Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 Fréttir DV Virkjanadeilur: Vegið að heiðri vísindamanna Halldóra Friðjónsdóttir, formaður stjórnar Bandalags háskólamanna, segist harma síðustu fullyrðingar sem fallið hafa vegna Kárahnjúka- virkjunar og vega að heiðri vísinda- manna í landinu. „Stjómmálamenn og aðrir hafa verið óragir við að haldi þvi fram að niðurstöður rann- sókna ýmissa vísindamanna séu mengaðar af tilfinningum, pólitík eða öðrum annarlegum hvötum sem ekkert hafa með vísindaleg vinnu- brögð að gera og að gefnu tilefni samþykkti stjórn Bandalags há- skólamanna eftirfarandi ályktun á fundi stjórnar í nóvember. „Stjóm Bandalags háskólamanna gerir alvarlegar athugasemdir viö að æðstu ráðamenn þjóðarinnar skuli ítrekað vega að heiðri sérfræð- inga og vísindamanna með niðrandi og oft á tíðum órökstuddum um- mælum um störf þeirra. Bandalagið minnir á að starfsheiður vísinda- manna byggir á hlutlægri öflun gagna og túlkun á niðurstööum um leið og það bendir á þá staðreynd að menntun er forsenda þróunar og framfara í íslensku atvinnulifi." Hvorki Páll Skúlason, rektor Há- skóla íslands, né Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra vildu tjá sig um málið þegar DV hafði samband við þá í morgun. -Kip BBC myndar mótmælin Breska sjónvarpsstöðin BBC tekur upp mótmælafund á Austurvelli í dag þar sem hópur fólks vill vekja at- hygli á andstöðu þess viö fyrirhugað- ar virkjunarframkvæmdir, ekki síst Kárahnjúkavirkjun. Fólkið hefur komið saman í stutta stund í hádeg- inu allar götur frá því i haust og læt- ur ekki deigan síga. Samkvæmt upp- lýsingum DV vaknaði fyrst áhugi sjónvarpsstöðvarinnar á því þegar Hildur Rúna Hauksdóttir, móðir Bjarkar, fór í hungurverkfall. -Ótt í fögru umhverfi Nesjavalla: Fúll pyttur rétt við húsgafl Nesbúðar Skólpmál við Nesbúð á Nesja- völlum í næsta nágrenni hinna miklu hitaveitumannvirkja Orku- veitu Reykjavíkur eru í verulegum ólestri. Þrátt fyrir annars vönduð og rándýr mannvirki á svæðinu rennur afrennsli frá Nesbúð óhindrað úr opinni skólplögn út í náttúruna. Nokkra tugi metra frá húsunum þar sem gestum hefur um árabil verið boðið upp á veitingar og gist- ingu hefur myndast dálaglegur skólppyttur en með bökkum hans liggur reiðleið hestamanna. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins þurfti fyrir stuttu að blása út lagn- imar við Nesbúð vegna stíflu. Mun hafa verið miður geðslegt þar um að litast eftir þá aðgerð þar sem frárennslisrörið liggur út úr mold- arbarði rétt neðan Nesbúðar. Ein- hvern tíma virðist hafa átt að koma þarna upp rotþró en brunnur þró- arinnar stendur nú opinn og þurr og i honum eru brotin plaströr og annað rusl. Er þetta 1 hrópandi andstöðu við yfirlýsta umhverfis- stefnu OR, en þar segir m.a.: Orkuveita Reykjavíkur vinnur í sátt við náttúruna á öllum sviðum. Stuðlað er að góðri nýtingu nátt- úruauðlinda, fegrun lands og um- hverfis. Skammt er síðan DV birti ógeðs- legar myndir af seyru sem dælt var úr safnþró viö Hótel Valhöll á Þingvöllum og ekið á tún þar ekki allfjarri. Hafði það viðgengist að sögn bónda sem sá um verkið í ein fimmtán ár án athugasemda. Eftir myndbirtingu DV af þessari seyru- dreifingu var verkinu þegar í stað hætt og hefur seyrunni síðan verið ekið til Reykjavíkur á tankbíl einu sinni í viku. Búið er að taka ákvörðun um að setja upp hreinsi- búnað viö hótelið sem leysa á mál- ið á þeim stað á næstu mánuðum. Virðist ekki síöur þörf á að taka til