Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Síða 27
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 27 DV Enska rallíliðiö Ford hefur ráðið Finnann Mikko Hirvonen sem ökumann á Ford Focus-bíl liðsins í heimsmeistarakeppninni í rallí fyr- ir næsta ár. Mikko er aðeins 22 ára að aldri og þykir ákaflega efnilegur ökumaður. Norski leikmaðurinn Vidar Riseth, sem leikið hefur með 1860 Munchen í þýsku úrvalsdeildinni, er að öllum likindum á leið til Ros- enborgar 1 Noregi. Félögin hafa náð samkomulagi um að leikmað- urinn færi sig til Noregs og samn- ingur um leikmannaskiptin verður að öllum iíkindum undirritaður á næstu dögum. Riseth kom til 1860 frá Celtic fyrir tveimur árum og er með samning við liðið til 2005. Hann er þó ekki inni í myndinni hjá núverandi þjálfara liðsins. Japanski leikmaðurinn Naohiro Gakahara er nú til reynslu hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Ham- borg. Hann er markahæstur leik- manna í japönsku J-deildinni, en hann gat ekki leikið með Japönum á HM í sumar vegna sýkingar i lungum. Martin Keown, varnarmaður Arsenal, hefur beðið Arsene Weng- er afsökunar vegna atviks í leik Arsenal og Man. Utd. Keown sló þar Ruud Van Nistilrooy í jörðina, en dómari leiksins kom ekki auga á það. Enska knattspymusambandið er með málið til athugunar og lik- legt er aö Keown fái leikbann. Það verður enn eitt leikbannið sem leik- menn Arsenal fá á leiktíöinni, en bæði Ashley Cole og Dennis Berg- kamp eiga yfir höfði sér leikbönn vegna hegðunar sinnar á knatt- spymuvellinum. Borussia Dortmund hefur bæst á listann yfir lið sem eru á eftir Miroslav Klose en hann leikur nú með Kaiserslautern sem á í miklum erfiðleikum og heyr harða baráttu á botni þýsku úrvalsdeildarinnar. Klose er með samning við liðið til ársins 2005, en líklegt er að hann muni fara frá félaginu. Auk Dort- mund vilja Hertha Berlin, Bayem Munchen og fleiri lið utan Þýska- lands fá Klose 1 sínar raöir. Bobby Robson, framkvæmdastjóri Newcastle, segir að hann hafi neit- að tUboði frá portúgalska liðinu Benjica þess efnis að hann tæki að sér stjómun liðsins. Robson segir að Portúgalarnir hafi gefið sér klukkustund tU að gera upp hug sinn, en hann hafi aðeins þurft nokkrar mínútur tU þess. Hánn seg- ist vera i draumastarfinu sem fram- kvæmdastjóri Newcastle og að það muni verða sitt síðasta starf á ferl- inum sem framkvæmdastjóri. Dikembe Mutombo, leikmaður New Jersey Nets í NBA-deUdinni í körfuknattleik, verður frá keppni í aUt að íjóra mánuði. Hann fór í að- gerð vegna meiðsla á úlnliö en hann sleit liðband í liðnum í leik með New Jersey liðinu. ítalska fyrstudeildarfélagið Roma hefur óskað eftir því við ítalska knattspyrnusambandið að Pierluigi Collina dæmi ekki leiki félagsins í framtíðinni. Forsvars- menn' félagsins eru um þessar mundir að safna saman gögnum tU að styðja mál sitt og eru meðal ann- ars að setja saman myndband sem þeir segja að muni sýna að tví- mælalaust hallaði á lið Roma í dómum Collinas. Stephen Marbury, leikmaður Phoenix, var kjörinn leikmaður vikunnar í vesturdeUd NBA-deild- arinnar í körfuknattleik. Leikmað- ur austurdeUdarinnar var kjörinn Allen Iverson, en hann leikur meö Philadelfiu. Knattspyrnusamband Suður-Am- eriku hefur farið fram á það að