Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002 Fréttir DV ASÍ með helmingi hærra framlag af fjárlögum en Samtök atvinnulífisins: Gjöld til verkalýðsfélaga milljarðar króna Heildarsamtök á vinnumarkaði hafa allt frá þvi á fyrri hluta sjö- unda áratugar síðustu aldar notið framlaga úr ríkissjóði sem hafa ver- ið ætluð til hagdeilda samtakanna og til starfa að hagræðingar- og framleiðnimálum. Auk Alþýðusam- bands Islands og Samtaka atvinnu- lífsins hefur BSRB notið slíkra framlaga. Á þessu ári námu þessi framlög 7,6 milljónum króna og skiptust þannig að ASl fékk 4,3 milljónir króna, SA 2,3 milljónir króna og BSRB 1 milljón króna. Auk þess hefur ASÍ notið framlaga úr ríkissjóði til verðlagseftirlits. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir að verkalýðshreyfingin þurfi hvorki að hafa mikið fyrir innheimtu félagsgjalda né að afla fé- lagsmanna eða halda þeim, enda er atvinnurekendum skylt að halda eft- ir stéttarfélagsiðgjaldi af launum. „Þessi gjöld hafa ekkert lækkað við sameiningu verkalýðsfélaga. í heild má ætla að iðgjöld til verka- lýðsfélaga innan ASÍ nemi um 2 milljörðum króna árlega, en félags- gjöld i stéttarfélögum alls (þ.m.t. op- inberum) eru áætluð um 3,5 millj- arðar króna. Auk þess er haldið eft- ir af launum sjúkrasjóðsgjaldi, um 3 milljörðum króna árlega, og orlofs- heimilasjóðsgjaldi, um 740 milljón- um króna. Öndvert við verkalýðs- hreyfinguna þurfa félög atvinnurek- enda að laða að sér félagsmenn og innheimta hjá þeim félagsgjöldin. Félagsgjöld til atvinnurekendafé- laga í heild eru áætluð um 700 millj- ónir króna árlega. Þrátt fyrir að það feli í raun í sér óeðlilega íhlutun um starfsaðstöðu og styrkleikahlutfóll á vinnumarkaði hafa stjómvöld löngum haft tilhneigingu til að misskipta op- inberum fjárframlögum á þessu sviði. Hafa þessi hlutfóll oft verið í kringum 70% tU verkalýðshreyfmgarinnar á móti 30% tU atvinnurekenda. Stein- inn tekur þó úr í fjárlagafrumvarpi næsta árs, sem nú er tU lokameðferð- ar á Alþingi. Þar er gert ráð fyrir að framlag tU ASl verði hækkað í 30 mUljónir króna og hefur sú ákvörðun verið rökstudd með vísan tU niður- lagningar Þjóðhagsstofnunar. Varla er þó gert ráð fyrir því að atvinnurek- endur geti nú leitað tU ASl um upplýs- ingar við undirbúning kjarasamn- inga, t.d. um svigrúm tU launabreyt- inga,“ segir Ari Edwald. í svari forsætisráðherra á Alþingi í haust við fyrirspurn Ástu MöUer kem- ur fram að árið 1996 fengu Samtök iðnaðarins 95 milljónir króna í fram- lag en 168 mUljónir króna á árinu 2000. Framlög til FFSÍ námu á árinu 2000 um 10 mUljónum króna, 39 miUj- ónir króna fóru tU LÍÚ, 35 mUljónir króna tU Landssambands smábátaeig- enda, 16 mUljónir króna til Sjómanna- sambandsins og 209 mUljónir króna tU Bændasamtakanna ásamt búnaðar- samböndum og búgreinasamtökum og hefur framlag tU þeirra litið hækkað síðan 1998. -GG Eldur í fjöl- býlishúsi í Grafarvogi Minni háttar eldur kom upp í ruslageymslu fjölbýlishúss við Hverafold í Grafarvogi um hádegis- bUið í gær. Leiddi reykinn upp í stigagang hússins og varð slökkvi- liðið að reykræsta stigaganginn. Engin slys urðu á fólki vegna þessa en slökkvUiðið vill minna fólk á að henda ekki neinu í ruslið sem vald- ið getur bruna. Á þessum árstíma er fólk mikið að handfjatla