrafnhlldur Osk Magnúsdóttir nemi: Gý/a og Leppalúöi. Frumkvöðlar við Skólavörðustíg Einar Örn Stefánsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags mibborgarinnar, skrifar: Þróunarfélag miðborgarinnar veitir árlega viður- kenningu þeim, sem hafa með eftir- tektarverðum hætti lagt lóð sitt á vogarskálar þróun- ar og uppbyggingar í miðborg Reykja- víkur. Þessi viður- kenning var veitt í ellefta sinn 25. nóv- ember sl. Viðurkenning- una hlaut Ófeigur, gullsmiðja og list- munahús, sem hefur eflst og dafnað við Skólavörðustíginn undanfarin tíu ár, en fyrirtækið var stofhað í júlí 1992. Fyrir- tæki við Skólavörðustíg hefur ekki áður fengiö þessa viðurkenningu og var því tími til kominn að hún rataði þangað. Við Skólavörðustíg hafa safnast sam- an fjölmargar litlar og persónulegar listmunaverslanir, skartgripaverslanir og gallerí, þannig að gatan hefur getið sér orð sem helsta og skemmtilegasta listmunagata borgarinnar. Þar hafa hjónin Ófeigur Bjömsson gullsmiður og Hildur Bolladóttir kjólameistari ver- ið í forystu frá upphafi um að efla sam- stöðu og markaðssókn kaupmanna og listiðnaðarmanna við Skólavörðustíg. Á annarri hæð h)á Ófeigi er sýning- arsalur, þar sem haldnar hafa verið á annað hundrað listsýningar á þessum tíu árum. Listaverkin sem þar hafa verið til sýnis eru af ýmsum toga - teikningar, málverk, skartgripir og leð- urvörur. Einkum er þar um að ræða ís- lenska listamenn, en um þriðjungur þehra sem þama hafa sýnt kemur frá öðram löndum. Frumkvöölar við Skólavörðustíg F.v., Sigríöur Helga Olgeirsdóttir leirlistakona, sem hannaöi verölaunagripinn, Hildur Bolladóttir, Ófeigur Björnsson, Bolli Ófeigsson og Jakob H. Magnús- son, formaöur Þróunarféiags miöborgarinnar. „Við Skólavörðustíg hafa safn- ast saman fjölmargar litlar og persónulegar listmunaverslan- ir, skartgripaverslanir oggall- erí, þannig að gatan hefurget- ið sér orð sem helsta og skemmtilegasta listmunagata borgarinnar.“ Gullsmiðja og listiðnaðarhús er á neðri hæðinni og íbúð fjölskyldunnar á efri hæð. Ekki má gleyma garðinum sem tengist húsinu, en hann er afar smekklega hannaður. Þar hafa verið haldnar útisýningar á skúlptúr og höggmyndum og tónlist hefur verið flutt í garðinum, ekki síst í tengslum við menningamótt í Reykjavík. Guilsmiðja og listmunahús Ófeigs er sannkallað fjölskylduf>TÍrtæki, því Bolli, sonur Ófeigs og Hildar, er einnig gullsmiður og starfar í fyrirtækinu. Gullsmiðju Ófeigs hefúr vaxið fiskur um hrygg á þeim tíu árum sem hún hefúr starfað. Fyrirtækið hefur líka virkað hvetjandi á aðra, þannig að list- húsum hefur farið fjölgandi við Skóla- vörðustíg á undanfómum árum. Vonandi halda Ófeigur og fjölskylda áfram um langa hrið að glæða lífið list og fegurð, um leið og nýr og betri Skólavörðustígur færir þeim og öðrum listamönnum sem þar starfa enn fleiri og ánægðari viðskiptavini. María Stefánsdóttir nemi: Litla stúlkan meö eldspýturnar. Ragnhlldur Guðmundsdóttir neml: Ekki viss. Fátæktin og lágar atvinnuleysisbætur J.M.G. skrífar: Félagsmálaráðherra segir í blaðavið- tali 15. nóv. sl. að yfir 4000 einstaklingar hafi fengið ókeypis fjármálaráðgjöf. Hann gleymir því hins vegar að fátækt- in stafar m.a. af lágum atvinnuleysisbót- um sem hann sjálfur er í forsvari