Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002 Menning______________________________________________________________________________________________________________________DV Umsjón: Silja Aðatsteinsdóttir silja@dv.is ART á faraldsfæti Aö undanfórnu hefur verið kvartað um ónóg tengsl íslenskrar myndlistar við myndlistina í öörum löndum; sú ávöntun væri þess valdandi að hérlent listáhugafólk færi á mis við mikilvæga myndlistarviðburði. Ein leið til að auka á þessi tengsl er fólgin í skipulegu samstarfi íslenskra safna við sambærileg söfn í nágrannalöndunum, og þá á ég ekki einasta við Norðurlandaþjóðirn- ar. í stað þess að hugsa stöðugt í staðbundnum einka- eða samsýningum, ættu forráðamenn ís- lenskra safna að íhuga að búa aUar sýningar til flutnings og bjóða þær útlendum söfnum. Á móti byðist þeim væntanlega að halda sýningar á verkum markverðra listamanna í öðrum löndum með reglulegu millibili. Farandsýningum fylgir auðvitað verulegur flutnings- og tryggingarkostn- aður, en stærstu kostnaðarliðir, til dæmis vegna sýningarskrár, myndu deilast niður á þrjú eða fleiri söfn. Norræna myndlistarappíratið, NIFCA, væri kannski rétti aðilinn til að setja á fót slíkan „skiptimarkað" með listsýningar. Undanbrögö Tilefni þessara orða er sýningin á verkum danska listamannsins Martins Bigum að Kjar- valsstöðum, en hún er einmitt til komin vegna samstarfs Malmö Konstmuseum, Listasafns Reykjavíkur og Borás Konstmuseum. Martin Big- um er raunar í meira lagi safnvænn listamaður, því árið 1997 tóku fjögur dönsk listasöfn hann upp á arma sér og stóðu fyrir farandsýningu á verkum hans. Var hann þá rétt rúmlega þrítugur að aldri. Því er Ijóst að menn taka Bigum býsna alvarlega meðal frændþjóða vorra. Sjálfum er mér ekki alveg ljóst hvað það er í líf- inu eða listinni sem hann sjálfur tekur alvarlega. öll aðferðafræði hans markast af meðvitaðri íróníu, margræðni og undanbrögðum harðsvíraðra póstmódemista sem forðast að láta hanka sig á prívatmeiningum. Vissulega ber Big- um sig að eins og hefðbundinn listmálari, en ýkjukenndur myndstíll hans er ættaður beinustu leið úr ævintýrabókum fyrir börn og unglinga. Og það sem eflaust eykur á aðdráttarafl þeirra í norrænu samhengi er að Bigum staðsetur frá- sagnir sínar hér á norðurslóðum fremur en að al- þjóðavæða þær. Bókmenntir Þannig virkjar hann sögur H.C. Andersen og norrænar þjóðsögur um álfa og tröll. Náttúran og borgarlandslagið og skammdegisbirtan í mynd- um hans eru einnig ættuð héðan úr norðrinu. Auk þess virðist listamaðurinn eiga erindi við Tívoli í Kaupmannahöfn, ef marka má ljós- myndaseríu sem er soldið eins og út úr kú á sýn- ingu hans. Myndlíst Allt er þetta líkingamál. Samkvæmt meðfylgj- andi texta er meginumfjöllunarefni sýningarinn- ar „heimkoman" í margyflrfærðri merkingu, og hún virðist tengjast sjálfri „listinni", (ART) sem er persónugerð í myndunum sem hempuklæddur dvergur með ljá (!?). Dvergur þessi er stöðugt á leiðinni „heim“, en ratar í aðskiljanlegar raunir. Hér stöndum við frammi fyrir grundvallar- spurningu. Getur þessi ýkjukenndi, gróteski og skoplegi myndstíll gegnt því allegoríska hlut- verki sem Bigum, og örugglega fleiri listamenn, vilja að hann gegni? Geta margþvældar teikni- myndaflgúrur nokkurn tímann tekið að sér að miðla stórbrotnum þankagangi og djúpum tilfinn- ingum? Um