álf- an fái fimm sæti á næstu heims- meistarakeppni i knattspymu, en Suður-Ameríka hefur nú fjögur sæti, auk þess sem lið úr álfunni þarf að leika aukaleik við lið frá Eyjaálfu. I síðustu heimsmeistara- keppni komust Uruguayar sem fimmta lið eftir aukaleiki viö Ástr- ali. Það eru fleiri að pressa á aukinn sætafjölda á úrslitakeppni HM, en Asía hefur sótt það stíft að fá fleiri sæti í úrslitakeppninni, auk þess sem Eyjaálfa hefur sótt það stíft að fá sæti í keppninni án þess að þurfa að leika aukaleik. Ekki verður séð hvemig Sepp Blatter, forseti FIFA, ætlar að snúa sig út úr þessu máli, án þess að styggja einhvem. -PS Þeir Marc Overmars og Patrick Kluivert veröa í eldlínunni með Barcelona í kvöld þegar þeir taka á móti Newcastle á Nou Camp í Barcelona. Fjórir leikir í Meistaradeild Evrópu í kvöld: Jafnar Barcelona 10 ára gamalt met AC Milan? - Patrick Viera líklega ekki með gegn Valencia Með sigri á Newcastle í A-riðli Meistaradeildarinnar í knattspymu getur Barcelona jafnað 10 ára gam- alt met AC Milan. Með sigrinum hefur Barcelona unnið 10 leiki í röð, en gamla metið setti AC Milan í gömlu Evrópukeppni meistaraliða, sem síðar breyttist í Meistaradeild Evrópu. Það var fyrsta árið sem keppnin var leikin í formi deildarkeppni, en ekki með útsláttarfyrirkomulagi. Þá verða þeir aðeins einum leik frá meti Ajax í öllum Evrópukeppnun- um frá árinu 1988, en þá sigraði Ajax í ails ellefu leikjum í röð. Það er fátt sem bendir til annars en þetta takist hjá leikmönnum Barcelona þar sem þeir hljóta að teljast sigurstranglegri á heimavelli sínum, Nou Camp, þrátt fyrir afleitt gengi í spænsku deildinni. Luis En- rique er enn frá vegna meiðsla, en Newcastle er án þeirra Alans Shear- er og Craig Bellamy. í B-riðlinum fær Arsenal Val- encia í heimsókn, en ensku meistar- arnir voru þeir einu sem náðu þremur stigum í fyrstu umferðinni í riðlinum. Það eru hins vegar ekki góðar fréttir fyrir Arsenal að ólík- legt þykir að Patrick Viera verði með í kvöld vegna meiðsla, en Dav- id Seaman kemur hins vegar inn í liðið að nýju. Ray Parlour tekur sæti Viera ef til kemur. Arsene Wenger útilokaði þó ekki að Viera myndi leika, en sagði það ekki líklegt. „Hann fékk spark á ut- anverðan fótlegginn og í framhaldi af því tognaði hann á innanverðu lærinu. Það er ekki gott að vera án Viera og ég er viss um að Spán- verjarnir verða fegnir því. Hins veg- ar ef sá leikmaður sem kemur i hans stað kemur til leiks meö réttu hugarfari verður þetta allt í lagi. Parlour hefur ekki leikið marga leiki, en hann er harður af sér,“ sagði Wenger. Það eru fleiri breytingar á Arsenal-liðinu í kvöld, Sol Campbell kemur að nýju inn i liðið og þá er talið að Dennis Bergkamp muni leika við hlið Thierry Henry í sókn- inni. -PS Sunderland og Man, City mættust í ensku úrvalsdeildinni: Góður sigur City Það er ekki glæsilegt útlitið hjá Sunderland en í gærkvöld tapaði lið- ið sínum níunda leik í ensku úrvals- deildinni og hefur ekki skorað mark í fimm leikjum í röð. Það voru leikmenn Manchester City sem reyndust ofjarlar Sunder- land í gærkvöld, en City sigraði 0-3 á leikvangi ljóssins, heimavelli Sund- erland. Gestimir voru betri aðilinn í leiknum allan tímann og hefði sig- ur City getað orðið mun stærri, því þeir fengu