Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Page 10
10 MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002 Útlönd _______________________________________________________________________ DV Sprautaö á eldinn. Mikill skaði í stórbruna í Edinborg Mikill skaði varð í stórbruna i gamla Cowgate-hverfmu i Edinborg í fyrrakvöld þegar nokkur af elstu húsum borgarinnar brunnu svo að segja til grunna. Eldurinn kom upp yfir La Belle Angele næturklúbbnum og var fljót- ur að læsast í nálægar byggingar sem flestar eru á þjóðminjaskrá, auk þess sem aflt gamla hverfið er á heimsminjalista Unesco. Margar byggingamar eru frá miðöldum og standa á klettunum þar sem Edinborgar-kastali gnæfir yfir en hið þekkta Royal Mile- ferðamannahverfi sem margir ís- lendingar kannast við er í næsta nágrenni. Eldhafið var svo mikið að það tók slökkviliðsmenn borgarinnar um átján klukkustundir að ná tökum á eldinum og er óttast að glæður muni áfram leynast í rústunum jafnvel næstu tvo til þrjá daga. Hannur Nagappa fannst látinn Stjórnvöld í Indlandi tilkynntu í gær að lík stjórnmálamannsins Hann- ur Nagappa, fyrrum ríkisstjóra Kar- natak-héraðs, hefði fundist um helg- ina í skóglendi í nágrannaríkinu Tamil Nadu í suðurhluta Indlands. Nagappa var rænt frá heimili sínu í ágúst sl. af liðsmönnum stigamanns- ins Veerappan, en hann hefur lengi verið eftirlýstur af indverskum stjóm- völdum sem einn hættulegasti glæpa- maður landsins. Áður en líkið fannst hafði Veer- appen haft samband við lögregluyfir- völd og tilkynnt að Nagappa hefði verið sleppt, eftir að hann hefði særst í skotbardaga þegar lögreglan gerði áhlaup á fylgsni ræningjanna fyrir helgina. Séö yfir brunarústirnar. Mesti bruni í Þrándheimi í 161 ár Mesti bruni í Þrándheimi i 160 ár, eða frá árinu 1841, varð á laugar- daginn þegar fjögur timburhús viö göngugötu í miðborg bæjarins brunnu til grunna. Eldurinn mun hafa komið upp í djúpsteikingarpotti á News-veit- ingahúsinu í Thomas Angells-götu rétt fyrir hádegi og magnaðist mjög skjótt með þeim afleiðingum að fjög- ur hús stóðu fljótlega í björtu báli. Það tók slökkviliðsmenn nokkum tíma að ná tökum á eldinum og tókst það ekki fyrr en klukkan var langt gengin í fimm. Að sögn bæjarstjórans í Þránd- heimi, sem lýsir atburðinum sem verstu hamförum, nemur tjónið milljörðum króna og lofar hann að uppbygging svæðisins hefjist fljótlega. írakar skila inn tólf þúsund síðna yfirlýsingu: Þetta er heiöarleg, sönn og víðtæk skýrsla - segir Amir al-Saadi, helsti hernaðarráðgjafi Saddams írakar skoruðu í gær á bandarísk stjómvöld að leggja fram sannanir fyrir því að þeir hafi ennþá gjöreyð- ingarvopn í fórum sínum eins og Bandaríkjamenn hafa ítrekað hald- ið fram. „Ef Bandaríkjamenn hafa sann- anirnar eins og þeir halda fram þá ættu þeir að leggja þær strax fram til að taka af allan vafa. Því fyrr því betra fyrir alla aðila,“ sagði Amir al-Saadi, helsti hernaðarráðgjafi Saddams Hussein, á fréttamanna- fundi í Bagdad í gær, eftir að hafa á laugardag afhent Sameinuðu þjóð- unum nákvæma tólf þúsund síðna vopnayfirlýsingu, degi áður en frestur rann út. „Þetta er heiðarleg, sönn og víð- tæk skýrsla um vopnaáætlun okk- ar,“ sagði al-Saadi og bætti við að hún gerði grein fyrir um það bil átta hundruð stöðum þar sem vopnaeftirlitsmennirnir gætu leitað. „Hver sem er ætti að geta sannfærst Amir al-Saadi Amir al-Saadi les upp úr vopna- yfirlýsingu íraka í gær. um að við eigum engin gjöreyðing- arvopn," sagði Al-Saadi. Afrit af skýrslunni voru send höf- uðstöðvum vopnaeftirlitsins í New York og einnig tfl höfuðstöðva Al- þjóða kjarnorkumálastofnunarinn- ar, IAEA, i Vín. Talsmaður IAEA sagði í gær að þegar skýrslan bær- ist yrði strax hafist handa við að fara yfir hana og umsögn yrði send Öryggisráði SÞ innan tveggja vikna. Á níunda degi vopnaeftirlitsins í gær, heimsóttu eftirlitsmenn og sér- fræðingar jarðvísindastofnun í mið- borg Bagdad á meðan efna- og sýkla- sérfræðingar eftirnefndarinnar heimsóttu Fallugah-stofnunina þar sem framleiðsla efna- og sýklavopna fór áður fram. í gær fjölgaði um helming í eftir- litssveitunum þegar 25 manna hóp- ur sérfræðinga kom til Bagdad, en auk þess sendi SÞ þyrlu til íraks til að auðvelda leitina á afskekktari svæðum. REUTERSMYND Aukin olíumengun vlð Spánarstrendur Hér é myndinni sjáum viö sjálfboöaliöa sem unnu viö oiíuhreinsun á Comillas-ströndinni í nágrenni borgarinnar Santander á Noröur-Spáni í gær, en olían úr olíuskipinu