Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Qupperneq 11
11
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002
PV_____________________________________________________________ Utlönd
George W. Bush.
Uppstokkun boð-
uð í ráðgjafaliði
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur boðað algjöra uppstokkun í
efnahagsráðgjafasveit sinni eftir
óvænta afsögn tveggja lykilmanna í
starfsliði hans fyrir helgina.
Þeir sem sögðu af sér voru Paul
O'Neill fjármálaráðherra og Lawrence
Lindsey, helsti efnahagsráðgjafí Hvíta
hússins, en Lindsey sagði af sér strax
í kjölfar uppsagnar O'Neills á fóstu-
daginn.
Búist er við því að eftirmaður
O'Neilis verði tiinefndur í vikunni og
hefur nafn Stephen Friedman, fyrr-
verandi forstjóra Goldman Sachs,
verið nefnt tO sögunnar.
Frá upphafi hafa verið uppi efa-
semdir um hæfni O'Neills og hefur
hann stöðugt sætt gagnrýni fyrir
klaufalega framkomu sina.
Óstaðfestar fréttir herma að O'NeOl
hafi sagt af sér að beiðni Hvíta húss-
ins og að ný skýrsla um aukið at-
vinnuleysi í nóvember hafi verið
komiö sem fyOti mælinn.
Viagra lykillinn að
endurreisninni?
Stinningarlyfið Viagra gæti hugs-
anlega verið lykOlinn að þehri upp-
örvun sem þarf tO að endurreisa við
efnahag þeirra landa sem orðið hafa
hvað verst úti í niðursveiflu síðustu
missera, ef marka má niðurstöður
rannsóknar sem nýlega var kynnt á
heObrigðisráðstefnu í Singapúr.
Þar vara sérfræðingar við því að
kynferðisleg vandamál eins og getu-
leysi gætu hugsnalega haft sin nei-
kvæðu áhrif og hæglega tekið sinn
efnahagslega toO.
„Kynferðisleg ófullnægja hefur
vissulega mikO áhrif og verður þess
valdandi að draga úr væntingum okk-
ar sem leiðir sjáifkrafa tO þjóð- og
efnahagslegrar niðursveiflu,“ sagði
prófessor EmO Man-Lun Ng, sem
stjórnaði rannsóknarverkefninu.
Hann bætti við að greinOeg tengsl
væru á mOli versnandi efnahags og
löngunar tO kyniífs þar sem með-
fýlgjandi óvissa og spenna hefði sín
niðurdrepandi áhrif. Viagra væri því
hugsanleg lausn á vandanum, aOa
vega fyrir karlpeninginn, en rann-
sóknirnar hefðu frekar beinst að
vandamálum þeirra þó þau séu ekki
síður fyrir hendi hjá konum.
íranskir námsmenn mótmæla.
Framhald á mót-
mælum í íran
Framhald varð á mótmælum
námsmanna við háskólann í Teh-
eran í íran um helgina þegar um
3000 þeirra héldu mótmælafund á
háskólalóðinni á laugardaginn.
Mótmælendur köOuðu eftir frels-
un pólitískra fanga og kröfðust póli-
tískra umbóta í landinu.
Fjöldi námsmanna var hand-
tekinn eftir að tO átaka kom milli
þeirra og lögreglu, sem sett hafði
upp varnargirðingar utan háskóla-
lóðarinnar tO aö hindra æsta harð-
línumúslíma, andstæðinga póli-
tískra umbóta í landinu, í að ráðast
gegn mótmælendum.
Al-Qaeda hóta áframhald-
andi hryðjuverkaárásum
Al-Qaeda-samtökin hafa hótað
áframhaldandi hryðjuverkaárásum á
bandarísk og ísraelsk skotmörk í kjöl-
far árásanna tveggja í Kenía í síðasta
mánuði, sem urðu þrettán manns að
bana þegar sprengja sprakk í anddyri
Paradise-hótelsins i Mombasa.
Þetta kom fram í hljóðupptöku sem
send var út í arabísku al-Jazeera sjón-
varpsstöðinni í Qatar í gær, en þar
hótaði Sulaiman Abu Ghaith, helsti
talsmaður al-Qaeda, því að frekari
árásir væru fyrirhugaðar á bandarísk
og ísraelsk skotmörk á landi, í lofti og
á sjó.
„Krossferð gyðinga verður hvergi
óhult fyrir árásum stríðsmanna okk-
ar,“ sagði Abu Ghaith í yfirlýsing-
unni, sem einnig er birt á íslamskri
vefsíðu, aðeins nokkrum dögum eftir
að al-Qaeda samtökin lýstu ábyrgð á
árásunum í Kenía.
„Við munum ráðast á það sem þeim
er mikOvægast og einnig gegn hernað-
arlegum hagsmunum þeirra," sagði
Abu Ghaith.
Stjórnvöld í Kenía hafa lýst hættu-
ástandi í landinu í kjölfar hótunarinn-
ar og sett her og lögreglu í viðbragðs-
stöðu.
Sulaiman Abu Ghaith
Sulaiman Abu Ghaith, helsti talsmaöur al-Qaeda-samtakanna, hótaöi í gær
áframhaldandi hryöjuverkaárásum á bandarísk og ísraelsk skotmörk í kjölfar
árásanna tveggja í Kenía í síöasta mánuöi.
Nýtt Líf