Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 27 DV Sport Frábær síð- ari hálfleikur - kom Aftureldingu í undanúrslit HK-ingurinn Ólafur Víöir Ólafsson reynir hér sendingu inn á Knuna en Júlíus Jónasson er til varnar. * DV-mynd Siguröur Jökull Rosalegt - þegar HK sigraði ÍR í bráðabana í bikarkeppninni Þaö gekk mikið á i Mosfellsbæn- um í gærkvöldi er Afturelding tryggöi sér sæti í undanúrslitum SS- bikarsins með sigri á Gróttu/KR í vægast sagt sveiflukenndum leik. Jafnræði var með liðunum fyrstu 20 mínútur leiksins en þá kom góð- ur kafli hjá Gróttu/KR sem tryggði þeim 5 marka forystu. Heimamenn tóku þó kipp undir lok hálfleiksins og náðu að minnka muninn í 2 mörk áður en leikmenn gengu til búningsherbergja. Hálfleiksræða Bjarka Sigurðsson- ar, þjálfara Aftureldingar, hefur verið af dýrari gerðinni því Mosfell- ingar komu gríðarlega vel stemmd- ir til síðari hálfleiks og röðuðu inn mörkum á Gróttu/KR sem vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Fór þar fremstur í flokki Daði Hafþórs- son sem hafði látið fara lítið fyrir sér í fyrri hálfleik. Það tók gestina 9 mínútur og 20 sekúndur að kom- ast á blað í siðari hálfleik er Sverr- ir Pálmason skoraði en sóknir Gróttu/KR í síðari hálfleik fram að því höfðu verið ómarkvissar og ekki bætti úr skák að Reynir varði flest sem kom á mark Mosfellinga. Aftureldingarmenn náðu mest 6 marka forystu í stöðunni 21-15 en þá tóku gestimir við sér á ný og „Þetta var alveg meiri háttar. Strákarnir eru að spila þrælvel þarna fyrir utan og við í horninu erum að fá fín færi sem ég var ekki að nýta fram eftir leiknum en það kom þarna í framlenging- unni. Það var vendipunktur I leiknum þegar við vorum tveimur færri og tveim mörkum undir en náðum að saxa á forskotið," sagði Samúel Árnason, hetja HK í leikn- um. „Maður reynir að setja sig í aðstæður sem maður hefur lent í áður og gert vel í og reynir að framkvæma eftir því,“ sagði Sam- náðu að minnka muninn í 2 mörk. En það dugði skammt því áður- nefndur Daði tók þá aftur til sinna ráða og kláraði leikinn fyrir Mos- feflinga, 25-21. Reynir Þór átti stórleik í marki Aftureldingar og þá sérstaklega í síðari hálfleik. Daði var sterkur á ögurstundu og vömin small í síðari hálfleiknum. Hjá Gróttu/KR var Hlynur Morthens sá eini sem spilaði vel £dl- an leikinn. Páll Þórólfsson var sterkur í síðari hálfleik og homa- mennimir Davíð Ólafsson og Krist- ján Geir Þorsteinsson áttu ágæta spretti. . Mörk Aftureldingar: Daði Haf- þórsson 6, Valgarð Thoroddsen 5\3, Atli Rúnar Steinþórsson 3, Bjarki Sigurðsson 3, JónAndri Finnsson 3, Erlendur Egilsson 2, Haukur Sig- urvinsson 2, Sverrir Bjömsson 1. Varin skot: Reynir Þór Reynis- son 23\1 Mörk Gróttu/KR: Páll Þórólfs- son 7\3, Dainis Rusko 4\2, Kristján Geir Þorsteinsson 3, Davíð Ólafsson 3, Gísli Kristjánsson 1, Alexander Peterson 1, Sverrir Pálmason 1, Al- freð Finnsson 1. Varin skot- Hlynur Morthens 18/1 -HBG úel aðspurður hvað hann hefði verið að hugsa í framlengingunni. „Frábær sigur! Alveg ótrúlegur baráttusigur og allir orðnir þreyttir en við höfðum viljann og það er það sem skiptir máli í svona leikjum. Það lið sem langar meira fer alla leið og klárar svona dæmi. Það er ekkert bensín eftir. Við unnum boltann með baráttu og settum mark í bráðabananum eftir að hafa byrjað í vörn. Þetta er bara snilld," sagði Árni Stef- ánsson, þjálfari HK, eftir leikinn. -MOS Rosalegt svakalegt ofboðslegt. Spenna, spenna, spenna og aftur spenna. Þannig er