hendi á Nesjavöllum þar sem fyrirmönnum erlendra ríkja er gjarnan boðið til að skoða afrakst- ur íslensks hugvits í virkjun jarð- hita. Sennilega hefur engum þeirra DVJvlYND SIGURÐUR JÖKULL Við Nesbúð á Nesjavölium Skammt rieöan Nesbúöar getur aö líta miöur fallega fúla pytt sem stingur mjög í stúf viö fagurt umhverfi Nesjavalla. Hér má sjá enda skolplagnarinnar. þó verið sýnt það hugvit sem beitt er í frárennslismálum Nesbúðar. Nesbúð er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og að sögn veitinga- manns sem leigir húsakostinn af Orkuveitunni eru hús og frá- rennslismál á staðnum á ábyrgð eigenda. Hann segist því ekki vita hvernig frágangi sé nákvæmlega háttað á þeim búnaði. Alfreð Þor- steinsson, stjórnarformaður Orku- veitu Reykjavíkur, sagðist hafa talið að þarna ættu öll frárennslis- mál að vera í lagi. Hann sagði að menn frá Orkuveitunni yrðu sendir austur í dag til að kanna málið. -HKr. Metsölulisti DV vikuna 2.-8. desember: Tilhugalíf Jóns Baldvins er mest selda bókin Stefnir á alþjóðavettvang Söngkonan unga Jóhanna Guðrún stefnir að því að gefa út plötu á alþjóðleg- um markaði á næsta ári. Söngkonan dvel- ur erlendis þessa dag- ana en haft er eftir umboðsmanni henn- ar, Maríu Björk Sverrisdóttur, á mbl.is að viðræður hafi staðið yfir við útsetj- ara og lagahöfunda sem unnið hafa með stórstjömum á borð við Britney Spears, Jennifer Lopez og Celine Dion. Læknadeilan óleyst Tveir heimilislæknar sem höfðu ráðið sig aftur tO starfa á Heilbrigðis- stofnun Suðumesja hættu á fóstudag við að mæta til vinnu. Aðrir heimilis- læknar sem sögðu upp störfum sínum munu ekki sætta sig við þau kjör sem eru í boði. Vegabréfið í Köben íslenskir ferðalangar sem ætla að leggja leið sína til Danaveldis á næstu dögum þurfa að hafa vegabréflð með- ferðis. Ástæðan er leiðtogafundur Evr- ópusambandsins sem fram fer í Kaup- mannahöfn. Nýtt raforkulagafrumvarp Nýtt frumvarp um raforkulög verður tekið fyrir á auka- fundum stjómarþing- flokkanna í dag en frumvarpið var kynnt á ríkisstjóm- arfundi í gær. Val- gerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist í samtali við mbLis. vera bjartsýn á að samkomulag náist en í frumvarpinu er fólgin heOd- arendurskoðun á löggjöf um vinnslu, flutning, dreOingu og sölu raforku. Sprengt fyrir göngum íslenskir aðalverktakar og norsk- sænska fyrirtækið NCC hefja í dag framkvæmdir við Kárahnjúka með því að sprengja fyrir aðkomugöngum. Göngin liggja frá munna á vestur- bakka Jökulsár á Dal, neðan við vænt- anlega stíflu í Hafrahvammsglúfrum. Húsaleigan hækkar Dæmi eru um 34% hækkun húsa- leigu hjá Félagsbústöðum í kjölfar þess að leiguverð var jafnað um síðastliðin mánaðamót og 12% vaxtahækkunar. „Þetta var 9 mánaða með- ganga og það er ánægjulegt að fólk skuli taka eft- ir afkvæminu. Þetta er óneitan- lega mikO hvatn- ing og auðvitað er ég afskaplega glöð og ánægð fyrir hönd okkar Jóns Baldvins," sagði Kolbrún Bergþórs- dóttir, blaðamaður og bókmennta- gagnrýnandi, en bók hennar TO- hugalíf, um Jón Baldvin Hannibals- son sendiherra, trónir efst á metsölu- lista DV sem byggður er á bóksölu hátt í 20 verslana um allt land dag- ana 2.