Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 Útlönd DV REUTERSMYND Jimmy Carter Kominn til Óslóar til aö taka við friö- arverðlaunum Nóbels í dag. Carter vill að SÞ leiði friðarleitina Jimmy Carter, fyrrum Banda- rikjaforseti, sagði að styrjaldir væru af hinu illa þegar hann tók við friðarverðlaunum Nóbels í Ósló nú í hádeginu. Hann hvatti þjóðir heims til að fallast á forystu Sameinuðu þjóðanna þegar kæmi að því að leita friðar og leiða til að minnka bilið milli ríkra og fátækra. Carter sagði einnig í þakkarræðu sinni að heimurinn væri að mörgu leyti hættulegri á nýrri öld en áður þegar hryðjuverk og borgarastyrj- aldir hefðu leyst kalt stríð 20. aldar- innar af hólmi. „Við verðum að leggja áherslu á friðinn þegar við tökum á vandan- um sem steðjar að heiminum," sagði Carter meðal annars í Ósló. Þrjú lönd hafa tekið tilboði ESB Þrjú umsóknarlandanna hafa fall- ist á skilyrðin sem Evrópusamband- ið hefur sett fyrir inngöngu þeirra. Lönd þessi eru Kýpur, Slóvakía og Eistland. Hin umsóknarlöndin sjö hafa hins vegar ekki enn fallist á skilyrðin. Öll hafa umsóknarlöndin gert þaö ljóst að þau vilji líka fá meiri fjárhagsaðstoð ef öðrum lönd- um tekst að semja um meiri aðstoð frá Evrópusambandinu. Pólverjar komu á óvart á samn- ingafundi í Brussel í gær með því að leggja fram langan kröfulista. Per Stig Moller, utanríkisráðherra Dan- merkur, varaði þá við að gera of miklar kröfur á hendur ESB. Vonir standa til að ganga frá aðildarsamn- ingunum á leiðtogafundi ESB í Kaupmannahöfn í vikulok. Fólk óskast til starfa við pökkun. Kvöld- og næturvinna. Uppl. gefur Nína í síma 59 50 300 iHíiliililíiriii'ciil.sniiiljiii'lir. Suöurhrauni 3 - Garöabæ Láttu okkur yfirfara videótækið tímanlega fyrir jólin ^ Radióverkstæðiö Sorvn* Einholti 2 • sími 552 3150 Panasonic Prófkjör Likud-bandalagsins í ísrael: Stórsigur stuðnings- manna Netanyahus Stuðningsmenn harðlinumanns- ins Benjamins Netanyahus, nýskip- aðs utcmríkisráðherra Israels, unnu yfirburðasigur í prófkjöri Likud- bandalagsins sem lauk í gærmorg- un og raða sér í efstu sætin á fram- boðlista flokksins fyrir þingkosn- ingarnar sem fram fara i landinu þann 28. janúar nk. Þetta er nokkur sárabót fyrir Net- anyahu sem í síðasta mánuðu tap- aði með miklum mun fyrir Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, í kosningum um leiðtogasætið í Likud-bandalaginu og var sigur stuðningsmanna hans í prófkjörinu mun stærri en fyrir fram var búist við, en þeir unnu tíu af þrjátíu efstu sætunum. Nýjustu kannanir sýna að Likud- bandalagið sé líklegt til að vinna stórsigur í komandi kosningum og að það verði langstærsti flokkurinn á ísraelska þinginu á næsta kjör- tímabili, á kostnað helstu andstæð- inganna, Verkamannflokksins, en prófkjör hans hófst í gærmorgun. Benjamin Netanyahu Sigur stuöningsmanna hans þykir góö sárabót eftir ósigurinn gegn Sharon í leiötogakjörinu. Fyrirfram höfðu Sharon og Net- anyahu verið ætluð tvö efstu sætin á lista Likud-bandalagsins, en hinn gamalreyndi harðlínumaður Tzachi Hanegbi, sem skipaði sæti umhverf- isráðherra í rikisstjórn Sharons, fékk flest atkvæði í prófkjörinu og skipar því þriðja sætið á undan þeim Silvan Shalom utanríkisráð- herra og Limor Livnat mennta- málaráðherra, sem skipa fjórða og fimmta sætið. Hjá Verkamannaflokknum eru þrjú efstu sætin þegar frátekin fyrir þá Amram Mitzna, formann flokks- ins, Benjamin Ben-Eliezer, fyrrum varnarmálaráðherra og Shimon Peres, fyrrum utanríkis- og forsæt- isráðherra ísraels. Ranaan Gissin, helsti talsmaður Ariels Sharons sagði í gær að Yasser Arafat yrði ekki leyft að vera viðstaddur jólahaldið í Bethlehem í ár þar sem hann væri ekki „maður friðarins" og ætti því ekkert erindi þangað. „Honum verður ætlað að dvelja í höfuðstöðvum sínum í Ram- allah. Það er öllum fyrir bestu þar sem hann hefur valdið kristnu fólki miklum harmleik og nærvera hans myndi bara gera illt verra.