fyrir að ákveða. Fátækt fólk þarf meiri tekjur en ekki „ráðgjöf1. Ráðgjöfm er hins veg- ar rekin fyrir þá sem vinna við hana og viija setja sig á háan hest yfir aðra. Það er hollt fyrir bændur m.a. að leiða hugann að jpví að ef atvinnuleys- isbætur hækkuðu myndu landbúnaðar- vörur þeirra seljast meira og hagur „Fátœkt fólk þarf meiri tekjur en ekki „ráðgjöf“. Ráðgjöfin er hins vegar rek- in fyrir þá sem vinna við hana og vilja setja sig á háan hest yfir aðra. “ bænda batna þar með. Eftir tíu vikna atvinnuleysi á fólk að gera starfsleitaráætlun, annars fær það ekki bætumar. Og félagsmálaráðherra segir í viðtali við DV að kerfið hafi sannað sig. En auðvitað hefði þetta fólk fengið atvinnu hvort sem er. Svona reglur era aðeins fingur- klemmur á atvinnulausa og átaksverk- efnin era það líka. Atvinnulaust fólk á ekki að þurfa að vinna fyrir bótunum sem það á. Fólk á ekki að þurfa að vinna tvisvar fyrir sömu peningunum. Jafnréttisnefiidimar heyra líka und- ir félagsmálaráðherra. Kannski ættu þær frekar að láta málefrii atvinnu- lausra til sín taka en að vera að skipta sér af rekstri skemmtistaða vítt og breitt á höfuðborgarsvæðinu. En það er það nýjasta í jafnréttinu. - Segja má að nesjamennskan eigi orðið fulltrúa víða. Hænsnalaust Fréttanef er þarft á fjölmiðlum, það að þefa upp tíðindin. Menn með slíkt þefskyn gleðja því fréttastjóra fjölmiðlanna. Það fer siðan eftir mati viðkomandi fréttastjóra hversu hátt viðkomandi frétt er gert undir höfði. Á dagblöðum eru það tvímælalaust útsíðumar tvær sem flytja stærstu tíðindin, forsíða og baksíða. Þar lesa menn um hamfarir, innlendar jafnt sem erlendar, stjómar- byltingar, kosningar og stóratburði í atvinnulífi, svo fátt sé nefnt. Stóðu sína pligt Mönnum brá þvi nokkuð í brún fyrr í vikunni þegar lesa mátti yfir þvera baksíðu Morgun- blaðsins aö engin hæna væri lengur til heimilis á Húsavík. Þeir hinir sömu sáu ekki fréttapunkt- inn, töldu til dæmis að ekki hefði verið tíundað sérstaklega, né þótt stórfrétt, að hænur fyndust hvorki í Reykjavík né Kópavogi. Þeir staðir væru þó að sönnu stærri en Húsavík. Sumir gengu jafnvel svo langt að halda að galskapur hefði hlaupið í Moggann þennan dag og frétta- stjórinn væri galinn. Honum dygði ekki minna en vika heima til þess að ná áttum á ný. Allt slíkt er della ein. Bæði fréttamaðurinn og fréttastjórinn stóðu sína pligt. Það er auðvitað á Húsavík stórfrétt að engin hæna skuli lengur vera í Húsavíkurkaupstað. Málið snýr miklu fremur að fréttamönnum og einkum fréttastjórum annarra fjöl- miðla. Hvað voru þeir að hugsa? Af hverju náðu þeir ekki fréttinni? Þeir létu gamla dínósárinn skúbba sig, sem kallaö er. Fréttaflokkur Mogginn var fyrstur með stórfrétt- ina. Það þýðir ekki fyrir aðra frétta- hauka að naga sig í handabökin nú. Þeir hefðu betur fylgst með á Húsavík og nágrenni. Það er ekki nóg með það að Húsavík sé hænsnalaus. Haldið þið ekki að í Reykjahverfi, þar sem áður voru hænsni á 15 bæjum, séu einungis hænur eftir á einum bæ? Morgtmblaðið fór fyrir, það sjá menn nú. Allir vildu Lilju kveðið hafa. Þeir sem dýpra skoða fréttaþróun á Morgun- blaðinu átta sig á að þarna er um aö ræða agaða stefnu, fréttaflokk sem mun vinda upp á sig og fjallar einvörðungu um þingeyskan