nokkur góð færi til að skora fleiri mörk. Peter Schmeichel, markvörður Man. City, varð þó að taka á honum stóra sínum í eitt eða tvö skipti í leiknum, en að öðru leyti náðu afspymulélegir leikmenn Sund- erland ekki að ógna sigri Man. City. Vamarleikur Sunderland var í al- gerum molum og áhangendur heimaliðsins létu ekki bjóða sér þessa frammistöðu og yfirgáfu völl- inn löngu áður en leiknum lauk. Ekki eru sjáanleg nein batamerki á liði Sunderland eftir að Howard Wilkinson tók við liðinu og spurning hversu lengi hann verður við stjórn- völinn þar á bæ. Það voru mörk frá þeim Mark Vivian Foe, Sun Jhai og Shaun Goater sem tryggðu sigurinn. Man. City komst með sigrinum í 12. sæti deildarinnar með 23 stig, en Sunderland er sem fyrr í þvi næstneðsta með 14 stig. -PS Sport Tí MEISTARADEILDIN " " ’--—!j------- A-riöill Úrslit í 1. umferð Leverkusen-Barcelona..........1-2 Newcastle-Inter Milan ........1 -A Leikir kvöldsins Barcelona-Newcastle...... Inter Milan-Leverkusen .. .. Inter Milan Staðan 110 0 4-1 Barcelona 110 0 2-1 Leverkusen 10 0 1 1-2 Newcastle 10 0 1 1-4 B-riðill Úrsllt í 1. umferð Roma-Arsenal.................1-3 Valencia-Ajax................1-1 Leikir kvöldsins Ajax-Roma ..................... Arsenal-Valencia............... Staðan Arsenal 1 1 0 0 3-1 3 Valencia 1 0 1 0 1-1 1 Ajax 1 0 1 0 1-1 1 Roma 1 0 0 1 1-3 0 Arsenal spáir í Wembley Forsvarsmenn enska úrvalsdeild- arliðsins Arsenal eru nú að skoða möguleika á að kaupa sig inn í fyr- irtækið sem hyggst byggja nýjan Wembley og hætta við áform um byggingu nýs heimavallar félagsins. Áætlaður kostnaður við Wembley eru um 90 milljarðar króna, en áætl- un vegna byggingar nýja vallarins hjá Arsenal hljóðar upp á 35 millj- arða íslenskra króna. Það freistar Arsenal-manna að nýr Wembley er talsvert stærri en hinn nýi völlur Arsenal, en þeir eru minnugir þess tíma þegar liðið lék nokkra leiki í meistaradeildinni á gamla Wembley, en hann tók þá um 73 þúsund áhorfendur. -PS Stóru liðin til Bandaríkjanna Barcelona, Manchester United og Juventus halda öll til Bandaríkj- anna næsta sumar og leika þar þrjá leiki, en þetta er gert til að auka hróður knattspyrnunnar þar í landi. Þetta er í raun samstarfsverkefni Barcelona og atvinnumannadeildar- innar í Bandaríkjunum og leikur Barcelona þar þrjá leiki. Þeir tveir fyrstu verða við Man. Utd og Juventus, en eftir er að ákveða hverjir þriðju mótherjar Barcelona verða, en að öllum likindum verður það úrvalslið úr bandarísku deild- inni. -PS Hægur bati hjá Patreki Bati Patreks Jóhannessonar, sem leikur með þýska handknattleikslið- inu Essen, er hægur, en hann meiddist á dögunum á hné og hefur ekki verið með í þremur síðustu leikjum liðsins. Patrekur æfði lítil- lega með Essen í gær en næsti leik- ur liðsins er í bikarkeppninni ann- að kvöld og sagði Patrekur í samtali við DV alls óvíst hvort hann léki með. „Meiðsli af þessu tagi taka sinn tima en læknar liðsins segja mér að meiðslin séu ekki alvarleg. Ég er á batavegi en það verður að koma í ljós á morgun hvort ég er orðinn leikhæfur,“ sagði Patrekur. Þess má geta að Essen hefur ekki boðið Patreki nýjan samning en hann vill helst að sín mál verði komin á hreint fyrir áramótin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.