“ REUTERSMYND Imelda aftur fyrir rétt Imelda Marcos, fyrrum forsetafrú á Filippseyjum, kom enn einu sinni fyrir rétt í höfuöborginni Manila í morgun þar sem hún svaraöi ákærum um aö hafa stungiö undan milljónum dollara og komiö fyrir á bankareikningum í Sviss. Stuöningsmenn Imeldu létu sig ekki vanta fyrir utan dómhúsiö og stöppuöu í hana stálinu. Blair segir að konan sín hafi ekki gert neitt af sér Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, steig fram fyrir skjöldu í gær og sagði að Cherie, eiginkona sín, hefði ekki haft nein afskipti af tilraunum yfirvalda til að koma dæmdum svindlara, sem aðstoðaði hana við íbúðakaup, úr landi. Staðfest hefur verið að Cherie Blair hringdi í lögmenn svindlar- ans, Ástralans Peters Fosters, til að spyrjast fyrir um málsmeðferðina. Forsætisráðherrann sagði í skrif- legu svari við fyrirspurn Iains Duncans Smiths, leiðtoga Ihalds- flokksins, að málið hefði hlotið eðli- lega meðferð og að pólitísk afskipti af því hefðu engin verið. Starfsmenn skrifstofu forsætis- ráðherrans höfðu áður fullyrt að Cherie, sem er vinkona kærustu Fosters, hefði ekki á neinn hátt aö- stoðað hann í baráttu hans gegn brottvísun frá Bretlandi. Breskir fjölmiðlar hafa farið mik- REUTERSMYND Forsætlsráðherrafrú í vanda Fasteignakaup bresku forsætisráö- herrafrúarinnar og samskipti hennar viö dæmdan svindlara hafa tröllriðiö breskum fjölmiölum síöustu vikuna. inn gegn Cherie Blair undanfama rúma viku eftir að upp komst að Foster hefði aðstoðað hana við íbúðakaup í Bristol þar sem elsti sonur Blair-hjónanna stundar há- skólanám. Foster hefur hlotið dóma í nokkrum löndum fyrir að selja gagnslaust megrunarte og fyrir að nota fölsuð skjöl máli sínu til stuðn- ings. Þá er hann eftirlýstur í heima- landi sínu fyrir enn eitt megrun- arsvindlið. Blaðafulltrúar Tonys Blairs neit- uðu í fyrstu að Foster hefði komið nálægt fasteignaviðskiptunum en urðu síðan að éta það ofan í sig. Cherie Blair baðst svo afsökunar á því að hafa valdið misskilningnum, eins og hún kallaði það. Mál þetta hefur orðið til þess að varpa rýrð á heiðarleika stjórnar Tonys Blairs sem hefur notið mikils meðbyrs i skoðanakönnunum. Stuttar fréttir Nýr fjármálaráðherra George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt John Snow, forstjóra stórs járnbrautar- fyrirtækis, í emb- ætti fjármálaráð- herra landsins. Öld- ungadeild Banda- ríkjaþings þarf að fallast á tilnefn- inguna áður en Snow getur tekið við embætti. Snow sagði í gær að hann myndi fylgja stefnu Bush um að hressa upp á efnahagslífið. Talar bara grænlensku Hans Enoksen, formaður nýrrar heimastjórnar flokkanna Simnut og IA á Grænlandi, er fyrsti landstjórn- arformaðurinn sem ekki talar ann- að en grænlensku. Enoksen er 46 ára kaupmaður. ESB heitir aðstoð Evrópusambandið hefur ákveðið að veita Eþíópíu rúmlega fimm milljarða króna aðstoð vegna þurrka og matarskorts í landinu. Fátækir styðja Chavez Hópar fátæklinga sem styðja Hugo Chavez Venesúelaforseta um- kringdu i gær sjónvarpsstöðvar sem þeir segja að styðji stjórnarandstæð- inga sem ætla sér að hrekja forset- ann úr embætti með verkfóllum. United lýst gjaldþrota Bandaríska flugfélagið United Airlines óskaði í gær eftir gjald- þrotaskiptum og varð þar með stærsta flugfélagið til að grípa til slíkra örþrifaráða. Dugir ekki að drepa OBL Sérfræðingur bandarísku alríkis- lögreglunnar FBI um hryðjuverk sagði í gær að þótt Osama bin Laden væri drepinn eða handsamaður myndi það ekki að losa Vesturlönd við þá ógn sem þeim stafar af stgarfsemi hryðjuverkamanna. Ný skjöl um presta Ný skjöl um kynferðislega mis- notkun kaþólskra presta í Banda- ríkjunum á sóknarbörnum sínum voru birt í gær, þar sem kemur fram að kirkjan vék nokkrum þeirra úr embætti. Áfangasigur fyrir Cheney Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, vann mik- ilvægan sigur í gær þegar dómari visaði frá máli sem endur- skoðunardeild Bandaríkjaþings höfðaði tÚ. að fá upp gefin nöfn forstjóra sem Cheney ráðfærði sig við þegar orkustefna stjómvalda var mótuð. Ókeypis í göngin Færeyingar fá að fara ókeypis um göngin undir Vestmannasund, fyrstu neðansjávargöng Færeyja, þar til byrjað verður að taka gjald fyrir á miðnætti annað kvöld. Banvænar aurskriður Að minnsta kosti 34 týndu lífi þegar aurskriður féllu á strandbæ nærri Rio de Janeiro í Brasilíu í gær og nokkurra er enn saknað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.