Prestige er nú farin aö berast upp á strendur héraösins í um 500 kílómetra fjarlægö frá slysstaönum úti fyrir ströndum Galisíu. Palestínsk móðir skotin til bana fyrir framan börn sín ísraelskir hermenn skutu í gær palestínska móður til bana og særðu þrjú börn hennar, þar sem þau voru á gangi í Tel Sultan-flóttamannabúðun- um í nágrenni Rafah á Gaza-svæðinu. Sjónarvottur sagði að konan, sem hét Nahla Aqel og var 41 árs, hefði verið á göngu ásamt dóttur sinni á unglingsaldri og tveimur ungum son- um á leið til heimilis þeirra í Rafah- flóttamannabúðunum þegar ísraelsku hermennirnir hófu fyrirvaralaust skothrið á þau með áðurnefndum af- leiðingum. „Þau gengu á miðjum veginum og ég sá þau öll falla þegar skothríðin dundi á þeim. Móðirin var alblóðug og bömin lágu særð við hlið hennar," sagði sjónarvottminn. Talsmaður ísraelska hersins sagð- ist i gærkvöld ekkert vita um ástæðm skotárásarinnar en verið væri að Móðirin borin til grafar Hundruö syrgjenda fylgdu móöurinni Nahla Aqel til grafar í gær. rannsaka málið. „Við fengum fregnir af tveimur aðskildum atvikum þar sem komið hafði til skotbardaga milli ísraelskra hermanna og palestínskra byssumanna sem reynt hötðu að læð- ast inn í Rafiah Yam, landtökubyggð- ina í nágrenni Rafah," sagði talsmað- urinn. Á föstudaginn skutu ísraelskir her- menn tíu Palestínumenn til bana í al- Bureij-flóttamannabúðunum á Gaza- svæðinu og segja palestínsk stjórn- völd að flestir þeirra hafi verið óbreyttir borgarar. Tveir þeirra munu hafa verið starfsmenn Sameinuðu þjóðanna og fordæmdi Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóri SÞ, drápin harðlega í gær. ísraelar halda því fram að fimm mannanna hafi verið Hamas-liðar og hafa Hamas-samtökin staðfest að sex þeirra föllnu hafi verið þeirra menn, þar af tveir vopnaðir. Kastro vill aðstoð Fidel Kastro, for- seti Kúbu, sem þessa dagana held- ur þing karabískra þjóðarleiðtoga í fyrsta skipti, sagð- ist 1 gær sækjast eftir aðild að svokölluðu Cotonu- samkomulagi um þróunarhjálp Evr- ópuþjóða við fyrrum nýlendur. Kastro hafði áður hafnað aðild að samkomulaginu sem gert var árið 2000 á þeim forsendum að krafa Evr- ópuþjóðanna um mannréttindamál væri óaðgengileg og óréttlát. íranir óhræddir Kamal Kharrazi, utanríkisráð- herra írans, lýsti því yfir í gær að þeir hefðu engar áhyggjur af hugs- anlegri innrás Bandaríkjamanna í írak þar sem íranir hefðu góð tengsl við ýmsar þjóðir, auk þess sem þeir væru vel færir um að verja sig sjálf- ir. Kharrazi sagði einnig að það væri yfirlýst stefna bandarískra stjóm- valda að halda uppi eðlilegum og friðsömum samskiptum mifli þjóð- anna og því hræddist hann ekki hugsanlegar aðgerðir. Fjöidamótmæli í París Fyrirhuguð- um niðurskurði franskra stjóm- valda í mennta- málum var harðlega mót- mælt 1 gær þeg- ar foreldrar og nemendur studdir þúsund- um borgara tóku þátt í mótmæla- göngu um götur Parísar. Að sögn samtaka kennara tóku um fjörutíu þúsund manns þátt í mótmælunum rétt viku eftir önnur eins mótmæli franskra ríkisstarfs- manna um síðustu helgi. Fjórtán féllu í Kasmír Fjórtán manns, þar á meðal átta skæruliðar aðskilnaðarsinna maóista í Kasmír, féllu í aðskildum átökum sem urðu í stríðshrjáðu Kasmír í gær. Fjögurra daga vopna- hléi sem skæruliðar lögðu sjálfir til er þar með lokið og kenna stjórn- völd öfgasinnuðum hópum um. Vill fresta kosningum Yasser Arafat, leiðtogi Palestinu- manna, sagði í gær að nauðsyn- legt væri að fresta fyrirhuguðum kosningum sem fram eiga að fara meðal palestínsku þjóðarinnar í jan- úar þrátt fyrir að ísraelar myndu strax draga herlið sitt á brott frá hemumdu svæðunum. „Við þurfum meira en einn mán- uð til þess að undirbúa kosningar og úr þessu er tíminn allt of naum- ur. Við þurfum minnst þrjá mánuöi og staðan er engum öðrum en ísra- elum sjálfum að kenna. Það er ekki hægt að ætlast tfl þess að kosninga- undirbúningur fari fram yfir gap- andi byssukjöftum og hersveitum um allt heimastjómarsvæðið. Nýr frelsisleiðtogi Herbert Haupt var í gær kjörinn nýr leiðtogi Frelsis- flokksins í Austurríki, hægri öfga- flokks Jörgs Haider. Haupt, sem tók við leið- togastöðunni tfl bráðabirgða í október þegar Mathias Reichhold sagði af sér vegna heilsubrests, var einn í framboði og hlaut tæp 90%. Fimm fórust í snjóflóðum Fimm franskir skíðamenn fórust í snjóflóðum í frönsku Ölpunum um helgina, auk þess sem fimm til við- bótar slösuðust alvarlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.