fiðurfénað. Þetta byrjaði allt með þrestinum góða sem lét líf- ið eftir hetjulega vöm á kóræfingu á Húsavík. Þá grét þjóðin. Nú eru það hænur á Húsavík eða öllu heldur skortur á hænum. Það er sorglegt líka. Þjóðin bíöur nú spennt eftir framhaldinu. Mættum við fá meira að heyra. CsPurri Hélt vel á málinu Ragnar Haraldsson skrifar. í viðtali á Út- varpi Sögu sl. þriðjudag ræddi Halldór Ásgríms- son utanrikisráð- herra vamarmál, NATO og stjóm- málin almennt. Ráðherra mæltist mjög vel og kom staðreyndum að þrátt fyrir ákefð þáttarstjómanda sem virtist ætla að yfirkeyra ráðherrann. Halldór sagði sem er að við íslendingar værum þátttakendur í NATO, sem er vamar- bandalag margra þjóða, en ekki árásar- bandalag eins og andstæðingar þess reyna að koma að við hvert tækifæri. Við erum þar þátttakendur, á okkar hátt, án herskyldu, í öllum aðgerðum banda- lagsins og tökum nú þátt í friðargæslu ásamt öðrum þjóðum. Utanríkisráðherra gerði þessum málum prýðileg skil. Halldór Asgríms- son utanríkisráð- herra Hefurgóö tök á sínum mála- flokki. Flakið af Spaugstofunni Guðbjörg Gunnarsdéttir hringdi: Ég las pistil í Tilvera DV 3. des. sl. þar sem blaðamaður reifar endurkomu Spaugstofunnar í Sjónvarpinu. Ég er að öllu leyti sammála blaðamanninum um að Spaugstofan er næstum flak af þess- um úr sér gengna skemmtiþætti. Þama era nú komnir miðaldra menn sem hafa fest sig i pólitísku mynstri hversdags- leikans sem var í tísku fyrir svo sem 15 árum. Nú era komnir nýir grínarar fram á sjónarsviðið í frjálsu falli, lausir við ríkisfjötra og reiptog úr Útvarps- ráði. Já, þetta er ekki fyndið lengur í Sjónvarpinu. „Ekki-fréttir“ í sjónvarps- leikgerð væri ágæt tilbreytni. Vil fá jólaglögg Guðsteinn skrifar: Ég og konan höf- um haft þann sið að fá okkur göngu í bæinn stuttu fyrir jólin og gengið þá niður Laugaveg og Bankastræti. Hlað- borðin höfða ekki til okkar, mest vegna þess hve þau era óheyrilega dýr, en okkur þykir gott að líta inn á einum eða tveimur stöðum sem bjóða upp á heita jólaglögg, púns eða hvað þeir kalla svona krydddrykki á jólafóstunni. Ég skora á þá veitingamenn sem ætla að bjóða upp á jólaglögg að láta vita hvar hana má fá. Með fyrirfram þakklæti fyr- ir veittan beina. Helt jólaglögg Vel þegin á gönguferö um borgina. Endurskinsmerki og jeppar Elín Sigutðardðttir skrifar: Islendingar era gjamir á að taka öll nýmæli geyst og með miklum bægsla- gangi og kasta þeim svo fyrir róða eftir nokkum tíma. Ég nefni tvö dæmi: jepp- ann og endurskinsmerki. Nú sjást end- urskinsmerki hvergi, hvorki laus né fóst í yfirhöfnum. Ég lýsi sök á hendur foreldrum og kaupmönnum að halda ekki fast í þessa venju með því að selja krakkaúlpur með áföstum endurskins- merkjum og þá sérstaklega foreldra að innprenta ekki bömum að þetta sé skyldunotkun. En svona dettur flest upp fyrir. Ég horfi hins vegar með velþókn- un til þess dags þegar jeppamir komast úr tísku sem einkabílar, enda almennt aðhlátursefni og uppskafningsháttur að sjá fólk á jeppa innanbæjar, milli húsa. Maður vorkennir vesalings konunum sem era að klöngrast upp í þessi tæki við illan leik - bara til að sýnast. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlíð 24, 105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.