Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Síða 1
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
DAGBLAÐIÐ VÍSIR
283. TBL. - 92. ÁRG. - MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002
VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK
Almennur rekstur forsetaembættisins hefur vaxið í tíð Ólafs Ragnars Grímssonar:
20-40% kostnaðaraukning
- yfir 86% kostnaðarins fer í yfirstjórn embættisins
Almennur rekstrarkostnaður
embættis forseta íslands hefur vax-
ið um 44%, eða úr tæpum 84 miilj-
ónum á ári 1996 í tæplega 121 millj-
ón króna á síðasta ári miðað við
verðlag hvers árs. Á fóstu verðlagi
miðað við neysluverðsvísitölu árið
2001 nemur kostnaðaraukningin
hins vegar rúmlega 20%. Mestur
var almenni rekstrarkostnaðurinn
hins vegar árið 2000 og fór í ríflega
129 milljónir króna, eöa nærri 54%
meira en árið sem Ólafur Ragnar
Grímsson tók við forsetaembættinu.
Á sama tímabili hefur hlutur yfir-
stjórnar embættisins vaxið um
nærri 68% eða úr ríflega 62 milljón-
um á ári í nærri 105 milljónir króna
árið 2001. Ef tekið er mið af neyslu-
verðsvísitölu á föstu verðlagi 2001
nemur aukningin nærri 40%.
Þetta kemur m.a. fram í ríkis-
reikningi áranna 1996-2001. Sam-
kvæmt honum var kostnaður vegna
almenns rekstrar forsetaembættis-
ins 1996 á þáverandi verðlagi sam-
tals 83.858.000 krónur. Árið 1997 var
talan komin í 84.688.000 krónur og
1998 var kostnaður almenna rekstr-
arins 80.871.000 krónur. Árið 1999 óx
kostnaðurinn enn og fór í 104.850.000
krónur. Kostnaðurinn náði þó há-
marki árið 2000 og fór í 129.098.000
krónur. Árið 2001 lækkaði hann
hins vegar um rúmar 8 milljónir og
var þá 120.964.000 krónur.
Þegar litið er á þátt yflrstjórnar
embættisins á þessu tímabili kemur
í ljós að fyrstu þrjú árin lækkaði
kostnaðurinn en hefur síðan stigið
jafnt og þétt síðan. Þessi þáttur er
langveigamestur í almennum
rekstrarkostnaði embættisins, en
árið 1996 nam kostnaður vegna yfir-
stjórnar 62.436.000 krónum. Árið
1997 var hann 59.936.000 krónur og
árið 1998 var hann lægstur og nam
þá 59.797.000 krónum. Síðan jókst
kostnaður vegna yfirstjórnar veru-
lega og fór í 74.428.000 krónur árið
1999 og i 96.257.000 krónur árið 2000.
í fyrra var kostnaður vegna yfir-
stjórnar svo kominn í 104.727.000
krónur, eða um 68% meira en var
fyrsta embættisár núverandi for-
seta, en um 40% miðað við neyslu-
verðsvísitölu á föstu verðlagi 2001.
-HKr.
■ NÁNAR Á BLS. 2 í DAG
Ijarta Þrandheims
JJjósum logum
«',SS
áoar%í miöbæ
6 ^raartflííBÍms um
'ffe *É|Jgi na rí öa rjegt
y tjon hlauÍt af er þi
ijiörg af elstu *
/ÍRúsum bæjarins
brunnu.'
" - Sjá bls: 1Ó. %
JÓLAGETRAUN DV:
Flott tæki og
tól í verö-
laun fyrir
rétt svör
HK vann sinn
fjórða sigur
ESSODEILD KARLA í
HANDKNATTLEIK
27
llaréttingar - Bilamálun
Þú fsrð bílaleigubíl á
meðan viðgerð stendur yfir
BÍLASPRAUTUN OG RÉTTINGAR
AUÐUNS
Við
Sími 554 2510
Nýbýlavegi 10 • Kópavogi
hliðina á Toyota umboðinu ■ www.bilasprautun.is
Tókum pað með. , .
tmkki
■ Aðalskrifstofa:
Skútuvogi 8
104 Rcykjavik
Sími 569 8400