Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002
Fréttir i>v
Allt upp í 300 prósenta hækkun í fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar:
Islandsmet i hækkunum
- segir minnihlutinn - vegna hallarekstrar fyrri ára, segir meirihlutinn
Þetta er trúlega íslandsmet í
hækkunum á einu bretti og leggst
hvað þyngst á barnafjölskyldur,"
sagði Þröstur Karlsson, oddviti
minnihlutans og bæjarfulltrúi B-
listans í Mosfellsbæ.
Meirihluti bæjarstjómar lagði
fram til fyrri umræðu tillögur sínar
að fjárhagsáætlun fyrir árið 2003 sl.
miðvikudag. Samkvæmt útreikning-
um minnihlutans gera tillögurnar
ráð fyrir að álagningarprósenta lóð-
arleigu íbúðarhúsnæðis hækki mest
eða um 300 prósent milli ára. Út-
svarsprósenta hækki um 2,29%,
fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis
um 12,50%, fasteignaskattur atvinn-
nuhúsnæðis um 20%, lóðaleiga at-
vinnuhúsnæðis um 20% og sorp-
hirðugjald um 10,77%.
Leikskólagjöld hækki um 24,22%,
fæði í leikskóla um 25%, skólasel
um 63,64%, íþrótta- og tómstunda-
skóli um 63,64%, gæsluvöllur um
50%, skólamáltíðir um 22,22% og
loks árskort i sundlaug um 34,62
prósent.
Þröstur sagði að minnihlutinn
myndi mótmæla miklu af þessum
hækkunum, einkum álögum á
barnafjölskyldur og börnin. í Mos-
fellsbæ væru íbúamir hvað yngst-
ir borið saman við önnur sveitar-
félög, þar byggi mikið af ungum
foreldrum með böm sín. Vissulega
yröi að koma til einhverra hækk-
ana, en ekki með „sliku offorsi og
látum“.
Hafsteinn Pálsson, forseti bæjar-
stjómar, sagði að bæjarfélagið hefði
verið rekið með halla á undanförn-
um árum. Slikt gengi ekki til lengd-
ar. Eðlilegt væri að þjónustugjöld
yrðu aðlöguð að því sem tíðkaðist í
umhverfinu. Hins vegar væri alls
ekki verið að fara upp fyrir það sem
tíðkaðist í öðrum sveitarfélögum.
Verið væri að veita sambærilega
þjónustu og eðlilegt væri að miða
við sambærileg gjöld. Hafsteinn
sagöi enn fremur að verið væri að
taka upp nýja hluti, svo sem niður-
greiðslur fyrir bamagæslu til fleiri
foreldra en eru i svokölluðum for-
gangshópum. Þá væri í farvatninu
að auka sumarþjónustu leikskóla.
Þannig væri ekki einungis um að
ræða hækkanir á þjónustugjöldum,
heldur aukna þjónustu, ekki síst við
bamafjölskyldur. -JSS
Víðtækt samstarf:
Vímulaust
tómstunda- og
menningarhús
Geymslan, samstarfsverkefni
um forvamarstarf og rekstur tóm-
stunda- og menningarhúss fyrir
ungt fólk á Sauðárkróki tekur til
starfa 10. desember nk. undir nýjum
formerkjum með undirritun stofn-
samnings í bæjarþingssalnum í
gamla barnaskólanum á Sauðár-
króki. Geymslan er samstarfsverk-
efni Rauða kross íslands, Rauða
kross-deildanna á Hvammstanga,
Austur-Húnavatnssýslu, Skaga-
strönd, Skagafirði og Sigluflrði
ásamt Sauðárkrókskirkju, Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra,
sýslumannsembættisins á Sauðár-
króki og sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar.
Tilgangur verkefnisins er að
starfa sameiginlega að forvörnum
og starfrækja vímulaust tóm-
stunda- og menningarhús fyrir
ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára.
Markmið verkefnisins er að skapa
ungu fólki vettvang til vímulauss
félagsstarfs, listsköpunar og
fræðslu. Hópur ungs fólks, aðal-
lega úr Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra, hefur borið hitann
og þungann af starfsemi menning-
arhússins Geymslunnar til þessa.
Félagið mun ráða til starfa for-
varnarfulltrúa sem hefur umsjón
með rekstri tómstunda- og menn-
ingarhússins ásamt öðrum for-
varnarverkefnum. Með þessum
nýja samningi er þess vænst að
nýju lífi verði hleypt í forvarnir
og félagsstarf ungs fólks á Sauðár-
króki, en á Sauðárkróki dveljast á
hverjum vetri um 150 ungmenni
úr nágrannabyggðarlögum við
nám, leik og störf. -GG
Sauöárkrókur.
DV-MYND KÖ
Kveikt á jólatrénu á Austurvellí í gær
Kveikt var á jótatrénu é Austurvelli í Reykjavík í gær en það er eins og áður gjöf frá Óslóarbúum.
Sami meirihluti áfram í Borgarbyggð eftir kosningar á laugardag:
Óánægðir framsóknar-
menn skiluðu sér heim
- segir oddviti sjálfstæðismanna
„Þessi úrslit
eru ánægjuleg og
með því að bæta
við okkur einum
manni mun rödd
okkar framsókn-
armanna í bæjar-
stjórn betur heyr-
ast. Jafnvel þó svo
að við verðum
áfram í minni-
hluta,“ sagði Þor-
valdur T. Jónsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins i Borgarbyggð, í
samtali við DV.