sennilega best að lýsa leik HK og ÍR í átta liða úrslit- um bikarkeppni handknattleikssam- bandsins í gærkvöldi. Leiknum lauk með jafntefli og þvi þurfti að fram- lengja hann. Eftir framlenginguna var jafnt og því aftur framlengt. Önn- ur framlenging endaði einnig með jafntefli og því þurfti bráðabana til að skera úr um úrslit. ÍR byrjaði með boltann en HK-menn náðu honum og Samúel Árnason skoraði markið sem tryggði HK sigurinn í leiknum og sæti í 4 liða úrslitum bikarkeppninn- ar. Það voru gestirnir úr ÍR sem byrj- uðu betur en hægt og sígandi náðu heimamenn að jafna og voru einu marki yfir í hálfleik, 13-12. ÍR byrjaði síðari hálfleik af meiri krafti og leiddi með tveim til þrem mörkum fram eftir leik. Undir lok leiks voru þeir komnir með 24-20 forystu. Þegar innan við 4 mínútur lifðu af leiknum voru leik- menn ÍR með boltann tveimur mörk- um yfir og tveimur leikmönnum færri. Leikmenn HK lögðu ekki árar í bát heldur minnkuðu muninn í eitt mark. Síðan fengu þeir hraðaupp- hlaup og gátu jafnað leikinn en Hreiðar Guðmundsson varði glæsi- lega og Ólafur Sigurjónsson skoraði og kom þeim í 25-23. Ólafur Víðir Ólafsson skoraði hins vegar tvö síð- ustu mörk leiksins á síðustu mínútu leiksins og tryggði HK þar með fram- lengingu. Þá hófst darraðardansinn fyrst fyr- ir alvöru. ÍR byrjaði með boltann en HK komst yfir. ÍR jafnaði og komst yfir og aftur komst HK yfir en það var Bjarni Fritzson sem jafnaði háifri mínútu fyrir leikslok. Þar við sat og aftur var framlengt. Aftur var það HK sem komst yfir og ÍR jafnaði og komst yfir. HK jafnaði og komst yfir og það var Guðlaugur Hauksson sem jafnaði leikinn fyrir ÍR hálfri mínútu fyrir leikslok. Þar með var boðið upp á bráða- bana og það voru leikmenn ÍR sem byrjuðu með boltann. Grimmur varn- arleikur HK-manna færði þeim bolt- ann. Þeir spiluðu stutta sókn sem endaði með því að Samúel Árnason fékk boltann í horninu og skoraði mark úr þröngri stöðu sem tryggði HK sigurinn í leiknum. Hjá HK spilaði allt liðið mjög vel. Ólafur Víðir Ólafsson og Atli Þór Samúelsson voru að axla mikla ábyrgð undir lok leiks og í framlengingunum. Þeir skoruöu mik- ilvæg mörk en það var Samúel Árnason sem skoraði þrjú síðustu mörk HK og þar af mikilvægasta mark leiksins. Amar Freyr Reynisson kom inn á undir lok leiks og varði oft mjög vel á gríðarlega mikil- vægum augnablikum. Jaliesky Garcia átti einnig góðan leik, sérlega í vörn. Hjá ÍR var það Hreiðar Guðmundsson sem var að spila manna best. Ólafur Sigurjóns- son átti einnig mjög góðan leik en hann var tekinn úr umferð undir lok leiksins. Þá riðlaðist vamarleikur ÍR töluvert þegar Fannar Þorbjörnsson fékk rauða spjaldið í lok síðari hálfleiks. ' Mörk HK: Jaliesky Garcia 9, Atli Þór Samúelsson 8, Ólafur Viðir Ólafsson7/4, Samúel Ámason 6, Már Þórarinsson 2, Alexander Amarson 2, Elías Már Hall- dórsson 1, Varin skot: Björgvin Gústavs- son 11, Amar Freyr Reynisson 11/1. Mörk ÍR: Ólafur Sigurjónsson 12/5, Bjami Fritzson 7, Guðlaugur Hauksson 7, Sturla Ásgeirsson 5, Ingimundur Ingi- mundarson 1, Kristinn Björgúlfsson 1, Júlíus Jónasson 1, Varin skot: Hreiöar Guðmundsson 20/1. -MÖS Árni Stefánsson, þjálfari HK: Ótrúlegur baráttusigur Denise veröur saknað - skoraöi 35 stig og tók 18 fráköst í 74-82 sigri Grindavíkur í Njarðvík Það er Ijóst að Grindvíkingar koma til með að sakna Denise Shelton sem hefur leikið frábærlega með liði félagsins í 1. deild kvenna í vetur. Shelton skoraði 35 stig, tók 18 fráköst og gaf 6 stoðsendingar í 74-82 sigri liðsins í Njarðvík í gær sem tryggði stöðu liðsins í ööru sæti deildarinnar. Shelton hefur tilkynnt forráða- mönnum Grindavíkur að hún óski eftir því að losna undan samningi við liðið og snúa aftur heim til Bandaríkjanna þar sem hún þjáist að mikilli heimþrá. Það er þó ekki sjáanlegt inni á vellinum því Shelton er með 33,7 stig og 15 fráköst að meðaltali í vetur sem er það lang- mesta hjá einum leikmanni í defld- inni. Snilli Shelton átti líka mestan þátt í því að Grindavíkurliðið náði 18 stiga forustu fyrir leikhlé en hún gerði 22 stig og hitti úr 7 af 12 skot- um sínum í fyrri hálfleik. Auður Jónsdóttir, fyrirliði Njarð- víkur, fór fyrir sínum stúlkum í þriðja leikhluta þar sem Njarðvíkur- liðið kom sér aftur inn í leikinn en Auður gerði 10 af 21 stigi liðsins í leikhlutanum. Njarðvík náði í framhaldinu muninum niður í fimm stig um miðjan fjórða leikhluta eftir að liðið skoraði 10 stig í röð en Grindavíkurliðið hélt út og vann fjórða sigur sinn á Njarðvík í vetur. Njarðvíkurstelpurnar tóku 38 sóknarfráköst í leiknum sem eru ótrúlegar tölur en þær komu til vegna góðrar baráttu og afar slakrar skotnýtingar liðsins sem var aðeins tæp 30%. Krystal Scott lék sinn annan leik með Njarðvík í gær og náði ekki al- veg að fylgja eftir góðum leik en 21 stig og 12 fráköst er ekki alslæmt, ekki síst fyrir þær sakir að þau 16 af 22 skotum hennar sem misfórust voru flest tekin í erfiðri stöðu undir körfunni þar sem hún uppskar oft hvergi nærri eins margar villur og stalla hennar í Grindavíkurliðinu hinum megin. Helga Jónasdóttir úr Njarövík var sterk undir körfunni með 17 stig og 17 fráköst, Auður skilaði sínu og Pálína Gunnarsdóttir átti sinn besta leik sóknarlega í vetur. Shelton var allt í öllu hjá Grinda- vík en auk hennar tók Sólveig Gunnlaugsdóttir af skarið þegar á þurfti að halda og Sigríður Anna Ólafsdóttir og María Anna Guðmundsdóttir voru traustar. Þá áttu þær Erna Rún Magnúsdóttir og Petrúnella Skúladóttir góða innkomu af bekknum. Stig Njardvikur: Krystal Scott 21 (12 fráköst, 6 í sókn), Helga Jónasdóttir 17 (17 fráköst, 12 í sókn, 3 varin), Auður Jóns- dóttir 12 (6 stoðs.), Pálína Gunnarsdóttir 9 (12 fráköst, 6 í sókn, 4 stoðs.), Eva Stef- ánsdóttir 7, Guðrún Ósk Karlsdóttir 6 (11 fráköst), Ásta Óskarsdóttir 2. Þá tók Ingi- björg Elva Vilbergsdóttir 7 sóknarfráköst á aöeins níu mínútum. Stig Grindavíkur: Denise Shelton 35 (18 fráköst, 6 stoðs., 4 varin, hitti 10 af 19 skotum og 13 af 16 vítum), Sólveig Gunn- laugsdóttir 17, Sigríöur Anna Ólafsdóttir 9, María Anna Guðmundsdóttir 7 (4 stoðs.), Petrúnella Skúladóttir 7, Guörún Ósk Guðmundsdóttir 3, Sandra Dögg Guö- laugsdóttir 3, Ema Rún Magnúsdóttir 2 (6 stoðs. á 16 mín). -ÓÓJ Mfi. DEILD KVENNA P Staðan: Keflavík 8 8 0 626-446 16 Grindavík 9 6 3 648-628 12 Haukar 8 4 4 475-511 8 KR 8 4 4 498-488 8 Njarðvík 9 3 6 582-643 6 ÍS 8 0 8 402-515 0 Stigahæstar: Denise Shelton, Grindavík .... 33,7 Helena Sverrisdóttir, Haukum . 17,3 Bima Valgarðsdóttir, Keflavík . 15,1 Helga Þorvaldsdóttir, KR .......15,0 Þórunn Bjamadóttir, Is .........14,3 Sonja Ortega, Keflavík .........14,0 Hanna B. Kjartansdóttir, KR . . . 13,4 Sólveig Gunnlaugsd., Grindavík 13,3 Næstu leikir: KR-ÍS ..............7. des. kl. 16.00 Haukar-Grindavík . 7. des. kl. 18.00 Grindavík-Haukar . 14. des. kl. 17.15 Keflavík-KR........16. des. kl. 19.15 ÍS-Njarðvík .......16. des. kl. 19.30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.