það hef ég miklar efasemdir. Að minnsta kosti náðu þessi verk ekki að hreyfa við mér. Aðalsteinn Ingólfsson Heimkonnan eöa: heimurinn samkvæmt ART stendur til 5. jan. 2003. Kjarvalsstaöir eru opnir alla daga kl. 10- 17 og til kl. 19 á miöv. a Gegn sleggjudómum Öðruvísi dagar nefnist nýjasta bók Guðrúnar Helga- dóttur. Hér kynnumst við nýrri fjölskyldu og er sögumaður Karen Karlotta sem er bara níu ára en hugsar margt skemmti- legt og skrýtið um fjölskyldu sína og aðra. Hún er yngst en á þrjú eldri systkini, Matthildi sem er nitján ára og búin að fá sér gervineglur í tilefni þess að hún er að verða stúdent, Martein sem er fimmtán ára og hefur gaman af að yrkja og Jöra, sem er næstur henni í aldri og góður vinur hennar. Mamma og pabbi þessara systkina eru útjöskuð af vinnu eins og algengt er með foreldra, einkum eftir að þau byggðu sér nýtt einbýlishús. Svo kemur Karlotta amma við sögu, dugnaðarforkur mikill, stór kona með svört krulluð hár á hökunni. Sagan gerist á haustmánuðum og segir frá því þeg- ar Jöri og Karlotta fara að bera út Moggann. Meðal Moggakaupenda er gömul kona, Elísabet Davíðsdótt- ir, sem Karlottu finnst afar dularfull enda þekkir hana enginn þó að hún hafi búið í hverflnu í mörg ár. Svo fer að Karlotta og Elísabet kynnast og þá kemur i ljós að saga hennar er sarnofm mannkynssögunni og varpar um leið ljósi á samfélag samtimans. Karlotta og Elísabet lenda svo í einkennilegu ævintýri sem þeim tekst að leysa í tæka tíð fyrir jól. Öðruvísi dagar er spaugileg og fyndin saga og má þá einkum nefha samskipti fjölskyldunn- ar. Til að mynda spyr Karlotta amma Matt- hildi hvort hún sé kom- in með kartnögl þegar hún sér gervineglumar, og viðbrögð Karenar Karlottu við erföafjár- skattinum sem lagður er á ömmu hennar eru stórskemmtileg. Guðrún tengir ís- lenskan hversdagsleika við atburði úti í hinum stóra heimi með ágæt- um árangri. Um leið vekur hún umræðu um fordóma en Karen Karlotta á einkar erfitt með að þola sleggju- dóma fjölskyldu sinnar sem segir að hinn og þessi sé „klikkaður" eða álíka. í sögunni lær- ir fjölskyldan að fólk er ekki allt eins og það virðist við fyrstu sýn og Karen Karlotta lærir líka að fjölskyldan meinar ekki alltaf það sem hún segir og óþarfi er að taka hlutina of al- varlega. Þá kemst fjölskyldan að því að það er betra að tala um hlutina, líka þá óþægilegu. Fjölskylda Karenar Karlottu minnir um margt á fýrri fjölskyldur Guðrúnar; þannig er Matta systir eldri útgáfa af Önnu Jónu, með króníska ástsýki og annað gild- ismat en krakkarnir. Mamma Karenar er skemmtileg persóna sem er ekki alveg sátt við lffið eins og það er en þökk sé yngstu dótt- urinni kynnist hún ýmsum skemmtilegri hliðum lífsins i þessari sögu. Karen Karlotta er sjálf skemmtileg persóna, alvarleg og með stöðugar áhyggj- ur. Guðrúnu tekst vel sem endranær að lýsa öðruvísi sýn bamsins á það sem fullorðnum finnst hversdagslegt af gömlum vana. Öðruvísi dagar er hlý bók; frá henni stafar góðmennsku og velvild. Lesandi fyllist skilningi og umburðarlyndi að loknum lestrinum og veitir svo sannarlega ekki af. Katrin Jakobsdóttir GuSrún Helgadóttir: Ööruvísi dagar. Myndir: Anna Cynthia Leplar. Vaka-Helgafell 2002. ... mannsgaman Af rauli umlarans Norðan við Rauða torgið í Moskvu er svolítið hverfi lágreistra húsa sem máluð eru á víxl i gul- um og rauðbrúnum