Kolfinna kemst í bæjarstjórn
Framsóknarmenn eru sigurvegari
kosninganna í sveitarfélaginu um
helgina. Fengu 562 atkvæði af 1.400
eða tæp 41% og fjóra fulltrúa kjörna í
bæjarstjórn. Bættu við sig einum full-
trúa frá í vor, i kosningunum sem
dæmdar voru ógildar. Nýr bæjarfull-
trúi framsóknarmanna er Kolfmna
Jóhannesdóttir í Norðtungu sem sat í
bæjarstjórn fyrir flokkinn á síðasta
kjörtímabili.
D-listi Sjálfstæðisflokks fékk 518 at-
kvæði eða tæp 38% og þrjá fulltrúa.
Tapaöi einum. Borgarbyggðarlistinn
hlaut 294 atkvæði eða 21% og tvo full-
trúa og hélt sínum hlut, borið saman
við kosningarnar síðasta vor. Á kjör-
skrá voru 1.793 og kusu alls 1.400. Það
er 78% kjörsókn - eða sama og i kosn-
ingnum sl. vor.
„Þeir sem vinna leikinn geta aldrei
verið sáttir við að sá sigur sé dæmdur
af þeim og að endurtaka þurfí leikinn.
Við slíkar kringumstæður er líka
hæpið að sami árangur náist eins og
raunin varð líka. Óánægðu framsókn-
armennimir skiluðu sér heim, eins og
flokkur þeirra lagði áherslu á að þeir
gerðu,“ sagði Helga Halldórsdóttir,
Úr Borgarnesi.
leiðtogi sjálfstæðismanna í bæjar-
stjórn.
Sátt við útkomuna
Hún sagðist engu að síður vera
nokkuð sátt við útkomuna, greinilegt
væri að meirihluti Sjálfstæðisflokks
og Borgarbyggðarlista nyti trausts
íbúa sveitarfélagsins. Hann yröi
áfram við lýði - og unnið yrði á
grundvelli þess samkomulags sem
þessi tvö framboð gerðu þegar þau
mynduðu með sér meirihluta á liðnu
vori, í kjölfar þeirra kosninga sem síð-
an voru endurteknar um helgina.-sbs
Hríseyingar
óánægðir með
þróunarfélagið
Hreppsnefnd Hríseyjar hefur
ákveðið að kanna hvort ástæða sé
fyrir hreppinn að vera áfram aðili
að Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarð-
ar. Hreppsnefndarmönnum þykir
Atvinnuþróunarfélagið ekki hafa
sýnt neitt frumkvæði til úrbóta í at-
vinnumálum Hríseyjar.
Bágborinn fjárhagur Hríseyjar-
hrepps var til umræðu á síðasta
fundi sveitarstjórnar. Á fundinum
var einnig rætt um hvort hætta eigi
aðild að Atvinnuþróunarfélagi Eyja-
fjarðar. Menn spurðu hvort framlag
Hríseyjarhrepps til Atvinnuþróun-
arfélags Eyjafjarðar skOaði sér að
einhverju leyti til sveitarfélagsins.
Kom fram að þrátt fyrir erflða stöðu
í atvinnumálum Hríseyjarhrepps
hefði Atvinnuþróunarfélagið ekki
haft neitt frumkvæði til úrbóta. Var
því ákveðið að kanna hvort ástæða
væri fyrir Hríseyjarhrepp að vera
aðili að félaginu. -hiá
AkurejTÍ:
Landsliðið á að-
ventujasskvöldi
Sunna Gunnlaugsdóttir mætir með
glæst lið jasstónlistarmanna í Græna
hattinn, sal undir Bláu könnunni á
Akureyri, miðvikudagskvöldið 11.
desember og hefjast tónleikarnir, sem
eru á vegum Jazzklúbbs Akureyrar,
kl. 21.00. Allir tónlistarmennirnir sem
þar koma fram eru þekktir fyrir fram-
úrskarandi sveiflugaldur en þeir eru
auk Sunnu Gunnlaugsdóttur á píanó,
Kristjana Stefánsdóttir söngkona, Sig-
urður Flosason saxófónleikari, Scott
McLemore trommuleikari og Gunnar
Hrafnsson, kontrabassaleikari.
Flutt verða lög af geisladiskinum
sem nú var að koma út og heitir
Fagra veröld og er útgefinn af Eddu
margmiðlun. Tónlistin og flutningur
hennar hefur fengið frábæra dóma.
Jólajass verður að sjálfsögðu einnig á
boðstólum. Styrktaraðilar eru ýmis
þekkt norðlensk fyrirtæki. -GG
Mæðrastyrksnefnd:
Jólaúthlutun
hefst í dag
Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur hefst í dag. Eins og kom-
ið hefur fram hafa nefndinni borist
margar góðar gjafir til úthlutunar til
bágstaddra, bæði frá hinum ýmsu fyr-
irtækjum og einstaklingum. Undan-
farnar vikur hefur þeim farið sífjölg-
andi sem leitað hafa aðstoðar nefndar-
innar.
Jóiaúthlutunin verður aila mánu-
daga, þriðjudaga og miðvikudaga frá
kl. 14 til 17 og síðustu vikuna fyrir jól
verður einnig opið á fimmtudegi frá
14 til 17. Tekið er á móti gjöfum til
nefndarinnar á sama tíma eða eftir
samkomulagi. -JSS
RDGUM Á MORGUN
Fáöu þér miða í síma 800 6611 eba á hhi.is
happdrætti
HASKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings