Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Síða 21
 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 21 H DV Tilvera Little Richard sjötugur Einn af frumherjum rokksins, Little Richard, á stóraflnæh í dag. Hann fædd- ist í Macon í Georgíuríki, þriðji í röð 12 systkina og var skírður Richard Wayne Penniman. Hann byrjaði ungur að syngja í kirkjukór og sterk trú í æsku gerði það að verkum að á hátindi frægðarinnar fór hann í biblíuskóla og gerðist prestur en sneri aftur í sviðsljósið seint á sjöunda áratugnum. Meðal laga sem hafa gert hann ódauðlegan í sögu rokksins má neflia Tutti Frutti, Lucciile og Long Tall Sally. Richard er enn að í dag og er sjálfs- álitið i góðu lagi hjá karli. á I i viuuiqiiiii Gildir fyrir föstudaginn 6. desember Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.r ■ Þú lest eitthvað sem * vekur áhuga þinn svo um munar. Þegar til lengri tíma er litið á þétta eftir að hafa mikil áhrif. Fiskarnir (19, fehr.-?Q. marsl: Allt sem þú tekur þér Ifyrir hendur í dag gengur vel. Þú ert full- ur bjartsýni og tilbú- inn að reyna eitthvað nýtt. Kvöld- ið verður skemmtilegt. Hrúturlnn QL mars-19. aprih: , Þú færð fréttir sem 'koma róti á hug þinn. Ekki er þó ástæða til j að hafa áhyggjur. Ást- in blómstrar hjá þér. Nautið (20. april-20. maí): B SS Greiðvikni borgar sig ávallt betur en stirfni og leiðindi. Þetta áttu eftir að reyna á eftim- legan hátt í dag. Vinur biður þig um peningalán. Tvíburarnir (21. maí-21. iúnil: Gerðu eins og þér 'finnst réttast í máli sem þú þarft að taka ákvörðun í. Þú ættir ekki emu sinni að leita ráða, mál- iö er þess eðlis. Krabbinn m. iimí-??. iúin: Kunningjar þínir gætu i komið þér í vandræði þó að það sé hreint ekki ætlun þeirra. Þú i sýna sjálfstæði, þá fer aUt vel. Llónið (23. iúlí- 22. ágústl: . Þú vinnur að sérstöku gæluverkefni um þess- ar mundir og á það hug þinn allan. Gættu þess að það bitni ekki á fjölskyld- unni. Mevian (23. ðeúst-22. sept.l: Ef þú ferð ekki eftir innsæi þínu eru meiri ^^V^p-líkur á að þú lendir í * r ógöngum en ef þú hlýðir á þinn innri mann. Happa- tölur þínar eru 5, 8 og 21. Vogjn (23. seot.-23. okt.l: Galgopaskapur ein- kennir daginn i dag og svo virðist sem ekki beri að taka eitt orð al- varlega. Ollu gamni fylgir þó nokkur alvara. Sporðdrekinn (?4. okt.-2i. nðv.i: Þér hættir til að velta \ þér óþarflega mikið \ \ \jjupp úr litilfjörlegum vandamálum og hafa af þeim meiri áhyggjur en vert er. Gerðu þér glaðan dag. Bogmaðurinn (22. nðv.-21. des.l: .Þér finnst þú hafa rmikið að gera en verið getur að þínir nánustu hafi það líka. Reyndu að sýna sanngimi í samskipum við aðra. Stelngeltin (22. des.-19. ian.l: Þú ert fúllur sjálfs- trausts um þessar mundir og ekki minnkar það við við- urkenningu sem þú færð á opin- berum vettvangi. Vogin (23. se Pottfélagar gæða sér á sauðaketi og öðru gómsæti Árleg aöventuhátíö pottféiaga í Kópavogslaug fór fram í gær. Veisluboröiö svignaöi undan krásunum og var þar meöai annars aö finna sauöaket sem Ingimar Sveinbjörnsson, fyrrverandi flugstjóri, verkaði sjálfur vestur á Baröaströnd. Vopnfirskur hákarl var á sínum staö og þingeyskt laufabrauð. Kringlukráin: New York * djass í kvöld kl 22.00 leikur kvartett Egils B. Hreins- sonar á Kringlu- kránni. Kvartett- inn skipa: Jón Páll Bjamason, gítar, Egill B. Hreinsson, píanó; Gunnar Hrafns- son, bassi, og Guðmundur Steingrímsson, trommur. Kvar- tettinn leikur ýmis djassverk er tengjast beint og óbeint stórborg- inni og ókrýndri höfuðborg djassins en þetta djasskvöld er haldið til tengingar hljómsveitar og áheyr- enda við hina örlagaríku atburði sem urðu í New York borg á síðast- liðnu ári og áhrif þeirra á framtíð mannlífs í borginni. Egill B. Hreins- son Leikur ásamt kvartetti sínum djass sem teng- ist New York. Sparisjóður 100 ára: Stórtón- Jólatré, markaður og menning á Hressó - segir Sif Gunnarsdóttir, verkefnastjóri viðburða, hjá borginni leikar í Kaplakrika Sparisjóðúr Sparisjoi Hafnarfjaröar verður 100 ára 22. desember nk. en daginn eftir, á Þorláksmessu, er