-8. desember. Bók Kolbrúnar tekur risastökk úr 9. sæti listans. í 2. sæti, fast á hæla Kolbrúnu, er metsölubók síðustu viku, Brauðrétt- ir Hagkaupa eftir Jóa Fel bakara- meistara. Bókin er aðeins seld í verslunum Hagkaupa en rokselst þar. Rödd Amaldar Indriðasonar fer úr ööru sæti í það þriðja og Reynir Traustason er með bók sína um Sonju í fjórða sæti eins og á síð- Kolbrún Bergþórsdóttir. asta lista. Þá kemur Eyðimerkur- dögun eftir Waris Dirie í 5. sæti en hún hefur fallið á listanum. Öðru- vísi dagar eftir Guðrún Helgadóttur féU úr 5. sæti í það sjötta en ÚtkaUs- bók Óttars Sveinssonar er í 7. sæti eins og síðast. Aðeins ein bók er ný í hópi 10 söluhæstu bókanna, í aldanna rás eftir niuga Jökulsson o.fl. Sú bók er enn fremur ný í hópi 20 best seldu bókanna eins og sést á meðfylgjandi lista. AUs eru sex bækur nýjar á listanum. Þeirra á meðal eru bama- bækumar Njála eftir BrynhUdi Þor- geirsdóttur i 15. sæti og GaUsteinar afa Gissa eftir Kristínu Helgu Gunn- arsdóttur í 20. sæti. Amaldur Indriðason á einn tvær bækur á lista en kUjuútgáfa Mýrar- innar er í 19. sæti. Ög ekki nóg með það. Bók Amaldar, Grafarþögn, er næst inn á lista, í 21. sæti. Metsölulisti DV er birtur í sam- vinnu við eftirtaldar verslanir: Penninn-Eymundsson (12), Bóka- búðir Máls og menningar (6), Hag- kaup (7), Bónus (8), Samkaup (3), Nóatún, Selfossi (1) og Bókabúðina Hlöðum, EgUsstöðum (1). -hlh Metsölulisti Sala bóka 2. - 8. desember O Jón Baldvln Tllhugalíf - Kolbrún Bergþórsdóttir A® O Brauöréttir Hagkaupa - Jói Fel to O Röddln - Arnaldur Indriðason y© 0 Sonja - Reynir Traustason o O Eyölmerkurdögun - Waris Dirle y© O Ööruvísi dagar - Guörún Helgadóttlr 0 Útkall - Geyslr er horfmn - Óttar Sveinsson © 0 Artemis Fowl - Samsærlö - Eoin Colfer AO O Landneminn mikli - Viðar Hreinsson A® © ísland I aldanna rás - lllugl Jökulsson o.fl. ☆ 0 KK - Þangaö sem vlndurlnn blæs - Elnar Kárason to © Stoliö frá höfundl stafrófslns - Davíð Oddsson A© © Jón Sigurösson - Guöjón Friöriksson Y© © Nafnlausir veglr - Einar Már Guðmundsson A® © NJála - Brynhlldur Þorgelrsdóttlr •k © Stelpur í stuöl - Jacqueline Wilson y© © Kafteinn Ofurbrók - Dav Pilkey —i * © Gúmmí Tarsan - Ole Lund Kirkegaard ÍÍi © Mýrin (kilja) - Arnaldur Indriöason © Gallstelnar afa Glssa - Kristín Helga Gunnarsdóttir ☆ www.dv.is „....-Þaðan er hægt aðfaramná ST&áatKJI) síngaí.is. t Paréru jólakveðjur sem hægt er að senda vinum og ættmgjum. ÁAhiirc) i i erum við að sjálfsögðu með smáauglýsingaþjónustu ...aðha Hfrvangsst itc.tjjogsíminnþarer 4 62.50Q0........ 100 sóttu um starf Rúmlega 100 sóttu um starf sjúkra- flutninga- og slökkvUiðsmanna hjá SlökkvUiði höfuðborgarsvæðisins. Stöðumar voru auglýstar í nóvember. Karlar voru í mUdum meirUUuta um- sækjenda en aðeins 5 konur sóttu um. Að loknu fyrsta mati eru 60 eftir í hópnum - þar af fjórar konur. -aþ Haldið til haga Vegna tæknUegra mistaka við vinnslu blaðsins láðist að geta höfund- ar Ritstjómarbréfs sem birtist í síðasta Helgarblaði DV. Ritstjómarbréfið, sem bar yfirskriftina Hindrunarhlaup kvenna, er eftir Ólaf Teit Guðnason blaðamann. Frá ritstjórn í fyrirsögn fréttar DV um aukinn fjölda kvenna sem leitar tU neyðar- móttöku Landspítalans - háskóla- sjúkrahúss, eftir að hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eða nauðgun út- lendmga, voru dregnar of víðtækar ályktanir út frá þeim upplýsingum sem fýrir liggja. Hitt er hins vegar ljóst að það er orðið æ algengara að konur verði fyrir áreitni erlendra ferðamanna og verði fórnarlömb al- varlegs kynferðislegs ofbeldis. Langt er hins vegar frá því að hægt sé að fuUyrða um að sartUiengi sé á mUli of- beldisins og auglýsinga þar sem land og þjóð eru kynnt. -ritstj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.