eldfæri t.d. vegna kertaskreytinga og er um að gera að ganga tryggUega úr skugga um að það logi ekki á eldspýtunni áður en henni er hent i ruslið. -snæ Mikil umferðaróhöpp: Hálkan hrellir ökumenn Mikil hálka var á Suður- og Vesturlandi um helgina og fékk lög- reglan í Reykjavík t.d. 24 tilkynn- ingar um umferðaróhöpp sökum hálku á laugardag. Mikið eignatjón varð í þessum óhöppum en öku- menn slösuðust einungis minni háttar. Lögreglan í Borgamesi þurfti að hafa afskipti af sjö umferð- aróhöppum á laugardag sem öll má rekja til þess að ökumenn óku of hratt miðað við aðstæður í hálkunni. Eitt þessara óhappa var alvarlegt en þar slasaðist karlmað- ur við Laxá og var hann fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Á Mýrdals- sandi varð svo ein bílvelta á laugar- dag þar sem tveir menn slösuðust og er bíllinn talinn ónýtur. -snæ Þurrkuð epli Möndlur Blandaðir ÞURRKAÐIR ÁVESTIR ... alltsem þarfí baksturinn! DV-MYND HARI Álftaneskrakkar í heimsókn á DV Nemendur og kennarar úr 7. bekk E í Álftanesskóla heiðruöu ritstjórnarskrifstofur DV meö heimsókn á föstudag. Hafa krakkarnir eins og ungmenni fjölmargra annarra skóla aö undanförnu veriö aö vinna verkefni um fjölmiöla.Hafa þau m.a. unniö efni úr DV og skreytt meö því kennslustofu sína. Lokaáfanginn var svo aö kynna sér af eigin raun þá fjöl- miöta sem þau voru aö fjalla um. Hér sjást krakkarnir kynna sér tölvuumbrot DV hjá Þorbergi Kristinssyni. Hann hefur reyndar uþplifaö gríöarlegar umbyttingar i sínu fagi á undanförnum árum. Tiltölulega stutt er síðan orö voru steypt jafn haröan í blý í þunglamalegri setningarvél og raöaö síöan upp fyrir prentun. Nú hafa hraövirkar tölvur sameinaö hlut- verk setjara, umbrotsmanns og síöar einnig offsetljósmyndara undir einn hatt. Hart deilt á oddvita og sveitarstjóra í hreppsnefnd Stöðvarfjarðar: Þeir sögðu ekki satt og breyttu rangt - segir fulltrúi minnhlutans. Kýtt um kaup á snjómoksturstaekjum Minnihlutinn í sveitarstjóm á Stöðvarflrði lagði á aukafundi sveit- arstjómar, sem haldinn var sl. laug- ardagsmorgun, fram tillögur um van- traust á oddvita og að sveitarstjóri verði áminntur. Forsaga málsins era kaup sveitarstjóra á tækjum til snjó- moksturs og sanddreiflngar en sam- þykkt hreppsnefndar var ekki til staðar. Tækin kostuðu hálfa milljón en i upphafi vora þau sögð hafa kost- að helmingi minna, að sögn Aðal- heiðar Birgisdóttur, sem er oddviti minnihlutans. Velta málinu í umræðu götunnar Aðalheiður sagðist á hreppsnefhdar- fundi í siðustu viku hafa spurst fyrir um kaupverð tækjanna og þá fengið þau svör að það væri um 250 þús. kr. Næsta dag kveðst hún hafa óskað eftir þvi að fá að sjá reikninga. Þá hafl kom- ið í ljós að verðið var helmingi hærra. í framhaldinu kveðst Aðal- heiður hafa óskað eftir aukafundi í hreppsnefnd, svo alvarlegum augum hafi hún litið málið. Orðið var við fundarbeiðninni og var fundurinn sl. laugardag. „Þessum tveimm- tillögum minni- hlutans um vantraust á oddvita og áminningu á sveitarstjóra var þar vísað frá og þær fengust ekki einu sinni teknar til umræðu. Fundar- sköpin vora svolítið sniðin að því sem hentaöi hagsmunum meiri- hluta,“ segir Aðalheiður. Hún kveðst líka velta fyrir sér hvers vegna menn sjái sér ekki hagsmuni í að taka mál- ið til umræðu á vettvangi