lit. Á siðustu dögum Sovétsins voru rekin þar þónokkur veitingahús fyrir fólk með dollara í fór- um sinum. Þetta voru öðruvísi staðir, heimahús með kokkum og mörg hver svo lítil að einungis fáir komust að í einu. Við fórum þar nokkrir saman að sötra súpur með kjöti og káli til hálfs. Þar var spilað á lækur og söngvarinn sat úti í homi og raulaði meir en hann söng. Svipur hans var ámátlegur og flatur. Og hnén hristust bæði eins og blómið smáa í þjóðsöngnum. Þessi hornmaður dró að sér augu og eyru. En gerði samt fátt. Eins og hann hæfi sig aldrei á loft upp úr ijúfsárum kvæðum af einsemd og dauða en raulaði fremur í hægri atrennu að einstaka sérhljóða. Já umlaði út úr sér ósóma heimsins. Ég býst við að okkur hafi langað til að gráta framan við þennan tregafulla flutning á sögu og geymd. En við fengum okkur ekki til þess. Sátum þama hoknir yfir söltuðu seyði og sigldum með skeiðina á milli kálbita og kjöts. Nokkru seinna fórum við hljóðir út í nóttina, mettir af mannsins meini. -SER Konungar háloftanna Guðbergur Auðunsson og Brian Pilkington hafa saman skapað ynd- islega bók með fallegri sögu úr æsku Guðbergs og litríkum og ná- kvæmum myndum Brians sem kalla skýrt fram löngu liðin ár. Sagan segir frá fjórum systkinum sem taka berstrípaðan dúfuunga, nýkominn úr egginu, í fóstur og ala hann upp. En þó að lítið þurfi fyrir dúfum að hafa miðað við ýmis önn- ur gæludýr tekur pabbi bamanna nokkuð skondið ráð til að koma í veg fyrir fjölgun dúfna á heimilinu og frá því segir sagan. Mál og menning gefur bókina út. Imbra Ljóðabókin Imbra eftir Aust- firðinginn, spaugarann, skáldið og nátt- úruvemdarsinn- ann Hákon Aðal- steinsson er sam- ansett af ljóðum og kvæðum frá ýmsum tímum, eins og hann segir sjálfur í formála. Mörg eru ort að gefnu tilefni og eru komin á prent vegna þrýstings frá fólki sem hafði heyrt þau flutt og langaði að lesa þau á bók. Það á við um Konungs- drápu sem flutt var við Hákonarhól í Noregi haustið 2000, ýmis brúð- kaups- og afmæliskvæði og gaman- bragi en ekki síst um „Ákall“ sem flutt var á Eyjabökkum á stund sem ekki gleymist þeim sem upplifðu: Heyr vorar bœnir, örœfaandi óspilltra fjalla. Gef þú oss mátt til að geyma þinnfjársjóó um grundir og hjalla. Laufgaöir bakkar, lágvaxinn gróður, lindir sem kliða, burkni í skoru og blóm í lautu, biðja sér grióa. Hér eru líka tær náttúrukvæði eins og „Hreindýr", ástarljóð og vöggukvæði og allt sem andann gleður. Hörpuútgáfan á Akranesi gefur bókina út. Söngbækur Skálholtsútgáfan hefur gefið út tvær nýjar söngbækur með nótum í út- gáfuröðinni Söngvasveigur. Önnur heitir „Við hátíð skulum halda" og geymir 25 jóla- og aðventu- söngva sem raddsettir eru fyrir barnakóra og kvennakóra. Lögin eru íslensk og erlend, bæði hefð- bundnir jólasálmar og veraldleg jólalög. Hin bókin er sérstaklega ætluð blönduðum kórum og heitir Heyr söngvanna hljóm. Þar eru rúmlega 50 lofgjörðarsálmar og söngvar, allir stuttir, tiltölulega auðveldir og á færi allra kóra. M.a. eru hér þekkt- ir sálmar í nýjum útsetningum, afr- íkskir og suður-amerískir sálmar og trúarleg alþýðutónlist sem er sam- bland af negrasálmum, vísnalögum, dægurlögum og þjóðlögum Bókahappdrættið Dregið hefur verið í happdrætti Bókatíðinda fyrir 7. des.: 90.096, 8. des.: 74.378 og 9. des.: 99.888.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.