öllum boðið til af- mæliskaffis í af- greiðslu spari- sjóðsins við Strandgötu. í til- efni afmælisins býður Sparisjóðurinn til afmælistón- leikaveislu í íþróttahúsinu í Kaplakrika sunnudaginn 8. desember nk. kl. 14.00. Stórtenórinn Kristján Jó- hannsson kemur þar fram ásamt fjölda annarra þekktra listamanna, hafn- firskra sem annarra. Fram koma auk Kristjáns Karlakórinn Þrestir ásamt Björgvini Halldórssyni, Sigrún „Diddú“ Hjálmtýsdóttir, Öldutúnskór- inn, Kvennakór Hafnarfjarðar, Tríó Björns Thoroddsen, Borgardætur, Kvintett Kristjönu Stefánsdóttur, Laddi með létt grín, Hljómsveitin BSG, Bubbi Morthens og Sálin. Kynnir verð- ur Guðrún Gunnarsdóttir. -GG Kristján Jóhannsson. Aðventustemning verður alls- ráðandi í hjarta borgarinnar á sunnudaginn. Jólamarkaður verð- ur opnaöur á Lækjartorgi, kveikt á jólatrénu á Austurvelli og Hress- ingarskálinn opnaður eftir breyt- ingar. Sif Gunnarsdóttir er verk- efnastjóri viðburða hjá borginni og það á vel við að hitta hana á Kaffi París, með útsýni yfir Aust- urvöll og heyra hennar lýsingu á því sem í vændurn er. Byrjum á jólatrénu. „Þetta er 51. tréð sem kemur til íslands frá Óslóarbúum og því fógn- um við með gleði," segir Sif og held- ur áfram: „Hluti af dagskránni er svo klassískur að við honum verður ekki hróflað. Þar má nefna leik Lúðrasveitar Reykjavíkur sem byrj- ar hér á Austurvelli kl. hálffjögur og söng Dómkórsins á eftir. Borgar- stjórinn í Ósló mun afhenda tréð og okkar borgarstjóri taka á móti því. Hin ástsæla þula, Gerður G. Bjarklind, verður kynnir og 12 ára drengur, sem heitir Auðunn, fær að tendra ljósin.“ Sveinkar mæta - Koma jólasveinamir ekki? „Jú, jú og ég veit um þrjú lög sem þeir ætla að syngja með viðstödd- um, Jólasveinar einn og átta, Jóla- sveinar ganga um gólf með gildan staf í hendi og Bráðum koma blessuð jólin, og nú getur fólk byrj- að að æfa sig heima til að geta tekið hressilega undir! Nýjungarnar í dagskránni eru svo þær að bæði Borgarleikhús og Þjóðleikhús koma til liðs við okkur. Nokkrir leikarar úr Honk sýna tvö atriði og einnig verður brot úr jólasýningu Þjóðleik- hússins, Með fullri reisn. Eftir það geta allir farið glaðir út á jólamark- aðinn á Lækjartorgi aftur þar sem þeir hafa örugglega verið frá klukk- an eitt!“ - Já, hvað verður að gerast þar? „Það er gamall draumur að koma upp fallegum jólamarkaði eins og eru svo vinsælir úti um alla Evr- ópu. Við ætlum að reyna að skapa slíka hefð. Það eru Höfuðborgar- stofa, framkvæmdastjóri miðborgar og Þróimarfélag miðbæjarins sem að því standa. Þama verða tæplega þijátíu söluaðilar með vaming, handverk, heimatilbúið jólaskraut, bamafót, jólatré og flölmargt fleira og kristileg samtök munu selja kakó, vöfflur og pönnukökur. Mark- aðurinn verður opnaður með mikl- DV-MYND GVA Verkefnastjórinn „Ég sé fyrir mér aö jótamarkaðurinn lífgi verulega upp á miöborgina, segir Sif. um glæsibrag á sunnudag kl. 13 af Ingibjörgu Sólrúnu og Valgeir Guð- jónsson stígur á svið og syngur fyr- ir viðstadda. Kl. 14 verður sr. Frank M. Halldórsson með smá aðventu- hugvekju og honum fylgir kór Nes- kirkju sem ætlar að syngja fyrir okkur. Andri Snær Magnason kem- ur líka og les upp. Jólamarkaðurinn verður á hverjum sunnudegi fram að jólum og ég sé fyrir mér að hann lífgi verulega upp á miðborgina. Þar verður dagskrá bæði fyrir börn og fullorðna, til dæmis alltaf einhver prestur með andakt kl. 14.“ Sambasveifla á Hressó - Gaman að Hressó skuli verða opnaður aftur. „Já, hann verður opinn daglega til jóla kl. 14-18 frá og með sunnu- deginum. Kraftaverkakonan Lilja Hilmarsdóttir er að breyta skálan- um i sitt fyrra horf og Ömmukaffi mun sjá um veitingar. Þar verður líka dagskrá af ýmsu tagi frá 16-18 og á sunnudag verður Tómas R. Einarsson með sambasveiflu." - Nú ert þú nýbyijuð að vinna hjá hinni nýju Höfuðborgarstofu. Hvemig er það? „Þetta er algert draumastarf og það verður gaman að koma sér fyr- ir í Geysishúsinu við Aðalstræti í febrúar." -Gun V I I 12 11 i 1 I 3 :

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.