hrepps- nefndar, heldur loka á hana. Með því séu menn að velta málinu beint út í umræðu götunnar. „Ég hlýt að velta þvi fyrir mér hvort ég geti í framtíðinni treyst orðum odd- vita og sveitarstjóra úr því þeir sögðu ekki satt og breyttu rangt í þessu máli. Ég hef ekki ástæðu til að ætla að svo sé, en mun hins vegar halda áfram með þetta einstaka mál á næsta hrepps- nefhdarfundi,“ segir Aðalheiður. Fólk að gera úlfalda úr mýflugu „Þetta er smámál og fólk að gera úlfalda úr mýflugu," sagði Ævar Ár- mannsson, oddviti meirihluta hreppsnefndar, í samtali við DV í gærkvöld. Hann sagði aö á hrepps- nefndarfundi í sl. viku hefði þetta mál komið lítillega til umræðu en ekkert hefði verið um það bókað þá. Fulltrúar minnihlutans hefðu og einnig samþykkt þann fund með und- irritun sinni við fundargerð. Aðspurður segist Ævar ekki kannast við að hafa haft yfir neinar tölur um hvað umræddur snjómokstursbúnaður kosti. Hann hafi ekki heldur á neinn hátt komið að ákvarðanatöku í því máli. Hins vegar liggi fyrir að búnaður- inn kostaði 400 þúsund að frátöldum virðisaukaskatti. Það verði líka afskap- lega erfitt að afsanna eitt né neitt til eða frá hver hafi sagt eitthvað í þessu máli um einstakar tölur og því hafi sér þótt ástæðulaust að taka málið tO um- ræðu á hreppsnefndarfundi. -sbs S &1|iy2jj‘jSJJ REYKJAViK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 15.35 14.54 Sólarupprás á morgun 11.07 11.19 Síödeglsflóó 22.20 13.37 Árdegisflóð á morgun 10.47 02.02 Hlýnandi veður Suðaustan 5-13 m/s en 13-18 suðvestan til. Skýjað með köflum á Norðurlandi, dálítil rigning eða súld öðru hverju um landið sunnanvert, en annars þurrt að mestu. Heldur hlýnandi veður og hiti 2 til 8 stig. Dálítil rigning Búist er við sunnan 8-13 m/s og dálítilli rigningu sunnan- og vestanlands. Annars skýjað og úrkomulítið. Hiti 3 til 8 stig. A&fá&ju&ssii Miövikudagur Fimmtudagur Föstudagur Hiti 3° w Hiti 1“ til 8° til 8° til 5“ Vindur: 5-13'"/s Vindur: 5-10 ™/“ Vindur: 5-13 7! t Suðlæg átt og skýjað með köflum en dálítil rignlng eöa súld sunnan og vestran til. Fremur mllt veður. Suðlæg átt og skýjað með köflum en dál'itll rignlng eða súld sunnan og vestran til. Fremur milt veður. Suðaustlæg átt og víða rlgning eða slydda en úrkomulítið á Norðurlandl. Kólnandi veður. m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Alihvasst 13,9-17,1 Hvassviðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviörl >= 32,7 ÚEDSiU j± S AKUREYRI skýjaö -2 BERGSSTAÐIR léttskýjaö -3 BOLUNGARVÍK hálfskýjað 2 EGILSSTAÐIR skýjaö 0 KEFLAVÍK úrkoma í grennd 5 KIRKJUBÆJARKL. rigning 4 RAUFARHÖFN skýjað 1 REYKJAVÍK úrkoma í grennd 5 STÓRHÖFÐI skýjaö 6 BERGEN léttskýjað -3 HELSINKI skýjaö -10 KAUPMANNAHÖFN alskýjað 1 ÓSLÓ skýjað ■4 STOKKHÓLMUR -5 ÞÓRSHÖFN skýjað 7 ÞRÁNDHEIMUR skýjað -7 ALGARVE skýjað 14 AMSTERDAM alskýjað -3 BARCELONA skýjað 11 BERLÍN heiöskírt -4 CHICAGO léttskýjaö -4 DUBLIN alskýjaö 6 HALIFAX léttskýjaö -6 HAMBORG heiöskírt 1 FRANKFURT heiöskírt 1 JAN MAYEN skýjaö 1 LONDON súld 4 LÚXEMBORG þokumóöa -1 MALLORCA hálfskýjaö 14 MONTREAL alskýjað -2 NARSSARSSUAQ alskýjað 5 NEW YORK heiöskírt 1 ORLANDO þokumóða 12 PARÍS alskýjaö 3 VÍN heiöskírt -2 WASHINGTON léttskýjað -11 WINNIPEG heiöskirt -21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.